Morgunblaðið - 04.10.1991, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 04.10.1991, Blaðsíða 35
it'&i naaöT>K> t auoAa’JTeöT aieAjawuoíiai/i 35 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 1991 Ný kynslóð söngvara flytur gnllmola dægnrlagas ögunnar Ný kynslóð dægurlagasöngv- ara er nú að ryðja sér til rúms á íslandi og sér þess víða merki, svo sem á hljómplötum, skemmtunum, dansleikjum og í sturtuklefum og baðherbergjum víðs vegar um landið. I nýrri söngskemmtun, sem frumsýnd verður á Hótel Islandi í kvöld, föstudagskvöld, munu fímm ung- ir söngvarar bera hitann og þungann af dagskránni, sem ber heitið „ Aftur til fortíðar - Íslensk- ir tónar í 30 ár“ , þar sem flutt verða nokkur af vinsælustu dans- og dægurlögum áranna 1950 til 1980. Hinir ungu söngvarar sem nú spreyta sig á gömlu dægurlaga- perlunum eru þau Daníel Ágúst Haraldsson, Páll Óskar Hjálm- týsson, Berglind Björk Jónas- dóttir, Sigrún Eva Ármannsdótt- ir og Móeiður Júníusdóttir, en öll hafa þau vakið athygli og hrifningu að undanförnu fyrir áheyrilegan söng og lauflétta sviðsframkomu. Undirleik annast sjö manna Dægurlagakombó Jóns Ólafssonar, sem að sjálf- sögðu er skipað valinkunnum sómamönnum frá trommum og upp í tenórsaxafón. Og til að halda tengslunum við fortíðina munu margir af vinsælustu dæg- urlagasöngvurum fyrri tíma taka þátt í sýningunni, og verða fýrstu heiursgestimir þau Þuríður Sig- urðardóttir, Guðbergur Auðuns- son og Ólafur Þórarinsson, sem Jón Ólafsson hljómsveitarstjóri, Páll Óskar Hjálmtýsson söngvari og Björn Emilsson hönnuður og sýningarstjóri bera saman bækur sínar á æfingu nú í vikunni. Morgunblaðid/Sverrir Ungu söngvararnir sem rifja upp gullniola dægurlagasögunnar í sýningunni á Hótel Islandi: Berglind Björk Jónasdóttir og Dan- íel Agúst Haraldssoii' (í aftari röð), og Móeiður Júníusdóttir, Páll Óskar Hjálmtýsson og Sigrún Eva Ármannsdóttir. betur er þekktur sem Labbi í Mánum. Höfundur handrits er hinn góðkunni blaðamaður, rithöfund- ur og tónlistarunnandi Ómar Valdimarsson, hönnuður og stjórnandi sýningarinnar er Björn Emilsson, danshöfundur er Ástrós Gunnarsdóttir, ljósam- eistari Kristján Magnússon, hljóðmeistari ívar Ragnarsson og sviðsstjóri Ágúst Ágústsson. Kynnir sýningarinnar er Sigurð- ur Pétur Harðarson, stjórnandi útvarpsþáttarins vinsæla „Landið og miðin“ og er það vel við hæfi þar eð sýningunni er ætlað að höfða til landsmanna allra, ungra sem aldinna, til sjáv- ar og sveita. Æfingar hafa stað- ið yfir af kappi uíidanfarnar vik- ur og voru meðfylgjandi myndir teknar nú í vikunni er undirbún- ingur stóð sem hæst. fólk ■ fréttum COSPER Hann leikur vel, en það er bara synd að liann skuli vera örvhentur. Símar 13303-10245 Komið og njótið góðra veitingo í þægilegu og ofsloppondi umhverfi. Munið sérstöðu okkor til að tako ó móti litlum hópum til hvers konor veislu- og fundorholdo. Nýtt útlit - betri staður. Verið velkomin. Starfsfðlk Torfunnar. ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ LOKAÐU KULDANN ÚTI Nutríapelsar allarstærðir - mörg snið Verð frá kr. 125.001,- Góð greiðslukjör Opið kl. 13.00-18.00, laugard. kl. 11.00-14.00. PELSINN Kirkjuhvoli - simi 20160 Varðveittu heilsuna allt árið með ódýri, hollri og góðri hreyfingu á vönduðu þrekjóli! Við bjóðum fyrsla flokks þrekbjól á mjög góðu verði frá Body Sculptureí Brellandi. Model 2000 með 8 kílóa kastbjóli, sem gefur jafnt og goll áslig, slillanlegri álaksþyngd, lölvulímaslili og mæli fyrir vegalengd og braða og mjúk slillanleg sæli og slýri á kr: 19.618.- Model 2200 er eins og að ofan greinir en með fullkomnum tölvumæli með tímastilli, vegalengd, hraða, kaloríubrennslu og púlsmæli á kr. 22.461,-stgr. ÐiittDY SCULPTURE ® — _ Reiðhjó/avers/un i n orninnP* RAOGHEIOSIUM SKEIFUNNI T T VERSLUN SIMI 679890 VERKSTÆÐI SIMI 679891

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.