Morgunblaðið - 26.10.1991, Page 25
'MORGxInBLAÐIÐ LAUGARDAGÍJR W91
i
i
:
Héraðsfundur Reykjavíkurprófastsdæmis eystra:
Niðurskurður komi ekki
niður á minni máttar
HÉRAÐSFUNDUR Reykjavíkurprófastsdæmis eystra var haldinn í
Seljakirkju fyrir skömmu. Fundurinn hófst með guðsþjónustu, er
grestar Seljakirkju þeir sr. Valgeir Astráðsson og sr. Irma Sjöfn
Óskarsdóttir önnuðust og söng kór Seljakirkju við guðsþjónustuna
undir stjórn Kjartans Sigurjónssonar organista.
Á fundinum var sr. Bjarna Sig-
urðssonar frá Mosfelli, prófessors í
kennimannlegri guðfræði, minnst,
en hann var jarðsunginn þann sama
dag. Um 40 manns úr öllum söfnuð-
um prófastsdæmisins sóttu fundinn.
Dr. Björn Björnsson, fræðslustjóri
kirkjunnar; flutti erindi, er hann
nefndi: „Á ég að gæta bróður
míns?” Og fjallaði um velferðarsam-
félagið og þjóðfélagslega ábyrgð
kirkjunnar, t.d. um líknarþjónustu
við þá er skarðan hlut bera frá
nægtaborði tilverunnar.
Auk venjulegra aðalfundarstarfa
voru nokkrar ályktanir afgreiddar.
Samþykkt var að skora á stjórnvöld
að sá niðurskurður ríkisútgjalda,
sem stjórnvöld hafa boðað komi
ekki niður á þeim, er minnst mega
sín í samfélaginu og hafa litla
möguleika á að verja málstað sinn
og voru þar sérstaklega höfð í huga
börn, ungmenni og aldraðir.
Þá benti fundurinn á nauðsyn
þess að efla líknarþjónustu kirkj-
unnar. Fundurinn þakkaði stuðning
Fræðslu- og þjónustudeildar Bisk-
upsstofu við söfnuði prófastsdæm-
isins og væntir þess, að þar verði
lögð aukin áhersla á líknarþjónustu
í framtíðinni. Á það var bent að
líknarþjónustan verði að fá verðug-
an sess í yfirstandiandi átaki um
safnaðaruppbyggingu.
Einnig samþykkti fundurinn að
mótmæla harðlega þeirri skerðingu
á kirkjugarðsgjöldum, sem boðuð
eru í frumvarpi til fjárlaga fyrir
næsta ár og telur að slík atlaga að
fjárhagsgrundvelli kirkjugarðanna
sé andstæð lögum og geti spillt
fyrir góðum samskiptum ríkis og
kirkju og dragi úr getu kirkjugarð-
anna til þess að sinna nauðsynlegu
þjónustuhlutverki sínu sem skyldi.
Ennfremur var samþykkt að
vekja athygli ráðuneytis og Alþing-
is á knýjandi þörf fjölgunar starfs-
manna við sóknir prófastsdæmisins.
I lögum sé skýrt kveðið á um, að
á hvern prest skuli vera 4.000
manns, en þrátt fyrir þessi lagafyr-
irmæli hafi ekki fengist lágmarks-
íjölgun starfsmanna og í væntan-
legum fjárlögum sem til umræðu
eru á Alþingi sé enn ekki gert ráð
fyrir, að lagafyrirmælum sé fylgt.
Héraðsfundurinn beinir þeirri
kröfu til fjárveitingavaldsins, að
farið verði að réttum lögum og eðli-
leg fjölgun starfsmanna verði heim-
iluð svo að hægt sé að halda uppi
eðlilegri og nauðsynlegri þjónustu
við íbúa prófastsdæmisins.
Morgunverðarfundur:
Islenskt viðskiptalíf í
Formaður dómnefndar, breska sendiherrafrúin á íslandi, Af-
saneh Klialatbari (t.h.) afhendir Ingunni Egilsdóttir, eiganda
verslunarinnar Krakkar, verðlaunin.
Kringlan:
Verslunin Krakkar var
með bestu útstillinguna
VERSLUNIN Krakkar varð verslunarinnar. Vinningurinn
hlutskörpust í samkeppni versl- . er ferð fyrir tvo með Flugleið-
ana í Kringlunni um bestu út- um til Glasgow og gisting á
stillingu á kynningunni hótelinu Jury’s Pond þar í borg
„Kringlan í þjónustu hennar í boði breska ferðamálaráðsins.
hátignar”, sem nú stendur yfir Dómnefndin vakti einnig at-
°g lýkur á laugardaginn 26. hygli á vönduðum útstillingum
október. verslananna Centrum, Heilsu-
Viðurkenningin er veitt fyrir húsið, Penninn og Sævar Karl
glæsilega útstillingu í glugga og synir.
nýrri framtíðarmynd
Norræna húsið:
Þrjár grænlenskar
kvikmyndir sýndar
VERSLUNARRÁÐ íslands hefur
morgunverðarfund í Súlnasaln-
22-Pisterp-
irkko held-
ur tónleika
FINNSKA hljómsveitin 22-Pist-
erpirkko á tónleikum í Reykjavík
og á Akureyri á næstu dögum.
Rúmt eitt ár er liðið síðan hljóm-
sveitin sendi frá sér sína fyrstu
plötu, Ber Bone Nest.
í kjölfar útgáfunnar fór hljóm-
sveitin í langt tónleikaferðalag og
kom meðal annars hingað til lands.
Sveitin ein sú þekktasta sem hingað
hefur komið frá Skandinavíu. Tón-
listin sem sveitin flytur er aðgengi-
leg þrátt fyrir að flestar stefnur í
svokallaðri dægurtónlist komi þar
fyrir. Hljómsveitina skipa bræðurn-
ir Asko og P.K. Karanen og æsku-
vinur þeirra Espe. Þeir leika á 1929
á Akurureyri í kvöld og á sunnudag
og mánudag leika þeir á Tveim vin-
um ásamt hljómsveitinni Bless.
♦ -------
■ / FRAMHALDI af málþingi
tauga- og heimilislækna sem haldið
var í Reykjavík nýverið hafa Mígren-
samtökin fengið taugalæknana
Grétar Guðmundsson og Sigurð
Thorlacius til að halda fyrirlestra á
vegum samtakanna. Læknarnir fjalla
um aðdraganda að mígrenkasti, fyr-
irbyggjandi lyfjameðferð og lyfja-
meðferð í einstökum mígrenköstum.
Að loknum erindum munu þeir svara
fyrirspurnum. Fyrirlestrarnir verða í
Bjarkarári, Stjörnugróf 9, Reykja-
vík 28. október (Grétar Guðmunds-
son) og 25. nóvember (Sigurður
Thorlacius) kl. 20.30. Öllum er heim-
ill aðgangur.
um þriðjudaginn 29. október um
þau nýju og fyrirsjáanlegu gjör-
breyttu viðhorf, sem blasa við
íslensku viðskiptalífi. Mest fer nú
fyrir hinu evrópska efnahags-
svæði, en heimsviðskiptin eru öll
að breytast með einum eða öðrum
hætti. Þá eru í dciglunni nýjar
samkeppnisreglur og breytt hlut-
verk Verðlagsstofnunar.
Framsögumenn á fundinum verða
fjórir, hver með 10 mínútna erindi.
Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra
(Nýjar aðstæður í íslenskum við-
skiptum), Björn Friðfinnsson ráðu-
neytisstjóri (Viðskiptasamkeppni á
nýjum nótum), Ólafur Davíðsson
framkvæmdastjóri FÍI (Atvinnulífið
mun taka stakkaskiptum) og Árni
Árnason framkvæmdastjóri Arvíkur
hf. (Áhrif á fyrirtæki í viðskiptum).
Fundarstjóri verður Sigrún Trausta-
dóttir fjármálastjóri Hagvirkis-
Kletts hf.
Fundurinn hefst á þriðjudags-
morgun klukkan 8 og honum lýkur
klukkan 9.30. Allt að hálftími gefst
fyrir spurningar og svör. Fundurinn
er opinn, en skrá þarf þátttöku hjá
Verslunarráðinu á mánudaginn.
(Fréttatilkynning)
ÞRJÁR grænlenskar kvikmyndir
verða sýndar í fundarsal Norræna
hússins í tengslum við Grænlands-
mánuð, sem stendur nú yfir í
húsinu, sunnudaginn 27. október.
Fyrsta myndin Sattut verður sýnd
kl. 14.00. Þetta er mynd fyrir böm
og segir frá grænlensku veiðimanna-
samfélagi, Saattut. Myndirnar eru í
þremur þáttum og eru með íslenskum
texta.
Kl. 15.30 verður heimildarmyndin
Kalaallit Nunaat-Grænland á dag-
skrá. Grænlenska heimastjórnin lét
gera þessa mynd til að upplýsa og
svara mörgum spurningum sem be-
rast heimastjóminni um grænlenskt
samfélag á okkar dögum.
Kl. 16.00 hefst sýning á annarri
heimildarmynd sem nefnist Inughuit-
þjóðin við nafla heimsins. Þar segir
frá íbúum Thule, en þeir heita Inug-
huit-fólkið. Inughuitar dýrka lífið og
náttúruna og í myndinni er fjallað
um hvemig veiðimannaþjóð lifíir á
20. öldinni, þegar gripið er inn í til-
veru þeirra af utanaðkomandi öflum.
Kvikmyndin er gerð 1985 af Staff-
an og Ylva Julén í samvinnu við
Sænsku kvikmyndastofnunina og
sænska sjónvarpið með styrk frá
Norræna menningarsjóðnum og
grænlensku heimastjórninni.
Aðgangur er ókeypis að kvik-
myndasýningunum.
Grænlensk myndlist, listaverk' eft-
ir unga grænlenska listamen ásamt
eldri listamönnum eru sýndar í sýn-
ingarsölum. Hún er opin daglega kl.
14-19 til 3. nóvember.
í anddyri hússins er sýning frá
grænlensku landstjórninni um lífs-
hætti á Grænlandi og er yfírskriftin
Grænland samtímans.
Úrval bóka frá Landsbókasafni
Grænlands og sýnishorn bóka frá
Det Gronlandske Forlag er í bóka-
safni Norræna hússins.
Halldóra Emilsdóttir
■ HALLDÓRA Emilsdóttir opn-
aði málverkasýningu föstudaginn
25. október sl. í Gallerí einn einn,
Skólavörðustíg. Halldóra sýnir ol-
íumyndir unnar á þessu ári. Hún
lauk námi frá Myndjista- og hand-
íðaskóla íslands árjð 1987 úr mál- **-
aradeild. Þaðan la leið hennar í
Rietveld Academ'ie 1987-89. Hún
hefur tekið þátt í nokkrum samsýn-
ingum og haldið 3 einkasýningar.
Þetta er fjórða einkasýning hennar.
Sýningin er opin alla daga. frá kl.
14-18 og henni lýkur 7. nóVember.
• •
STJORNU
Beint flug og gisting
í tvær nætur: verð frá
32.000 kr.*. Farþegar í pakka-
ferðum Flugleiða fá frímiða á eina
sýningu í leikhúsum borgarinnar í
október og nóvember.
Þín bíður gott hlutverk um stjörnuhelgi í
London. Og þegar þú hefur fengið
endurgreiddan söluskattinn á Heathrow
bíður ný Flugleiðaþota eftir þér við
landganginn og flytur þig heim með
góðar minningar í farteskinu.
BORGIR!
London er heimsborg
þar sem þú getur fengið
og upplifað allt sem hugur-
inn girnist. Gefðu þér tækifæri
til að fara á leikhús eða á tónleika
eða þá bara til þess að hverfa inn í litríka
hringiðuna á verslunargötunum.
Hafðu samband við þína ferðaskrif-
stofu, söiuskrifstofur okkar og umboðs-
menn um allt land eða í síma 690300
(svarað alla 7 daga vikunnar).
(BCB
*verð á manninn í tvfbýli m.v. staðgr. og gengi 13.9.1991: flugvallarskattur og forfallagjald (alls 2.350 kr.) ckki innifalið. Frían leikhúsmiða þarf að panta og staðfesta fyrir brottför. Miðinn er ekki endurgreiðsluhæfur.