Morgunblaðið - 08.06.1991, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JUNI 1991
BYGGING félagslegra íbúða hefur aukist á síðustu árum á Akur-
eyri, en á árunum 1985-1990 var hafin bygging á 487 íbúðum í bæn-
um og voru þar af 223 félagslegar, eða 46% af heildinni. Þetta kom
fram í erindi Guðríðar Friðriksdóttur forstöðumanns Húsnæðisskrif-
stofunnar á Akureyri á ráðstefnu sem Bygginganefnd Akureyrar hélt
í gær um framkvæmd byggingareglugerðar.
Morgunblaðið/Rúnar Antonsson
Frá ráðstefnu um framkvæmd byggingareglugerðar.
Fram kom í erindi Guðríðar að
hlutur félagslegra íbúðabygginga
er mjög ráðandi þáttur í húsbygg-
ingum á Akureyri. Akvarðanir um
byggingar og hönnun slíkra íbúða
hafi því mikil áhrif á ásýnd bæjarins
og því sé mikilvægt að þeir sem
með þessi mál fara séu meðvitaðir
um þá ábyrgð. Nauðsynlegt sé að
náin samvinna sé á milli húsnæðis-,
skipuiags- og bygginganefndar í
sveitarfélaginu til að sem bestur
árangur náist.
Árni Ólafsson skipulagsstjóri
T. Skretting vill ekki viðræður um ístessmálið:
Norsku hluthafarnir halda upp-
sögn samstarfssamnings til streitu
Ákvörðun um framtíð ístess tekin á hluthafafundi í næstu viku
T. SKRETTING AS í Noregi, sem er hluthafi í ístess hf. sendi í gær
forráðamönnum félagsins bréf þar sem fram kemur að norsku hlutha-
farnir telja það engun\ tilgangi þjóna að efna til viðræðna um þá
ákvörðun sína að segja upp samstarfssamningi við Istess. Islensku
aðilarnir í stjórn ístess fóru fram á slíkar viðræður í kjölfar uppsagn-
ar samningsins. T. Skretting stofnaði eigið fyrirtækið til að annast
sölu á fóðri í Færeyjum, en um tveir þriðju hlutar framleiðslu Ist-
ess hafa verið seldir á Færeyjarmarkaði. í samningi milii félaganna
er ákvæði um að verði honum sagt upp, sé ístess óheimilt að fram-
leiða eða selja fiskfóður og aðrar fóðurvörur næstu þrjú ár á eftir.
T. Skretting er dótturfyrirtæki olíufélagsins BP Nutricium.
Stefánsson
Guðmundur Stefánsson fram-
kvæmastjóri ístess hf. sagði að
ákveðið yrði á hlutahafafundi sem
haldinn verður á Akureyri þann 12.
júní hvert framhaldið yrði. „Þetta
svar T. Skretting kemur mér í sjálfu
sér ekki á óvart, ég átti allt eins
von á að það yrði á þessa lund. Ég
er hins vegar nokkuð undrandi á
hversu langan tíma þetta hefur tek-
ið,“ sagði Guðmundur, en von var
á svari norsku hluthafanna á mið-
vikudag.
Rekstur ístess hefur verið og er
enn í fullum gangi og sagði Guð-
mundur að enginn skortur yrði á
fóðri að minnsta kosti fyrst um sinn.
Morgunblaðið/Rúnar Antonsson
Sumarsýning á Akureyri
Sumarsýningin ’91, var opnuð í íþróttahöllinni í gær. Um 50 aðilar
einkum á sviði iðnaðar taka þátt í sýningunni og kynna þar vörur
sínar og þjónustu. Sýningin verður opin um helgina frá kl. 10 til 22
en henni lýkur á sunnudag.
SUMARFRI
í HRÍSEY
4ra herb. íbúðtil leigu
með öllu, íviku í serm.
Upplýsingar í síma
96-61715 eftir
kl. 18.30.
Óformlega hefur verið rætt um að
stofna nýtt fyrirtæki um fóðurfram-
leiðsluna, en samkvæmt ákvæði í
samningi milli ístess og T. Skrett-
ing verður ístess óheimilt að fram-
leiða og selja fóður í þrjú ár eftir
uppsögn samningsins. Engar
ákvarðanir hafa verið teknar um
næstu skref, þ.e. hvort félagið verði
lýst gjaldþrota eða hvort um stofn-
un nýs fyrirtækis verður að ræða.
Ákvarðanir um framhaldið verða
teknar á hluthafafundinum í næstu
viku.
Fóðui'verksmiðja ístess var reist
árið 1987 og hefur árleg fram-
leiðsla verið um átta til níu þúsund
tonn. Samkvæmt samningi hafði
Istess einkarétt á að selja fóðurvör-
ur undir vörumerki T. Skretting á
íslandi og Færeyjum. Hlutafé í fyr-
irtækinu er um 200 milljónir króna,
en hlutafé var aukið á síðasta ári
og bættust þá Byggðastofnun og
Hraðfrystistöð Þórshafnar í hóp
hluthafa. Af þessu hlutafé ei'u enn
ógreiddar um 40 milljónir króna
sem sérstakt samkomulag var um
að T. Skretting greiddi.
Málefni ístess voru rædd á fundi
bæjarstjórnar í vikunni og gerði
Björn Jósef Arnviðarson sem sæti
á í stjórn ístess grein fyrir stöð-
unni. Hann sagði að mönnum hefði
þótt tímasetning á uppsögn samn-
ingsins koma á undarlegum tíma,
en nú stæði yfir besti tíminn í fram-
leiðslunni. Erfiðleikar í fiskeldi hafa
komið illa við fyrirtækið sem ekki
hefur fengið sína vöru greidda, það
ætti útistandandi kröfur eitthvað á
annað hundrað milljónir. Hagnaður
af reglulegri starfsemi síðasta árs
Tónleikar Mót-
ettukórsins
MÓTETTUKÓR Hallgrímskirkju
heldur tónleika í Akureyrar-
kirkju á morgun, sunnudag, kl.
17. Kórinn syngur einnig við
messu í kirkjunni um morguninn.
Á efnisskránni eru íslensk sálma-
lög við sálma Hallgríms Pétursson-
ar, mótettur eftir Bach og Hjálmar
H. Ragnarsson og messa fyrir tvo
kóra án undirleiks eftir Frank Mart-
in. Uwe Eschner leikur verk eftir
Martin og Bach á gítar á tónleikun-
um.
var um 32 milljónir króna og eigið
fé var jákvætt um rúmar 50 milljón-
ir í marslok á þessu ári og sala
fóðurs var umfram áætlanir.
Sigríður Stefánsdóttir forseti
bæjarstjórnar benti á fundinum á,
að við alþjóðlegan auðhring væri
að eiga. Bærinn væri tilbúinn að
taka á sig eitthvert tap, en þessir
aðilar ekki.
Akureyrarbæjar, sagði meðal ann-
ars, að við skipulagningu íbúða-
hverfa þyrfti að gæta hagsmuna
væntanlegra íbúa. Það viðhorf sem
menn hefðu til umhverfisins væri
mælikvarði á menningu okkar.
„Rýmið milli húsanna er mikilvægur
hluti af umgjörð um daglegt líf íbú-
anna, umhverfi barna og unglinga
sem eru að vaxa úr grasi og mótast
af því umhverfi eða menningu sem
fyrir þeim er höfð,“ sagði Arni.
Hann sagði að á undanförnum
áratugum hefði samhengið í rými
milli húsanna týnst, þetta samhengi
sem gerði eldri bæjarhluta að bæ
eða borg með sínum einkennum,
hefði þynnst út í bílastæðaflæmi,
afgirta leikvelli og opin svæði án
samhengis.
Á ráðstefnunni flutti Stefán
Thors skipulagsstjóri ríkisins erindi
um lög og reglugerðir, Jón Geir
Ágústsson byggingafulltrúi ræddi
um samskipti iðnaðar- og tækni-
manna og byggingafulltrúa, Guð-
mundur Gunnarsson verkfræðingur
Ijallaði um brunatæknilega hönnun.
Haraldur Sveinbjömsson verkfræð-
ingur ræddi um skyldur hönnuða
og Ingólfur Jónsson byggingameist-
ari um skyldur og ábyrgð verktaka,
en Valgarður Baldvinsson bæjarrit-
ari flutti erindi um reglugerðir um
gatnagerðargjöld á Akureyri og
starfsreglur um greiðslu þeirra.
Morgunblaðið/Hólmfríður
Sigrún Birna Óladóttir, sem stundað hefur nám í ferðamiðlun á
Hawaii, kom heim til Grímseyjar í vor, en hún ætlar að reka ferða-
þjónustu að Básum í sumar. Slík þjónusta er nýjung í eynni.
Bjartsýií á gott ferða-
mannasumar í Grímsey
- segir Sigrún Birna Oladóttir á Básum
Grímsey.
FERÐAMENN eru farnir að koma til Grímseyjar á þessu sumri, en
þeir hafa í auknum mæli heimsótt eyjuna og voru fjölmargir síðasta
sumar. Grímseyingar eru bjartsýnir á að svo verði einnig í sumar
og stendur þeim ferðamönnum sem hingað koma nú til boða aukin
þjónusta.
Sigrún Birna Óladóttir ætlar í
sumar að reka ferðamannaþjónustu
að Básum og hafa fyrstu gestirnir
þegar gist þar. Sú þjónusta sem
Sigrún Birna býður upp á er nýjung
hér í eyjunni. Að Básum eru sex
tveggja manna herbergi með upp-
búnum rúmum og þar er einnig
hægt að fá svefnpokapláss. Sigrún
Birna mun bjóða upp á morgun-,
hádegis- og kvöldmat óski gestir
þess og kvaðst hún ætla að leggja
áherslu á fiskrétti af ýmsu tagi. „Eg
ætla að reyna að vera með glænýjan
fisk af bátunum héðan,“ sagði hún.
Töluvert liggur þegar fyrir af
pöntunum fyrir sumarið og var Sig-
rún Birna bjartsýn á gott ferða-
mannasumar hér í eyjunni. „Fólk
hefur alltaf haft á því áhuga að
heimsækja Grímsey, en því miður
oft hörfað frá vegna þess að þjón-
ustu hefur skort. Ég vona að með
þessum rekstri verði eitthvað bætt
þar úr,“ sagði Sigrún Bírna, en hún
er Grímseyingur og stundar nám í
svonefndri ferðamiðlun á Hawai.
Kvenfélagskonur hafa undanfar-
in sumur selt svefnpokapláss í fé-
lagsheimilinu Múla og svo verður
einnig í sumar og selja þær veiting-
ar í félagsheimilinu. Þá má geta
þess að Bjarni Magnússon hrepp-
stjóri hefur veitt ferðamönnum leið-
sögn í gönguferðum um eyna.
- HSH
Ráðstefna um framkvæmd byggingareglugerðar:
------------------------------ !
Félagslegar íbúðir ráðandi
þáttur í húsbyggingum