Morgunblaðið - 05.01.1992, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. JANÚAR ,1902
13
Ekki er annað að sjá en að ágæt-
is ár verði framundan hjá forsætis-
ráðherra og ríkisstjórn hans.
Friðrik Sophusson fjármála-
ráðherrra er „herramaðurinn“ í
pólitíkinni, kurteis og fágaður
diplómat. „Hann
er rökfastur,
skynsamur og yf-
irvegaður, hefur
ríka réttlætis-
kennd og er
ábyrgur og dug-
legur vinnumaður.
Það er erfitt að
finna á honum
áberandi galla,
enda heilsteyptur
maður, helst að honum hætti til
að vera óákveðinn og tvístígandi,
eða of kurteis og þá litlaus í leið-
inni. Einnig á hann það til að vera
eirðarlaus og hafa of mörg járn í
eldinum, eða „dreifa sér“ of víða.
Hann er mikill félagsmálamaður.
Stjörnukortið hans lofar öllu góðu
á þessu ári.“
Jón Baldvin Hannibalsson ut-
anríkisráðherra er frjálslyndur
keppnismaður,
„töffarinn" í ís-
lensku pólitíkinni.
„Hann hefur sér-
stöðu í íslenskum
stjórnmálum, læt-
ur form og hefðir
ekki hefta aðgerð-
ir sínar og er
nokkuð laus við
hagsmunapot.
Hann þrífst á bar-
áttu og keppni, hugsar stórt og er
ekki bundinn smáatriðum eða
stundarhagsmunum. Hann er mik-
ill tilfinningamaður og þorir að
vera til.
Veikleiki hans er skortur á fé-
lagslegri samvinnu og skeytingar-
leysi þegar tilfínningar fólks eru
annars vegar.
Árið verður frekar erfitt og mik-
il barátta í kringum Jón Baldvin,
sem sennilega tengist flokksmál-
um.“
Útlönd
Breytingar og upplausn í alþjóð-
amálum verða áfram og ná há-
marki næstu tvö árin. Ekki er að
búast við rólegri tíma fyrr eftir
1995 eða 1996. „Uppstokkun þjóð-
félagskerfa ber hæst, en umhverf-
ismál og flóttamannavandamál
koma líka til með að skipta miklu
máli.
Sú heimsmynd sem hófst í lok
Napóleonsstríðanna í kringum árið
1815 er nú í dauðateygjunum og
við stöndum við upphaf nýrrar
heimsmyndar.
Miklir umbrotatímar eru nú
framundan hjá Bandaríkjamönnum
og komið að uppstokkun hjá þeim.
Þjóðfélagskerfi þeirra þarfnast
endurnýjunar ekki síður en hjá
kommúnistaríkjum. Sjá má þar
óróa og upplausn næsta sumar og
ekki er ólíklegt að koma muni upp
hneyksli á árinu vegna svika sam-
starfsmanna.“
Gunnlaugur hefur athugað stöðu
hinna ýmsu þjóða og segir að kort
Bretlands sé mest spennandi hvað
næstu tvö ár snerti. „Bretland er
með tungl á miðhimni og því hafa
konur ætíð verið mjög áberandi í
þjóðfélaginu þrátt fyrir hið íhalds-
sama karlaveldi Breta. Nú eru
Úranus og Neptúnus á tungli sem
gæti táknað upplausn kvenímynd-
arinnar. Það gæti jafnvel táknað
að Elísabet drottning fari frá. í það
minnsta verður mikið um að vera
í því landi á næstu árum.“
Um forystumenn stórveldanna
hefur Gunnlaugur þetta að segja:
„George BushBandarikjaforseti
trúir á frelsi einstaklingsins og er
á móti ríkisafskiptum, en það verða
þó efnahagsmálin
sem valda honum
mestu erfíðleikum
á næsta ári.
Bandaríkjamenn
verða æ óþolin-
móðari og vilja
aðgerðir. Bush á
auðvelt með að
umgangast fólk,
hefur yndi af því George Bush
að hafa það í kringum sig og er
diplómat „par exellence". Hann er
raunsæismaður, en skortir hug-
sjónir og er full litlaus sem leiðtogi.
Boris Jeltsinforseti Rússlands
er uppreisnarmaður og hugrakkur
umbótasinni.
Hann er keppnis-
maður sem á erfitt
með að vinna með
öðrum, er frekur
og ráðríkur og
lætur betur að
hreinsa til og um-
bylta, en að við-
halda ákveðnu
stjórnkerfi. Ég lít
ekki á hann sem
friðarhöfðingja og tel að hann
muni einungis stjórna meðan mestu
breytingarnar eru að ganga yfir.“
En hvað verður
um Míkhaíl
Gorbatsjov?
„Gorbatsjov
verður nú eins
konar „Heilagur
Míkhaíl" í augum
fólksins. Ég tel að
hann muni snúa
sér að alþjóðlegu
friðarstarfi. Hugs- Mikhaíl
anlega hjá Sam- Gorbatsjov
einuðu þjóðunum,“ segir Gunnlaug-
ur.
Boi-is Jeltsin
Fjölbreytt
vetrarstarf
Kramhússins
hefst að nýju
6. janúar
Dansleikfimi - Afró - Jass
- Modern-Stepp
- Leiksmiðja - Kórskóli
Ath! Nanette Nelms kennir
dans næstu 3 mánuði.
Byrjenda- og framhaldsflokkar
1. Tónlist - Söngur - Spuni
3-5 ára og 6-9 ára.
Kennari: Margrét Pálmadóttir.
2. Leiklist. 7-9 ára og 10-13 ára.
Kennarar: Ásta Arnardóttir og Þórey Sigþórsdóttir.
3. Leikir - Dans - Spuni 4-6 ára
Kennarar: Þórey, Ásta og Guðbjörg Arnardóttir.
4. Ballett. 7-9 ára.
Kennari: Guðbjörg Arnardóttir.
5. Jass. 7-9 og 10-13 ára.
Kennari: Eva Gísladóttir.
Tímabókanir standa yfir
ísímum 15103 og
17860
VIÐ BERGSTAÐASTRÆTI
Norræna ráðherranefndin
skrifstofan
leitar að nýju samstarfsfólki:
/
Ráðunaut varðandi heilbrigðis-
og félagsmálastefnu
Ráðunaut um verslunar-
og samningaspursmál
Ráðgjafi varðandi
menntunarspursmál
Ritara
Ráðunautur varðandi heilbrigðis-
og félagsmálastefnu
Ráðunauturinn á meðal annars að
sjá um ritarastörf fyrir ráðherra-
nefndina og embættismannanefnd-
ina um félagsmál (norræna félags-
málanefndin) ásamt því að hafa
samband við stofnanir, áætlanir og
vinnuh.ópa innan geirans. Þetta svið
er eins og stendur staðsett í sérdeild
3, þar sem hin sviðin eru vinnu-
markaðir, vinnuumhverfi og jafn-
rétti. Þekkinga á einu eða fleiri þess-
ara sviða eru því kostur.
Nánari upplýsingar veitir Leif
Chr. Hansen, deildarstjóri, eða Ingi-
mar Einarsson, ráðunautur.
Ráðunautur um verslunar- og
samningaspursmál
Ráðunauturinn á að vera ritari norr-
ænu embættismannanefndarinnar
um verslunarmál og embættis-
mannanefndarinnar um samninga-
mál. Þar við bætist samband við
skyldar stofnanir og vinnuhópa.
Starfið felur einnig í sér undirbúning
mála til ráðherranefndarinnar.
Starfið gerir ráð fyrir góðri tungu-
málakunnáttu vegna sambands við
mikilvægar alþjóðastofnanir.
Frekari upplýsingar veitir Barbro
Wilding, deildarstjóri, Marianne V.
Thompson, ráðunautur eða Gunilla
Nilsson, deildarritari.
Ráðunautur varðandi
menntunarspursmál
Ráðunauturinn ber ábyrgð á
samhæfmgu og framkvæmd á
norrænu skólastarfi. Hann þarf að
hafa frumkvæði og stjórna undir-
búningi verkefna og fylgja eftir
framkvæmd ákvarðana í stjórnhóp-
um í embættismannanefndinni og í
ráðherranefnd (mennta- og menn-
ingarmálaráðherra).
Starfið felur í sér samskipti og
samstarf við evrópskar og aðrar al-
þjóðlegar stofnanir.
Ritari
Störf ritarans eru bundin einni af
sérdeildum framkvæmdanefndar-
innar og eru aðallega venjuleg ritara-
störf, svo sem textavinna og þjón-
usta í sambandi við fundahöld
o.s.frv. Ýmiss frekari verkefni
kunna þó að bætast við.
Nánari upplýsingar veitir Risto
Tienari, deildarstjóri, eða Pia Ravn,
deildarritari.
Sameiginlegt fyrir öll störfin:
Umsækjandi þarf að hafa góða,
fræðilega menntun og hagnýta
reynslu við störf hjá opinberum eða
einkaaðilum. Það er skilyrði fyrir
ráðningu að hafa vald á dönsku,
norsku eða sænsku, bæði skriflega
og munnlega. Góð kunnátta í ensku,
þýsku og frönsku eru líka kostir.
Starfið felur í sér talsverð ferðalög
áNorðurlöndum.
Ránðning er tímabundin með
samningi til 4 ára með talsverðum
möguleika á framlengingu.
Ríkisstarfsmenn eiga rétt á fríi frá
störfum á ráðningartímanum.
Vinnustaðurinn er
Kaupmannahöfn.
Frekari upplýsingar um ráðningar-
skilmála veitir ritari framkvæmda-
stjórnar, Annelie Heinberg, og Judy
Feldborg, ritari. Sími í Kaupmanna-
höfn+45 33 11 47 11.
Umsóknir skulu skrifaðar á um-
sóknarreyðublöð skrifstofunnar.
Þau fást með eftirfarandi klippimiða
eða sækja í móttöku á neðanskráðu
heimilisfangi.
Síðasti umsóknardagur er 20. janúar
1992.
Umsókn sendist til:
Nordiska Ministerrádet,
Store Strandstræde 18,
DK-1255 Köpenhamn K.
Merkið umslagið „tjánsteansökan“
Norritna ráölierrmiefndir. er samvinnustofmin fyrir rikisstjómir Noröurlanda. Samvinnan natr yfir alla meginþmti félagsmála.
Framkmmdanefnd ráöherranefndarinnar hefur batði frumkmöi og annast framkvamdirfyrir Norramu ráöherranefndina. Fram-
kmmdanefndinni erskipt ifimm sérdeildir. eina fiáhags- og stjórnunardeild, eina upplýsingadeild ogskrifstofu aöalritara.
I----------------------------------------'-------------------------------------Tí
■ Gjörið svo vel að senda umsóknareyðubloð til: ■
Nafn
Heimili
Sendist til:
NordiskaMinisterrádet, Store Strandstræde 18, DK-1255 Köpenhamn K.
Merkið umslagið „tjönsteansökan“.