Morgunblaðið - 26.06.1991, Síða 4

Morgunblaðið - 26.06.1991, Síða 4
 MÓRGUNBLAÐIÐ ' MIÐYIKUDAGUR ;26. ÍÖNÍ 1991 Mikil leit í kjölfar mis- heppnaðs ástarævintýris Vík, Mýrdal. STORF lögreglumanna eru yfir- leitt ekki tíunduð í fjölmiðlum enda bundnir þagnarskyldu. Þó geta atvikin og atburðarásin orð- ið þannig að ekki verður við ráð- ið. Eitt slíkt gerðist í gær þegar til- kynnt var í fjölmiðlum að leit væri að hefjast að ítölskum ferðamanni í Skaftafelli. Lögreglumaður í Vík heyrði fréttina og þar sem hann grunaði að hann hefði haft afskipti af þessum manni á tjaldsvæði Víkur og ekið honum áleiðis til Reykjavík- ur var farið að kanna málið og reyndist þar um sama manninn að ræða. En fjölmiðlamenn voru ekki ánægðir og vildu fá svör við hvem- ig stæði á því að ferðamaður sem verið væri að leita að austur í Skaftafelli væri kominn til Reykjavíkur í hendunítlendingaeft- irlitsins. Þar með var „kominn kött- ur í ból bjarnar" og mál sem átti að leysa í kyrrþey kom í hádegis- fréttum útvarps og víðar. Forsaga þessa máls var að á sunnudag bað útlensk stúlka, ferða- maður í Vík, um aðstoð lögreglu verna erlends ferðamanns sem hún sagði að legði sig í einelti. Þau höfðu bæði komið til landsins með Norrænu á sama tíma og hefði þessi maður fylgt stúlkunni síðan og aldr- ei sleppt henni úr augsýn. Stúlkan var búin að ferðast þannig langleið- ina umhverfis landið að hennar sögn og búin að fá nóg af eftirförinni. Lögreglan gat hinsvegar ekki sagt við piltinn að honum væri ekki leyfilegt að ferðast með sömu rútu eða hafa sömu áætlun og stúlkan. Var því samin herr.aðaráætlun í samvinnu við stúlkuna sem var þannig að stúlkan hélt áfram för sinni (í fylgd mannsins) áleiðis með rútu austur í Skaftafell. Á miðjum Mýrdalssandi stöðvaði lögreglan rútuna og spurði eftir umræddri stúlku og tilkynnti henni að vegna veikinda heima fyrir þyrfti hún að yfírgefa rútuna og fara heim flug- leiðis. Stúlkan fór síðan með lögregl- unni til Víkur og hugðist taka það- an rútuna daginn eftir austur, en pilturinn fór áfram austur að Skaftafelli og gisti þar um nóttina. Piltinn hefur hinsvegar grunað að brögð væru í tafli því að hann tók sér far á puttanum í gærmorgun til Víkur aftur óvænt og án þess að hafa með sér farangur sinn og sat fyrir utan tjald stúlkunnar í Vík þegar hún vaknaði. Þar sem séð væri að pilturinn ætlaði sér að fylgja stúlkunni án hennar vilja, var ákveðið að færa hann suður til Reykjavíkur til yfirheyrslu og gefa stúlkunni tækifæri á að ljúka ferð sinni umhverfis landið án samfylgd- ar þessa pilts. Vegna misskilnings höfðu ekki verið gerðar ráðstafanir vegna far- angurs ferðamannsins sem hann hafði skilið eftir austur í Skafta- felli og varð það til þess að opin- bera þetta mál. — R.R. VEÐUR VEÐURHORFUR I DAG, 26. JUNI YFIRLIT: Um 600 km suður af landinu er alivíðáttumikil 996 mb lægð, sem þokast austur en yfir Grænlandshafi og íslandi er 1.010 mb hæðarhryggur. Hiti breytist lítið. SPÁ: Norðvestangola og hægviðri á landinu. Sumstaðar léttskýjað suðaustanlands, en annars staðar skýjað, en úrkomulaust. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á FIMMTUDAG: Fremur hæg norðvestanátt. Lítilsháttar þokusúld á annesjum norðanlands en bjartvirði sunnan- og suðaust- anlands. Hiti 7 til 15 stig. HORFUR Á FÖSTUDAG: Suðvestan gola eða kaldi, smá súld suð- vestan og vestanlands en þurrt og bjart norðan og austan. Hiti 6 til 12 stig. Svarsfmi Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 990600. x Norðan, 4 vindstig: ' Vindörln sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / / / / / / / Rigning / / / * / * / * / * Slydda / * / * # # * * * * Snjókoma 10 HKastig: 10 gráður á Celslus y Skúrir V éi = Þoka = Þokumóða ’ , ’ Súld OO Mistur —(- Skafrenningur [T Þrumuveður VEÐUR VIÐA UM HEII\ kl. 12:00 i gær að ísl. tírm hiti veður Akureyri S alskýjað Reykjavík 11 alskýjað Bergen 13 skýjað Helsinki 17 rigníng Kaupmannahöfn 15 skýjað Narssarssuaq 12 léttskýjað Nuuk 3 þokaígrennd Ósló 19 léttskýjað Stokkhólmur 18 léttskýjað Þórshöfn 11 alskýjað Algarve 31 heiðskírt Amsterdam 17 þokumóða Barcelona 25 heiðskfrt Berlín 21 skýjað Chicago 19 iéttskýjað Feneyjar 30 heiðskírt Frankfurt 22 skýjað Glasgow 15 rignlng Hamborg 18 alskýjað London 18 rigning og suld Los Angeles 16 léttskýjað Lúxemborg 20 skýjað Madríd 34 léttskýjað Malaga 26 heiðskfrt Mallorca 28 heiðskírt Montreal vantar NewYork 23 skýjað Orlando 24 skýjað París 20 alskýjað Madeira 22 léttskýjað Róm 25 léttskýjað Vfn 20 skúr á síð.klst. Washington 20 léttskýjað Winnipeg 19 alskýjað Morgunblaðið/Júlíus Gönguleið opnuð um Vallarstræti Gönguleið hefur verið opnuð um Vallarstræti yfír á Austurvöll. Að sögn Hjörleifs ICvaran, framkvæmdastjóra lögfræði- og stjómsýslu- deildar Reykjavíkurborgar, hefur ekki verið gengið endanlega frá samningum við eigendur Austurstrætis 6, en þegar byggingarnefnd borgarinnar héfur samþykkt nauðsynlegar breytingar, verða skúrar í götunni rifnir og endanlega gengið frá henni. Rétt er að taka fram að Vallarstræti er og verður göngugata. Strokufanginn laus í 10 daga: TaJinn leynast úti á landi STROKUFANGINN sem enn gengur laus er talinn leynast úti á landi. Hann er 18 ára gamall og hafði hlotið dóm fyrir auðgunaraf- brot, þ.e. skjalafals. Lögreglan telur nokkuð víst að hann hafi ekki komist úr landi. Hann átti ekki eftir að sitja langan tíma af sér en ljóst er að hann hlýtur fangelsisdóm fyrir strokið, að sögn lögreglu. Talið er að hann hafí verið í vitorði með hinum fímm strokuföngunum í afbrotum sem þeir eru grunaðir um að hafa framið meðan þeir gengu lausir, þar á meðal rán og innbrot. Þeir struku úr Hegningar- húsinu á Skólavörðustíg að kvöldi 15. júní síðastliðins.'Ekki er talið að hann hafí breytt útliti sínu þann tíma sem hann hefur gengið laus. Hann hefur nú gengið laus í tíu daga en að sögn lögreglu eru þess dæmi að strokufangar hafí náð að leynast lengur. Hlutaðeigandi aðilar hafa veitt samþykki sitt fyrir nafn- og myndbirtingu. Afieiðing þurrkanna: Anamaðkalaust á höfuðborgarsvæðinu ÞURRKURINN að undanförnu hefur gert það að verkum að laxveiðimenn fá hvergi keypta ánamaðka á höfuðborgarsvæð- inu. Morgunblaðið hringdi á tíu staði í gær og voru menn á einu máli að maðkur fengis hvergi keyptur. I þurrkunum undanfarið hafa flestir maðkatínslumenn ekki get- að tínt ánamaðka og þeir fáu maðkar sem á markaðinn hafa komið eru seldir á uppsprengdu verði. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins munu maðkar hafa verið seldir á 50-70 krónur stykkið. Á undanförnu hafa silungs- maðkar verið seldir á 18 krónur en laxamaðkar á 25. Borgarráð: Borgin kaupir íbúð og vinnustofu BORGARRÁÐ hefur samþykkt að kaupa eina íbúð og vinnu- stofu ætlaða listamanni í listam- iðstöð Tryggva Árnasonar við Engjateig. Að sögn Hjörleifs Kvaran fram- kvæmdastjóra lögfræði- og stjórn- sýsludeildar, er kaupverðið 13,5 milljónir króna fyrir íbúðina og vinnustofuna tilbúna undir tré- verk. 'Gert er ráð fyrir að eignin yerði afhent um mitt næsta ár.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.