Morgunblaðið - 05.01.1992, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 05.01.1992, Qupperneq 12
íl2 MOKGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. JANÚAR 1992 SEIDKONUSriDOkNIR NÚ verðið þið leiddir lesendur góðir inn í stórt steinhús i einu af úthverfum Reykjavíkur. Jafnframt er ykkur leyft að taka undir plast- poka sem sígur svolítið í undan þyngd fjögurra kaffibolla. Við erum á leið til seiðkonu og ætlum að fá hana til að spá í þessa bolla, sem einn af landsfeðrum okkar hefur nýlega lokið við að drekka svart kaffi úr. Af sama dugnaðinum og viljastyrknum sem hann beitir fyr- ir sig í stjórnmálunum handfjatlaði hann þessa bolla, blés i þá og snéri þeim yfir höfði sér, allt eftir kúnstarinnar reglum. I von um að þessir bollar beri með sér strauma úr umróti stjórnmálanna og hringiðu þjóðlífsins fáum við þá seiðkonunni í hendur. Hún vill ekki Iáta nafns síns getið, en eitt má þó til að koma fram: Hún er afkom- andi Þorleifs í Bjarnarhöfn, þess forspáa Snæfellings, sem Þórbergur Þórðarson helgar heilan kafla í ævisögu séra Arna Þórarinssonar. Seiðkonan tekur bollana, einn af öðrum, rýnir í þá og veltir þeim milli handa sér, lætur að lokum síðasta bollann siga niður í kjöltuna, beinir þreyttum sjónum inn í fjarlægð ókomins tíma og tekur að tala. SPENNANDIM „SPÁDÓMAR geta verið leiðandi og ég er á móti þeim,“ segir Gunnlaugur Guðmundsson stjörnuspekingur. „Hins vegar má skoða orku og þá krafta sem fram koma á sljörnukortum og líta bæði á jákvæða og neikvæða möguleika. Ég Ht á stjörnuspeki sem persónulegt veðurkort. Eins og menn klæðast eftir veðráttu geta þeir stuðst við sljörnukort sitt þegar til dæmis ákvarðanir eru teknar.“ Landsfaðirinn sem á þennan bolla er augljóslega úr stjóm- málaflokki sem nú ræður ríkj- um,“ segir seiðkonan. „Sá flokkur á fyrir höndum tals- verðan barning, en með vor- inu fær hann mikinn meðbyr. Ég lít á þennan bolia sem bolla þjóðarinn- ar, ef svo má segja. Sem slíkur er hann undarlega bjartur. Ástandið verður ekki eins uggvænlegt og fólk heldur í dag. Við eigum í vændum gott ár í stjómmálum. Þó talsvert sviptingasamar umræður verði núna fyrst til að byija með á þingi þá er engin hætta á stjórnarslitum eða þingslitum. Stjómin heldur velli, hvemig sem andstæðingar láta. Jafnvel þó farið verði með rangt mál og einn maður kengbeygður. Það verður sannarlega allt gert til að fella stjómina, reynt að eyði- leggja fyrir henni eins og hægt er, en það tekst ekki. Einn maður í stjórninni reynist sérlega fastur fyr- ir, kannski sá sem á bollann. Tímabilið frá mars og fram í júlí er spennandi. Það verður mikið að gerast í stjórnmálunum, líka eftir að þingið hættir og það er mjög já- kvætt. Það verður mikið að gerast á þingi í vetur og margt gott sem kemur þar fram. Þing mun sitja iengur en það er vant að gera. Upp- gangurinn byijar með vorinu eins og ég sagði og þá kemur eitthvað sniðugt uppá, sem bregður fæti fyr- ir andstæðinga stjómarinnar. Hart verður deilt. Menn verða þó að forð- ast að ana áfram. Þeir verða að kunna að gefa eftir og jafnvel að halda að sér höndum. Stjórnarliðar þurfa að fá betra næði til þess að vinna. Það veitir ekki af því landið er illa statt. Ég sé þó peninga sem renna inn í þjóðarbúið. Þeir koma sumir erlendis frá. Ekki sýnist mér þetta vera lán, í það minnsta verða þessir peningar ekki endurgreiddir. Miklu frekar náum við góðum samn- ingum erlendis. Það er þröngt um markaði hjá okkur núna en það á eftir að lagast töluvert mikið og verður nokkuð gott ástand í þeim efnum með vorinu. Atvinnumálin líta ekki sem verst út. Það virðist vera bót framundan í sambandi við þau. Þar ber ýmislegt til, fískirí verður gott og því mikil og góð afkoma frá sjónum, betri en verið hefur. Það fiskast held ég miklu betur en menn búast við. Sitt- hvað nýtt á þeim vettvangi kemur til sögunnar, sem hægt verður að notfæra sér. Einnig verða hvalveiðar eða hrefnuveiðar leyfðar aftur á ein- hvern hátt. Nýtt tímabil er að hefj- ast í sambandi við sjóinn og miklir peningar í aðra hönd. Eitthvað finnst einkennilegt í sjónum, líklega er olía fyrir Norðurlandi og jafnvel víðar. Mér kæmi ekki á óvart þó talsvert yrði talað um olíu á næstunni. í kjaramálum sýnist mér verða einhver breyting á. Þær breytingar ganga ekki orðalaust fyrir sig, þær tengist einhveijum hasar. Það hafast í gegn einhveijar lítilfjörlegar launa- hækkanir sem fólk sættir sig þó við og jafnvel gerir sig ánægt með. Ein- hver verkföll verða, en ekki dregur þó til neinnar verulegrár alvöru í þeim málum. Landbúnaðurinn mun ganga sæmilega og bændur mega allvel við una. Eitthvað verður um verkföll sem eru leiðinleg en ganga fljótt yfir. Ég held að afkoma verði sæmileg hjá fólki yfirleitt. í listalífinu verða tveir einstakl- ingar sérstaklega áberandi. Annar er stúlka sem hefur hingað til starf- að erlendis og svo karlmaður, nýr af nálinni, sem er mun hávaðasam- ari í list sinni. Skáld munu líka rísa upp úr öskustónni. Einn íslenskur maður nýtur óvenj- ulegrar upphefðar á árinu og íþrótt- aliðin okkar munu gera það gott. íþróttafélag lamaðra, fótboltadren- girnir okkar og handboltaliðið gera það mikið gott. Þetta verður gott ár fyrir íþróttafólk. Mér sýnist íþróttahreyfingin að einhveiju leyti tengjast þessum manni sem á þenn- an bolla, en það er önnur saga. Heilsufar landsmanna verður þokkalegt nema hvað inflúensa mun heija á landslýð. Hún verður þó ekki eins slæm og menn óttast. Hins vegar verður veðrið mjög leiðinlegt í febrúar, þegar hún geisar hvað mest. Hugmyndir manna um sam- einingu Borgarspítala og Landakots ganga að einhveiju leyti í gegn, en einhver hluti Landak’ots verður áfram sjúkrahús. Þetta mun þó ekki bera eins mikinn árangur og ætlast var tii, fremur en aðrar hugmyndir sem fram hafa verið settar um sparnað. Þær munu ekki bera þann árangur sem til er ætlast. Veðurfar verður rysjótt í vetur. Það verður óvenju hart og veturinn langur, en við fáum gott sumar. Einhveijar jarðskjálftahræringar verða á Suðurlandi og jafnvel á Norðurlandi líka, en ekki verða þær hættulegar. Þær setja þó skrekk í fólk. Tveir áhrifamenn frá Alþingi þurfa oft að fara utan til þess að ræða þýðingarmikil mál og eru með þeim fyrstu sem það gera. Þeir verða talsvert áberandi vegna þessa. Þeir eru friðarstillar, ef svo má segja, er alls staðar til góðs þar sem þeir koma. Það er merkilegt hveiju þessi litla þjóð fær áorkað. Hvað snertir EES-samningana þá sýnist mér þeir verða jákvæðir en taka þó ekki gildi þetta ár sem er að koma. En mikið verður um þá rætt. Þó íslendingum verði boðið margt jákvætt þá reynast þeir ekki tilbúnir til að gleypa allt í þeim efn- um. Ég er ekki viss um að það verði íslendingum til góðs að fara í þenn- an félagsskap. Það bregður í það minnsta 'til beggja vona. Sumt er gott en annað ekki eins og það ætti að vera. Hvað snertir utanríkismál yfirleitt þá sýnist mér talsverðrar ókyrrðar gæta, sérstaklega í Evrópu. Seint mun ganga að stansa hildarleikinn í Júgóslavíu, en það hefst þó. í Rúss- landi er eitthvað í uppsiglingu, ekki gott. Mér sýnist Úkraína eiga þar hlut að máli, þar eru landsmenn mjög ósáttir við sinn hlut. Ástandið verður yfírleitt erfítt í austantjald- slöndunum, sem við nefnum svo. Hins vegar ber minna á ókyrrð fyrir botni Miðjarðarhafsins. Við íslend- ingar munum ekki dragast inn í neins konar ófrið, nema hvað snertir ferðalög fyrrnefndra tveggja manna. Þeir reyna að leggja sitt af mörkum til að stilla til friðar, sérstaklega er annar þessara manna umsvifamikill í því starfi. Kirkjan mun líka reyna að gera sitt í þessum efnum. Það verður ekki langt þangað til hafín verður mikil söfnun sem mun ganga afar vel. íslendingar eru ekki fátækir þegar slíkar safnanir eru annars vegar. Stjórnarsamstarfið á íslandi verð- ur í heild að teljast gott. Tveir menn, hvor í sínum flokki, geta alltaf lemp- að málin, komi eitthvað upp. Það er ómögulegt annað að segja en það sé jákvætt fyrir ríkisstjómina sem í bollum þessum er.“ Svo mælti seiðkona Morgunblaðs- ins. Ef samlíkingin við veðrið er tekin, verða íslendingar víst hvorki léttklæddir né lita- glaðir á árinu 1992, en þó segir Gunnlaugur að árið verði spennandi fyrir þjóðina. „Þeg- ar íslandskortið er skoðað kemur í ljós að samdráttur verður áfram og efnahagur í lægð. Það getur þó einnig haft jákvæðar afleiðingar. Samdrætti fylgir raunsæi, íslend- ingar verða með fæturna á jörð- inni, skynsemi mun aukast marg- falt og þjóðin mun horfast í augu við raunveruleikann. Neyslubijál- æðið mun minnka, sjálfsagi fólks, aðhald, skipulag og yfirvegun eykst. Menn setja síður fé í óarð- bærar fjárfestingar, en borga skuldir sínar.“ Gunnlaugur segir að íslendingar hafi að vissu leyti búið við sósíalskt þjóðskipulag eins og austantjalds- þjóðirnar og því sé komið að upp- gjöri. Árið geti orðið erfítt bæði fyrir þá sem hafa offjárfest og þá sem þegið' hafa ríkisaðstoð. „Við lifum á umbrotatímum," segir Gunnlaugur. „Þjóðin er rík og það verður spennandi að sjá hvað gerist þegar við förum að nota peningana í annað en óarð- bærar íjárfestingar. í sumum at- vinnugreinum verður líklega þensla, eins og til dæmis hjá fjöl- miðlum, Háskólanum, þótt ótrúlegt megi virðast, í samgöngum og í þeim greinum er snerta rafmagn ogtækni. Eriendir samningar verða hagstæðir og ekki er ólíklegt að erlend ráðstefna verði haldin hér á miðju ári.“ Gunnlaugur segir að íslendingar séu draumóraþjóð, og nú horfíst þeir í augu við draumóra sína. „Nýaldarspeki og fleira í þeim dúr verður til dæmis á undanhaldi. Mannlegu gildin munum við þó setja ofarlega, en á jarðbundinn hátt.“ Gunnlaugur skoðaði stjörnukort þriggja íslenskra ráðherra og dró fram helstu niðurstöður. Davíð Oddson forsætisráðherrá er ,jarðýtan“ í íslenskum stjórn- málum, að sögn Gunnlaugs. „Hann er skynsamur og kænn, er stjórn- málamaður nýja tímans og vill helst reka landið eins og fyrirtæki. Hann sameinar það að vera harður og stífur en jafn- framt næmur á strauma í þjóð- félaginu. Hann veit að Islendingar vilja foiystumenn sem þora og því tekur hann ekki áhættu þótt hann syndi gegn straumnum um stund- arsakir. Hann sér heildarmyndina eins og hún er og lætur þjóð sína horfast í augu við staðreyndir. Hann er jarðbundinn, vill áþreifan- legan árangur og gerir það sem þarf þótt það kosti óvinsældir hjá „skammtímamönnum". Þetta eru eiginleikar sem prýða góðan for- ingja. Veikleikar Davíðs sem foringja eru þeir, að hann á það til að vera óbilgjarn og troða á tilfínningum manna vegna stóru málefnanna. Hann mætti vera diplómatískari, og einnig þarf hann sem leiðtogi að hvetja þjóð sína. Hann þarf að sýna fólki að þótt leiðin sé erfíð þá sé bjart framundan. Á tímum samdráttar er hætt við að menn verði hræddir og svartsýnir og gef- ist upp.“ Gunnlaugur Guðmundsson stjörnuspekingur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.