Morgunblaðið - 15.09.1991, Síða 2
£ ö
JVÍÖRtíimÖLÁÖÍÐ .SUKNUÍÍAGUR '15.'SKI'TKMBeR!ÍWí
Pistillinn hér að
framan er nokk-
uð lýsandi fyrir
þær fortölur. sem
beitt hefur verið
þegar Fegurðar-
samkeppni fs-
lands er kynnt á
opinberum vett-
vangi. Núverandi vinsældir ungfrú
íslandskeppninnar má að öllum lík-
indum rekja til kænlegrar markaðs-
setningar þar sem þjóðarstolt ís-
lendinga og minnimáttarkennd
gagnvart öðrum voldugri þjóðum
hafa verið hagnýttar til hins ýt-
rasta. Reynt hefur verið að skapa
keppninni jákvæða ímynd og setja
hana í þjóðræknislega umgjörð um
hugnast íslendingum. Forvígis-
menn keppninnar hafa ennfremur
verið iðnir við að benda á að keppn-
in hefur mun göfugri tilgang en að
bera saman mittismál. Hver getur
sett sig á móti framkvæmdum sem
hafa það að markmiði að hjálpa
bágstöddum börnum og selja lífs-
viðurværi íslendinga, þorskinn?
Þegar svo við bætist að þessi mál-
flutningur hefur átt greiða leið að
íslendingum, þar sem aðstandendur
keppninnar hafa haft ótrúlegan
aðgang að voldugustu fjölmiðlum
þjóðarinnar, er ekki að furða þótt
gagnrýnisraddir hafi orðið mjóróma
og heyrist nú nánast aldrei.
í fegurðarsamkeppni birtast ljós-
lega rótgrónar hugmyndir um kon-
ur og kvenlegt eðli. En hafa menn
alltaf verið sammála um það hvað
er fallegt og af hverju? Að mínu
áliti hafa þessar hugmyndir breyst
lítið í aldanna rás. Þótt birtingar-
form þeirra séu að sönnu háð tíðar-
andanum hveiju sinni má glögglega
kenna ákveðna megindrætti og
ákveðin grundvallarviðhorf til
kvenna sem hafa breyst merkilega
lítið í gegnum tíðina. Það er ekkert
nýnæmi að konur séu vegnar og
metnar eftir útlitinu einu saman.
MÓÐIRJÖRÐ...
Ef litið er á ríkjandi kvenmyndir
í frumstæðum þjóðfélögum þá er
það sláandi hversu oft konan er
táknuð með fijósemi sinni. Nærtæk
dæmi eru þær minjar og þær sagn-
ir úr fomum trúarbrögðum sem
hafá varðveist af fijósemisgyðjum
allt frá árdögum menningarinnar.
Líkamsstarfsemi konunnar var álit-
in eiga sér hliðstæðu í umbyltingu
jarðarinnar með sínar árstíða-
bundnu breytingar og hæfileikann
til að fóstra líf. Konan var eins og
móðir jörð. Simone de Beauvoir
(1953) hefur haldið því fram að sú
dulúð og þær hættur sem taldar
voru fylgja óskiljanlegri líkams-
starfsemi konunnar, t.d. blæðing-
um, þungunum, hafi vakið ugg með
fólki. Enn eimir af þeim gömlu
hugmyndum að blæðingar séu
óhreinar og jafnvel skaðlegar fyrir
konuna sjálfa. Þess sjást glögg
merki í auglýsingum, þar sem það
virðist gengið út frá því sem sjálf-
sögðum sannindum að blæðingar
séu óhreinar og hamli konunni. Með
réttu dömubindunum þarf enginn
að vita að konan er með blæðing-
ar, ekki einu sinni hún sjálf. Blæð-
ingamar verða vel geymt leyndar-
mál meðan konan heldur áfram sín-
um daglegu störfum.
MEYJAN...
Það er athygli vert að sjaldan
ber kynþokka á góma þegar fjallað
er um góðu fögru konuna. Allar
tungur um meintar kynlanganir
þessara kvenna þykja tæpast við
hæfi, þær eru hreinar eins og nýfall-
in mjöll og spara sig þangað til
hinn eini sanni sem ekkert lætur
aftra sér, sigrar að lokum og gerir
þær að sínum. Ekki er hægt að
útleggja þetta á annan hátt en að
kynþörf kvenna sé af hinu illa. Ef
hún er til staðar eitrar hún út frá
sér. Með klækjabrögðum tekst kon-
unni að fá manninn með sína eðli-
Iegu kynþörf tii að gera ýmislegt
sem hann hefði annars ekki gert.
Mikilvægi meydómsins hefur þó
trúlega aldrei náð almennilega í
Fegurðarsamkeppni ér eins og Öskubusku-ævintýri, nema hvað prinsessan eignast ekki prinsinn, heldur
eignast prinsinn prinsessuna.
Hxmfr*
2 f;
í' *v \ fL w m*Bk\ Bn h n
Hólmfríður Karlsdóttir, ungfrú heimur 1985. Takið
eftir vængjunum í stólbakinu.
Keppendur um titilinn Ungfrú
alheimur 1988 sýna hina
þokkafullu knébeygju.
gegn hjá íslendingum. Vissulega
búa konur ekki við sama umburðar-
lyndi hvað varðar athafnasemi á
hjónabandsmarkaðnum og karl-
menn. Hins vegar virðast fæstir sjá
nokkuð athugavert við það að skór-
inn sé mátaður áður en hann er
keyptur. íslenskarkonureru raunar
heimsfrægar fyrir þetta margum-
rædda fijálslyndi sitt og auðvitað
lögð önnur og verri merking í það
erlendis en gert er hér heima! í
öðrum vestrænum ríkjum, sérstak-
Iega þar sem kaþólskan er við lýði,
er hreinu meyjunni hampað. Ein-
hvers konar samband er talið vera
milli hreinleika andans og þess að
hafa taumhald á holdinu. Þetta má
að öllum líkindum rekja til gamalla
hugmynda um sambandið milli hug-
ar- og líkamsstarfseminnar með
rætur í framangreindri goðsögn um
móður jörð. í Bretlandi á 19. öld
voru flestir t.d. þeirrar skoðunar
að heili konunnar væri beintengdur
við' starfsemi móðurlífsins. M.ö.o.
heilinn var álitinn vera eins konar
framlenging á móðurlífinu. Ef of
mikið álag var á heilabú konunnar
gat það haft skaðleg áhrif á hæfni
hennar til að gegna móðurhlutverk-
inu, konur voru því ekki hvattar til
að leggja út í of langa skólagöngu.
Sömuleiðis var álitið að ýmsar
truflanir á lundemi oggeði konunn-
ar mætti rekja beint til móðurlífs-
ins. Þannig spmttu upp sjúkdóms-
heiti á borð vð móðursýki en enska
Stúlkumar rækta sinn innri mann.
Fegurðarsamkeppnir, rétt eins og
önnur fyrirtæki, þurfa að hafa trausta
ímynd til að vinsældir þeirra meðal
almennings séu tryggðar. Sá andi sem
reynt er að skapa í kringum Fegurðar-
samkeppni Islands virðist ekki
ósvipaður þeim sem sveif yfir vötnum
í ungmennafélögunum forðum daga.
„Islandi allt“ gæti gott eins verið
slagorð á báðum vígstöðvum. En eru
fegurðardrottningar réttu aðilarnir til
að koma íslenskri menningu á
framfæri erlendis?
orðið hysteria er dregið af latneska
orðinu hysterum sem þýðir móð-
urlíf. I fegurðarsamkeppninni
ungfrú heimur má glöggt kenna
að kvenímyndin sem sigurvegarinn
þarf að fylla upp í er ímynd hinnar
hreinlyndu meyju. Þetta sést m.a.
þegar krýningarmyndin af Hólmf-
ríði er skoðuð. Hún er með kórónu
og veldissprota, bak stólsins er í
lögun eins og vængir, þannig að
hún líktist helst engli. Stúlkurnar
sem taka þátt í keppninni eru ung-
ar og það er skilyrði að þær séu
ógiftar og barnlausar. Daginn eftir
krýninguna sjálfa skrifa þær undir
samning, þar sem í eru ströng
ákvæði um hegðun og klæðaburð
sem þær verða að hlíta í einu og
öllu. Jafnframt samþykkja þær að
uppfylla alla þá samninga sem fyrir-
tækið ungfrú heimur hefur gert við
önnur fyrirtæki um afnot af fegurð-
ardrottningunni. John Berger, höf-
undur bókarinnar, Ways of Seeing,
líkti keppninni við Öskubuskuævin-
týri, sá galli er þó á gjöf Njarðar
að Öskubuska hefur enga stjórn
yfir prinsinum, hún verður að gera
allt eins og hann býður henni að
gera, því hún er eign hans.
„Þegar ég var orðin ungfrú heim-
ur ætluðu menn nánast að gleypa
mig í einum bita — eða tveimur.
Ég vann og vann stundum 18-19
klukkutíma á sólarhring í kynning-
arstörfum fyrir íslenska aðila sem
vildu nýta sér frægðina. Ég svaf
stundum bara örfáa klukkutíma á
nóttu og átti svo að vakna sem
ungfrú heimur og mæta í alls kyns
kynningar sem gátu verið leiði-
gjarnar, sérstaklega ef ég hafði
ekkert að gera, var bara brúða sem
brosti. Það er gott og blessað að
kynna land og þjóð en ég þurfti að
spóka mig með alls kyns mönnum
á öllum tímum sólarhrings. Ég gat
aldrei sagt nei, jafnvel þó hringt
væri á sunnudagsmorgni.“ (Viðtal
við Lindu Pétursdóttur, Samúel,-
jan. 1990.)
DRÓSIN
Andhverfa hreinlyndu meyjar-
innar er konan sem er ofurseld fýsn-
um holdsins. Var einkum hætt við
þessu hjá þeim konum sem höfðu
ekki skynsemisveruna karlmanninn
til að líta til með sér. Kynþokka-
fulla konan er fyrst og fremst und-
ir stjórn líkamsstarfseminnar, hún
er ofurseld kynórum sínum og hé-
gómagirnd sem stýra athöfnum
hennar í stað skynseminnar. Hún
vill bara fá það og það strax. Hún
notar ýmiss konar táknmál til að
sýna þetta: Rauðar, hálfopnar var-
ir, þröng föt, háa hæla. Það er ekki
hægt að nauðga slíkri konu því að
samfarirnar geta aldrei orðið gegn
vilja hennar. Hún er bara að fá það
sem hún vildi, maðurinn er fórnar-
lambið ekki hún. í Bretlandi hafa
nærbuxur kvenna sem orðið hafa
fyrir nauðgun verið notaðar sem
sönnunargagn fyrir kviðdómnum
um að þær hafi raunverulega viljað
þetta og verið að táldraga þann sem
afbrotið framdi og ekki er óalgengt
að í blaðafrásögnum gulu press-
unnnar af nauðgunarmálum fylgi
ítarlegar lýsingar á fórnarlambinu
sjálfu, t.d. fráskilin, ljóshærð kona,
sem á 3 börn með 2 mönnum.
Ymsar fegurðarsamkeppnir hafa
reynt að stíla upp á kynþokkann,
enda ekki laust við að þessi kven-
ímynd veki meiri spenning hjá karl-
þjóðinni. Það má gamna sér með
lauslátu konunni en hið heppilega
kvonfang er óspjallaða meyjan.
Aherslan er á hin útlitslegu ein-
kenni kynþokkans, draumar og
væntingar stúlknanna tilheyra smá-
aletrinu. Dæmi um slíka fegurðars-
amkeppni er t.d. keppnin um milljón
dollara gæludýr ársins sem klám-
tímaritið Penthouse stendur' fyrir,
ungfrú alheimur og hér heima
ungfrú Hollywood. Kynningin á
stúlkunum sem tóku þátt í ungfrú
Hollywood-keppninni, 1990, er
nokkuð frábrugðin því sem gerist í
keppninni um ungfrú ísland. Á
kynningarmyndunum sem spanna
andlit og búk niður að mitti, eru