Morgunblaðið - 15.09.1991, Blaðsíða 20
>20
MORGUNBLAÐIÐ
MEIMNINGARSTRAUMAR
. SEPTEMBER 1-991
Úr myndinni um Hudson haukinn.
9.000 á
„Haukinn"
Alls sáu tæplega 9.000 manns gamanhasarmyndina
„Hudson Hawk“ með Bruce Willis fyrstu tíu sýningar-
dagana í Stjörnubíói, að sögn Karls Schiöths forstjóra
bíósins.
Þá sáu að sögn Karls
rúmlega 15.000 gam-
anmynd Steve Martins,
„L.A. Story“, en hætt var
að sýna hana fyrir nokkru,
og um 18.000 hafa séð
rokkheimildarmyndina
„The Doors“, sem Oliver
Stone gerði og Ijallar um
rokkgoðið Jim Morrison.
Næstu myndir á dagskrá
hjá bíóinu eru Tortímand-
inn 2 með Arnold Schwarz-
enegger í leikstjórn James
Camerons, en hún verður
I BIO
Óvenjumikið hefur
verið um kvikmyndahá-
tíðir það sem af er árinu.
Nú um helgina hefst þýsk
hátíð í Regnboganum og
fljótlega á eftir henni
kemur stærsta hátíðin af
þeim öllum, Kvikmynda-
hátíð Listahátíðar.
Fyrr á árinu fengum
við ágætt úrval mynda á
svissneskri hátíð, m.a.
Óskarsverðlaunamynd-
ina Vonarferð, en sú há-
tíð var framtak Kvik-
myndaklúbbs íslands,
sem einnig á þátt í þýsku
dögunum. Þá voru kvik-
myndahátíðir frá Finn-
landi (með úrvali mynda
eftir bræðurna Mika og
Aki Kaurismaki, sællar
minningar), Frakklandi
þar sem bar hæst mynd
Andrzej Wajda um gyð-
inginn og bamavip.inn
Korczak og loks Dan-
mörku.
Þýska kvikmyndahá-
tíðin sem nú hefst gefur
þverskurð af því sem
þýskir kvikmyndagerðar-
menn hafa fengist við
eftir að nýbylgjan leið.
Það verður forvitniiegt
að berja augum.
frumsýnd innan tíðar, og
eftir hana koma myndirnar
„Mortal Thoughts" með
Demi Moore og gaman-
myndin „Another You“ með
gamanleikaradúettnum
Gene Wilder og Richard
Pryor.
BÓKMENNTIR Á FILMU
Stefnur koma og fara í kvikmyndaheiminum en sú nýj-
asta er að snúa frægum, klassískum bókmenntum yfir á
filmu, en a.m.k. sex myndir í þeim dúr eru í vinnslu nú
um stundir.
Fyrsta skal nefna „Mad-
ame Bovary" eftir
Gustave Flaubert með Isa-
belle Hubbert í aðalhlutverk-
inu undir leikstjórn hins
gamalkunna Claude Chabrol.
Tvær myndir eftir breska
rithöfundinn E.M. Foster eru
nú í vinnslu: „Where Angels
Fear to Tread“ er leikstýrt
af Charles Sturridge með
Helen Mirren í aðalhlutverk-
inu og „Howards End“ í leik-
stjórn James Ivory (Herbergi
með útsýni, Maurice) en með
aðalhlutverkin fara Anthony
Hopkins og Vanessa
Redgrave.
Síðasti Móhíkaninn eftir
sögu James Fenimor Coopers
frá 1826 er með breska leik-
aranum Daniel Day Lewis
og Madeleine Stowe en leik-
stjóri er Michael Mann. Þá
er Francis Coppola að und-
irbúa bíóútgáfuna á Drakúla
eftir sögu Bram Stoker með
Winona Ryder og Anthony
Hopkins í aðalhlutverkum og
loks má nefna að kvikmynda-
Daniel Day Lewis; Síðasti
Móhíkaninn.
gerð sögunnar Fýkur yfir
hæðir eftir Emily Bronté er
einnig í undirbúningi og seg-
ir sagan að Sinéad O’Connor
muni tala fyrir sögumanninn,
Bronté.
Fuglastríðið í
Lumbruskógi
Bessi Bjarnason, Sigurður Siguijónsson, Örn Árna-
son, Ragnheiður Steindórsdóttir, Þórhallur Sigurðs-
son, Pétur Einarsson og fleiri leikarar ljá raddir sín-
ar í nýja danska teiknimynd, Fuglástríðið í Lumbru-
skógi, sem kvikmyndahúsið Regnboginn hefur sett á
íslenskt tal og hyggst frumsýna 16. okt. nk.
? I Viknimyndina fram-
A leiddi Per Holst (Pelle
sigursæli) en leikstjóri er
Jannik Hastrup og sagði
Andri Þór Guðmundsson
rekstrarstjóri Regnbogans
í samtali að hún hefði unn-
ið til verðlauna á síðustu
kvikmyndahátíð í Cannes.
Hún segir frá tveimur litl-
um fuglum sem missa for-
eldra sína, myrtir af hinum
óttalega Hroða, og hvernig
þeir hefna þeirra og hrekja
Hroða úr Lumbruskógi.
Fjögur lög eru í mynd-
inni, sungin af þeim Björg-
vini Halldórssyhi og Sigríði
Beinteinsdóttur í íslensku
útgáfunni en söngtextann
og texta myndarinnar
þýddi Ólafur Haukur Sím-
onarson rithöfundur. Leik-
stjóri íslensku talsetningar-
innar er Þórhallur Sigurðs-
son.
„Þetta er gríðarlega dýrt
mál, kostnaðurinn hleypur
á milljónum,“ sagði Andri
Þór en Regnboginn hefur
fengið styrk til talsetning-
arinnar frá samnorrænum
sjóði. Hljóðsetningin fer
fram í Stúdíó Sýrlandi und-
ir stjórn Gunnars Smára
Helgasonar.
Þess má geta að einn
af teiknurum myndarinnar
er íslendingur, Ásta Sig-
urðardóttir. íslenskt tal
hefur áður verið sett á
leikna bíómynd, Ronja
ræningjadóttir í Nýja bíói,
og teiknimynd, Valhöll, í
Laugarásbíói.
MÞeir sem höfðu ánægju
af breska sjónvarpsmynda-
flokknum Söngelski spæj-
arinn eftir Dennis Potter
geta nú glaðst yfir tvennu:
Bíómynd eftir mynda-
flokknum er í bígerð og það
er enginn annar en Dustin
Hoffman sem leikur titil-
hlutverkið. Breski leikarinn
Michael Gambon lék hann
óaðfinnanlega í þáttunum.
MOg meira um Dustin.
Hann kemur kannski til
með að leikaá móti Arnold
Schwarzenegger í verk-
efni sem austurríska vöðva-
fjallið hefur talsverðan
áhuga á en það er bíómynd
sem heitir Jung og Freud.
Sá stóri
myndi þá
leika Jung
en Hoff-
man Fre-
ud.
MÞá má
vera að
Bruce
Willis leiki
Vísunda-
Villa Cody á móti Harrison
Ford, sem leikur Villta-
Villa Hickok í myndinni
„The Epic Adventures
Óf Hickok and Cody“.
Handritið er eftir Ira Behr
en þungamiðjan í sögunni
er ferð þjóðsagnahetjanna
til New York árið 1873.
MNæsta mynd leikstjórans
Paul Mazurskys (Ovinir,
ástarsaga) er „The
Pickle“, gamanmynd um
áður mjög efnilegan kvik-
myndaleikstjóra sem lentur
er í að gera bíómynd um
undarlega súperhetju.
Danny Aiello fer með að-
alhlutverkið.
MBandaríski leikstjórinn
Philip Kaufman hefur
hætt við að leikstýra mynd-
inni „The Cheese Stands
Alone“ vegna „listræns
ágreinings". Framleiðand-
inn, Scott Rudin, leitar nú
að nýjum leikstjóra.
Hoffman; söng-
elski spæj-
arinn.
KVIKMYNDIR
/Hvad er Soderbergh ab gera í Prag?
Kynhf, lygorogKqfka
STEVEN Soderbergh skaust upp á stjörnuhimininn
fyrir tveimur árum með óvenjulegri ástarsögu, Kyn-
líf, lygar og myndbönd. Síðan hefur Holly wood biðl-
að til hans og boðið gull og græna skóga en Soder-
bergh hundsaði ríkidæmið, milljóndollara laun og
villu í Beverly Hills og hélt til Prag í Tékkóslóvakíu
að gera ódýra, svart/hvíta bíómynd um rithöfundinn
Franz Kafka.
Hún heitir einfaldlega
Kafka og er ekki beint
byggð á æfi rithöfundarins
þótt hún innihaldi vísanir í líf
hans og verk, heldur skáld-
skapur,
þriller sem
segir frá
því þegar
vinur
Kafka er
myrtur af
útsencí-
urum al-
ræðisríkis-
ins sem hann býr í. Breski
leikarinn Jeremy Irons leikur
rithöfundinn, sem reynir að
komast að því hvað olli dauða
eftir Arnold
Indriðason
vinar síns. Honum til aðstoð-
ar er Gabriela, sem Theresa
Russell leikur, en aðrir leikar-
ar í myndinni eru ekki af
verri endanum; Alec Guin-
ness og Ian Holm frá Bret-
landi, Joel Grey frá Banda-
ríkjunum og Armin Mueller-
Stahl frá Þýskalandi.
Soderbergh las fyrst hand-
ritið að myndinni fyrir fimm
árum en það er eftir höfund
að nafni Lem Dobb. Leik-
stjórinn Bariy Levinson, sem
stofnað hefur sitt eigið fram-
leiðslufyrirtæki, hitti Soder-
bergh og spurði hverju hann
vildi leikstýra. Soderbergh
var þá orðaður við verkefni
hjá Universal og ætlaði sér
að filma myndina „The Last
Ship“ fyrir Sidney Pollack,
sem gerist eftir kjarnorku-
styrjöld. „En ég var óánægð-
ur með uppkast mitt að hand-
ritinu," segir Soderbergh.
„Kafkahandritið var hins
vegar fullkomið og mér
fannst að það gæti gengið.
Sagan var góð, vitræn og það
var húmor í henni.“
Hann var aðeins 26 ára
þegar heimsfrægðin dundi
yfir. Þegar fyrsta mynd ungs
leikstjóra fær viðlíka viðtökur
og Kynh'f, lygar og mynd-
bönd, vinnur til aðalverðlaun-
anna á Canneshátíðinni og
er lofuð í hástert af gagnrýn-
endum, hlýtur það að vera
talsvert mál fyrir viðkomandi
hvernig til tekst með næstu
mynd. En Soderbergh segist
ekki vera undir miklum
þiýstingi að því leyti. „Það
er mér í hag á margan hátt
að fyrirfram skuli einhver
áhugi vera á myndinni. Það
eina sem ég hef áhyggjur af
er hvort eitthvað verður varið
í hana yfirleitt."
„Eg reyni að leita eftir
kyndugum hlutverk- '
um,“ segir Jeremy Ir-,
ons, sem hreppti
óskarinn fyrir
túlkun sína áj'
danskættaða
aðalsmanninum1
Claus von Bulow
í „Reversal of Fort-
une“. „Það getur þýtt
að ég þurfi að læraí
nýtt tungumál eða*
leika einhvern mjög
ólíkan mér eins og,
Claus von Bulow
eða í þessu til-
felli að ferðast til Prag og
vinna með leikstjóra sem ég
met mikils. Ég sá myndina
hans í New York og sagði
við konuna mína: Eg
verð að vinna með
þessum manni.“
En Irons þekkir
lítið til Franz
Kafka. „Ég
er ekki sér-
lega vel les-
inn,“ segir
hann. „Mér
finnst alltaf
þegar ég les að
ég ætti að vera
að gera eitthvað
annað og betra
við tímann.“
Jeremy Irons sem Franz Kafka í mynd Stevens Soder-
berghs; leitar eftir kyndugum hlutverkum.
I