Morgunblaðið - 04.10.1991, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 04.10.1991, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 4. OKTOBER 1991 8£: 29 Stefán Aðalbjörns son — Minning Fæddur 20. júlí 1918 Dáinn 26. september 1991 Að kvöldi 26. þ.m. lést pabbi okkar, Stefán Aðalbjörnsson. Pabbi var fæddur á Skólavörðu- stíg 24a og ólst þar upp, sonur Aðalbjörns Stefánssonar prentara sem lést 18. júní 1938 og Þorbjarg- ar Grímsdóttur sem lifir í hárri elli, 102 ára 8. júlí sl, elst núlifandi innfæddra Reykvíkinga. Hún þarf nú að sjá á eftir sjötta barni sínu af átta, og dvelur hún nú á Drop- laugarstöðum. Pabbi giftist móður ökkar Sigur- laugu Guðmundsdóttur 23. nóv- ember 1946. Hún lést 10. maí 1977 aðeins 49 ára að aldri. Varð það honum mikið áfall, þó svo að hann hafi ekki tjáð mikið tilfinningar sín- ar. Frá árinu 1952 bjuggu þau í Vorsabæ 7. Eignuðust þau átta börn en fyrsta drenginn sinn misstu þau hálfs mánaðar gamlan. Frumburð- urinn Fanney fæddist 6. febrúar 1946, maki hennar er Sigurður Ingi Sigmarsson. Eiga þau 4 börn og 2 barnabörn. Síðan áttu þau sjö börn: Laufey Ninna,/ædd 22. maí 1950, maki Magnús Ólafsson. Eiga þau 3 börn og 1 barnabarn; Eygló, fædd 7. júní 1952, maki Gunnat' Erlends- son, eiga þau 3 börn; Aðalbjörn, fæddur 15. febrúar 1954, dáinn 28. febrúar 1954; Aðalbjörn, fæddur 22. júní 1955, maki Sigurbjörg Kristinsdóttir, eiga þau 2 börn en einn dreng átti hann áður; Anna Björg, fædd 16. júlí 1957, maki Halldór Hákonarson, eiga þau 3 börn; Guðmundur Helgi, fæddur 20. janúar 1961, ókvæntur og barnlaus og bjó hann í föðurhúsum alla tíð og reyndist hann Stefáni vel; Guðni Falur, fæddur 5. febrúar 1963, maki Signý Björk Ólafsdóttir, eiga þau 2 börn og 2 börn átti hann áður. Það er skrýtið að við eigum ekki eftir að sjá hann hér á jörðu fram- ar, en ekki getum við hugsað okkur að hann hefði viljað fara öðruvísi. Að deyja heima, ekkert búinn að vera rúmliggjandi eða háður öðrum, það var hans ósk. Pabbi var ekki allra, dulur og einrænn, en ánægður var hann með sinn stóra barnahóp. Þó að við hefð- um átt að gera ýmislegt öðruvísi, þá lét hann okkur alveg heyra það, því að stundum gat hann verið dóm- harður og þtjóskur. Eitt sinn sagði hann að hann hefði ekkert á móti því að fá okkur öll heim aftur, við áttum öll að hafa verið svo góð smábörn, þó að við munum nú ann- að! Ekki voru þau efnuð foreldrar okkar, en aldrei skorti okkur neitt. Alltaf var til nóg af öllu t.d. mat og fatnaði, því að mamma var lista- kona í höndunum, allt saumaði hún á okkur, þangað til hún var orðin alvarlega veik. Þegar við hugsum um pabba þá sjáum við hann fyrir okkur að elda matinn eða við uppvaskið, en mámma að sauma, bólstra hús- gögn, teppaleggja eða mála. Já svona var nú verkaskiptingin á okk- ar heimili, og þótti sumum vinum okkar hún dálítið sérkennileg. Ekkert þótti pabba eins skemmti- legt og að troða í okkur mat, hita upp matinn þó svo að við kæmum heim á misjöfnum tíma eða smyija fullt fat af brauði, skræla fyrir okk- ur kartöflurnar og brytja matinn, já, örugglega langt yfir fermingu okkar. Hann var það hugulsamur þessi elska þegar ég (Anna Björg) bjó hjá honum, orðin móðir. Ef ég fór út að kvöldi til og kalt var úti, þá var hann oft búinn að setja sængina mína á heitan ofn áður en ég kom heim. Og viljum við Eygló Sif, dóttir mín, þakka honum fyt'ir allt sem hann gerði fyrir okkur. Ef pabbi hefði verið búinn að ræða um jarðarför sína við okkur, þá hefði hann viljað láta hafa sem minnst fyrir henni og bara helst látið spila valsa og einhver ijörug danslög. Pabbi hætti að vinna 1985, hafði hann unnið hjá Vatnsveitu Reykja- víkur í um 30 ár. 1988 gerðist hann „dagmamma", passaði hann litla sólargeislann sinn, dótturdóttur sína hana Láru Björgu, frá 4ra mánaða aldri. Á hún örugglega mjög erfitt með að skilja, að afi sinn mun ekki koma til sín framar, eða sækja sig á leikskólann. Að öllum öðrum ólöstuðum viljum . við systkinin þakka Stefáni Hlyni, dóttursyni hans sem vai' honum svo ómetanlega góður, en hann ólst meira og minna upp hjá pabba okk- ar og við vitum að pabbi var honum mjög þakklátur. Við hittumst öll að lokum, þegar okkar tími er kominn. Dauðinn er ekki það versta. Pabbi hefur verið aldeilis ánægður þegar hann hitti mömmu og alla þá sem á undan eru gengnir. Pabbi kunni ekki að segja nei, svo að hann hefur nú ekki farið að segja nei þegar almæt- tið kallaði. Guð blessi elsku pabba, við þökkum honum fyrir allt. Hvíii hann í friði. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði. Friður Guðs þig blessi, hafðu þðkk fyrir allt og al!t. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi. Hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. F.h. okkar systkinanna, Anna Björg Stefánsdóttir Ég kveð elsku afa minn með ör- fáum orðum. Eg bjó hjá honum fyrstu fimm ár ævi minnar. Hann var mér alltaf svo góður. Mér finnst litlu bræður mínir hafa farið á mis við mikið, að um- gangast hann ekki eins mikið og ég, því 1981 fluttum við til Húsavík- ur, og eftir það sáumst við sjaldnar. Það er nú sýnt að upphaf jólanna verður ekki eins hjá mér í ár og verið hefur síðasta áratug. Ástæðan er sú að mín ágæta vinkona Hall- dóra Jóhannesdóttir frá Mosfelli lést í vikunni sem leið. Já, það er nú þannig að börnin á Hlaðhömrum og börnin í Hlíð ásamt Halldóru á Mosfelli eru orðin fastur liður í að- ventunni hjá mér, svona rétt eins og sjónvarpsmessa Sigurbjörns biskups var orðin fastur þáttur í jólahaldi íslensku þjóðarinnar. Þetta ætla ég nú að útskýra nánar. Fyrir rúmum áratug lét ég hafa mig út í að skemmta börnum á litlu jólun- um og öðrum jólatréskemmtunum um. Vinur minn, Olafur heitinn Magnússon frá Mosfelli, gaf mér ýmis góð ráð til þess að vel mætti fara, en honum (eins og mér) var alls ekki sama hvernig þessir karlar væru túlkaðir. Þeir áttu t.d. að vera barnavinir mestu án þess að vera einhveijir Jesúbræður bestu. Þegar börnin á Hlaðhömrum og í Hlíð halda sín litlu jól þá tekur þetta samtals um fimm tíma með hléum því að ný börn koma og fara á hádegi. Þá var nú auðveldast að láta sig hverfa í hléum inn á elli- heimili til hennar Halldóru. Og þetta var fastur liður allan seinasta ára- tug. Ég byijaði litlu jóladaginn með kaffi hjá Halldóru og dvaldi þar svo meðan hlé var milli skemmtana og naut auk þess fræðslu um hugar- 'heim barna í kringum síðustu alda- Umliðna viku alla áhyggju fyrir niér bárst,. svo máltu ei mein til falia, mildur og góður varst. Ei hefndir illsku minnar, oft þó ég styggði þig, naut ég því náðar þinnar, nákvæm var hún við mig. (H. Pétursson.) Ég vil þakka elsku afa mínum fyrir allt. Guð veri með honum. Eygló Sif, dótturdóttir. Látinn er hér í borg á 74. aldurs- ári Stefán Aðalbjörnsson, til heimil- is að Vorsabæ 7 í Árbæjarhverfi. Stefán og eiginkona hans Sigur- laug Guðmundsdóttir, sem lést árið 1977, voru í hópi frumbyggja hér í Árbænum. Á vordögum árið 1967 var unnið að stofnun íþróttafélags hér í hverfinu og var Stefán þar í fremstu vígiínu, og á stofnfundi félagsins, sem hlaut nafnið Knatt- spyrnufélag Seláss- og Árbæjar- hverfis, KSÁ, var hann kjörinn formaður. Nafn félagsins var tveim árum síðar breytt í Iþróttafélagið Fylkir, og verður það 25 ára næsta vor. Þegar við í Fylki komum saman til að fagna þessum áfanga á næsta ári munum við minnast þeirra, sem ruddu brautina, frumheijanna, sem horfnir eru úr okkar röðum, margir langt um aldur fram. Nú sjáum við á bak fyrsta for- manni félagsins, Stefáni Aðal- björnssyni, sem alltaf fylgdist af áhuga með viðgangi og vexti okkar unga félags, þó að hann hyrfi úr mót. Halldóra var alveg einstök mann- eskja og allir gengu ríkari af henn- ar fundi. Hún bjó yfir hafsjó af fróð- leik um menn og málefni, enda eru þeir ekki fáir sem svo öldruð mann- eskja hefur verið samferða á lífs- leiðinni. Kímnigáfan var alveg sér- stök, alltaf var hægt að sjá skopleg- ar hliðar á hlutunum og orða ræðu sína á skemmtilegan hátt. Tungu- takið var í senn ljúfmannlegt og kjarkmikið og algerlega laust við alla tilgerð. Ja, það er ekki lítils virði að kynnast manneskju sem er eins og lifandi brú miili hinnar tæknilausu fortíðar og tækniölvuðu nútíðar. Og nú eru þeir sem óðast að hverfa sem hafa tölustafinn 8 í enda sinnar kennitölu. (Hver hefði skilið þessa setningu fyrir s.s. ára- tug?) Halldóra talaði oft um Mosfells- dalinn og það góða fólk sem hann byggir. Og mikið ósköp held ég að hún hafi verið góður nágranni. Það er líka ijallgrimm vissa mín að íbú- ar dalsins séu nánast sérstakur þjóðflokkur. ■ En þrátt fyrir góða skapið og kímnigáfuna gat Halldóra líka verið snögg upp á lagið. Ef til dæmis brennivínskarlar sem fóru um dal- inn ætluð að gera sig óhæfilega breiða og ganga ei hægt um gleð- innar dyr, þá var þeim kannski sagt svo vel til syndanna að af þeim rann snarlega. Þeir gleymdu að hella upp á sig að nýju, öllum til góða, mest þó sjálfum sér. Eiginmaður Halldóru, Kristinn Minning: Halldóra Jóhannes- dóttir frá Mosfelli Fædd 2. nóvember 1898 Dáin 27. september 1991 stjórn félagsins. Á kveðjustund eru honum færðar þakkir fyrir störf hans í þágu fé- lagsins. Blessuð sé minning hans. Aldraðri móður Stefáns og öðrum ástvinum sendum við innilegar sam- úðarkveðjur. Guð blessi þá. íþróttefélagið Fylkir, Jóhannes OIi Garðarsson. Ég kveð elsku afa minn með er- indum úr þessum barnasálmi. Ó, Jesús bróðii' besti og barnavinur mesti, æ, breið þú blessun þína á bamæskuna mína. Þín umsjón æ mér hlífi í öllu mínu lífi, þín líknarhönd mig leiði, og lífsins veginn greiði. Með bliðum bamarómi mitt bænakvak svo hljómi: Þitt gott barn gef ég veri og góðan ávöxt beri. (Sb. 1886 - P. Jónsson) Lára Björg Gunnarsdóttir í dag þegar ég kveð elsku afa minn og nafna Stefán Aðalbjörns- son, þá hrannast minningarnar upp. Afi dáinn, nei það getur ekki verið, hann sem var í mat hjá mér kvöld- ið áður en hann dó, þá var hann ekki á leiðinni í langt ferðalag. En við vorum búnir að tala um langt ferðalag næsta sumar, að ferðast um Vestfirðina og víðar. Já, mér finnst afi hafa farið allt of fljótt. Ég ólst að miklu leyti upp hjá afa mínum og hann var mér mjög kær, eins og faðir. Við vorum mjög sam- rýmdir, þó svo að aldursmunurinn hafi verið nokkur. Árið 1977 lést amma mín, Sigurlaug Guðmunds- dóttir, eftir erfið veikindi, 49 ára gömul og misstum við þá öll mikið. En al'i byrgði mikið sorg sína inni í sér, því að lokaður var hann, og hann þurfti að vera sterkur því mörg voru börnin þeirra og sum þeirra ung. Þá var á heimilinu dótt- ir hans, Ánna Björg Stefánsdóttir, tvítug að aldri, og var hún honum mikil stoð og stytta við heimilis- störfin og fleira sem hún á þakkir skildar fyrir. Eftir að afi var orðinn einn fór ég að fara með honum eitt og ann- að eins og t.d. í bingó og á völlinn Guðmundsson, var mikill söngmað- ur. Hann vai' einn af stofnendum karlakórsins Stefnis og fyrsti for- ■maður hans. Þegar karlakórinn var endurreistur árið 1975 var Kristinn gerður heiðursfélagi. Þau hjón létu sér mjög annt um starf kórsins og styrktu hann með fégjöfum. Það gei'ði Halldóra einnig oft eftir að hún var orðin ein, en Kristinn var farinn að heilsu og lést 1977. Við karlakórsmenn vorum allir blessaðir stráklingarnir hennar Halldóru og hún var að sjálfsögðu prinsessan okkar. Við gerðum Hall- dóru líka að heiðursfélaga í karla- kórnum. Sagt er að það sé eins- dæmi að kona sé heiðursfélagi í karlakór, en það er líka gott eins- dæmi. Halldóra átti sér uppáhald- slag: Þú komst í hlaðið á hvítum hesti, þú komst með vor í augum þér o.s.frv. Þetta lag æfir kórinn alltaf og alltaf er hugurinn hjá prinsessunni þegar það er sungið. Ég vil enda þessi skrif með því að vitna í lífssögu Aðalheiðar Bjarn- sem voru hans áhugamál. Einnig fór ég stundum niður í Vatnsveitu með honum þar sem hann vann í um 30 ár. 4. október 1984 varð ég fyrir alvarlegu mótorhjólaslysi og lá lengi á sjúkrahúsi. Þá leið varla sá dagur að hann kæmi ekki í heim- sókn til mín, stundum gangandi ofan iu' Árbjæjarhverfi niður á Borgarspítalann, í hvaða veðri sem var og þá iðulega með eitthvað í pokahorninu handa mér. Hann var ekki bara afi minn, heldur líka mik- ill vinur minn. Við fórum að vera enn meira saman eftir að amma dó. Mjög gaman þótti okkur öllum og Kollu að bjóða honum í mat því að kátur var hann og ungur í anda, og oft var spilað langt fram á nótt og gisti hann stundum hjá okkur. Undanl'arin ár höfum við farið marga bíltúrana saman, sérstak- lega í sumar. Þá var farið víða um Suðurland og skoðaðir ýmsir merk- ir staðir sem afi hafði ekki komið á í fjölda ára eða aldrei. Eftir að afi hætti að vinna, þá fór hann að passa litlu systur mína hana Láru Björgu og var hún mjög hænd að honum og skilur ekki að afi skuli hafa gleymt að sækja sig á ieikskólann, en þá var hann farinn í það ferðalag sem enginn getur flúið. Hún var í ‘Amánuð á Húsavík í sumar, hjá móðursystur minni, og fékk stundum að hringja í afa og þá spurði hún: Afi bíður þú ekki eftir mér? Og ekki var afi skárri, því að mikið söknuðu þau hvors annars. Afi var ánægður með það að geta hjálpað til við þessa barna- gæslu, því þá fannst honum hann gera eitthvað gagn, þó svo að hann væri orðinn „löggilt gamalmenni". Afi hefur öi-ugglega verið ánægður með að fá að deyja heima, ekkert búinn að vera upp á aðra kominn, það var hans stfll. Ég á bágt með að trúa því að afi sé ekki lengur á meðal okkar, og mikið á ég eftir að sakna hans. Við vorum miklir trúnaðai'vinir og liéldum engu leyndu hvor fyrir öðr- um. Ég þakka honum fyrir allt sem hann gerði fyrir mig og var mér. Hann verður búinn að gefa spil þegar ég kem. „Besti vinur þinn er sá, sem kall- ar það besta fram hjá sjálfum þér,“ stendur einhvers staðar. Stefán Hlyiiur freðsdóttur verkakonu þar sem hún segir frá hinni góðu grannkonu sem aldrei sendi frá sér svangt bárn eða svangan hund. Þetta er í rauninni mjög víðtækt líkingamál og gengur m,a. út á það að hin glöggskyggna kona sá alltaf hvað hveijum kom best. Þannig sé ég fyrir mér húsfreyj- una á Mosfelli sem við kveðjum nú hinstu kveðju. Erlingur Kristjánsson í dag er til moldar borin Hall- dóra Jóhannesdóttir, Hlaðhömrum, Mosfellsbæ, fyrrum bóndakona á Mosfelli. Ég minnist hennar sem gamallar hlýlegrar konu sem ætíð hafði heimili sitt opið öllum þeim sem leið áttu um hennar garð, og ég varð þeirrar gæfu aðnjótandi að eiga þar leið. Aldrei hitti ég hana öðruvísi en svo að hún tæki þéttingsfast utan um mig og léti fylgja nokkur vin- gjarnleg orð í eyra! Mér finnst minnisstætt þegar við settumst nið- ur og ég las fyrir hana og hún hlust- aði með mikilli athygli, eða þegar ég var að snyrta hana og pússa en það fannst henni mjög gaman. En nú er hún dáin 92ja ára að aldri, en var eins og unglamb á sig kom- in. Ég vil þakka henni allar þær góðu stundir er við áttum saman, og bið Guð að varðveita minningu hennar. Kveikt er Ijós við ljós burt er sortans svið. Angar rós við rós opnast himins hlið. Niður stjörnum stráð engill fram hjá fer. Drottins nægð og náð boðin alþjóð er. '(Stefán frá Hvítada!) Megi kær félagi fara í friði. Sylvía Þórarinsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.