Morgunblaðið - 06.09.1991, Blaðsíða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 1991
TENNIS / OPNA BANDARISKA MEISTARAMOTIÐ
Edberg í undanúrslit
Steffi Graf og Martina Navratilova mætast í undanúrslitum íkvennaflokki
Reuler
Stefan Edberg vann Javier Sanchez frá Spáni í gær og er kominn í undanúr-
slit á opna bandaríska meistaramótinu í tennis.
Opna öldungamít
Keilis
verður á Hvaleyrinni nk. laugardag 7.9.
Fyrirkomulag: 18 holur m/án forgjafar.
Ræst út frá kl. 9.00 til 13.00.
Skráning í síma 53360 eftir kl. 14.00.
GOJU KAI KARATE
Byrjendanámskeiö og karatesýning.
Byrjendanámskeið
er að hefjast.
Kennt er í
íþróttamiðstöðinni
í Ásgarði í Garðabæ.
Byrjendur 12 ára og
yngri þriðjudaga og
fimmtudaga kl. 17.15.
Byrjendur 13 ára og
eldri þriðjudaga kl. 19,
föstudaga kl. 17.15.
Kennari er Korl Prittinen 2. dan en hann varð þrefaldur meístari ó Evrópumeistara-
móti Goju-kai í Ungverjalandi 1991. Meistati er Ingo De Jong 6. dan forseti Evrópu-
samtaka Goju-kaí.
Karatesýning. Sunnudaginn 8. sept. n.k. kl. 14 verður kynning og sýning ó Goju-
kai karate í Asgarði. Sýndor veróa grunnæfingar, kata (staðbundnar æfingar) og
kumite (frjóls bardagi).
Allir velkomnir. Nánari upplýsingar i Ásgarði á kvöldin.
GOJU KAI KARATE DO Á ÍSLANOI
KARATEDEILD
STJÖRNUNNAR
STEFAN Edberg tryggði sér
sæti í undanúrslitum á opna
bandaríska meistaramótinu í
tennis í gær er hann sigraði
Javier Sanchez frá Spáni, 6:3,
6:2 og 6:3. Michaei Stich frá
Þýskalandi hafði yfir gegn Ivan
Lendl, 3:6,6:3 og 4:3, þegar
stöðva þurfti leikinn vegna
rigningar ígær.
Edberg mun mæta sigurvegaran-
um úr leik Stich og Lendl í und-
anúrslitum. Edberg hafði mikia yfir-
buði gegn Sanchez eins og tölurnar
gefa til kynna. Uppgjafir hans voru
mjög góðar og átti Spánveijinn ekk-
ert svar við þeirn. Það tók Edberg
aðeins eina klukkustund og 42
mínútur að vinna leikinn. „Ég gat
ekkert og náði aldrei að komast inn
í leikinn," sagði Sanchez. „Ég átti í
erfiðleikum í upphafi mótsins en nú
finn ég mig betur og betur með hverj-
um leik,“ sagði Edberg.
Jim Courier, sem er 21 árs Banda-
ríkjamaður, sigraði landa sinn Peter
Sampras, 6:2, 7:6, 7:6, í 8-liða úrslit-
um í gær og mætir annað hvort
Jimmy Connors eða Paul Haarhis í
undanúrslitum. Connors tryggði sér
sæti í átta manna úrslitum á þriðju-
dag en þá varð hann 39 ára. Hann
lagði Aaron Krickstein að velli í mikl-
um baráttuleik sem stóð yfir í Ijórar
klukkustundir og 41 mínútu. Eftir
leikinn sagði Krickstein að það væri
erfitt að leika þegar þúsundir áhorf-
enda fögnuðu alltaf þegar hann gerði
mistök. „Ég skil áhorfendur því Con-
nors er þjóðsagnapersóna og mjög
vinsæll," sagði hann.
Ahorfendur voru margir og allir á
bandi Connors. Þegar leiknum lauk
sungu áhorfendur „hann á afmæli í
dag...“. Lokatölur í leiknum urðu
3-6, 7-6, 1-6, 6-3 og 7-6.
Connors mætir Paul Haarhis í 8-
manna úrslitum, en Haarhis vann sér
það til frægðar að slá Þjóðverjana
Boris Becker og Carl Uwe Steb út.
Graf gegn Navratilovu
Komið er fram í undanúrslit í
kvennaflokki, en þar leika hin 15 ára
gamla Jennifer Capriati og Monicu
Seles annars vegar og Steffi Graf
og Martina Navratilova hins vegar.
Þetta verður í 15. skipti sem Graf
og Navratilova mætast á tennisvell-
inum. Capriati sigraði Gabrielu Sa-
batini, sem sigraði á mótinu í fyrra,
í 8-manna úrslitum (6:3, 7:6) og
Seles vann Gigi Fernandez. Graf
sigraði Conchitu Martinez frá Spáni,
6:1 og 6:3 og Navratilova sigrað
Arantxa Sanchez Vicario frá Spáni,
6:7, 7:6 og 6:2.
GOLF
Ryder-
liðin
tilkynnt
HIN árlega keppni um Ryd-
er bikarinn í golfi hefst í
Bandaríkjunum 27. sept-
ember. Búið er að tilkynna
hvernig liðin verða skipuð,
en flestir bestu kylfingar
heims verða þá í sviðsljós-
inu. Ryder-keppnin hefur
verið æsispennandi und-
anfarin ár og öruggt er að
sama verður upp á ten-
ingnum íár.
Það eru Bandaríkjamenn
sem leika gegn sameinuðu
liði Evrópu og ræður árangur
kylfinganna á keppnistímabilinu
um hveijir komast í liðin, nema
hvað liðstjórarnir mega velja tvo
til jnjá menn.
I sveit Evrópu tryggðu sér
sæti í liðinu: Ballesteros, Mont-
gommerie, Richardson, Woos-
nam, Torrance, Langer, Broad-
hurst, Feherty og Gilford. Bern-
hard Gallacher, liðsstjóri liðsins,
valdi síðan þá Faldo, Olazabal
og Mark James í lið sitt.
Sveit Bandaríkjanna er þann-
ig skipuð: Couples, Stewart,
Wadkins, Irwin, Azinger, Pavin,
O’Meara, Calcavecchia, Levi og
Pate. Dave Stockton, liðsstjóri,
valdi síðan þá Chip Beck og Ray
Floyd.
HANDKNATTLEIKUR / HSI
HSI tók lán til að senda
21 árs liðið á HM
Handknattleikssamband
íslands þurfti að taka 1,5
milljón króna skammtímalán
tii að senda landsliðið undir
21 árs til keppni í heims-
meistaramótinu sem nú
stendur yfir í Grikklandi.
Skammtímaskuldir sam-
bandsins eru því um 18 miilj-
ónir króna. Jón Hjaltalín
Magnússon, formaður HSÍ,
segist bjartsýnn á að þeim
takist að vinna sig út úr vand-
anum.
V'ið skuldum um 18 milljónir í
ýmsum skammtímalaánum
og síðast um daginn ákváðum við
að taka enn eitt lánið til að senda
21 árs liðið á HM í Grikklandi.
Undirbúningu liðsins frá því í júní
á síðasta ári og þátttakan í keppn-
inni kostar um 7,5 milljónir og
það var búið að greiða um 6 millj-
ónir þegar kom að því að senda
liði út. Þá vantaði 1,5 milljónir
fyrir ferðum og þátttökugjöldum
og við ákváðum að taka enn eitt
lánið í stað þess að hætta við
þátttöku," segir Jón.
Hann sagði að langtímaskuldir
HSÍ væru tæplega 20 milljónir
en af þeim hefðu þeir ekki áhyggj-
ur því þær væru frágengnar með
langtíma auglýsingasamningum.
En heldur hann að HSÍ takist að
vinna sig út úr skuldafeninu?
„Við höfum gert það hingað
til, og við hljótum að gera það
aftur. Ef menn vilja halda úti
landsliði á alþjóðlegan mæli-
kvarða þá þarf mikið unglinga-
starf og það kosta sitt. Skuldir
okkar eru um 60 krónur á hvern
íslending og við hljótum áð vinna
okkur út úr þessu í sameiningu,“
sagði Jón.
Hefur verið rætt um að HSÍ fái
stuðning ríksins með því skilyrði
að hætt verði við að halda heims-
meistarakeppnina hér á landi?
„Nei, ég hef ekki heyrt það og
ef einhver setur fram svoleiðis
hugmyndir þá getur það alls ekki
verið gert í alvöru. Við höfum átt
vinsamlegar viðræður við fjár-
Jón H. Magnússon formaður
HSÍ.
málaráðherra og menntamálaráð-
herra og skýrt þeim frá erfiðri
lausaskuldastöðu sambandsins,
en það hefur ekkert verið ákveðið
um hvort og þá hvernig aðstoð
við fáum,“ sagði Jón.
Þrekæfim
Fyrsta þrekæfíng vetrarins verður hald-
in í Laugardol þriðjudaginn 10. septem-
ber nk.
Æfingarnar eru ætlaðar öllum aldurs-
flokkum og eru nýir félagar boðnir
velkomnir.
Nánari upplýsingar veita:
Guðjón Olafsson, hs. 37591.
Guðmundur Jóhannsson, hs. 24888.
Egill Kolbeinsson, hs. 54066.
Skíðadeild
KR
HANDKNATTLEIKUR
Valsmenn
til Frakklands
Íslandsmeistarar Vals í hand-
knattleik fóru í gær til Frakk-
lands, þar sem þeir taka þátt í
fjögurra liða móti um helgina.
Mótið fer fram í París og eru
þátttakendur þijú frönsk lið auk
Vals. Það eru Dunkurque, Sai
Brice Valoise 95 sem heldur mót
og París Asnieres, sem Júlíus Jó
asson lék með áður en hann f
til Spánar.