Morgunblaðið - 26.06.1991, Síða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 1991
Dagsprent hf.;
Hömlum um meðferð
hlutafjár verður aflétt
SAMÞYKKT var á aðalfundi Dágsprents hf. í liðinni viku að aflétta
öllum hömlum um meðferð hlutafjár í fyrirtækinu.
Hörður Blöndal framkvæmda-
stjóri Dagsprents hf. sagði það sína
skoðun að engin ástæða væri til
annars en opna félagið og gera-
þeim sem hlutafé vilja kaupa það
kleift. Dagsprent hf. yfirtók rekstur
Tónlistarskólinn:
Roar Kvam
skólastjóri
Bæjarstjórn Akureyrar sam-
þykkti á fundi í gær að ráða Roar
Kvam í stöðu skólastjóra Tónlist-
arskóla Akureyrar.
Þrír sóttu um stöðuna, auk Ro-
a^B, þeir Jón Halldór Finnsson í
Mosfellsbæ og Þórir Þórisson,
Reykjavík. Stjórn Tónlistarskólans
mælti með Roar Kvam í stöðuna.
Þá var einnig samþykkt á fundi
bæjarstjórnar að ráða Michael Jón
Clarke í stöðu yfirkennara við skól-
ann.
dagblaðsins Dags í janúar á síðasta
ári. „Blaðið er opið fyrir öllum skoð-
unum og verður það einnig við-
skiptalega eftir þessa breytingu og
hið sama gildir þá um rekstur prent-
smiðjunnar," sagði Hörður.
Selt hefur verið hlutafé í fyrir-
tækinu fyrir rúmlega 50 milljónir
króna, en fyrir liggur samþykkt um
að auka hlutafé upp í 70 milljónir
þannig að hlutafé að upphæð tæp-
lega 20 milljónir er til staðar nú.
Um 6 milljóna króna hagnaður
varð af rekstri Dagsprents á síðasta
ári og sagði .Hörður það sanna að
óþarfi hefði verið að afskrifa fyrir-
tækið þó illa hafi gengið á tímabili
og væri ástæða til að þakka eigend-
um fyrir að hafa staðið um það
vörð, en ekki misst trúna þegar illa
gekk.
Kaupfélag Eyfirðinga á um 52%
hlutafé í Dagsprenti,
Hótel Norðurland:
LANDFESTAR LEYSTAR
Sænsk sveit
Dagsektum verður beitt sök-
ÍSSSSL um vanefnda um öryggismál
ir/i i>L- lioldni' 11 m linccai* mmirlit*
SÆNSKA hljómsvpitin Sticky Fin-
gers heldur uni þessar mundir
tónleika í Sjallnum, en rokksveit-
im hefur verið á tónleikaferðalagi
um Norðurlöndin allt síðasta ár.
Hljómsveitin hefur haldið tvenna
tónleika í Sjallanum, en í kvöld, mið-
vikudagskvöld, og annað kvöld verð-
ur hún enn á ferð. Sticky Fingers
leikur eingöngu lög hinnar þekktu
rokkhljómsveitar Rolling Stones.
BYGGINGANEFND Akureyrar
hefur synjað erindi frá forráða-
mönnum Hótels Norðurlands um
að ekki verði beitt ákvæðum um
dagsektir vegna vanefnda við
framkvæmdir öryggismála á hót-
elinu. Samþykkt var á fundi
nefndarinnar í vetur að veita
hótelinu frest til 1. júní sl. til að
Heimir Ingimarsson væntanleg-
ur formaður bæjarráðs.
Sigurður J. Sigurðsson forseti
bæjarsljórnar.
bæta úr öryggismálum ella yrði
beitt dagsektum, 100 þúsund
krónum fyrir hvern dag er liði
eftir þann tíma. Guðrún Gunn-
arsdóttir hótelstjóri sagði að
unnið væri að úrbótum og fram-
kvæmdir hefðu staðið yfir með
hléum í nokkuð langan tíma.
Heimir Ingimarsson formaður
bygginganefndar sagði mælinn
löngu fullan, hægt hefði verið að
líða að úrbætur í öryggismálum á
hótelinu hefðu dregist I vetur, en
nú þegar gera mætti ráð fyrir að
það væri fullbókað væri annað upp
á teningnum. „Þetta er mjög alvar-
legt mál, þarna eru mannslíf í húfi
og okkur í bygginganefnd er fúl-
asta alvara með því að beita þessum
dagsektum," sagði Heimir.
Hótel Norðurland var opnað eftir
breytingar fyrir tveimur árum og
sagði Heimir að þá strax hefðu
verið settir fyrirvarar vegna skorts
á flóttaleiðum ef upp kæmi eldur.
Það hefði síðan verið margítrekað
og m.a. hefði slökkviliðsstjóri lagt
áherslu á við bygginganefnd að
úrbætur í öryggismálum hótelsins
væru á meðal brýnustu verkefna á
þessu sviði í bænum.
Heimir sagði að hótelgestir í
ákveðnum herbergjum á 2. og 3.
hæð hefðu enga undankomu yrði
eldsvoði í byggingunni, gera þyrfti
litlar svalir með grindverki á þeim
hæðum og brunastiga frá svölum á
suðurenda og niður á skyggni við
inngang á veitingastaðinn sem er á
jarðhæð hússins.
Við umræður um þetta mál á
fundi bæjarstjórar í gær komu fram
þær skoðanir að vissulega væri rétt
að beita dagsektum vegna van-
efnda, en ef til vill væri eðlilegra
að hafa þær aðeins lægri.
Guðrún Gunnarsdóttir hótelstjóri
á Hótel Norðurlandi sagði að fram-
kvæmdir stæðu yfir, m.a. væri ver-
ið að gera svalir og skyggni ofan
á veitingastaðinn. Hún sagði að
unnið hefði verið að úrbótum um
alllangt skeið og hefði samstarf við
slökkvilið verið gott á þeim tíma,
en það hefði ævinlega verið látið
vita af framgangi mála á hveijum
tíma.
Grímseyingar kaupa nú
mjólk eins o g annað fólk
Bæjarstjórn Akureyrar:
Sigurður J. forseti og
Heimir formaður bæjarráðs
SIGURÐUR J. Sigurðsson, Sjálfstæðisflokki, var kjörinn forseti
bæjarstjórnar Akureyrar á fundi bæjarstjórar í gær. Á fundinum
var einnig kosið í bæjarráð, en þar tekur Heimir Ingimarsson, Al-
þýðubandalagi, sæti Sigríðar Stefánsdóttur sem gegnt hefur emb-
ætti forseta síðara ár.
Samkvæmt samkomulagi flokk-
anna sem mynda meirihluta í bæjar-
stjórn Akureyrar, Sjálfstæðisflokks
og Alþýðubandalags, er gert ráð
fyrir að flokkarnir skipti með sér
til eins árs í senn að skipa embætti
forseta bæjarstjórnar og formanns
bæjarráðs. Sigurður J. Sigurðsson
hefur verið formaður bæjarráðs
síðasta árið og Sigríður Stefáns-
dóttir forseti bæjarstjórnar. Sigríð-
ur mun dvelja í Þýskalandi næsta
ár og tekur Heimir Ingimarsson því
sæti hennar sem aðalmaður í bæjar-
ráði og mun væntanlega verða kjör-
inn formaður þess á fyrsta fundi
ráðsins.
Heimir Ingimarsson var kjörinn
fyrsti varaforseti bæjarstjórnar' og
Ulfhildur Rögnvaldsdóttir annar
varaforseti. Birna Sigurbjörnsdóttir
og Kolbrún Þormóðsdóttir voru
kjörnar ritarar bæjarstjórnar.
í bæjarráð voru kjörin þau Sig-
urður J. Sigurðsson og Björn Jósef
Arnviðarson frá Sjálfstæðisflokki,
Heimir Ingimarsson, Alþýðubanda-
lagi, og Ulfhildur Rögnvaidsdóttir
og Þórarinn E. Sveinsson, Fram-
sóknarflokki.
Grímsey.
MIKLAR breytingar hafa verið
gerðar á verslunarhúsnæði KEA
í Grímsey, þannig að verslunin
er nú orðin mun aðgengilegri en
áður var. Áður var fyrirkomulag
þannig að verslunin var í norður-
enda hússins og lager í þeim
syðri, en eftir breytingar hafa
endaskipti orðið. Síðar í sumar
verður settur upp kælir í verslun-
inni svo íbúarnir geta eftirleiðis
keypt mjólk eins og fólk í landi
á að venjast, en þurfa ekki að
panta mjólkurvörur til einnar
viku í senn.
Innréttingar voru rifnar út og
verslunin var færð yfir í gamla lag-
erplássið, en lagerinn aftur á þann
stað þar sem verslunin var. Gólf
voru brotin upp að hluta og rennt
í þau, húsið var einangrað mikið til
að nýju og einnig var skipt um gler
í gluggum. Allar lagnir voru endur-
bættar og húsið málað utan sem
innan.
Síðar verður klæðning lagfærð
og skipt um járn á þaki, auk þess
sem endurbætur verða gerðar utan-
dyra, stétt steypt upp að nýju og
Morgunblaðið/Hólmfríður
Grímseyingar eru ánægðir með endurbætur á verslunarhúsnæði KEA
og fljótlcga verður settur upp kælir scm hefur í för með sér að þeir
þurfa ekki lengur að taka vikuskammt af injólkurvörum með sér heim.
aðkoma gerð aðgengilegri.
í versluninni hafa einungis verið
til þessa kæliskápar, en síðar í sum-
ar verður settur upp stór kælir, sem
er þannig að gengið er inn í hann.
Tilkoma hans mun hafa miklar og
góðar breytingar í för með sér, en
Grímseyingar fá nú sendar mjólkur-
vörur einu sinni í viku með feij-
unni. Hefur því í tíma þurft að
panta t.d. aukaskammt af rjóma
ef eitthvað hefur staðið til. Mjólkin
er síðan flokkuð niður á bæina og
hver sækir sitt. Með tilkomu kælis-
ins er vonast til að hægt verði að
senda hingað mjólk þrisvar í viku.
Guðmundur Jóhannsson trésmið-
ur á Akureyri hafði umsjón með
breytingunum og honum til aðstoð-
ar voru Matthías Björnsson og Við-
ar Þorsteinsson auk fleiri iðnaðar-
manna. Utibússtjóri er Kristín Óla-
dóttir, en tveir aðrir starfsmenn eru
við verslunina. — HSH