Morgunblaðið - 04.10.1991, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 04.10.1991, Blaðsíða 44
VÁTRYG6ING SEM BRÚAR BILIB SJOVÁ LMENNAR FOSTUDAGUR 4. OKTOBER 1991 VERÐ I LAUSASOLU 110 KR. Eftirlitsátak vegna sjóðvéla og sölureikninga: ■... ■ V-------- Um 70% reyndust ekki með skráningu í lagi EFTIRLITSÁTAK skattrannsókn- arstjóra vegna sjóðvéla og sölu- reikninga, sem lauk formlega 1. september, leiddi í ljós að form á frumskráningu sjóðvélaskyldra aðila og reikningaskyldra aðila var. á einhvern hátt ábótavant hjá tæplega 70% þeirra sem eftirlitið náði til. Það náði til 5.544 aðila, og reyndist form á frumskráning- unni vera í lagi lijá 1.698 þeirra. Að sögn Guðmundar Guðbjarna- sonar skattrannsóknarstjóra var búnaður sjóðvéla eða form reikninga ekki í lagi hjá tæplega 38% þeirra sem eftirlitið náði til þann 1. sept- ember, eða hjá 2.088 aðilum. Þeim var sent bréf þar sem gerð var grein fyrir athugasemdum, og hefur þeim síðan verið fylgt eftir með heimsókn- um. Hjá 1.750 aðilum, eða tæplega 32%, voru gerðar athugasemdir vegna útfyllingar á reikningseyðu- blöðum, en á þessu stigi hafa þeir ekki fengið neinn eftirrekstur að sögn Guðmundar. „Margir þeirra sem búið er að heimsækja eru komn- ir með málin í lag en þetta er ástand- ið eins og það blasti við okkur á skoðunardegi. Endanleg útkoma mun væntanlega liggja fyrir um miðjan nóvember," sagði hann. Guðmundury sagði grundvallar- atriði að skráning væri í lagi hjá við- komandi aðilutn, og þá um leið skil á virðisaukaskattinum, og síðan ekki síst að virðisaukaskyld fyrirtæki væru með reikninga í formlegu lagi, sem síðan mætti rekja milli bók- halda. Hann sagðist vera þeirrar skoðunar að eftirlitsátakið ætti eftir Lenti á ein- um hreyfli MIKILL viðbúnaður var á Reykjavíkurflugvelli síðdegis í gær þegar Fokker-vél Flugleiða, sem gekk aðeins á öðrum hreyfli, lenti á Hugvellinum. Vélin var að koma frá Hornafirði með 10 far- þega. Slökkvibílar og sjúkralið var í við- bragðsstöðu þegar vélin lenti rétt fyrir kl. 16. Lendingin tókst mjög vel, enda var vindátt hagstæð. Fiugturninn á Reykjavíkurflug- velli fékk aðvörun um bilunina þegar vélin var um 10 rnílur frá landi. Ekki fengust upplýsingar um Iivenær hreyfillinn stöðvaðist, en ólíklegt er talið að ísing hafi orsakað bilunina. að skila sér vel. og þá ekki síst í sambandi við innheimtu á virðisauka- skatti. Átta manns unnu sérstaklega að eftirlitinu á vegum skattrannsókn- arstjóra frá því í ársbyijun til 1. sept- ember, og sagði Guðmundur að helsti kostnaður við verkefnið hefði verið launa- og ferðakostnaður þessara aðila. HM í hriris: Island í úrslít Islenzka landsliðið í brids tryggði sér í gær sæti í 8 sveita úrslitum Heimsmeistaramótsins, sem nú stendur yfir í Yokohama í Japan. Tvær síðustu umferðirnar í undan- úrslitunum verða spilaðar í dag. Fyr- ir þær hefur ísland forystu í sínum riðli, 218,25 stig en Bretar koma næstir með 199 stig. Sjá nánar á bls. 18. Björgnnarþyrla á flugi Morgunblaðið/Ami Sæberg Hin nýja björgunarþyrla bandaríska varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli hefur verið í æfíngaflugi undan- farna daga. Þyrlan er af gerðinni Sikorsky og er mun öflugri og með betri útbúnað en þyrlurnar, sem þær leysa af hólmi. Eldri þyrlurnar hafa bjargað lífi 250 íslendinga frá stofnun björgunarsveitarinnar 1977. Miklar skemmdir í illviðri í gær: Hætta á aurskriðum aust- anlands í kjölfar úrfellis FOKTJÓN varð víða á Norður- og Vesturlandi í gær af völdum óveðursins sem gekk yfir landið. Göniul beinamjölsverksmiðja á Siglufirði hrundi og rafmagns- og símasambandslaust varð í bænum um tíma. Þök tveggja húsa í bænum sviptust af í heilu lagi. Mikið tjón varð einnig á Húsavík. Landhelgisgæslan varaði sjófarendur við að sigla um Látraröst út af Látrabjargi vegna óveðurs. Um 100 skip voru á sjó í gærkvöldi. Veðurstofan spáir inikilli úrkoinu austan- lands í dag, með hættu á aurskriðum. á ísafirði við ferðum á heiðina. Miklar rigningar urðu samfara óveðrinu á Austurlandi í fyrrinótt og féllu fjórar aurskriður í Fagra- dal, milli Reyðarfjarðar og Héraðs. Á Neskaupstað flæddi vatn inn í íbúðarhús og hlutust talsverðar skemmdii' af því, að sögn lögregl- unnar á staðnum. Þá sló út tveimur vatnsdælum í bænum árla gær- morguns en engin vandræði hlutust af því. Ofsaveður og snjókoma var á Breiðdalsheiði og varaði lögreglan Vegaeftirlitsmenn mældu þar 98 hnúta hraða. Björgunarsveitar- menn voru í viðbragðsstöðu í allan gærdag á Vestfjörðum. Versta veðrið var um hádegisbilið. Þá mældust 12 vindstig í Æðey. Laus- ir hlutir, þakplötur og spýtnabrak, fauk um götur í Súgandafirði og fjórar rúður brotnuðu í mannlausu einbýlishúsi í Hnífsdal. 15 bílar lentu utan vegar á Hellis- heiði í fyrrinótt vegna hálku og ill- viðris og þar varð einn árekstur. Á Suðuríjöru í Hornafirði liðaðist vinnuskúr í eigu Hagvirkis í sundur og brakið úr honum hvarf út í veðurofsann. Veðurstofan gaf út aðvörun í gærdag vegna ísingar og ókyrrðar í lofti og lá allt flug niðri hjá Flug- leiðum eftir kl. 4. Magnús Jónsson veðurfræðingur sagði að víðáttu- mikil og djúp lægð, sem valdið hefði óveðrinu, væri heldur að grynnast en að veður færi ekki að ganga niður að ráði fyrr en á laugardag. Hann sagði að norðanmegin lægð- arskilanna væri mest úrkoma og hefði t.a.m. mælst 92 mm. úrkoma á Reyðarfirði á hálfum sólarhring. Reiknað væri með að skilin færðust aftur í austurátt og gert væri ráð fyrir mikilli úrkomu á Austurlandi með tilheyrandi hættu á aurskrið- um. Sjá einnig Akureyrarsíðu bls. 26 Hagvirki og ístak: 70 starfsmönnum sagt upp Búist við uppsögnum hjá fleiri verktakafyrirtækjum á næstunni FJÖRUTÍU starfsmönnum hjá Hagvirki hf. var sagt upp um mánaðamótin og þrjátíu starfsmönnum hjá ístaki hf. Mikill verk- efnaskortur og samdráttur virðist yfirvofandi hjá verktakafyrir- tækjum á landinu og er þess að vænta að fleiri fyrirtæki segi upp starfsmönnum á næstu vikutn, að sögn Pálma Kristinssonar, framkvæmdastjóra Verktakasambands íslands. Að sögn Steindóru Bergþórs- dóttur, starfsmannafulltrúa hjá Hagvirki, er mikill verkefnaskort- ur framundan hjá fyrirtækinu og var því brugðið á það ráð um mánaðamótin að segja upp 40 starfsmönnum. „Ástandið er verra nú en það hefur verið undanfarin ár en það mætti bæta mjög með því að ríki og sveitarfélög áætluðu betur fram í tímann og byðu út meira af verkum yfir vetrartímann. Á þann hátt gætu verktakafyrirtæki skipulagt betur vinnutæki sín og mannskap," sagði Steindóra í samtali við Morgunblaðið. Að sögn Páls Siguijónssonar, forstjóra Istaks, varþijátíu starfs- mönnunum sagt upp um mánaða- mótin vegná árstíðasveiflna en uppsagnirnar voru fleiri en verið hefur undanfarin haust. Pálmi Kristinsson, fram- kvæmdastjóri Verktakasambands íslands, segir að tilfinnanlegur verkefnaskortur sé, einkum í jarð- vinnu. „Það ríkir gríðarleg óvissa um framvinduna. Verði ekkert af álversframkvæmdum á næsta ári sjá menn fram á mesta samdrátt í byggingariðnaði í heilan ára- tug,“ sagði Pálmi. * ■ Armann flytur í Grafarvog ÁKVEÐIÐ hefur verið að Glímu- félagið Ármann fái aðstöðu í Rimahverfi við Borgarholt í Graf- arvogi. Þar er gert ráð fyrir 10 hektara íþróttasvæði og er fyrir- hugað að íþróttamannvirkin verði rekin í samvinnu við Reykjavíkur- borg og skólayfirvöld. Jafnframt mun Armann láta af hendi fim- leikahúsið við Sigtún. Að sögn Júlíusar Hafstein for- manns íþrótta- og tómstundarráðs, hefur Ármann óskað eftir að koma upp aðstöðu í nýju hverfunum, þar sem núverandi svæði félagsins sé orðið of lítið og ekki útlit fyrir að frekari uppbygging þar svari kostn- aði. „Að athuguðu máli var ákveðið að úthluta félaginu svæði sem liggur að nýju hverfunum við Borgarholt í Grafarvogi," sagði Júlfus. „Þarna er um töluvert svæði að ræða eða um 10 hektara og er gert ráð fyrir að þar verði mannvirki á vegum borgar- innar og skólanna og að þau verði samnýtt með íþróttafélaginu. Ár- mann mun jafnframt láta af hendi fimleikahúsið við Sigtún og mun fé- lagið ekki hafa aðstöðu þar áfram. Mun borgin þá væntanlega nýta húsið undir aðra starfsemi þegar að því kemur. Ennþá hefur ekki verið tekin ákvörðun um hvort borgin kaupir húsið af félaginu."

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.