Morgunblaðið - 04.10.1991, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 04.10.1991, Blaðsíða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 1991 ÍÞRfimR FOLK ■ IVAN Lendl var sleginn út í þriðju umferð opna ástralska meist- aramótsins í tennis í vikunni. Tvítugur Suður Afríkubúi, Wayne Ferreira sigraði Tékkann, 4-6, 6-2, 5-7. H DAVID Burrows, bakvörður enska knattspyrnuliðsins Liverpo- ol, meiddist á læri í Evrópuleiknum . í Finnlandi í fyrradag og fór af -’.velli. Þar með eru ellefu leikmenn félagsins meiddir! Þar á meðal John Barnes, Mark Wright, Dean Saunders og fyrirliðinn, Ronnie Whelan, sem þarf að fara í annan uppskurð vegna meiðsla í hné. Ta- lið var að hann gæti farið að leika er í ljós kom að hann hafði ekki náð sér af meiðslunum. ■ GARY Pallister, varnarmaður Man. Utd. meiddist einnig í Evr- ópuleik í vikunni og verður ekki með gegn Liverpool á Old Trafford á sunnudag. I GAETANO Salvemini þjálfari ítalska 1. deildarliðsins Bari var . rekinn í vikunni og Pólverjinn Zbigniew Boniek ráðinn í hans stað. ■ JOHN Salako, enski landsliðs- útheijinn hjá CrysUil Palace, sleit krossbönd í hné í 1:0 sigurleiknum gegn Leeds í vikunni og verður ekki meira með í vetur — og varla með fyrr en eftir heilt ár. Meiðsli hans eru svipuð og þau sem Paul Gascoigne varð fyrir í .vor. H BRFiSJf/hnefaleikarinn Micha- I Watson, sem slasaðist alvarlega er hann mætti landa sínum Chris Gubank í bardaga um heimsmeist- aratitilinn í millivigt á dögunum virðist á örlitlum batavegi. Watson rotaðist og hlaut heilaskemmdir. Læknar hafa greint einhverja heila- starfsemi, en segja allt of snemmt að segja til um hvort Watson nær sér. Hann er enn í dái. H TVEIR gullverðlaunahafar í sundi Afríkuleikunum, sem lauk í vikunni, féllu á lyfjaprófi; reyndust hafa neytt anaþólískra stera, og hafa því misst átta verðlaunapen- inga sem þau unnu. Þetta voru Senda Gharbi frá Túnis, sem vann til fimm gullverðlauna í kvenna- ' Tlokki, og Egyptinn Emad el-Sha- fei. Hann vann ein gull- og tvenn silfui’verðlaun. H YANNICK Noah, liðsstjóri franska iandsliðsins í tennis, íhugar nú að leika sjálfur í úrslitaleik Dav- is-bikarkeppninnar — óopinberri heimsmeistarakeppni landsliða — gegn Bandarikjunum í næsta mánuði. Hann hefur lítið leikið þar sem af.er árinu, en er að hugsa um að taka þátt í tvíliðaleiknum gegn Bandaríkjamönnum. H ÞÝSKA stúlkan Steffi Graf varð í vikunni yngst kvenna til að ná 500. sigrinum í einliðaleik í tenn- er hún sigraði Petru Langrovu frá Tékkóslóvakíu 6:0, 6:1 á móti i Leipzig. Graf er 22 ára og þriggja mánaða. H JOHN McEnroe verður hugs- anlega í liði Bandaríkjanna í úr- slitaleik Davis-bikarkeppninnar, sem fer fram í Lyon í Frakklandi 29. nóvember til 1. desember. KORFUKNATTLEIKUR Besta lið Evrópu leysist upp Þjálfari og fimm leikmenn Evrópumeisfara Jugoplasfika flúnir frá Split ÞJALFARI og fimm leikmenn Evrópumeistara Jugoplastika eru flúnir frá Split í Júgóslavíu vegna stríðsástandsins sem ríkir þar og allt útlit er fyrir að besta körfuknattleikslið Evrópu leysist upp. Þjálfari Evrópumeistaranna, Ranko Zeravica, llúði tii heimabæjar síns Belgi-ad, og þeir Zoran Savic og Zoran Sretenovic, en þremenningarnir eru Serbar, og Svartfellingarnir Luka Pavicevic. Nebojsa Razie og Veli- bor Radovic, flúðu saman en ekki er vitað hvert. Búið er að ráða nýjan þjálfara en þar sem fimm lykilmenn vant- ar í liðið og lítið er hægt að æfa vegna ástandsins er útlitið ekki bjart hjá þessu stórliði. „Það er stríð hér og sannast sagna hugsa fáir um körfubolta á meðan," sagði einn forráðamanna félags- ins í gær en vildi ekki láta nafns síns getið. Hann sagði að liðið gæti trúlega ekki varið titilinn þar sem það tæki líklega ekki þátt í deildar- keppninni í Júgóslavíu. „Ef við verðum að leggja alla starfsemi niður um tíma, þá gerum við það. Við eigum engra annarra kosta völ,“ sagði hann. Formaður júgóslavneska körfu- knattleikssambandsins sagði að vegna ástandsins væri hugmyndin að leika deildina í tveimur riðlum, austur og vestur og síðan úrslita- keppni fjögurra efstu liða úr hvor- um riðli. „Ef lið frá Króatíu og Slóvaníu geta ekki fallist á þetta þá er aðeins einn möguleiki eftir, að leika deiidina án þeirra,“ sagði Uzelac formaður og bætti því við að liðin yrðu að gefa svar fyrir laugardaginn þannig að máiin munu skýrast um helgina. í apríl varð Jugoplastika fyrst liða til að verða Evrópumeistari þrjú ár í röð og mánuði síðar varð liðið meistari í Júgóslavíu sjötta árið. í röð. Nafninu hefur verið breytt í Slobodna Dalmacija eftir fyrirtæki sem styrkir liðið, en nú er allt útlit fyrir að félagið leysist upp — um tíma að minnsta kosti. Urvalsdeildin í körfuknattleik hefst um helgina: Meisturum UMFIM og ÍBK spáð bestu gengi ÍSLANDSMEISTARAR Njarðvíkinga eða Keflvíkingar verða íslandsmeistarar íkörfu- knattleik ef marka má spá for- svarsmanna og leikmanna Úr- valsdeildarfélaganna sem gerð var á blaðamannafundi í gær þar sem keppnistímabilið, sem hefst um helgina, var kynnt. Það voru einmitt þessi tvö lið sem léku til úrslita um meist- aratitilinn á síðasta keppnistímabili. Ef spá blaðamanna er höfð til hlið- sjónar þá munu Njarðvíkingar hafa það aftur í vetur því samkvæmt þeirri spa verður UMFN í fyrsta sæti og ÍBK í öðru. Annars eru leikmenn og blaða- menn ótrúlega sammála um hvernig lokastaðan verður. Skoðum fyrst spá leikmanna: 1.-2.UMFN/ÍBK, 125 stig, 3. KR, 106 stig, 4. Valur, 102 stig, 5. Grindavík, 88 stig, 6. Haukar, 61 stig, 7. Þór, 59 stig, 8. Tindastóll, 49 stig, 9. Skallagrímur, 25 stig, 10. Snæfell, 20 stig. Blaðamenn spáðu þannig: 1. UMFN, 58 stig, 2. ÍBK, 49 stig, 3.-4. KR/Valur, 47 stig, 5. Grindavík, 36 stig, 6. Tindastóll, 27 stig, 7. Haukar, 26 stig, 8. Þór, 22 stig, 9.-10. Snæfell og Skalla- grímur, 9 stig. Keppni í úrvalsdeildinni hefst á sunnudaginn kl. 20 með þremur leikjum. í A-riðli mætast KR og Tindastóll í íþróttahúsinu á Selt- jarnarnesi og í B-riðli mætast ann- ars vegar Grindavík og Þór suður með sjó og að Hlíðarenda Reykjavíkurmeistarar Vals og Haukar. Tveir bestu bakverðir landsins; Jón Kr. Gíslason ÍBK (t.h.) og Páll Kol- beinsson KR. Því er spáð að Jón og fjélagar muni veita meistururum UMFN mesta keppni í baráttunni um íslandstitilinn. KR-ingum ereinnigspáð velgengni. Mikill áhugi á Sudurnesjum Mikill áhugi er fyrir komandi keppnistímabili á Suður- nesjum eins og endranær. í Njarðvíkum hefur verið stofnaður stuðningsmannaklúbbur og hafa þegar rúmlega 100 manns skráð sig í klúbbinn. Njarðvíkingar segja að þetta sé mikið fullorðið fólk sem ekki hafi sótt leiki félags- ins reglulega hingað til og því sé þetta viðbót við það sein fyrir var. Mikil stemning er fyrir því að styðja vel við bakið á liðinu og fylgja því einnig í útileiki. í Keflavík er einnig öflugur stuðningsmannaklúbbur og hafa meðlimir hans ákveðin forréttindi á leikjum IBK. Þeir eru öruggir um sæti og eru þau númeruð, þeir fá veitingar í leikhléi og nokkrum sinnum á vetri kemur þjálfari liðsins á fundi hjá klúbb- num og ræðir starfið og hvað verið er að gera. ÍÞRÚmR FOLK H IAN Rush hefur verið boðinn nýr samningur hjá Liverpool og á hann að vera til þriggja ára. Samn- ingur hans við félagið rennur út eftir þetta keppnistímabil en Rush, sem verður þrítugur síðar í mánuð- inum, hefur nú verið hjá félaginu í 11 ár ef undan er skilið eitt ár hjá Juventus á Ítalíu. Nýi samningur- inn tryggir Rush um 700.000 ISK á viku. H PETER Reid, stjóri Man. City í Englandi, hefur boðið meisturum Arsenal 800.000 pund í framheij- ann Perry Groves, sem ekki hefur náð að tryggja sér í sæti í liðinu. H GARY Lineker, fyrirliði Tott- enham, kom beint af sjúkrahúsinu í Evrópuleikinn gegn Hajduk Split í fyrrakvöld. Kona hans eignaðist fyrsta barn þeirra hjóna fyrr um daginn — dreng sem skýra á Georg. H DAGRÚN Ólafsdóttir sjúkra- þjálfari var á bekknum hjá Vals- mönnum þegar þeir léku gegn Sion í Evrópukeppninni á miðvikudag- inn. H STÚLKURNAR í Stjörnunni í Garðabæ sem léku í 2. deild í sumar voru duglegar við að skora. Þær gerðu 138 mörk í deildinni og skoruðu því meira en karlalið Gróttu í 4. deildinni, sem gerði 106 mörk í deildinni í sumar eins og sagt var í blaðinu á þriðjudaginn. ADOFINNI Öskjuhlíðar- hlaup ÍR Hið árlega Öskjuhlíðarhlaup ÍR fer fram á morgun, laugardag og hefst klukkan 12 á hádegi við Perluna. Þátttakendur geta valið um að hlaupa 3,5 kíómetra eða 7 kílómetra. Keppt er í sjö aldurs- flokkum og skráning fer fram við rásmarkið frá kl. 10.30. Skálahlaup Fram og Ármanns Skálahlaup skíðadeilda Fram og Ármanns verður í Bláfjöllum á morgun, laugardag og verður hlaupið frá skíðaskála Ármanns að skíðaskála Fram. Hlaupið hefst kl. 14 og er keppt um bikar sem Ár- menningar afhentu Frömurum þeg- ar þeir vígðu skálann. Námskeið fyrir þjálfara og leiðbeinendur í frjálsíþróttum verður haldið á Laugarvatni 11.-13. október. Námskeiðsgreinar: Þjálfun afreksfólks ífjölþraut, sprett- og grindahlaupum. Kennarar verða Karl Zilch og Frank Hensel, en hann er landsliðsþjálfari Þjóðverja í grindahlaupi. Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu okkar, sími 91-685525. Frjálsíþróttasamband íslands. KKI semur við Austurbakka Körfuknattleikssambandið og Austurbakki hf. gengu frá samningi í gær og mun Austur- bakki samkvæmt honum sjá sam- bandinu fyrir búningum, skóm, boltum og íþróttadrykkjum fyrir andvirði 3,5 milljónar króna næstu þijú árin. Fyrsta árið verður það 1,5 milljón en næstu tvö ár ein milljón hvort ár. Kolbeinn Pálsson formaður KKÍ sagði við þetta tækifæri að þetta væri sjötta árið sem sambandið semdi við Auturbakka og að þessu sinni væri um tvöfalt hærri upphæð að ræða en áður, enda væri kvenna- landsliðið nú tekið með. Árni Þ. Árnason hjá Austurbakka sagði að samstarfið hefði gengið vel og að KKÍ stæði alltaf við samn- inga og við svoleiðis menn væri gott að eiga viðskipti við. „Það er ánægjulegt að sjá gróskuna í körf- unni hér á landi og æskulýðsstarfið er öflugt," sagði Árni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.