Morgunblaðið - 04.10.1991, Blaðsíða 10
if
10
!'0&t aaaéFrfo > (w+A.Mw^oj-tow
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 1991
Hópur áhugamanna um íslenska sjálfsvitund:
Vilja kæra sögufölsun SAS og
Bergen-Line í New York Times
Asmundarsalur:
Kristín Geirsdóttir sýnir
HÓPUR manna sem nefna sig
Ahugamenn um íslenska sjálfs-
vitund hefur sent utanríkisráð-
uneytinu bréf þar sem skorað
er á ráðuneytið að hlutast til
um að rekið verði mál fyrir
Náttúruverndarfé-
lag Suðvesturlands:
Haustferð í
Heiðmörk
í SAMVINNU við Skógræktar-
félag íslands og Skógræktarfé-
lag Reykjavíkur fer Náttúru-
vemdarfélag Suðvesturlands
vettvangsferð laugardaginn 5.
október um Landnemaslóð í
Heiðmörk.
í ferðinni fæst góð yfírsýn yfir
eista hluta skógar Heiðmerkur.
Tilgangur ferðarinnar er að vekja
athygli á því hvernig trén sem líf-
verur bregðast við minnkandi birtu
og hita með haustinu. Hugað verð-
ur að þessu undir leiðsögn Valdi-
mars Reynissonar, starfsmanns
Skógræktarfélags Reykjavíkur. Í
leiðinni verður haustlitadýrðar
tijánna notið en hún er einmitt í
hámarki um þessar mundir.
Fólk er beðið að mæta við Rauð-
hólahliðið kl. 10.00 f.h. Síðan verð-
ur ekið að Borgarstjóraflöt og
gengið þaðan. Vettvangsferðin
tekur um tvo tíma. Ekkert þátttök-
ugjald.
(Fréttatilkynning)
bandarískum dómstólum vegna
heilsíðuauglýsingar flugfélags-
ins SAS og Bergen-Line sem
birt var meðal annars í stórblað-
inu New York Times þar sem
látið er að því liggja að Leifur
Eiríksson sem fann Vínland
hefði verið Norðmaður. Emil
Als Iæknir, forsvarsmaður
hópsins, segir þetta sögufölsun
af grófasta tagi og vill að ráðu-
neytið krefjist þess að auglýs-
ingunni verði hnekkt og leið-
rétting birt með sama hætti.
í bréfinu segir: „Síðla septemb-
ermánaðar 1991 birtist í banda-
ríska dagblaðinu New York Times
stór auglýsing frá skandinavíska
flugfélaginu SAS og norska skipa-
félaginu Bergen-Line, þar sem
Noregi er eignaður fundur Norður-
Ameríku, eða Vínlands. í auglýs-
ingunni er gengið fram hjá þeirri
sögulegu staðreynd að Leifur Ei-
ríksson var íslendingar en ekki
Norðmaður. Þar með er hafnað
þeirri söguskoðun að Island hafi
orðið sjálfstætt ríki árið 930 og
þegnar þess þvi íslendingar. Telj-
um við okkur hafa fyrir því'full
rök að þannig sé á málið litið í
hinum upplýsta hluta heimsins og
hefur þetta verið einn af hornstein-
um íslenskra viðhorfa. Er því þessi
norsk-skandinavíska auglýsing
hin grófasta sögufölsun og einhver
ósvífnasta móðgun sem Islending-
um hefur verið sýnd og er þó af
fleiru að taka úr austurátt.
Við beinum þeim tilmælum til
utanríkisráðheiTa að hann hlutist
til um að mál verði rekið fýrir
bandarískum dómstóli í því skyni
að téðri auglýsingu verði hnekkt
og jafnstór leiðrétting ásamt
dómsorði birt í sama blaði eða
blöðum með jafnáberandi-hætti og
hin upprunalega auglýsing.
Við höfum af því spurnir að hið
bandaríska réttarkerfi taki hart á
fölsunum og villandi fullyrðingum
í skjóli auglýsinga."
Bréfið ritar Emil Als læknir,
fyrir hönd eftirfarandi manna sem
leggja við nöfn sín:
Guðjón A. Kristjánsson formað-
ur FFSÍ, Þorsteinn Halldórsson
framkvæmdastjóri, Sigurður A.
Magnússon rithöfundur, Þórarinn
Guðnason læknir, Stefán Hörður
Grímsson skáld, Steingrímur St.
Th. Sigurðsson listmálari, Ásdís
Kvaran lögfræðingur, Magnús
Valdimarsson framkvæmdastjóri,
Ingimar Erlendur Sigurðsson
skáld, Örlygur Sigurðsson listmál-
ari, Þorsteinn E. Jónsson fiug-
stjóri og Sigþór Pálsson stýrimað-
ur.
2. RAÐTÓNLEIKAR Tónlistar-
skólans og Hafnarborgar á þessu
starfsári verða næstkornandi
sunnudag, 6. október. Á tónleik-
unum kemur fram Sigurður Mar-
teinsson pianóleikari.
Sigurður Marteinsson er 36 ára
gamall. ^Hann hóf píanónám í Tón-
Kristín við eitt verka sinna.
KRISTÍN Geirsdóttir opnar
málverkasýningu í Ásmundar-
sal, Freyjugötu 41, laugardag-
inn 5. október nk. kl. 14. Á sýn-
ingunni verða verk unnin með
olíu á striga.
Kristín er fædd 25. ágúst 1948
í Reykjavík. Hún stundaði nám við
Myndlista- og handíðaskóla ís-
lands á árunum 1985-1989 og
listarskóla Sauðárkróks 13 ára gam-
all hjá Evu Snæbjarnardóttur.
Þremur árum síðar fór hann í
Tónlistarskólann á Akureyri og nam
þar um fjögurra ára skeið. Síðan lá
leiðin til London, þar sem Sigurður
naut leiðsagnar Philips Jenkins þijú
næstu árin.
Á árunum 1978-82 var hann við
nám í Tónlistarskólanum í Reykjavík
hjá Árna Kristjánssyni ásamt því að
ljúka píanókennaraprófi vorið 1981.
Sigurður kenndi síðan í átta ár, aðal-
lega við Tónlistarskóla Hafnarfjarð-
ar. Síðustu þijú árin var hann við
framhaldsnám í Kaupmannahöfn og
naut þar leiðsagnar Bohumiiu
Jedlicovu sem er dósent við Konung-
lega danska tónlistarháskólann.
Á efnisskrá eru tvö verk. Króm-
atísk fantasía og fúga í d:moll eftir
J.S. Bach og 1. kafli úr sónötu í G
dúr D894 eftir Franz Schubert.
Raðtónleikar Tónlistarskóla
Hafnarfjarðar og Hafnarborgar eru
styrktartónleikar til handa efnileg-
um nemendum við skólann.
Tónleikarnir í Hafnarborg á
sunnudaginn hefjast kl. 15.30 og eru
um 30 mín. langir.
brautskráðist úr málaradeild.
Einnig sótti hún nokkur námskeið
við Myndlistarskólann í Reykjavík.
Þetta er fyrsta einkasýning
Kristínar en hún tók þátt í samsýn-
ingu sexmenninganna í Hafnar-
borg, Menningar- og listastofnun
Hafnarfjarðar í október 1990.
Sýningin er opin daglega frá
kl. 14 til 19. Henni lýkur miðviku-
daginn 16. október.
Sigurður Marteinsson pianóleik-
ari.
PC
byrjendanámskeió
Skemmtilegt og gagnlegt námskeið fyrir þá,
sem eru að byrja að fást við tölvur.
VR og fleiri stéttarfélög styrkja félaga sína til
þátttöku í öllum námskeiðum Tölvuskóla
Reykjavíkur.
Tölvuskóli Reykiavíkur
íI 91 Borgartúni 28, sími 91-687590
Raðtónleikar Tónlistarskóla Hafn-
arfjarðar og Hafnarborgar
FERÐAMIÐSTÖÐIN VERÖLD býður upp á frábæra helgarferá fil Munchen
11.— 13. október nk. F F fl II fi M I II U Í II I
Munchen, sem er höfóustaður Su&ur-Þýskalands er af mörgum talin fegurst borga í Mið-Evrópu, auk ■ L II II H m I II ð I 11 II I
þess sem skemmtanalíf er með því fjörugasta. Þar er að finna stærstu bjórhallir álfunnar, þar sem y—*
stemningin er ógleymanleg. Þá má ekki gleyma verslununum. Það er óvíða betra að versla en einmitt í
Munchen.
Fyrir fótboltaáhugamenn þá á Bayern Munchen heimaleik gegn Borussia Dortmund á laugardeginum.
Flogið verður með Atlantsflugi og gist á hinu ágæta hóteli Garden í miðborg Munchen. Boðið
verður upp á skoðunarferð um borgina, auk þess að heimsækja heimsins stærsta bjórstað, Mathaeser.
Þú færð hvergi betri bjór en í Munchen! Þá verður sameiginlegur kvöldverður. Islenskir fararstjórar
VERALDAR verða fó|ki innan handar meðan á dvölinni stendur.
W0Q
AUSTURSTRÆTI17, S'MI 622200
ekki
ÚR HENDI
PA- ,
HAtiEKIF«l
ekkiá
jéSTUMHI!