Morgunblaðið - 05.01.1992, Síða 18
>18 ____f MORpyNBLADlD SUNNUDAGUK,5. JMÚAg 1992_
BUSH BÝST TIL ÁTAKA
í SKU6GA KREPPU
Atvinnuleysi hefur færst í aukana í Bandaríkjunum undanfarið og ríkir öryggisleysi á vinnumarkaðnum.
>T-----"%""1
Bill Clinton safnar fé fyrir Hjálpræðisherinn. Fréttaskýrendur veðja
á að hann verði forsetaefni demókrata.
EKKERT lát virðist ætla að
verða á efnahagskreppunni í
Bandaríkjunum. Stórfyrirtæki á
borð við IBM og General Motors
sjá ekki aðra leið út úr vandan-
um en að grípa til fjöldaupp-
sagna og neytendur halda að sér
höndum. Þetta ástand hefur ver-
ið George Bush Bandaríkjafor-
seta erfitt viðureignar. I upp-
hafi reyndi hann að láta eins og
kreppan væri ekki til, efnahag-
urinn væri aðeins í lægð og
myndi von bráðar rétta úr kútn-
um. Orð forsetans dugðu ekki
til að hafa áhrif á gang mála
og raddir gagnrýni bentu á að
hann hefði ekki verið kjörinn
utanríkisráðherra heldur for-
seti. í kjölfarið urðu þær vin-
sældir, sem Bush ávann sér
vegna framgöngu sinnar í Pers-
aflóastríðinu, að engu. Nú er svo
komið að demókratar eygja von
um að gera honum skráveifu í
forsetakosningunum í nóvember
og áskorandi úr röðum repúblik-
ana ætlar að laða til sín
óánægjufylgi úr hægra armi
flokksins til að velgja honum
undir uggum.
Fréttaskýrendur hafa sagt
að svo virðist sem Bush
hafí tvo menn að geyma.
Annars vegar er hinn
skeleggi stjómmálamað-
ur, sem allt virðist fært
á alþjóðavettvangi, hins
vegar er hinn duglitli forseti, sem
fallast hendur þegar eitthvað bját-
ar á innanlands. Einn gagnrýnandi
sagði að það hlyti eitthvað að vera
bogið við forseta, sem legði meiri
áherslu á að leysa Kýpurdeiluna,
en að reisa við bandarískan efna-
hag. Öðrum fannst öfugsnúið að
það skyldi aðeins hafa tekið Bush
og aðstoðarmenn hans fimm daga
að leggja fram efnahagsáætlun
fyrir Sovétríkin sálugu, en fimm
mánuði að setja saman sams konar
áætlun fyrir Bandaríkin.
Bush hefur reynt að bregðast
við þessari gagnrýni. Hann gerir
sér grein fyrir því að hann verður
að snúa við blaðinu ætli hann að
tryggja sér endurkjör. Hann hefur
þegar skipað aðstoðarmenn til að
skipuleggja kosningabaráttuna
með Robert A. Mosbacher, núver-
andi viðskiptaráðherra, í broddi
fylkingar og undirbúa forkosning-
arnar, sem hefjast í febrúar.
Bush hefur oft og tíðum reynt
að afla sér hylli með því að vera
alþýðlegur í fasi. Um jólin settist
hann niður á krá í Texas og gerði
að gamni sínu við gesti og sýndi
þar fram á að hann er í engu frá-
brugðinn almenningi. Honum hafa
þó verið mislagðar hendur í upp-
ákomum af þessu tagi. Fyrstu
verslunarhelgina fyrir jólin ákvað
Bush að fara í innkaupaleiðangur
ásamt Barböru og öryggisvörðum
sínum. Tilgangurinn var sá að
leggja örvæntingarfullum kaup-
mönnum lið með því að sýna
Bandaríkjamönnum fram á að þeir
gætu óhræddir varið dollurum sín-
um til kaupa á jólavarningi. Þegar
til kastanna kom reyndist eyðslu-
semin ekki í samræmi við boðskap-
inn. Forsetinn keypti fjögur pör
af gráum sokkum á 1.800 krónur.
Neytendur létu ekki sannfærast.
Verslun og viðskipti í Asíuför
Það var greinilegt að Bush tók
tillit ti! þeirrar gagnrýni að hann
legði ofuráherslu á utanríksmál
þegar hann lagði í för sína til Ástr-
alíu og Asíu á mánudag. Hann hét
því að bæta viðskiptasamskipti við
þau ríki, sem hann heimsækir í
ferðinni, og stækka markaði fyrir
bandarískar vörur til þess að auka
atvinnu í Bandaríkjunum. Með
þessum orðum var hann að segja
að hann væri með hugann við efna-
hagsmál, sem samkvæmt skoðana-
könnunum eru helsta áhyggjuefni
Bandaríkjamanna, þótt hann færi
utan. Jafnframt var hann að svara
einangrunarsinnum, sem sífellt
gerast háværari í bandarískum
stjómmálum.
Einangrunarsinnar
Sjónvarpsfréttaskýrandinn
Patrick Buchanan, sem ákveðið
hefur að bjóða sig fram gegn Bush
og sækjast eftir útnefningu Rep-
úblikanaflokksins til forsetaefnis,
segir að Bandaríkjamenn þurfi að
líta í eigin barm til þess að leysa
úr sínum málum. Hann er þeirrar
hyggju að Bandaríkjamönnum sé
enginn ávinningur af utanríkis-
stefnu á borð við þá, sem Bush
hefur fylgt, og heldur því til dæm-
is fram að láta eigi Rússa eina um
það að ráða fram úr vanda sínum.
Hann sakar Bush einnig um að
hafa svikið hægri væng flokksins
með fögrum fyrirheitum fyrir síð-
ustu kosningar og vanefndum í
embætti.
Richard Gephard, leiðtogi demó-
krata í fulltrúadeildinni, hefur
ásamt öðrum demókrötum sagt að
rótina að því að tæp milljón manna
hafi misst atvinnuna undanfarið
sé að finna í hagstæðum viðskipta-
jöfnuði Japana við Bandaríkja-
menn. Hann heldur því fram að
vandinn verði ekki leystur nema
jöfnuður komist á i viðskiptum
þjóðanna og hyggst leggja fram
frumvarp um að Japanar verði
beittir efnahagsþvingunum og inn-
flutningur á japönskum bifreiðum
verði bannaður takist ráðamönnum
í Tókýó ekki að koma á viðskipta-
jöfnuði innan fimm ára.
Bush líkir alþjóðaviðskiptum við
„tvístefnugötu“ þar sem helst verði
greitt fyrir umferð með því að
leggja niður höft og hömlur. Þenn-
an boðskap tók hann með sér til
Asíu einkum með það í hyggju að
hafa áhrif á Japana. „Þessi ferð
snýst um [að auka] atvinnu, at-
vinnu og aftur atvinnu,“ sagði
hann. Bush hyggst hins vegar
fremur beita fagurgala en hótun-
um og benda á að það sé beggja
hagur að tryggja fijáls viðskipti.
Bush var settur í vanda þegar
í upphafi Asíuferðarinnar._ Fyrsti
viðkomustaður hans var Ástralía
og þar sendu bændur honum tón-
inn fyrir að nota sömu meðul í
viðskiptum og hann áfellist Japana
fyrir að beita. Paul Keating, for-
sætisráðherra Ástralíu, tók í sama
streng og ástralskir bændur og
sagði að Bush yrði að beita sér
fyrir þvi að draga úr niðurgreiðsl-
um til bandarískra bænda. Astralar
segja að niðurgreiðslustríð Banda-
ríkjamanna og aðildarríkja Evr-
ópubandalagsins hafi bitnað
harkalega á sér og kosti ástralska
hveitibændur nokkra milljarða
króna á ári.
Markaðsstríð og deilur
við Japana
Þessar deilur kunna að grafa
undan málstað Bush þegar hann
kemur til Japans í þessari viku.
Bush hefur eins og áður segir
hamrað á því að hann hyggist
knýja fram tilslakanir hjá Japönum
í viðskiptum og glæða þannig
bandarískt efnahagslíf. Japanar
gætu notað yfirlýsingar hans í
Ástralíu um að ekki komi til greina
að draga úr niðurgreiðslum til
bænda sem vopn í viðræðum sínum
við forsetann og það gæti enn
dregið úr vinsældum Bush ef hann
snýr tómhentur heim eftir öll stóru
orðin.
Japanar eru þó líklegir til að
koma til móts við Bush að ein-
hveiju leyti. Mosbacher, viðskipta-
ráðherra Bandaríkjanna, sagði í