Morgunblaðið - 04.10.1991, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 1991
5
Fækkun hefðbundinna vopna í Evrópu:
Kanadískir eftirlitsmenn
á Keflavíkurflugvelli
Keflavík.^
KANADÍSKIR eftirlitsmenn ásamt fulltrúum bandarisku afvopnuna-
reftirlitsstofnunarinnar „On Site Inspection Agency“ fóru um varnar-
svæðið á Keflavíkurflugvelli á miðvikudag.. Aðgerðin er liður i æf-
ingu móttöku á eftirlitsnefndum erlendra ríkja vegna eftirlits með
vopnabúnaði samkvæmt samningi um fækkun hefðbundinna vopna
í Evrópu sem undirritaður var í París 19. nóvember 1990 af ríkjum
Atlantshafs- og Varsjárbandalagsins. Varnarmálaskrifstofa utanrík-
isráðuneytisins og varnarliðið á Keflavíkurflugvelli höfðu umsjón
með æfingunni.
Að sögn Friðþórs Eydal upplýs-
ingafulltrúa varnarliðsins er fram-
kvæmd eftirlitsins flókið ferli og
háð ákveðnum takmörkunum varð-
andi tilkynningu, tíma ,og lengd
eftirlitsheimsókna, fjölda og útbún-
að eftirlitsmanna og hvað þeim
væri heimilt að skoða, svo dæmi
séu tekin. Eftirlitsheimsóknir til
Áhugi stórkaup-
manna á Ríkisskip:
Fyrirspurn
frá Kýpur
ÁHUGI Félags stórkaupmanna
á að kaupa Ríkisskip hefur vak-
ið athygli innanlands og fjöldi
fyrirspurna hefur borist félag-
inu sökum þessa, að sögn Stef-
áns Guðjónssonar fram-
kvæmdastjóra Félags stórkaup-
manna. Þar að auki barst ein
fyrirspurn frá Kýpur um málið.
Stefán segir að þeim hafi borist
skeyti frá íslenskum skipamiðlara
sem starfar nú á Kýpur og vildi
sá fá upplýsingar um þennan
áhuga stórkaupmanna en honum
höfðu borist óljósar fregnir af
málinu. Þessi maður, Baldvin
Jónsson, starfar nú fyrir Global
Marines sem rekur skipamiðlun
og olíuverslun við Miðjarðarhafið.
Staða málsins nú er annars sú
að stórkaupmenn bíða svars frá
samgönguráðherra við bréfi því
sem þeir sendu honum nýlega og
greint var frá í Morgunblaðinu
fyrir helgina.
------------
Lagt til að
Thorvald-
BÍLL FBÁ HEKLU BOBBAB SIG
«057
sensstræti
verði lokað
Umferðarnefnd Reykjavíkur
hefur samþykkt að leggja til að
Thorvaldsensstræti við Austur-
völl verði lokað fyrir bílaum-
ferð.
Thorvaldsensstræti liggur með-
fram Austurvelli, frá Vallarstræti
að Kirkjustræti. Haraldur Blöndal,
foi-maður umferðnefndar, sagði að
í ályktuninni væri bent á að eftir
að búið væri að loka Vallarstræti
við Austurvöll fyrir bílaumferð
yrði Thorvaldsensstræti ekki ann-
að en bílastæðagata. Ef hún ætti
að þjóna því hlutverki þyrfti að
búa til snúningshaus, annað hvort
við Nýja kökuhúsið eða með því
að taka af Austurvelli, en slíkar
aðgerðir myndu annars vegar tak-
marka möguleika á útiveitingahúsi
við Nýja kökuhúsið en hins vegar
spilla Austurvelli.
Því hefði umferðamefnd lagt til
að loka Thorvaldsensstræti enda
væri hlutverki götunnar fyrir bíla-
umferð lokið með lokun Vallar-
strætis. Alyktun umferðarnefndar
verður tekin fyrir í borgarráði.
íslands einskorðast ekki endilega
við umsamin varnarsvæði, en fylgd
og kostnaður við ferðir eftirlits-
manna um landið er á ábyrgð ís-
lenskra stjórnvalda.
-BB
Morgunoiaoio/Bjorn tsionaai
Eftirlitsmenn að störfum á Keflavíkurflugvelli, en meðal þess sem þeir skoðuðu voru Phantom F-15-orr-
ustuþotur varnarliðsins, en þær falla undir ákvæði samkomulagsins um takmarkaðan heildarfjölda slíkra
véla.
Kjörnir til hverskonar
vöruflutninga og fólksflutninga
□ Án vsk
□ Bensín- eða Dieselhreyfill
□ Aflstýri/Framhjóladrif
□ 5 gíra handskipting/sjálfskipting
□ Burðargeta 1-1,2 tonn
□ Farþegafjöldi allt að 11 manns
□ Þriggja ára ábyrgð
6 manna VW Transporter með palli
3 manna VW Transporter með palli
Lokaður VW Transporter
HEKLA
LAUGAVEGI 174
SÍMI 695500
VANDAÐIR
VINNUBÍLAR
J/tÁ
VOLKSWAGEN
y