Morgunblaðið - 26.06.1991, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 26.06.1991, Qupperneq 22
22 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 1991 Alsír: * Atök öryggissveita og ofsatrúarmanna Mannfjöldanum dreift með táragasi Algeirsborg. Reuter. HÚNDRUÐIR ungra öfgatrúarmanna börðust í gær við öryggissveit- ir lögreglu í úthverfinu Bab El-Oued í Algeirsborg, en þar eru bók- stafstrúarmenn afar fjölmennir. Að sögn útvarpsins í Alsír særðust margir í skotbardaga í gærmorgun en ekki er vitað til þess að mannfall hafi orðið. Atökin stóðu yfir í fimm klukkustundir og beittu öryggissveitirnar m.a. táragasi til að dreifa mannfjöldanum. Átökin í gær eru þau hörðustu síðan Chadli Benjedid, forseti lands- ins, lýsti yfir neyðarástandi þar fyr- ir um þrem vikum. Sjónarvottar sögðu að lögreglan hafi sprengt ijölda táragassprengja og skotið úr byssum í loftið til að dreifa óróa- seggjunum sem voru úr röðum Islömsku frelsishreyfingarinnar „Andrúmsloftið er svipað og þeg- ar atburðirnir árið 1988 gerðust,“ sagði alsírskur útvarpsmaður og átti þá við uppreisn þar sem opinberar tölur herma að 159 manns hafi látið lífið, en aðrir halda því fram að alit að 500 manns hafi fallið. Herlögum aflétt í Kúveit A Samkomulag um að Irakar greiði þriðjung olíutekna í stríðsskaðabætur (FIS). Upptök átakanna voirn þau að ofsatrúarmenn reyndu að stöðva lög- reglu þar sem hún var að íjarlægja íslmömsk merki af opinberum bygg- ingum sem FIS hafði stjórnað síðan í sveitastjórnarkosningum á síðasta ári. Minniháttar róstur brutust út í fleiri úthverfum og einnig í hafnar- borginni Zeralda, sem er um 25 km frá höfuðborginni. Með þessu bijóta rósturseggirnir gegn útgöngubanni sem er í gildi og einnig gegn banni við fjöldasamkomum og mótmælum. Kúveit, New York. Reuter. GHAZI Obeid al-Sanimar, dóms- málaráðherra Kúveits, sagði í gær að herlögum, sem sett voru eftir frelsun landsins úr klóni innrásarhers íraka, yrði aflétt í dag. Sagði hann að málum manna sem grunaðir væru um samsæri með innrásarliðinu yrði skotið til borgaralegra dómstóla. Hafa 29 slikir verið dæmdir til dauða en dómur er ekki genginn í máli rúmlega 200 manna. Yfirvöld í Kúveitborg skýrðu frá því í fyrradag að takmarkaður árangur hefði orðið af tilskipun og áskorunum til landsmanna um að afhenda vopn sem þeir hefðu komist yfir í stríðslok. Enn lékju vopnaðir menn lausum hala í borginni og kvæðu skothvellir við á kvöldin. Ótt- ast væri að ofbeldi myndi ekki linna í bráð vegna gífurlegrar spennu milli Kúveita annars vegar og 200.000 Palestínumanna og annarra útlendinga í Kúveit hins vegar. Á mánudag höfðu blöð í Kúveit það eftir embættismönnum að fangelsi landsins væra að fyllast af ungum delinkventum og þeim fjölgaði stöð- ugt sem kæmu á slysavarðstofur með skotsár. Gert er ráð fyrir því að öryggisráð Sameinuðu þjóðanna greiði atkvæði síðar í vikunni um nýja ályktun varð- andi stríðsskaðabætur sem írökum verði gert að greiða vegna innrásar- innar í Kúveit. Gert er ráð fyrir að greiðslurnar muni nema allt að 60 milljörðum dollara, jafnvirði 3.600 milljarða ÍSK. Búist er við að sam- komulag takist um að írakar verði að borga 30% af olíutekjum sínum í bætur. Bandaríkjamenn kröfðust þess að hlutfallið yrði 50% en fengu engan stuðning við það. Gert er ráð fyrir að Sihanouk myndi þjóðstjórn, Æðsta þjóðarráð Kambódíu, í samræmi við friðará- ætlun Sameinuðu þjóðanna (SÞ). Verulegur árangur náðist í gær í friðarviðræðum, sem nú eiga sér stað í Tælandi milli stríðandi fylk- inga í Kambódíu. Rauðu khmer- arnir, stærsta skæruliðahreyfmg- in, gaf eftir og féllst á að þjóðar- ráðið hefði höfuðstöðvar sínar í Samkvæmt samþykkt öryggis- ráðsins frá 3. apríi verður Irökum óheimilt að helja útflutning á olíu þar til þeir hafa eyðilagt gerðeyðing- aivopn sín. Phnom Penh. Fylkingin hafði kraf- ist þess að aðsetur stjórnarinnar yrði utan borgarinnar, á yfirráða- svæði sinu. Einnig létu fulltrúar núverandi valdhafa af fyrri afstöðu sinni og féllust á að sveitir SÞ fylgdust með því að bann við vopnaflutningi til landsins yrði haldið og með fram- gangi vopnahlés, sem deiluaðilar náðu sáttum um í fyrradag. Reuter Heimildamynd um IRA Mynd þessi, sem tekin var í síðasta mánuði og sýnir foringja í írska lýð- veldishernum (IRA) kynna sprengjuvörpu af sömu gerð og notuð var í tilræðinu við forsætisráðherra Bretlands, birtist í heimildamynd sem franska sjónvarpsstöðin TFl gerði um IRA og sýndur var í fyrrakvöld. A myndinni stendur: „í tilræðinu við Downingstræti voru notuð 22 kg af Semtex,“ en það er afar öflugt sprengiefni. Viðræður um frið í Kambódíu: Sihanouk á förum til Phnom Penh Pattaya. Reuter. SIHANOUK prins, fyrrum þjóðarleiðtogi Kambódíu, sagðist í gær myndu fara til Phnom Penh I ágúst til að mynda það sem hann kallaði „ofurstjórn" er yrði æðri núverandi stjórn landsins og sam- tökum þriggja skæruliðahreyfinga sem átt hefur í hernaði gegn henni. ■ BRUSSEL - Jacques Del- ors, forseti framkvæmdastjórnar Evrópubandalagsins (EB), hefur lýst því yfir að hann sækist ekki eftir endurráðn- ingu í embætti þegar núverandi starfstímabili hans lýkur í lok ársins 1992. Nánir samstarfs- menn Delors, sem er franskur sósíalisti, höfðu gefið í skyn að hann myndi hugsanlega starfa tjl ársloka 1994 en hann hefur gegnt embættinu frá 1984. Líkegt er talið að hann bjóði sig fram til forsetaembættis í Frakklandi árið 1995 og áframhaldandi starf fyrir EB myndi halda honum í sviðsljós- inu fram að þeim tíma. Heimildar- menn segja að Delor hafi gert það ljóst á fundi nýverið að hann hafi ekki áhuga á áframhaldandi starfi. Jacques Delors ■ HAMBORG - Þýska tímaritið Stern greindi frá því í hefti sem út kom á þriðjudag að Líbýumenn hefðu komið fyrir sprengju þeirri er grandaði flugvél bandaríska flugfélagsins Pan Am yfir skoska bænum Lockerbie í desember árið 1988 og með henni 270 manns. Grein tímaritsins er í mótsögn við fyrri grunsemdir um að Palestínu- menn hafi komið sprengjunni fyrir að undirlagi írana til að hefna fyrir það þegar írönsk farþegaflug- vél var skotin niður yfir Persaflóa af bandarísku herskipi í júlí 1988. Að sögn Stern eru til ná- kvæmar skýrslur um sprenginguna og hver stóð á bak við hana hjá þeim sem rannsökuðu hana en það voru þýskir, breskir og bandarískir lögreglu- og leyniþjónustumenn. Þá segir að niðurstöður rann- sóknarinnar hafí verið tíundaðar í skjölum austur-þýsku öryggislög- reglunnar fyrrverandi, Stasi. ■ MOSKVU - Borgarráð Len- íngrad samþykkti í gær formlega tillögu þess efnis að taka upp gamla nafn borgarinnar, St. Pét- ursborg og fór fram á það við rússneska þingið að það sam- þykkti breytinguna svo hún verði lögleg. Fréttamenn á staðnum sögðu að tillagan hefði verið sam- þykkt með 205 atkvæðum á móti 47. 12. júní sl. fór fram atkvæða- greiðsla meðal borgarbúa þar sem 54% þeirra er greiddu atkvæði voru hlynntir því að nafninu yrði breytt í St. Pétursborg. ■ LONDON - Utanríkisráð- herra írans, Ali Akbar Velayati, hitti breska embættismenn að máli á þriðjudag til að ræða sam- vinnu sem gæti leitt til lausnar gísla sem haldið er í Mið-Austur- löndum. Breskur talsmaður sagði að Velayati hefði ekki einungis rætt um lausn 12 vestrænna gísla — sex Bandaríkjamanna, þriggja Breta, tveggja Þjóðveija og eins ítala, sem talið er að séu í haldi í Iran hjá hópum hliðhollum Irönum — heldur einnig Líbana og Palest- ínumanna sem eru i fangelsi í Israel. ■ KA UPMANNAHÖFN - For- sætisráðherra Danmerkur, Poul Schluter, hefur sett met — hann hefur setið lengst allra danskra forsætisráðherra síðan í síðari heimsstyijöldinni. Hann hefur ver- ið forsætisráðherra síðan 10. sept- ember 1982. Anker Jorgensen átti gamla metið. Hann var forsæt- isráðherra frá 5. október 1972 til 19. desember 1973 og síðan aftur frá 13. febrúar 1975 þar ti! stjórn- arskipti urðu árið 1982 og Poul Schluter tók við. ■ BERLÍN - Þýska sjónvarps- stöðin Sudwestfunk sýndi á þriðju- dag heimildarmynd þar sem fram kemur að fjöldi austur-þýskra lög- reglumanna aðhyllist stefnu og hefur skilning á störfum nýnasista á landsvæði þvísem áður var Aust- ur-Þýskaland. í tímaritinu Report segir að lögreglumenn hefðu verið meðal nánustu samstarfsmanna austur-þýska nýnasistaleiðtogans Rainer Sonntag, sem féll í átökum við melludólga í borginni Dresden. Lögreglumenn sem rætt var við í þættinum sögðu að lítið starfsör- yggi og óskýr stjórnunarstefna væri skýringin á hvers vegna lög- reglumenn aðhylltust stefnu nýn- asista um „lög og reglu“. ■ HELSINKI - Forseti Evrópu- ráðsins, Anders Bjorck, sagðist í gær vonast til að Sovétmenn yrðu viðstaddir umræður og fyrirspurnir um málefni Eystrasaltsríkjanna . sem haldnar verða á vegum Evr- ópuráðsins á fimmtudag. Forsetar Eistlands, Lettlands og Litháen verða viðstaddir fundinn. Bjorck sagði á fréttamanr.afundi að Sov- étmenn, sem hafa áheyrnarrétt á fundinum, hefðu tilkynnt að þeir myndu ekki senda fulltrúa á hann vegna þess að málefni Eystrasalts- ríkjanna væru sovésk innanríkis- mál og þau ætti ekki að ræða á alþjóðlegum vettvangi. ■ SOWETO - Byssumenn skutu a.m.k. sex manns til bana í lest í Soweto í Suður-Afríku í gær, þriðjudag, aðeins þremur dögum eftir að friðarráðstefna var haldin. Með þessari árás er tala látinna í átökum í sjálfs- stjórnarhéruðum svertingja í Suður-Afríku komin í 28 síðan á sunnudag. Á laugardag hittust leiðtogar tveggja helstu stjórnmál- asamtaka blökkumanna til fyrstu viðræðna um átökin. ■ FRANKFURT V/ODER - - Stjórnmálamenn velta nú vöngum yfir hvað gera skuli við nærri hálfa milljón Austur-Þjóðveija sem missa vinnuna í næstu viku þegar vinnuverndarsamningar, sem und- irritaðir voru fyrir sameiningu þýsku ríkjanna, renna út. „Treu- handanstalt", stofnunin sem hefur umsjón með einkavæðingu austur- þýskra ríkisfyrirtækja, vill ekki leggja fjármagn í starfsþjálfun og áætlanir um nýsköpun atvinnu- tækifæra þar sem forsvarsmenn hennar telja það vera í verkahring sambands-, bæjar- og sveita- stjórna. ■ LONDON - Flest skjalanna sem fundustí helli við Dauðahafið, um 25 km frá Jerúsalem, fyrir 40 áram eru frá því um 200 áram f.K., að sögn breska dagblaðsins London Times í gær, þriðjudag. Dagblaðið greindi frá því að vísind- amenn hefðu beitt nýrri aðferð til að aldursgreina skjölin, en hún felst í því að mæla geislavirkni líf- rænna efna. Meirihluti skjalanna hefur enn ekki verið rannsakaður til fulls en með aldursgreiningu hefur verið staðfest að þau eru trúarskjöl gyðinga og tengjast ekki sögu kristinnar kirkju.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.