Morgunblaðið - 29.09.1991, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. SEPTEMBER 1991
5
i
OPIÐ HÚS HJÁVÍB
HELGINA 28.-29. SEPTEMBER FRÁ 13-17:00.
Skyggnist inn í framtíð
eigin fjármála
ÍNU um helgina er opið hús
hjá VIB, Verðbréfamarkaði Islands-
banka, í Armúla 13a. Fjármál
einstaklinga eru ein órofa heild,
frá upphafi vinnualdurs og allt til
efdrlaunaáranna. A opna húsinu
lítum við á alla ævina í réttu
samhengi og leiðum þig um heim
eigin fjármála, allt frá kaupum á
fyrsta bílnum, fyrstu íbúðinni og
áfram ...
Ævinni má skipta í þrjú
skeið. Aherslurnar á hverju
æviskeiði eru ólíkar. Sumt af því
sem kynnt er á opna húsinu kann
að koma flatt upp á þig. Annað
kann að koma þér þægilega á óvart.
Ráðgjafar VÍB verða aldrei langt
undan, reiðubúnir til útskýringa
og að svara spurningum. Fyrir þá
sem hafa áhuga eru flutt
fræðsluerindi báða dagana.
Efnið sem er kynnt á opna
húsinu er engin draumsýn. Það
snertir þig, fjölskyldu þína og
afkomendur, öryggi, eignir, skuldir,
lífsstíl, tekjur og eftirlaun. En það
er sett fram, svart á hvítu, í krónum
og aurum. Það sem mestu máli
skiptir er að valið er þitt. Þú setur
þín eigin markmið, hefur stjórn á
eigin fjármálum.
VÍB-STOFAN
A opna húsinu verður VÍB-stofan
kynnt í fyrsta sinn. Þar er að fmna
miklar upplýsingar um innlend og
erlend verðbréf og ávöxtun spari-
Qár. í VÍB-stofunni komast gestir í
beint samband við erlendar
kauphallir með tengingu við upp-
lýsinganet REUTERS og erlenda
sjónvarpsþætti um hlutabréfa-
viðskipti og fjármál.
FYRIRLESTRAR LAUGARDAGINN 28. SEPTEMBER
kl. 14:00 Er markaðurinn að hefja sig til flugs á nýi Sigurður B. Stefánsson
kl. 15:00 Æviskeið 2: Allt er fertugum fært. Vilborg Lofts
kl. 16:00 Æviskeið 3: Láttu þér líða vel. Gunnar Baldvinsson
FYRIRLESTRAR SUNNUDAGINN 29. SEPTEMBER
kl. 14:00 Æviskeið 2: Allt er fertugum fært.
Vilborg Lofts
kl. 15:00 Æviskeið 1: í upphafi skyldi endinn skoða.
Margrét Sveinsdóttir
kl. 16:00 Er markaðurinn að hefja sig til flugs á ný?
Sigurður B. Stefánsson
OG FLEIRA...
Kynningargögn. Gestir opna hússins fá ný
kynningargögn um ýmsa þætti fjármála, sem
þeir geta tekið með sér heim og skoðað í
rólegheitum.
Verdlaunagetraun: 50.000 krónur. Gestir
opna hússins geta spreytt sig á einfaldri
verðlaunagetraun. 50.000 krónaverðlaun verða
veitt einhverjum heppnum gesti helgarinnar.
Að sjálfsögðu er einnig boðið upp á kaffi og
kökur. Sérstakt horn er fyrir börnin, og nóg af
bílastæðum.
Verið velkomin í VÍB!
VlB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF.
Ármúla 13a, 108 Reykjavík. Síml 68 15 30. Telefax 68 15 26.