Morgunblaðið - 26.06.1991, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 26.06.1991, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 1991 41 FJÖLBRAUTASKÓLI SUÐURNESJA: Fyrsta skóflustungan „ ' Morgunblaðið/Björn Blöndal A myndinni er þjónustulið Flug Hótelsins við sýnishorn af nýja matseðlinum sem nú hefur verið tekinn í notkun. A myndinni frá vinstri til hægri eru: Þorsteinn Jónsson og Lilja Friðriksdóttir framreiðslu- menn, Hafsteinn Sigurðsson, Hólmfríður Knútsdóttir og Magnús Örn Guðmarsson matsveinar og eigend- ur hótelsins, þau Sigrún Hauksdóttir og Steinþór Júlíusson. VEITINGAR Gestur Pétursson formaður nem- endafélags Fjölbrautaskóla Suðurnesja tók fyrstu skóflustung- una föstudaginn 7. júní að nýrri viðbyggingu við skólann sem áætl- að er að verði tilbúinn á næsta ári. Nýja viðbyggingin sem verður lið- lega 3.000 fermetrar á 3 hæðum, mun væntanlega fullnægja hús- næðisþörfinni næstu 20-25 árin. Byggingaraðili verður Hjalti Guð- mundsson í Keflavík, en hann átti lægsta tilboðið í bygginguna. Við athöfnina var fjöldi gesta, og við þetta tækifæri bauð Hjálmar Arna- son skólameistari öllum til te- drykkju í nýju húsnæði þann 1. september árið 1992. — BB Flug Hótel bætir þjónustuna pVg Hótel í Keflavík átti þriggja ára afmæli 17. júní sl. og hefur rekstur hótelsins gengið ákaflega vel þennan tíma að sögn Steinþórs Júlíussonar hót- elstjóra. I tilefni af afmælinu verður framvegis boðið uppá nýjan glæsi- legan matseðil sem verður bæði gerður fyrir sérrétti og rétti dags- ins sem gerðir verða úr bestu fáan- legum hráefnum. Talsvert hefur verið um ráð- stefnuhald á Flug Hóteli sem hef- ur yfir að ráða 3 sölum auk veit- ingasalarins sem er á annarri hæð og getur stærsti salurinn tekið um 170 manns. Nú um eins árs skeið hefur Jó- hann Guðmundsson leikið fyrir matargesti um helgar við góðan orðstír og mun hann halda áfram að leika fyrir matargesti enn um sinn. Listaverk eftir marga af þekkt- ustu listamönnum þjóðarinnar prýða veggi og gólf hótelsins sem gefur því bæði hlýlegt og notalegt yfirbragð. I tilefni af afmælisdeginum var boðið uppá sérstakt afmæliskaffi- hlaðborð um daginn og um kvöld- ið var síðan boðið uppá rétti af nýja matseðlinum. — BB Morgunbladið/Björn Blöndal Það kom í hlut formanns nemendafélagsins, Gests Péturssonar, til vinstri, að taka fyrstu skóflustunguna að nýju viðbyggingunni. Við hlið hans er Hjálmar Arnason skólameistari. VINSÆLUSTU SUMARSKORNIRIEVROPU NÚ Á ÍSLANDI! ÓDÝRIR VERÐ AÐEINS: 1.995 kr,- STÆRBIR: 35 - 45 / MARGIR LITIR Skóverslunin Laugavegi74 Sími 17345^\y \ JCö- Scott íslandssafnið: Verðmietasta og besta einkasafn íslenskrafrímerkja. % Htegt að senda vinum og kunningjum tölvupóstkort. & Einstakt frímerkjauppboð í tengslum við sýninguna. §> Alltaf eitthvað nýtt að gerastfýrir unglingana. Kjörin sumartilbreyting fýrir alla fjölskylduna. ® Póstbús starfa á sýningunni aíla dagana. 1» Tilsögn Jýrir unglinga. 18 sötubásar fyrir safnara á öllum aldri. $ Stœrsta frímerkjasýning á íslandi. I® Elsta íslenska jrímerkið frá 1873. Heildarsafn íslenskra frímerkja. ® Sýnt hvemigfrímerki verðatil. M) Spurtiitigakeppni unglinga. !> Tötvuleikir, Tölvukeppni-Tölvafrá IBM í verðlaun. B Sérstök unglingadeild. ® Póstsaga íslands. % Skiptimarkaður sunnudag 14-16. m } NORDIA>91 l W

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.