Morgunblaðið - 08.06.1991, Blaðsíða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ 1991
FRJALSAR IÞROTTIR
Átján á IMM-mót
öldunga í Danmörku
Pancev Cantona
ÍÞRÓmR
FOLK
■ DARKO Pancev gerði sigur-
mark Rauðu Stjörnunnar frá
Belgrad er liðið sigraði Hajduk
Split í deildarleik á Júgóslavíu í
vikunni. Þetta var 31. deildarmark
Pancevs í vetur og þar með hefur
hann náð Tyrkjanum Tanju Colak,
sem var markahæstur í Evrópu.
„FYRIR sex árum sendum við
þrjá keppendurá Norðurlanda-
mót öldunga ífrjálsum íþrótt-
um. Nú förum við átján til
Glostrup í Danmörku," sagði
Ólafur Unnsteinsson, formað-
ur Öldungarráðs FRÍ. 800 öld-
ungar taka þátt í mótinu, sem
fer f ram 28. til 30. júní.
Fjórar konur keppa í Danmörku;
Lilja Guðmundsson, Hólmfríður
Erlingsdóttir, Árný Hreiðarsdóttir
og Sigurborg Guðmundsdóttir.
Fjórtán karlar keppa; Kristján
Gissurarson, Élías Sveinsson, Frið-
rik Þór Óskarsson, Jóhannes Ottós-
son, Trausti Sveinbjörnsson, Ólafur
Unnsteinsson, Björn Jóhannsson,
Jón H. Magnússon, Guðmundur
Hallgrímsson, Kristófer Jónasson,
Karl Torfason, Þórður B. Sigurðs-
son, Ólafur J. Þórðarson og Jóhann
Jónsson.
Þessir fijálsíþróttamenn verða á
ferðinni í dag á Kappamóti öldunga
í Laugardal. Keppt verður í
sleggjukasti og spjótkasti karla og
kvenna kl. 10 og kl. 13.30 hefst
keppni í landskeppnisgreinum.
Fimm á HM
Fimm keppendur fara til Turku
í Finnlandi 18. júlí, þar sem heims-
meistarakeppni öldunga fer fram.
Það eru Sigurborg Guðmundsdóttir,
Unnur Stefánsdóttir, Jón H. Magn-
ússon, Jóhann Jónsson og Ólafur
Unnsteinsson.
Jóhann á þar heimsmeistaratitil
að veija í þrístökki, 9.55 m, sem
hann vann 1989 í Bandaríkjunum.
Hann keppir í 70 ára flokki.
PRESSU
Svala
best
Svala Óskarsdóttir úr GR sigr-
aði með og án forgjafar á Di-
letto kvennamótinu sem fram fór í
Grafarholti um síðustu helgi. Alls
tóku 64 konur þátt í mótinu, sem
mun vera fjölmennasta kvennamót
sem haldið hefur verið hér á landi.
Margrét Guðjónsdóttir var næst
holu á 2. braut og fékk sérstök
verðiaun fyrir það.
Helstu úrslit:
Án forgjafar:
1. Svala Oskarsdóttir, GR..79
2. Karen Sævarsdóttir, GS.81
3. Jóhanna Ingólfsdóttir, GR.82
4. Ragnhildur Sigurðardóttir, GR82
Með forgjöf:
1. Svala Oskarsdóttir, GR.64
2. Margrét Guðjónsdóttir, GK.70
3. Jóhanna Ingólfsdóttir, GR.71
Vésteinn og
Sigurður í
sjötta sæti
Vésteinn Hafsteinsson, kringlu-
kastari, sem keppir í Moskvu
í dag, og Sigurður Einarsson, spjót-
kastari, tóku þátt í alþjóðlegu móti
í Sevilla á Spáni um sl. helgi. Þeir
höfnuðu báðir í sjötta sæti. Vésteinn
kastaði kringlunni 59,58 m, en sig-
urvegari var Ubartas frá Sovétríkj-
unum, sem kastaði 66,22 m. Sig-
urður kastaði spjótinu 76,48 m, en
sigurvegari var Tékkinn Zelenzy,
sem kastaði 87,32 m.
Einar Þór Einarsson keppti ekki
í spretthlaupi, þar sem hann var
veikur.
■ TVEIR leikir eru eftir í júgó-
slavnesku deildinni en keppni er
lokið í Tyrklandi, þannig að Panc-
ev á mikla möguleika á að hirða
gullskóinn í ár. Meistaratitillinn er
í höfn hjá Rauðu Stjörnunni og
nú er aðeins hugsað um að Pancev
verði markahæstur í Evrópu. Hann
er hafður einn í framlínunni til að
auka líkurnar á því að aðeins hann
skori!
■ FRANSKA fyrstu deildarliðið
Cannes hefur keypt Francois
Omam-B.iyik frá Rennes fyrir and-
virði rúmlega 40 milljóna ÍSK.
Omam Biyik, sem gerði þriggja
ára samning við Cannes, var einn
besti maður landsliðs Kamerún í
HM á Ítalíu í fyrra.
U RADOMIR Antic verður áfram
þjálfari knattspyrnuliðs spænska
stórveldisins Real Madrid, en hann
tók við starfmu tímabundið sl. vet-
ur. Eftir að Real sigraði erkifjend-
uma í Atletico 3:0 á útivelli um
síðustu helgi lýstu nokkrir leik-
manna liðsins opinberlega stuðn-
ingni við það að Antic, sem er Júgó-
slavi, héldi starfmu, m.a. Michel
Gonzalez og Emilio Butragueno.
■ ERIC Cantona, annar fram-
heija franska landsliðsins í knatt-
spyrnu, hefur verið seldur frá Mar-
seille til Nimes, sem komst upp í
1. deild í vor, á 10 milljónir franka.
Það jafngildir rúmlega 100 millj.
ÍSK. Cantona hefur ekki komist í
lið Marseille undanfarið og gerði
þriggja ára samning við nýliðana.
Margrét Guðjónsdóttir og Svala Óskarsdóttir. Svala sigraði og
Margrét fór næst holu á 2. braut.
Kvennahlaup
FJÓRÐA GREIIM
að hefur sýnt sig að fleiri kon-
ur bætast í hópinn á 5 km leið-
inni, sem æfð er í Garðabæ kl. 11
á laugardögum en á styttri leiðinni
sem er 2 km. Má af því ráða að
með auknum æfingum er stefnt
hærra í að bæta heilsu, styrk og þol.
Markmið eru nauðsynleg í allri
þjálfun og hvatning felst í því að
ná þeim smátt og smátt. Engu að
síður er ástæða fyrir óvanar að
fara að drífa sig því aðeins tvær
vikur eru til stefnu. Útiveran og
hreyfingin skapa vellíðan sem enga
svíkur. Enga konu hef ég hitt sem
hefur orðið fyrir vonbrigðum með
því að breyta lífstíl sínum með auk-
inni hreyfingu og útivist. Alla’r kon-
ur ættu að hvetja vinkonur, dætur,
mæður og frænkur til að vera með.
Fyrirtæki og félagasamtök ættu að
hvetja starfsfólk og meðlimi, jafn-
vel auðkenna sig á einhvern hátt
og skapa skemmtilegt andrúmsloft
á hlaupadaginn. Mikilvægt er að
þátttaka sé tilkynnt svo skipulag
geti orðið sem best. Eins og t.d.
bolir, viðurkenningar og veitingar
þurfa að miðast við ákveðinn fjölda
þátttakenda.
Markmið upphitunar
Áður hefur örlítið verið minnst á
upphitun en lítið tíundað mikilvægi
hennar. Líkaminn þarf að aðlagast
því að skipta yfir úr hvíld eða lítilli
hreyfingu í einhveijar athafnir.
Upphitun er sá undirbúningstími
sem líkaminn þarf, en allt of oft
er þessi mikilvægi þáttur illa undir-
búinn. Markviss upphitun skiptir
miklu máli og framhaldið ber keim
af því. Líkamleg áhrif: Súrefnisupp-
taka gengur greiðar, vöðvar fá auk-
ið blóðstreymi, liðbönd og btjósk
þola aukið álag, líkamshiti hækkar.
Andleg áhrif: Hugsanleg spenna
slaknar, einbeiting skerpist (aukið
blóðstreymi til höfuðs) hvatning til
áframhaldandi átaka. Lengd upp-
hitunar hveiju sinni fer eftir því sem
á eftir kemur.
Munið að hvetja allar konur til
þátttöku þann 22. júní.
Kvennahlaup um land allt.
Lovísa Einarsdóttir.
Aðalfundur
handknattleiksdeildar Hauka
verður haldinn laugardaginn 15. júní kl. 10.00 í félagsheim-
ili Hauka við Flatahraun.
Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin.
GOLF
FRJALSAR
SST'*' FH - IBV
í dag á Kaplakrikavelli kl. 14
KARFA
Jón Kr. fer
til Banda-
Hkjanna
Jón Kr. Gíslason, þjáifari úr-
valsdeildarliðs Keflavíkur,
mun fara fljótlega til Banda-
ríkjanna, þar sem hann mun
fylgjast með leikmönnum, sem
hafa áhuga að leika á íslandi.
„Það er betra að ég fari út til
að velja leikmann sem hentar
okkur, heldur en að fá leikmann
í gegnum umboðsskrifstofu,“
sagði Jón Kr., sem mun fara á
nokkra staði til að skoða leik-
menn.
Nökkvi Jónsson, sem var í
háskóla f Bandaríkjunum sl. vet-
ur, mun leika með Keflavíkurlið-
inu næsta vetur og einnig Brynj-
ar Harðarson, sem lék með Snæ-
felli. Guðjón Skúlason verður
áfram í Bandaríkjunum og þá
eru miklar líkur á að Falur Harð-
arson fari tii náms í Banda-
ríkjunum og leiki körfuknattleik
þar. Ef að því verður eru miklar
líkur á að Einar Einarsson, sem
lék með Tindastóli, snúi aftur
til Keflavíkur, en hann er bak-
vörður eins og Falur.
Iþróttir
helgarinnar
Knattspyrna
1. deild karla:
LAUGARDAGUR kl.
Garðsvöllur, Víðir - UBK.............14
Kaplakrikavöllur, FH - ÍBV...........14
SUNNUDAGUR
Akureyrarv., KA - Stjaman............20
Víkingsvöllur, Vfldngur - KR.........20
MÁNUDAGUR
Laugardalsv., Fram - Valur...........20
1. deild kvenna:
LAUGARDAGUR
Akranesvöllur, ÍA - Þór..............14
Vestm.eyjar, Týr -KR.................14
SUNNUDAGUR
Valsvöllur, Valur - Þór..............14
Neskaupsstaðarv., ÞrótturN. - UBK....15
Mjólkurbikarinn - 2. umferð:
LAUGARDAGUR
Haukar - Grótta..............!.......14
Vflcveqi - ÞrótturR..................14
Stokkseyri - ÍK......................12
Bolungarvík - Fýlkir.................14
Kormákur - Leiftur...................14
KS-ÞórAk.............................14
Reynir Á. - TindastóU................14
MANUDAGUR
ÍBK - Grindavík......................20
2. deild kveiuia:
LAUGARDAGUR
Sandgerðisv., Reynir - Stjaman.......14
Varmárv., Afturelding - Ægir.........14
Stokkseyrarv., Stokkseyri - Haukar...14
Vopnarfjarðarv., Einheiji - Austii E.16
Homaíjarðarv., Sindri - Súlan........16
4. deild karla:
LAUGARDAGUR
HomaQarðarv., Sindri - KSH...........14
Vopnafjarðarv., Einheiji - Austri E..14
Frjálsar íþróttir
Meistaramót íslands í fijálsíþróttum utan-
húss, fyrri hluti, fer fram á VarmárveUi í Mos-
fellsbæ í dag og á moigun. Keppt verður í
tugþraut karla og sjöþraut kvenna, 5.000 m
hlaupi kvenna, 10.000 m hlaupi karia, 3 X 800
m boðhlaupi kvenna og 4 X 800 og 4 X 1.500
m boðhlaupi karla. Keppni hefet kl. 14 báða
dagana.
Kappamót öldunga verður i LaugardaJ i dag.
Keppt verður í sleggjukasti og spjótkasti karla
og kvenna kl. 10 og kl. 13.30 hefst keppni í
landskeppnisgreinum.
. Krabbameinshlaup FRI og Krabbameinsfé-
lags Islands hefst kl. 12 í dag. Nánar er greint
frá hlaupinu á bls. 18.
Golf
Þriðja mótið sem gefur stig til landsins, Olís-
Texaco mótið, verður haldið í Grafarholti í dag
og á morgun.
Opið kvennamót, Clarins-mótið, fer fram á
golvellinum í Grindavík í dag, laugardag. Leikn-
ar verða 18 holur með og án forgjafar. Mótið
hefst kl. 10.
Opið kvennamót, Wella, verður á golfvellinum
á Hvaleyri f Hafnarfírði á sunnudaginn. Keppt
verður með og án forgjafar. Ræst verður út
kl. 10.
Fjallahjólakeppni
Ijallahjólakeppni verður haldin í dag á vegum
íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavlkur og
Fjallaþjólaklúbbs íslands. Keppnin hefst kl.
14.30 og verður keppt i þremur aldursflokkum;
12 ára og yngri, 13-15 ára og 16 ára og eldri,
og verður lengd brautanna 3, 13 og 36 km.
Keppnin er ein af þremur sem gefa stig til
íslandsmeistaratitils en hinar verða 29. júní og
27. júlí. Keppnin hefst við veiðihús SVFR á
Elliðárósum og verður hjólað um Elliðárdalinn
og Heiðmörkina. Samkvæmt fyrri reynslu má
búast við að keppendur verði um eitt hundrað.