Morgunblaðið - 05.01.1992, Side 19

Morgunblaðið - 05.01.1992, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR B. JANÚAR 1992 19 lieuter Bush lyftir tveimur fingrum til merkis um sigur fyrir framan ástr- alska bændur, sem voru að mótmæla bandarískum niðurgreiðslum til landbúnaðar. Bandaríkjaforseti áttaði sig ekki á því að í Ástralíu táknar þetta fingramerki „farðu norður og niður“. sjónvarpsviðtali að kreppuna mætti að vísu ekki rekja að öllu leyti til viðskiptahátta Japana, en þeir ykju vandann með því að „hleypa ekki bandarískum vörum inn í Japan“. Mosbacher sagði að ekki kæmi annað til greina en að takmarka innflutning á vörum frá Japan ef stjómvöldum þættu Jap- anar ekki opna markaði sína nægi- lega. Koji Watanabe, aðstoðarut- anríkisráðherra Japans, neitaði því í sjónvarpsviðtali að efnahags- stefna Japana hefði nokkur áhrif á kreppuna í Bandaríkjunum. Hann gaf hins vegar í skyn að Bush yrði ekki sendur tómhentur heim. Watanabe sagði að japönsk stjórnvöld hefðu tekið til alvarlegr- ar athugunar að kaupa bandarísk- ar tölvur og þrýsta á japanska bíla- framleiðendur að kaupa banda- ríska bílahluti. Það kann að koma Bush í koll að hafa talað eins og sölumaður þegar hann lagði í Asíuferðina. Bush ætlaði að fara í þessa för í haust á síðasta ári, en ákvað að fresta henni vegna aðstæðna heima fyrir. í upphafi átti tilgang- ur fararinnar að vera sá að full- vissa bandamenn Bandaríkja- manna í Kyrrahafi um að Banda- ríkjamenn hygðust í engu draga úr stuðningi sínum við þá. En efna- hagsástandið og yfirvofandi kosn- ingar þrýstu í Bush um að breyta henni í viðskiptaför og vekja þann- ig væntingar um að hún muni leiða til bætts efnahagsástands. Kreppa í Bandaríkjimum En bandarískur efnahagur er í slíkri kreppu að það mun litlu breyta þótt Bush nái marki sínu og japanskir markaðir opnist. „Vandinn er ekki sá að þeir hafa lokað sínum rpörkuðum fyrir okk- ur, heldur að þeir ráða lögum og lofum á okkar mörkuðum hér,“ sagði Samuel H. Kernell, stjórn- málafræðingur við Kaliforníuhá- skóla í San Diego, og bætti við: „Hvemig eigum við að fara að því að selja Chrysler þar ef við getum ekki selt Chrysler hér?“ Vinsældir Bush náðu hámarki þégar Persaflóastríðinu lauk. Þá kváðu skoðanakannanir á um að 91 prósent kjósenda styddi forset- ann. Síðan hefur sviðsljósið í aukn- um mæli beinst að efnahagsmálum og nú er svo komið að Bush nýtur aðeins um 50 prósenta fylgis. Kreppan í Bandaríkjunum hefur komið fram í auknu atvinnuleysi og stöðnun á mörkuðum. Neytend- ur eru tortryggnir og halda að sér höndum og það hefur gert illt verra. Alan Greenspan seðlabanka- stjóri sagði lengi vel að kreppan væri á undanhaldi. Smám saman tók þó að gæta meiri svartsýni í orðum hans og rétt fyrir jólin sagði hann að bæði einstaklingar og fyr- irtæki væru svo skuldum hlaðin að uppsveifla væri hvergi í augsýn þegar hann bar vitni fyrir þing- nefnd. Hann varaði stjórnvöld einnig við því að lækka skatta. Hann kvað skattalækkun, sem repúblikanar hafa löngum gert að kosningamáli, myndi auka ijár- lagahallann og auka efnahags- vandann. Hagfræðingar voru gagnrýnir og sögðu að neytendur væru nógu hræddir þótt seðla- bankastjórinn sæti einn að svart- sýnishugsunum sínum. Atvinnuöryggi var eitt sinn aðal bandarískra fyrirtækja. Menn gátu vænst þess að ráða sig til fyrir- tækja fyrir lífstíð. Nú ríkir hins vegar mikið öryggisleysi á banda- rískum vinnumarkaði. Ein og hálf milljón manna hefur misst vinnuna á einu og hálfu ári í Bandaríkjun- um. Stórfyrirtæki á borð við Gen- eral Motors, IBM og Xerox hafa tilkynnt miklar uppsagnir og sömu sögu er að segja af smærri fyrir- tækjum. Erfiðleikar General Motors eru dæmigerðir fyrir ástandið. General Motors er stærsti bílaframleiðandi heims, en fyrirtækið hefur verið rekið með miklu tapi undanfarið. Á síðasta áratug féll markaðshlut- deild General Motors í Bandaríkj- unum úr 45 prósentum í 35 pró- sent. Jólaboðskapur Roberts Stempels, forstjóra General Mot- ors, gaf ekki tilefni til fagnaðar- láta fyrir starfsfólk fyrirtækisins. Hann lýsti yfir því að 74 þúsund manns (19 prósentum alls starfs- fólks fyrirtækisins) yrði sagt upp störfum á næstunni og 25 af 130 verksmiðjum fyrirtækisins yrði lokað. Ráðamenn General Motors eru ekki bjartsýnni á framhaldið en svo að þeir miða niðurskurðinn ekki að því að ná aftur fyrri um- svifum, heldur einungis að því að halda sínum hlut. Þessi tíðindi frá Detroit voru áfall fyrir efnahagslífið og jap- anskir bílaframleiðendur óttast að áhrifin gætu leitt til pólitískra að- gerða gegn sér. Ráðamenn Toyota gengu svo langt að lýsa yfir samúð með þeim starfsmönnum General Motors, sem verða reknir. Sigurvissa þrátt fyrir vanda Bush kveðst sigurviss þrátt fyrir efnahagsástandið. í sjónvarpsvið- tali á föstudag kvaðst hann viss um að verða endurkjörinn hvort sem efnahagurinn glæddist eða ekki. Bush viðurkenndi í viðtalinu að almenningi þætti afkoma sín væri verri nú en þegar hann tók við embætti fyrir þremur árum. Hann sagði hins vegar að traust almennings á stjórn sinni færi vax- andi, en kosningabaráttan yrði ör- ugglega erfið og hann myndi beita öllum brögðum. „Ég mun gera það sem þarf til að verða endurkjör- inn,“ sagði Bush. Bush þótti mjög harðskeyttur í kosningabaráttu sinni árið 1988 og-voru hvað eftir annað gerðar óvægnar persónuleg- ar árásir á Michael Dukakis, fram- bjóðanda demókrata. SJÁ NÆSTU SÍÐU NÚTÍÐ, Faxafeni 14 - Grafarvogi Símar 687480 og 687580 Okkardansar eru spennandi Það sem við kennum ívetur: ★ JAZZLEIKSKÓLINN Spennandi leikdansarfyriryngstu börn- in. ★ JAZZDANS - HIP HOP DISCOJAZZ - FREESTYLE Fyrir alla krakka við öll nýjustu lögin. ★ STEP Fyrir stelpur og stráka, unga jafnt sem gamla. Ægilega gaman. ★ SAMKVÆMISDANSAR Fyrir alla, böi^n, unglinga, ungt fólk og fullorðna. Merkjapróf, BRONS - SILFUR - GULL. Þjálfun fyrir danskeppnir vetrarins. Hagnýta heimskerfiðfyrirfullorðna. Smáhópar og starfsmannahópar. ★ BARNADAIMSAR Undirstaða fyrir allan samkvæmisdans. Hringdansar og sungið með. Gamlir og splunkunýir dansar. ★ SÉRTÍMAR Suður-amerískir dansar eins og SALSA - MAMBÓ - SOCA - BOGGIE - ROCK. Tímarsem enginn, erfylgist með, má missa af ★ GÖMLU DANSARNIR Sér- flokkar, Ræll, polki, vínikrus, skottish, masúrka, skoski dansinn o.fl. o.fl. ★ ROCK’N ROLL Sérflokkar. DAIMSINN ER ÓDÝRASTA TÓMSTUNDA- GAMANIÐ FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA Endurnýjun skírteina hefst í dag fyrir þá nemendur sem voru fyrir jól. Innritun nýrra nemenda stendur yfir og eru flokkar fyrir byrjendur og framhald (lengra komna) á öllum aldri, börn, unglinga og fullorðna. Innritun daglega frá kl. 13.00-19.00 í símum 68-74-80 og 68-75-80. Kennsla hefst miðvikudaginn 8. janúar 1992. Hittumst hress og kát á nýju ári Þad geta allirlœrt ad dansa - dansinn lengirlíjiö

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.