Morgunblaðið - 26.06.1991, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 26.06.1991, Blaðsíða 31
MÓRGU1ÍBLAÐIÓ: MIÐVÍKUDÁGUR 26. JÚNÍ 1991 31 Fjölgar rásum, fækkar krásum Kvikmyndir Sæbjörn Valdimarsson Stjörnubíó: Avalon Leiksljóri og handritshöfundur Barry Levinson. Tónlist Randy Newman. Kvikmyndatökustjóri Allen Daviau. Aðalleikendur Armin MueUer-Stahl, Joan Plowright, Aidan Quinn, Eliza- beth Perkins, Lou Jacobi, Kevin Pollak, Leo Fuchs. Bandarisk. 1990. Nýjasta mynd snillingsins Levin- sons er afar persónuleg, minni áhersla lögð á verslunarvöruein- kennin. Þó er kjarni hennar alþjóð- legur — hinar gífurlegu breytingar sem tækniframfarir og velmegun tuttugustu aldarinnar hefur haft á mannlífið, einstaklinginn og ekki síst stórfjölskylduna. Við kynnumst Sam Krichinsky (Mueller-Stahl) — í raun afa Levinsons — er hann kemur til Ameríku 1914. Og heim- sálfan tekur á móti honum með pomp og pragt, það er nefnilega á þjóðhátíðardaginn, 4. júlí, sem hann stígur á land og flugeldar í öllum regnbogans litum lýsa upp himininn. Hann er af samheldinni fjölskyldu rússneskra gyðinga sem er smámsaman að tínast yfir hafið eftir auragetu þeirra sem búnir eru að ná fótfestu í Guðseiginlandi og komnir í vinnu. Sam og bræður hans halda vel á sínu og við tekur eftirstríðsára- kynslóðin með öll sín tækifæri í greipunum. I myndarlok er svo þriðja kynslóðin tekin við, drengur- inn hans Sam afa orðinn pabbi en afí orðinn þreytt gamalmenni. Þetta er ytra borð myndarinnar en hún er sögð frá ári til árs á einkar viðfelldin, mannlegan og kíminn hátt með ljúfsárum söknuði eftir liðinni tíð, einkum eftirsjá yfir góðum gildum sem smá-tína tölunni í auknum hraða og stressi líðandi stundar. Levinson lýsir frá- bærlega þessum háttarfarsbreyt- ingum hálfrar aldar með veislum þakkargerðardagsins. Lengi vel kom stórfjölskyldan Krichinsky saman og át og drakk af hjartans lyst. En framþróunin spillir fyrir. Einn þakkargjörðardaginn er sjón- varpið — tákn tækninnar og nýrra gilda — komið til sögunnar. Og um leið og rásunum fjölgar, fækkar krásunum. Upplausn kemst í fjöl- skylduna sökum misjafns veraldar- gengis og fleiri blikur eru á lofti eftir því sem lengra líður á öldina. Afkomendur frumheijanna taka upp aðgengilegri nöfn, nýjar að- ferðir í viðskiptalífínu. En Sam afi gætir þess gegnum árin að börn og barnabörn gleymi ekki uppruna sínum og sögu og er ólatur við að rifja' upp minningarnar sem hefjast jafnan á „Ég kom til Ameríku árið 1914 ...“ Hann grunar að svo fari að með hans kynslóð deyji þessi söguhefð út. Enda upplifir hann hrun stórijölskyldunnar þegar hann og kona hans — afi og amma — flytja á brott frá syni hans og fjölskyldu. Stórt blað hefur verið brotið í fjölskyldumunstrinu; Pen-y Como og Co. teknir við af sögu- fræðslunni hans afa. Skyldum við ekki þekkja þessa að mörgu leyti óheillaþróun hérlendis? Og Levinson segir frá á svo hlý- legan hátt að maður hrífst með og ég naut hverrar mínútu. Þær gífur- legu þjóðfélagsbreytingar — sem Kvikmyndir Amaldur Indriðason Víkingasveitin 2 („Delta Force 2“). Sýnd í Háskólabíói. Leik- stjóri: Aaron Norris. Aðalhlut- verk: Chuck Norris, Billy Drago, John Ryan, Mateo Gomez. Bandaríkin. 1990. Fyrri Víkingarsveitarmynd Chuck Norris, „The Delta Force“, undir stjórn Menahems Golans, kom nokkuð á óvart fyrir það hvað hún var ágæt í lýsingu á flugráni í austurlöndum nær og vel gerð að flestu leyti. Líka af því í henni lék, auk tilhlýðilegra harðhausa, ein fremsta leikkona Evrópu, Hanna Schygulla. Þessi framhaldsmynd sem leik- stýrt er af bróður Chucks, Aaron Norris, kemur hins vegar síst á óvart. Hún er dæmigerð Norris- mynd í verri kantinum, hroðvirkn- islega gerð og slælega leikin, svo ekki sé meira sagt, ofbeldið er ódýrt og spennan engin. Hún segir frá baráttú Delta- hetjunnar Chucks við kókaníbarón í S-Amenkuríkinu ímyndaða, San Carlos. Áður en Chuck getur lagt í hann er langur aðdragandi þar sem baróninn drepur bamshaf- andi eiginkonu besta vinar hans, særir son þeirra og drepur um hafa ekki aðeins átt sér stað í Bandaríkjunum heldur um víða veröld á þessari öld — eru sagðar af þeirri list og frásagnargleði sem einkennt hefur bestu myndir leik- stjórans/handritshöfundarins. Hann saknar góðra gilda og hefða sem voru í heiðri hafðar en rúmast ekki í kappkeyrslu nútímans. Því eru a.m.k. allir þeir sammála sem lærðu að stauta á knénu hennar ömmu. Hann er þó enginn svart- sýnismaður, hver kynslóð verður að Iaga sig að nýjum aðstæðum. Að venju er samstarfsfólk Levin- sons valið af natni og það skila allir góðu dagsverki. Leikhópurinn er firnasterkur með sögumanninn frábæra, Mueller-Stahl, í farar- broddi. Búningar og svið eru óað- finnanleg, ljúf tónlist og snjöll myndataka Daviaus fullgera svo rammann um eina bestu mynd sem sýnd hefur verið á árinu. síðir vininn sjálfan. Þessi ódýri skáldskapur á að reita Deltahetj- una til reiði og fylla hann hefndar- hug en maður veit aldrei þegar Chuck Norris er annars vegar, hann sýnir engin svipbrigði frá einu átriðinu í annað. Hann er alveg eins á svipinn þegar hann keyrir bílinn sinn og þegar hann fréttir lát vinar síns. Hann heldur þó til San Carlos dyggilega studd- ur af hershöfðingja sínum, sem John Ryan, ágætlega kunnur þeim sem spá í aukaleikarana, ofleikur agalega, og eftir það taka skothríðar og sprengingar völdin. Víkingasveitin 2 er dæmigerð B-mynd í verri kantinum. Billy Drago, sem lék glæpamanninn Frank Nitti frábærlega í Hinum vammlausu, fer með hlutverk kók- barónsins og er sá eini í leikara- hópnum sem þó reynir að sýna lit, sadistalegur í útliti og smýgur um eins og baneitruð eðla. Norris hefur fullkomnað hina stóísku ró og dettur hvorki né drýpur af honum hvað sem á gengur. Ef einhveijum þykir sem s- ameríkubúarnir í myndinni séu austurlenskir mjög í útliti er það af því myndin var gerð á Filipps- eyjum en svo virðist sem innfædd- ir hafi verið notaðir í stadistahlutverk. Víkingur í vanda 24 x 30 cm. Myndir sem birtast í Morgunblaöinu, teknar af Ijósmyndurum blaösins fást keyptar, hvort sem er til einkanota eöa birtingar. UÓSMYNDADEILD „SALA MYNDA“ Aöalstrœti 6, sími 691150 101 Reykjavík FÉLAGSSTARF Málefnastarf fyrir SUS-þing Kraftur nýrrar kynslóðar Ungir sjálfstæðismenn! Málefnastarf er hafið fyrir SUS-þing, sem haldið verður á ísafiröi dagana 16.-18. águst nk. Eftirtaldir verkefna- hópar vinna nú að undirbúningi málefnastarfs: 1. Almenn stjórnmálaálykun. Verkefnisstjóri: Guðlaugur Þór Þórðarson. 2. Utanríkismál. Verkefnisstjóri: Jón Kristinn Snæhólm. 3. Sjávarútvegsmál. Verkefnisstjóri: Steingímur Sigurgeirsson. 4. Landbúnaðarmál. Verkefnisstjóri: Júlíus Guðni Antonsson. 5. Mennta- og menningarmál. Verkefnistjóri: Árni Sigurösson. 6. Umhverfismál. Verkefnisstjóri: Baldur Þórhallsson. 7. Velferðar- og fjölskyldumál. Verkefnisstjóri: Bjarki Már Karlsson. 8. Byggða-, sveitarstjórna- og samgöngumál. Verkefnisstjóri: Jónas • Egilsson. 9. Ríkisfjármál. Verkefnisstjóri: Ari Edvald. SUS. VAMIÍANl> UNl.K \ SIAII Sl.-l PISMANNA Málef nastarf SUS Velferðar- og fjölskyldumál Verkefnisstjórn í velferðar- og fjölskyldu- málum er tekin til starfa og undirbýr nú drög að ályktun fyrir SUS-þing. Verkefnis- stjóri nefndarinnar er Bjarki Már Karlsson. Áhugasömum ungum sjálfstæðismönnum er bent á að hafa samband við verkefnis- stjóra í síma 657388. FÉLAGSLÍF SAMBAND ISLENZKRA KRISTNIBOÐSFÉLAGA Kristniboðssamkoma á Háaleit- isbraut 58, kl. 20.30. Ræðumaður: Sigursteinn Her- sveinsson. Allir velkomnir. NÝ-UNG KFUM & KF'U.i Samvera fyrir fólk á öllum aldri í kvöld í Suðurhólum 35. Bæna- stund kl. 20.10. Samveran hefst kl. 20.30. „Hvar er Guö I erfið- leikum?1'. Góður gestur kemur í heimsókn. Eftirsamvera: Búum til „almenna mótsstemningu". Ungt fólk á öllum aldri velkomið. Hörgshlíð 12 Boðun fagnaðarerindisins. Almenn samkoma í kvöld kl. 20.00. Hvítasunnukirkjan Fíladelfía Biblíulestur í kvöld kl. 20.30. Ræðumaður Hafliði Kristinsson. Allir hjartanlega velkomnir. FERÐAFELAG ÍSLANDS ÖLDUGÖTU 3 S. 11798 19533 Sumarleyfisferðir Ferðafélagsins 1) 29.06.-03.07 Strandir - ísafjarðardjúp Áhugaverð ferð um stórbrotið landslag. Ekiö á vegarenda í Strandasýslu. Siglt frá Munaðar- nesi á Ströndum að Seljanesi og gengið þaðan að Eyri í Ing- ólfsfirði. Eftir ferð um Strandir verður ekið í Isafjarðardjúp. Skoðunarferðir í Kaldalón og Æðey. Gist- í svefnpokaplássi. Fararstjóri: Ólafur Sigurgeirsson. 2) 29.06.-03.07 Reykjafjörður - Drangajökull Siglt frá Munaðarnesi á Strönd- um til Reykjafjarðar. Gengið yfir Drangajökul. Takmarkaður fjöldi. Gengið með viðlegubúnað. Fyrstu Hornstrandaferðirnar verða farnar 3. júlí. Sex mis- munandi ferðir í boði í júlí. Gist- ing í húsum að verða f ullbókuð, ennþá er pláss fyrir tjaldgist- ingu. Hringið og kannið máiið. Ferðafélag islands. FERÐAFELAG ÍSLANDS ÖLDUGÖTU 3 S: 11798 19533 Miðvikudagur 26. júní Kvöldganga í byrjun sólmánaðar Útilegumannakofar f Eldvarpahrauni Ekið að borholunni við Eldvörp vestan Svartsengis. Gengið að rústum margra smákofa (úti- legumannakofa?) i hrauninu. Einnig heimsóttur útilegu- mannahellir og gígarnir skoðað- ir. Vegna óhagstæðs opnun- artíma verður ekki farið í Bláa lónið núna (ferð síðar). Skemmti- leg ferð fyrir unga sem aldna. Verð 900 kr., fritt f. börn m. full- orðnum. Brottför frá BSÍ, bensínsölu (stansað á Kópa- vogshálsi og við kirkjug. í Hafn- arfirði). Árbók Ferðafélagsins 1991 er komin út; sérlega glæsileg bók, sem allir ættu að eignast. Hún er um fjalllendi Eyjafjarðar að vestanverðu framan Hörgárdals og Öxnadals ásamt náttúrufræði fjalllendisins norður til hafs og vestur til Skagafjarðar. Ferðafélag Isiands, gerist félagar. H ÚTIVIST GRÓFIHN11 • REYKJAVÍK • SÍMIAÍMSVARl 14606 Kvöldganga Miðvikud. 26. júní kl. 20. Gengið verður á Helgafell og hefst gangan við Kaldársel. Létt fjall- ganga fyrir alla. Sjáumst. Helgin 28.-30. júní: Vestmannaeyjar Farið verður í úteyjaferð og gengið í land í Elliðaey, sem er stærsta úteyjan og er uppganga þar auðveld. Vanir veiðimenn verða með í för og munu þeir sýna handtök lundaveiöimanna. Á sunnudeginum verður gengið um Heimaey og ef til vill farið í siglingu þar um kring. Farar- stjóri Fríða Hjálmarsdóttir. Básar á Goðalandi Helgarferð á þennan friðsæla og fagra stað. Gönguferðir við allra hæfi. Fimmvörðuháls - Básar Gönguleiðin yfir Fimmvörðuháls á milli Skóga og Bása á Goða- landi með tignarlega jökla sitt á hvora hönd nýtur sívaxandi vin- sælda. Gist í Básum. Gengið upp frá Skógum, meðfram Skógaá, en þar gefur að líta hvern foss- inn öðrum fegurri. Gangan tekur 8-9 klst. Munið hjólreiðadaginn næsta sunnudag. Griilað í Heiðmörk og farið í leiki. Sjáumst! Útivist FERÐAFELAG ÍSLANDS ÖLDUGÖTU3S11798 19533 Helgarferðir 28.-30. júní 1. Kl. 18 Núpsstaðarskógar Náttúruperla á Suöurlandi, ekki síðri en Þórsmörk. Tjöld. Göngu- ferðir m.a. að Súlutindum. Far- arstj. Jón Viðar Sigurðsson. 2. Kl. 20 Þórsmerkurferð Nú ætla allir að mæta í Þórsmörk- ina með Feröafélaginu. Fjölbreytt dagskrá fyrir unga sem aldna. Gönguferðir. Kvöldvaka. Afslátt- arverð þessa helgi. Gist í Skag- fjörðsskála, Langadal. Fararstj. Ingibjörg Þráinsdóttir. 3. Kl. 20 Yfir Fimmvörðuháls Gengin ný leið niður af hálsinum hjá Kaldaklifsgili og vestan Skóg- ár. Gist í Þórsmörk. Upplýsingar og farm. á skrifst., Öldugötu 3, símar 19533 og 11798. Kynnið ykkur sumarleyfisferðir Ferðafélagsins. Næstu ferðir: 1. 29/6-3/7 Strandir - ísa- fjarðardjúp. Fá sæti laus. 2. 29/6-3/7 Reykjafjörður - Drangajökull. 2 sæti laus. Ferðafélag islands.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.