Morgunblaðið - 26.06.1991, Síða 21
21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 1991
Víkingaskipið Gaia leggur úr höfn í Reykjavík
Morgunblaðið/Júlíus
Gaia siglir til Grænlands
Víkingaskipið Gaia hélt úr
höfn í Reykjavík í gær og sigldi
áleiðis til Nuuk í Grænlandi.
Aætlað er að siglingin þangað
taki átján daga og mun áhöfn
skipsins dvelja í Nuuk frá 12. til
20. júlí nk. Frá Grænlandi mun
skipið halda til Nýfundnalands.
Áætlað er að skipið komi til
L’Anse-aux-Meadows í Nýfundna-
landi þann 2. águst nk. en færi sig
á milli borga þann 5. og haldi til
hafnar í St. John’s.
Þann 17. ágúst mun skipið
leggja af stað í ellefu daga siglingu
til Nova Scotia, fylkis í Suðaustur-
hluta Kanada og taka höfn i höfuð-
borg þess Halifax þann 28. ágúst.
Þann 3. september mun skipið
halda áleiðis til Bandaríkjanna og
koma til Boston í Massachusetts
þann 11. þess mánaðar. Þann 17.
september verður svo siglt til
Rhode Island í Newport.
í lok september heldur Gaia til
New York en áætlað er að siglingu
víkingaskipsins vestur um haf ljúki
þann 9. október nk. þegar skipið
leggst við bryggju í Washington,
höfuborg Bandaríkjanna.
Holiustuvernd og Vinnueftirlitið:
Allar vörur með
hættulegum efnum
skal merkja frá 1. júlí
Fræðslumynd í Sjónvarpinu á fimmtudag
ALLAR skaðlegar efnavörur
sem seldar ei’u hér á landi á að
merkja á íslensku frá og með
1. júli næstkomandi. Þá ganga
í gildi þau ákvæði um merkingu
efna, sem kveðið er á um í
„Reglugerð um flokkun, merk-
ingu og meðferð eiturefna,
hættulegra efna og vörutegunda
sem innihalda slík efni,“ en
reglugerðin siálf tók gildi í fe-
brúar 1990.
Hollustuvernd ríkisins og Vinnu-
eftirlit ríkisins sjá um að fræða og
leiðbeina um ákvæði reglugerðar-
innar. Sent hefur verið út kynning-
arefni á vinnustaði og næstkomandi
fimmtudag 27. júní verður sýnd
fræðslumynd. í Sjónvarpinu um
þessi efni.
Þessi reglugerð kemur í stað
reglna sem áður giltu um þetta efni
og felur í sér aðlögun að því merk-
ingakerfi sem notað er innan Evr-
ópubandalagsins.
Gerð er krafa um að á merlpmiða
eða umbúðum varasamrar efnavöru
séu ákveðin varnaðarmerki sem
lýsa því hvernig hún er flokkuð.
Eiturefni falla í tvo flokka og öðrum
hættulegum efnum er skipt í sjö
flokka. Auk notkunarreglna og
annarra nauðsynlegra upplýsinga
skal koma fram nafn og heimilis-
fang innlends framleiðanda eða inn-
flytjanda/umboðsaðila vörunnar.
Geta skal um hvaða eiturefni eða
hættuleg efni eru í vörunni, en ekki
er skylt að tilgreina magn þeirra.
Reglugerðin gildir um efnavörur
á almennum markaði og ákvæði
hennar um flokkun og merkingu
gilda líka á vinnustöðum. Ábyrgð á
að efnavara sé merkt í samræmi
við ákvæði reglugerðarinnar hvílir
á framleiðendum og innflytjendum.
Að auki er óheimilt að selja van-
merkta vöru.
Deild geðsjúkra
afbrotamanna;
Enn leitað
að húsnæði
PÁLL Sigurðsson ráðuneytisstjóri
í heilbrigðis- og ti-yggingamála-
ráðuneytinu segir að enn hafi ekki
verið tekin nein ákvörðun um hvar
deild sú fyrir geðsjúka afbrota-
menn, sem unnið er að því að
koma á laggirnar, verði staðsett.
Að sögn Páls er einkum leitað að
húsnæði fyrir deildina í nánd við
Reykjavík þó að svæðið í kringum
Akureyri komi einnig til greina.
Áætlað er við að deildin geti tekið á
móti 6 til 7 vistmönnum í einu. Mið-
að við núverandi ástand ætti deild
af þessari stærð að fullnægja þörf-
inni fyrir þessa þjónustu. Deildin á
í senn að sjá um gæslu vistmanna
og meðferð þeirra. Páll segir að stað-
aivalið hljóti því að miðast við það
að deildin þurfi ekki að sækja nauð-
synlega sérfræðiþjónustu um langan
veg.
Páll kveðst ekki geta sagt um
hvenær endanleg ákvörðun verði tek-
in um húsnæði fyrir deildina.
Morgunblaðið/Þorkell
Sverx-ir Sveinsson, forsljóri Héðins hf., afhendir Huldu Valtýsdótt-
ur, fox-manni Skógræktarfélags Islands, gjöfina
Milljón g’efin í tilefni
milljón seldra hitasdlla
UM þessar mundir eru 40 ár lið-
in frá því að Héðinn hf. hóf inn-
flutning á Danfosshitastillum og
öðrum hitatæknivörum frá
danska fyrirtækinu Danfoss A/S.
Á þessu tímabili hefur fyrirtækið
selt eina milljón hitastilla, sem
lætur nærri að vera fjórir Dan-
foss kranar á hvern íslending. í
tilefni þessara tímamóta gáfu
Héðinn og Danfoss Skógræktar-
félagi íslands eina milljón króna
til eflingar uppgræðsluátaki
landsmanna. Hulda Valtýsdóttir,
formaður Skógræktarfélags Is-
lands, tók við gjöfinni fyrir hönd
þess.
Sverrir Sveinsson, forstjóri Héð-
ins hf., afhenti Skógræktarfélaginu
gjöfina sl. mánudag við athöfn í
Perlu Hitaveitu Reykjavíkur á
Öskjuhlíð. Bent Skjerning, forstjóri
hita- og kerfisstýringadeildar Dan-
foss, var viðstaddur afhendinguna.
Danfoss A/S hefur verksmiðju
og höfustöðvar sínar á Suður-Jót-
landi, en starfrækir auk þess verk-
smiðjur í mörgum löndum í þremur
heimsálfum. Starfsmannafjöldi fyr-
irtækisins er 14.000 manns.
LRCA
Söngnám-
skeið Agústu
Agústsdóttur
FYRRI hluta júlímánaðar verður
haldið söngnámskeið í Önundar-
firði. Kennari er Ágústa Ágústs-
dóttir í Holti.
Námskeiðið stendur yfir í viku-
tíma og lýkut' með tónleikum nem-
enda. Upplýsingar veitir Ágústa
Ágústsdóttir, Holti í Önundarfirði.
Brottför 1 6. júlí
ististaður Lagoon Center íbúó m/einu svefnherbergi
Staðgreiðsluveró
4 ííbúð kr. 29.800,-
3 í íbúð kr. 31.900,-
2 í íbúð kr. 33.800,-
ir Crípió tækiiærió!
FLUGLEIÐIR
f (R D fl H ID S1H 01H
.-T' 4.4
iér. e
AUSTURSTRÆTI17, SIMI: (91)622011 & 622200