Morgunblaðið - 04.10.1991, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 04.10.1991, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 1991 19 Karpovhélt naumri forystu Morgunblaðið/Þorkell Þorkelsson Ivantsjúk missti niður vænlega stöðu gegn Karpov í gærkvöldi. ___________Skák Margeir Pétursson ANATÓLÍ Karpov lenti í tölu- verðum þrengingum í skák sinni við Vasílí Ivantsjúk á Heimsbikarmóti Flugleiða í gærkvöldi, en með þrautseigju tókst honum að halda jafntefli og þar með efsta sætinu. Ljubojevic, sem vann Karpov í fyrrakvöld, var nú heillum horfinn. Eftir hroðalega yfir- sjón í 29. leik gegn Khalifman voru úrslitin ráðin. Júgóslavinn hlaut sitt fyrsta tap og er jafn landa sínum Nikolic og Banda- ríkjamanninum Seirawan í þriðja sæti, á eftir Ljubojevic og Karpov. Jóhann Hjartarson gerði jafntefli við Gúlko með svörtu í bráðskemmtilegri skák. Frekar en fyrri daginn heppn- aðist byrjun Jóhanns ekki sérlega vel, en hann tefldi nú Kóngsind- verska vörn, sem m.a. Kasparov hefur mikið dálæti á. Honum heppnaðist þó að flækja taflið sér í vil og Gúlko þurfti að finna lag- lega uppskiptafléttu til að halda taflinu í jafnvægi. Jan Timman hefur ekki verið tilbúinn til að mæta íslenska haustinu, hann á við kvefpest að stríða og tafl- mennska hans í gær gegn Speel- man var afskaplega slök. Eng- lendingurinn þurfti lítið að hafa fyrir sinni fyrstu vinningsskák á mótinu, en við tapið datt Timman niður í neðsta sætið með þeim Jóhanni Hjartarsyni og Gúlko. Ehlvest vann aðra skák sína í röð er hann lagði Murray Chandl- er að velli. Englendingurinn eyddi alltof miklum tíma og þótt Ehlvest yrðu á mistök kom það ekki að sök, Chandler svaraði með ennþá grófari afleik á síðustu mínútunni. Það þarf að fara langt aftur í tímann til að finna jafnslaka tafl- mennsku hjá Valerí Salov og hér í Reykjavík. Eftir tapið fyrir Karpov í þriðju umferð hefur hann ekki borið sitt barr, e.t.v. hefur hann sett markið of hátt í upp- hafi. Eftir vel heppnaða byijun í gær gegn Seirawan var tafl- mennska Salovs lítt skiljanleg og hann lenti skyndilega í erfiðu hróksendatafli með peði minna, sem Bandaríkjamaðurinn vann örugglega. Það var þó huggun fyrir Salov að Ulf Andersson gaf biðskák sína við hann frá umferð- inni áður. Hinn 31 árs gamli Yasser Seirawan hefur um árabil verið öflugasti skákmaður vestanhafs og hann hefur teflt snurðulaust á þessu móti og stendur nú mjög vel að vígi fyrir iokabaráttuna. Svíinn hefur heldur ekki séð til sólar í þessu móti og hefur engin færi fengið. í gærkvöldi tefldi hann eina ferðina enn fremur linkulega með hvítu og gerði bar- áttulítið jafntefli við Beljavskí. Svo sem sjá má af frammistöðu þeirra Timmans, Salovs og And- erssons er þetta mót einfaldlega svo sterkt að jafnvel öflugustp skákmenn heims þurfa að ná sínu bezta til að verða fyrir ofan miðju. Með hvítt gegn Portisch átti Nikolic gótt færi á að bæta enn góða stöðu sína á mótinu, en Ungveijinn jafnaði taflið mjög snemma og var aldrei í neinni hættu. Heildarstaðan eftir 9 umferðir 1. Karpov 6V2 v. 2. ívantsjúk 6 v. 3.-5. Ljubojevic, Seirawan og Nikolic 5'/2 v. 6.-7. Khalifman og Ehlvest 5 v. 8. Speelman 4 ‘/2 v. 9. —12. Chandler, Salov, Beljavskí og Portisch 4 v. 13. Andersson 3‘/2 v. 14, —16. Jóhann, Timman og Gúlko 3 v. Frídagur á skákmótinu í dag Keppendur fá frí í dag og mæta væntanlega endumærðir til leiks á morgun í tíundu umferð. Sú ellefta verður síðan tefld á sunnudaginn og sú tólfta á mánu- daginn. Alla dagana hefst keppnin klukkan 17.10. Hvítt: Vasílí ívantsjúk Svart: Anatólí Karpov Caro—Kann vörn 1. e4 - c6 2. d4 - d5 3. Rc3 - dxe4 4. Rxe4 - Rd7 5. Bc4 - Rgf6 6. Rg5 - e6 7. De2 - Rb6 8. Bd3 - h6 9. R5f3 - c5 10. dxc5 - Bxc5 11. Re5 - Rbd7 12. Rgf3 - Dc7 13. 0-0 - 0-0 14. Hel í úrslitaeinvígi áskorenda- keppninnar 1987 lék Andrei So- kolov hér 14. Bd2 gegn Karpov, en náði engum stöðuyfírburðum. 14. - b6 15. Rxd7 - Bxd7 16. Re5 - Bc6 Karpov sér sig knúinn til að láta biskupaparið af hendi og með það og peðameirihluta að vopni stendur hvítur betur að vígi. 17. Rxc6 - Dxc6 18. Bf4 - Had8 19. Hadl - Bd6 20. Bd2 - Dc7 21. g3 - Dc6 22. a3 - Be7 23. Bc3 - Dc7 24. Be5 - Bd6 25. Bc3 - Be7 26. Bc4 - Dc6 27. Hd3 - Hxd3 28. Bxd3 - Hd8 29. Hdl - Hd5 30. Df3 - b5 31. Hel - Dd7 32. He5 - Bf8 33. Hxd5— Rxd5 34. De4 - f5 35. Dd4 - a6 ívantsjúk hefur fram að þessu orðið býsna vel ágengt, en næsti leikur hans er linkuiegur og gefur Karpov kost á að virkja biskupinn á f8. Mun sterkara virðist nú 36. b4! sem bæði neglir niður svarta peðaminnihlutann, auk þess sem áætlun hvíts er skýr, hann heldur svartreitabiskupnum á löngu skálínunni og leikur síðan c2-c4. 36. Bd2 - Be7 37. De5 - Bf6 38. Db8+ - Kf7 39. Da8 - Dd6 40. b3 - Bc3! 41. Bxc3 - Rxc3 42. Dc8 - Rd5 43. b4 - Re7 44. Db7 — Kf6 45. Bfl og hér var samið jafntefli. Eitt atriði úr myndinni „Komdu með í sæluna! Bíóborgin sýnir myndina „Komdu með í sæluna“ BÍÓBORGIN hefur tekið til sýn- ingar myndina „Komdu með í sæluna“. Með aðalhlutverk fara Dennis Quaid og Tamlyn Tomita. Leikstjóri er Alan Parker. Myndin segir frá Jack McGurn, blásnauðum íra sem kominn er vest- ur til Los Angeles. Hann er sýningar- maður í kvikmyndahúsi að atvinnu og fær hann vinnu í faginu í húsi í Litlu Tókýó, sem er hverfi þar sem Japanir eru fjölmennir. Það er Jap- ani sem rekur bíóið, Kawamura að nafni, og á hann dóttur sem Jack verður hrifinn af. Kawamura á í fjár- hagsörðugleikum og býður Fujioka, stöndugur kaupsýslumaður, honur leið út úr þeim. Hann vill kvænast á ný og ganga að eiga dóttur hans. Lily, dóttir Kawamura, kemur ekki til hugar að taka bónorði karlsins en þegar Jack herðir upp hugann og spyr Kawamura hvort hann megi umgangast hana þvertekur hann fyr- ir það. Úr vöndu er að ráða því að brátt er Lily orðin barnshafandi eftir Jack enda eru þau nú gift þótt slíkt sé lögbrot í Kaliforníu. Ekki bætir það úr skák að Japanir gera árás á Pearl Harbor og þá eru Bandaríkin komin með í leikinn. Síðasta sýning- arhelgi Péturs Friðriks SÝNINGU Péturs Friðriks í Hafnarborg, menningar- og lista- stofnun Hafnarfjarðar, lýkur um helgina. A sýningunni í Hafnarborg eru rúmlega 60 verk: olíumálverk, akrýl- og vatnslitamyndir, flest ný, en einnig eldri myndir, allt frá árinu 1951. Gömlu myndirnar eiga það sameiginlegt með þeim nýrri að þær hafa aldrei verið sýndar áður. GENERAL ELECTRIC S I L I K 0 N GE Silglaze silikon er einþátta sýrulaust þéttiefni til notkunar við toppfyllingu. Hefur einnig góða viðloðun við PVC málaðan við og ál. GE Silglaze fæst glært Togþol +/- 50 % FÆST í FLESTUM BYGGINGAVÖRUVERSLUNUM GE SILIK0N, ÞÉTTING TIL FRAMBÚÐAR I —1

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.