Morgunblaðið - 26.06.1991, Síða 23

Morgunblaðið - 26.06.1991, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 1991 23 Forseti herráðsins í ísrael veldur uppnámi: Afhjúpun leynilegra aðgerða hersins harðlega gagnrýnd I.. .. n I On..4 i.i. rPl» .. I\n ■ 1». T1nlnn»nr\ r»l» Jerúsalem. Reut.er, The Daily Telegraph. NÝSKIPAÐUR forseti herráðsins í ísrael, Ehud Barak, hefur sætt harðri gagnrýni hægri- og vinstrimanna fyrir að heimila sjónvarps- þátt þar sem skýrt var frá leynilegum aðgerðum sérsveita hersins til að binda enda á uppreisn Palestínumanna á hernumdu svæðun- um. Margir hægrisinnaðir stjórnmálamenn og fyrrum yfirmenn hers- ins brugðust ókvæða við þættinum þar sem þeir óttast að hann stefni öryggi Israels í hættu og geri leynisveitunum erfiðara fyrir að beita sömu aðferðum í framtíðinni. Yitzhak Shamir forsætisráðherra kvaðst óánægður með ákvörðun Baraks og átaldi hann fyrir að hafa ekki ráðfært sig fyrst við Moshé Arens varnarmálaráðherra. Shimon Peres, leiðtogi Verkamannaflokksins, sagði að upplýsingarn- ar væru mikill álitshnekkir fyrir Israela og myndu skaða hagsmuni þeirra erlendis. Reuter Móðir 23 ára Palestínumanns, sem ísraelskir hermenn skutu til bana í Hebron á Vesturbakka Jórdanar á mánudagskvöld, heldur á mynd af syni sínum (t.v.). Hann er 806. Palestínumaðurinn sem hefur beð- ið bana í átökum við ísraela frá því uppreisnin á hernumdu svæðun- um liófst fyrir þremur og hálfu ári. Barak, sem var skipaður forseti herráðsins í aprfl, heimilaði hernum að skýra frá aðgerðunum í sjón- varpi á föstudag. Meðal annars voru sýndar myndir af hermönnum leynisveitanna varalita sig og klæð- ast arabískum kvenfatnaði. Skýrt var frá því að herinn hefði beitt þessari aðferð allt frá því uppreisn Palestínumanna hófst á Vestur- bakka Jórdanar og Gazasvæðinu fyrir þremur og hálfu ári. í ráði væri að beita henni í auknum mæli þar sem hún hefði reynst sérlega vel. Blaðamenn, hermenn og Palest- ínumenn hafa lengi vitað af þessum aðgerðum leynisveitanna en bannað hefur verið að skýra frá þeim í fjöl- miðlum. Palestínumenn hafa sakað sveitirnar um að hafa myrt meinta foringja palestínska uppreisnar- fólksins en herinn hefur vísað því á bug. Heimildarmenn innan Ísraelshers staðfestu í gær fregnir ísraelskra fjölmiðla um að liðsmenn leynisveit- anna hefðu sætt rannsókn í rúmt ár vegna gruns um að þeir hefðu barið araba í þorpinu Kufr Dik á Vesturbakkanum. Fimm arabar urðu fyrir alvarlegum meiðslum og voru fluttir á sjúkrahús. Segist hafa viljað vara Palestínumenn við Þingnefnd kallaði Barak á sinn fund í gær til að veija ákvörðun sína. Hann bar því við að tilgangur- inn með því að skýra frá aðgerðun- um hefði einkum verið sá að fæla palestínsk ungmenni frá því að ganga til liðs við herskáa Palestínu- menn sem betjast gegn hernámi ísraela. Hann kvaðst vona að sjón- varpsþátturinn yrði til þess að Pal- estínumenn áttuðu sig á því að herinn tæki harðar á herskáum uppreisnarmönnum en öðrum Pal- estínumönnum. Ætlunin hefði einn- ig verið að skapa óvissu á meðal araba á hernumdu svæðunum. Þátt- urinn var sendur út á hebresku og ekki er vitað hvernig Barak svaraði því hvers vegna arabíska var ekki notuð í þættinum úr því hann var ætlaður aröbum. Vildi hann ganga í augun á almenningi? Aharon Levran, fyrrverandi for- ingi í leyniþjónustu hersins, kvaðst ek"ki skilja hvers vegna heimilað hefði verið að skýra frá leynilegum aðgerðum hersins þótt uppreisninni væri ekki enn lokið. „Forseti her- ráðsins starfaði áður í leynisveitum og ef til vill skýrir það þessa afhjúp- un,“ bætti hann við. Barak er 49 ára að aldri og tók þátt í mörgum af hættulegustu aðgerðum hersins. Árið 1972 stjórnaði hann til að mynda her- mönnum, sem dulbjóu sig sem flug- virkja og réðust til inngöngu í far- þegaþotu í eigu Sabena-flugfélags- ins, sem flugræningjar höfðu á sínu valdi á flugvellinum í Tel Aviv. Hann er einnig sagður hafa skipu- lagt drápið á Abu Jihad, einum af helstu foringjum Frelsissamtaka Palestínumanna (PLO), í Túnisborg 1988. Heimildarmenn innan hersins sögðu að Barak hefði viljað ganga í augun á gyðingum á hernumdu svæðunum, sem eiga á hættu að verða fyrir árásum Palestínu- manna. „Hann gerði þetta til að sýna gyðingunum að herinn sé ekki aðgerðalaus. Það var bara ekki hann sem stofnaði sveitirnar, það gerðu forverar hans,“ sagði einn þeirra. ísraelar öruggari með sig Sjónvarpsþátturinn þykir til marks um að ísraelar séú nú örugg- ari en áður um að þeim takist að ná tökum á ástandinu á hernumdu svæðunum. Þeir óttast enn gijót- kast er þeir aka um svæðin en dreg- ið hefur úr götubardögum og dráp- um fækkað. Frá því uppreisnin hófst hafa 806 Palestínumenn verið drepnir í átök- um við ísraela. Arabar hafa hins vegar banað 360 meintum sam- starfsmönnum hersins, 66 gyðing- um og fimm ferðamönnum. Alls liafa 117 arabar beðið bana það sem af er árinu. Palestínumenn virðast vera að missa móðinn eftir allar þessar mannfórnir og uppreisn þeirra hefur lítinn árangur borið. Israelar halda enn hernumdu svæð- unum og hyggjast nú færa sig upp á skaftið með frekara landnámi. Læknasetrið sf. Miðvikudaginn 26. júní 1991 hefjum við starfsemi okkar á nýjum stað, \ Þönglabakka 6, 3. hæð (Mjóddinni). Tímapantanir í síma 677700 alla virka daga milli kl. 9-12 og 13-17. Árni J. Geirsson, gigtarsjúkdómar Guðmundur M. Jóhannesson, blóðsjúkdómar Magnús Böðvarsson, lyflækningar og nýrnasjúkdómar Birna Jónsdóttir, röntgenlæknir Hallgrímur Guðjónsson, lyflækningar og meltingarsjúkdómar Sigurður Árnason, krabbameinslækningar Björn Magnússon, lungnasjúkdómar Jón Þorsteinsson, gigtarsjúkdómar Sigurður Björnsson, lyflækningar og lyflækningar krabbameins Davíð Gíslason, lyflækningar og ofnæmissjúkdómar Kjartan Magnússon, krabbameinslækningar Steinn Jónsson, lyflækningar og lungnasjúkdómar Guðjón Baldursson, krabbameinslækningar Kristján Erlendsson, lyflækningar, ofnæmis- og ónæmisfræði Tryggvi Ásmundsson, lungnasjúkdómar Guðmundur Benediktsson, krabbameinslækningar Kristján Steinsson, lyflækningar og gigtarsjúkdómar Þorsteinn Blöndal dr. med., lungnasjúkdómar Guðmundur Ingi Eyjólfsson, lyflækningar og blóðsjúkdómar Magni S. Jónsson, lyflækningar og lungnasjúkdómar Þórarinn Gíslason, lungnasjúkdómar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.