Morgunblaðið - 04.10.1991, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 04.10.1991, Blaðsíða 21
21 ■ TOKYO - Fjármálaráðherra Japans, Ryutaro Hashimoto, til- kynnti í gær að hann hefði sagt af sér embætti vegna hneykslismála sem ráðuneytið hefur verið bendlað við. Hann lætur af störfum síðar í mánuðinum. Búist hafði verið við af- sögninni um hríð og hafði hún því engin áhrif á verð- bréfaviðskipti. Ráðherrann beið með afsögnina þar til hann hafði komið frumvarpi gegnum þingið sem á að uppræta misferli verð- bréfafyrirtækja. ■ PARÍS - Neðri deild franska -þingsins samþykkti í gær að stytta herskyldu úr 12 mánuðum í 10 mánuði með 316 atkvæðum gegn tveimur. Stjórnarandstöðuflokkarn- ir sátu hjá en Ný-Gaullistar vilja að herinn verði að mestu leyti skip- aður atvinnumönnum. Benda þeir á að Persaflóastríðið hafi leitt i ljós að vanþjálfaðar sveitir hermanna sem gegna lögbundinni herskyldu séu gagnlausar i hernaði. Þar sem dregið hefur úr hættunni á sov'- eskri árás á Vestur-Evrópu hyggst franska stjórnin fækka mönnum undir vopnum um 25%. ■ JERÚSALEM - Borgarstjóri Tel Avív, Shlomo Lahat, sagðist í gær telja að Likud-flokkur Yitz- haks Shamirs forsætisráðherra myndi um síðir falla frá andstöðu við stofnun ríkis Palestínumanna á Vesturbakkanum og taka upp við- ræður við Frelsissamtök Palestínu- manna (PLO) um það efni. Viðræð- ur af því tagi eru bannaðar sam- kvæmt flokkslögum. Lahat er flokksbróðir Shamirs og stríðshetja. Hann minnti á að undir foiystu Menachems Begins og Likud hefði Egyptum verið skilað Sínaí-eyði- mörkinni 1979. ■ PEKING - Kínveijar sem tal- ið er að hafi fundið upp púðrið, pappírinn, prenttæknina og áttavit- ann segjast nú hafa fundið Ameríku fyrstir manna. Hin opinbera frétta- stofa Kína sagði að fundist hefðu fornminjar sem bentu til þess að fulltrúar Taizhongs keisara hefðu fundið Ameríku árið 640, eða löngu á undan Kólumbusi sem sigldi vestur um haf árið 1492. Minntist fréttastofan ekki á Vínlandsfund Leifs heppna nokkr- um öldum fyrir siglingu Kólumbus- ar til nýja heimsins. Sú varð líka raunin eftir að Ulf Ade- hlsson sagði af sér formannsembætti 1986. Þó að ótrúlegt kunni að virðast er stundum haft á orði að Bildt svipi til Olofs Palme sem stjórnmála- manns. Er þá ekki átt við að þeir fylgi svipaðri stefnu heldur að stíll þeirra hafi mörg sameiginleg ein- kenni. Líkt og Palme hefur Bildt ákveðið heimsmannsyfirbragð og á mjög gott með að umgangast fjöl- miðla, jafnt innlenda sem erlenda. I kosningabaráttunni var ekki óvenju- legt að sjá hann veita á víxl sjón- varpsviðtöl á sænsku jafnt sem lýta- lausri ensku og þýsku. Hann elskar að útskýra og hefur mikla frásagnar- hæfileika. Eitt er víst að hans bíða mörg erfið verkefni framundan. I fyrsta lagi þarf honum að takast að halda saman fjögurra flokka stjórn út kjör- tímabilið og lengur ef sú spá hans á að rætast að borgaraleg öll verði við völd í Svíþjóð það sem eftir lifir aldar- innar. Stormasamt stjórnarsamstarf borgaraflokkanna 1976-1982 sýnir að það er ekki auðhlaupið verk. í öðru lagi verður hann að koma sænsku efnahagslífi á réttan kjöl og standa við loforðin um að lækka skattbyrði Svía. Þriðja verkefnið, að koma Svíþjóð snurðulaust inn í Evr- ópubandalagið, er loks líklega það viðamesta og flóknasta. Bildt á því mjög spennandi tíð en vissulega enga sæludaga fyrir höndum. Ryutaro Hashimoto MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 1991 Kazakhstan: Ráðstafa gulli og silfri siálfir Moskvu, Vín. Reuter. STJÓRNVÖLD í Kazakstan, næstvíðlendasta lýðveldinu í sovéska ríkjasambandinu, hyggjast framvegis ráðstafa sjálf afurðum gull- og silfurnánaa landsins, að sögn TASS-fréttastofunnar. Einn af þingmönnum Kazakha segir að 7% af sovésku gulli og helmingur af silfri séu unnin úr jörðu á landsvæði lýðveldisins sem ákveðið hefur að taka þátt í væntanlegu efnahagsbandalagi 10-12 Sov- étríkja. Kazakhar ætla að láta hluta af góðmálmunum renna til sameigin- legra sjóða ríkjasambandsins en Núrsúltan Nazarbajev forseti hef- ur gefið banka lýðveldisins skipun um að koma upp eigin varasjóði. Grígoríj Javlínskíj, einn valda- mesti hagfræðingur Sovétríkjanna eftir að valdaránstilraunin fór út um þúfur, sagði nýlega að Moskv- ustjórnin hefði á síðasta ári selt 240 tonn af gulli til útlanda eða álíka magn og unnið væri árlega' úr jörðu á sovésku landi. Vestræn- ir sérfræðingar í Sviss draga þessa staðhæfingu í efa og álíta að gull- birgðir Sovétmanna séu enn um 2.800 tonn. Míkhaíl Gorbatsjov Sovétforseti skipaði Javlínskíj á miðvikudag í sérstaka ráðgjafa- nefnd sína þar sem fyrir var m.a. Edúard Shevardnadze, fyrrver- andi utanríkisráðherra, ásamt fleiri umbótasinnum. Erlendar skuldir Sovétríkjanna eru taldar vera um 68 milljarðar Bandaríkjadollara. Sérfræðingar stærsta banka í Austurríki, Credit- anstalt-Bankverein, segja að ólík- legt sé að Moskvustjórnin geti ekki staðið við Ij'árhagslegar skuldbindingar sínar. Þótt útflutn- ingstekjur hafi minnkað verulega á fyrsta ársfjórðungi þessa árs hafi innflutningurinn minnkað mun meira eða um 45 af hundr- aði. Hagnaður af utanríkisvið- skiptum sé því umtalsverður. á lága verbinu fyrir alla AST Bravo 4B6/2S - vinnustöb framtíbarlnnar. Aflmikill Í486 25MHZ örgjörvi. 2MB innra minni, stækkanlegt. 14" Super VCA litaskjár. Miklir tengimöguleikar. Úrval diska frá 52MB - 1CB. Verb frá 299.900 kr. stgr. m/vsk. Tilbob í október. AST Premium Exec - ferbatölva Mjög hraðvirkur örgjörvi (80386 SX 20 MHZ). 2 MB innra minni, stækkanlegt. 40 MB diskur. Disklingadrif 3,5” 1,44 MB. Fislétt (rúm 3 kg). 3 klst. samfelld notkun án hle&slu. VCA skjár - 32 gráskalar. Tengi fyrir mús, litaskjá, prentara o.fl. 249.900 kr. stgr. m/vsk. Tilboö í október. Victor og AST eru löngu viöurkennd gæöamerki í tölvuheiminum fyrir áreiðanleika, tæknilega fullkomnun og framsýni. Hvers vegna Vlctor og AST gæ&atölvur? ■ Fjárfesting til framtíðar, þær hafa þá sérstöbu ab fást uppfæran- legar sem þýbir ab líftími þeirra er lengri en sambærilegra tölva og eigendurnir sitja ekki skyndilega uppi meb úrelta tölvu - þær vaxa meb verkunum. ■ Öflugar, afkastamiklar og hljóblátar. VICTOR V386MWX -nett disklaus vinnustöb á netib. 80386SX örgjörvi. 1MB minni, stækkanlegt. 14" VGA litaskjár. Tengi fyrir mús, prentara o.fl. 109.980 kr. stgr. m/vsk. Tilbob í október. VICTOR V386MX 80386 SX örgjörvi. 1 MB innra minni, stækkan- legt. 14" VCA litaskjár. 52 MB diskur. Disklinga- drif 3,5" 1,44 MB. MS-DOS. WINDOWS. Hólf ýrir ADD-PAK, (færanlegur har&ur diskur). Uppfæranieg. Tengi fyrir mús, prentara o.fl. 139.950 kr. stgr. m/vsk. Tilbob í október. * Fyrsta flokks EJS þjónusta og þekking. Grensásvegi 10, 108 Reykjavík, Sími 686933 St.S. HÓUNÚAUGlí

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.