Morgunblaðið - 05.01.1992, Page 21

Morgunblaðið - 05.01.1992, Page 21
MORGUNBLAÐJÐ SUNNUDAGUR.5., JANÚAR .19,92 Hverfandi heimar Bókmenntir Ingi Bogi Bogason Valtýr Guðmundsson: Vökulok. (110 bls.) Bókaforlag Odds Björnssonar 1991. Nýrómantíkin flýgur af flestum blaðsíðum þessarar bókar. Forsíðan er af fuglum á flugi og fyrsta ljóð- ið heitir einmitt Oddaflug. Helsingj- arnir eru komnir af hafi, heilir í „lífríki ljósra nátt / landsins í norð- urátt“. Hér er samt ekkert tákn- rænt á ferðinni, fuglarnir eru fuglar og þeir geta dáið skjótlega þótt þeir hafi sigrað raunir úthafsins. Ljóðið endar svo: Skotmenn þar liggja í leyni - og lífinu níðast á. Já, varið þið ykkur, vinir, því varla er löngun sterk hjá mönnunum til að meta meistarans furðuverk. Ljóðin eru tæplega hundrað tals- ins. Formið er langoftast bundið ljóðstöfum og endarími. Yrkisefnið er margvíslegt en þó markað af mjög ákveðnum ramma sem kannski skýrist best af því sem ekki er í ljóðunum. Engin borg, engin tæki, yfirleitt engin tuttug- ustu aldar tól koma fyrir. Sveitin er miðlæg (Við Hraunsrétt), óspillt náttúran (Komið við hjá Dettifossi) og söknuðurinn eftir liðnum tíma andar af blaðsíðunum (Vitjur, Minning - hrot). Og jafnframt er ort um gamla samferðarmenn (Til granna míns (Grímur)). Ljóðið Itök endurspeglar helstu kosti í ljóðagerð Valtýrs, hér bjóða bæði vegferð og landslag upp á táknrænan skilning: Þyngjast nú fætur i fórum, finna það gjörla má langt inn’í Litlahrauni, lyngþúfu einni hjá, Valtýr Guðmundsson, Sandi. sit eg með sól um vanga sumardags morgni á. Áranna stríði straumur strikar með þungum gný óbyggðir öræfanna - engi og mosadý, lífríki landsins vætta, ládeyðu hafsins í. Reikar um refilstigu ráð mitt í hverri grein, bænir og betri vitund beijast við kaldan stein. Vandséðan vegfaranda verkjar í lúin bein. Ljóð Valtýs Guðmundssonar birt- ast okkur sem sprelllifandi sjónar- hom af annars liðinni ljóðagerð og endurspegla bæði kunnáttu og hug- myndaheim hverfandi hátta. Þetta hlýtur út af fyrir sig að teljast nokk- urs virði, að minnsta kosti fyrir þá sem troða svart malbik. ASAL4 á morgun Barnafataverslun, Laugavegi 12a, Reykjavík, sími: 2 82 82 Við óskum 11.000 furþegum gleðilegs úrs. Þökkum ánægjulegt samstarf á liðnu ári. 11 þúsund ánægðir farþegar eru besta auglýsing okkar. Þeir munu áreiðanlega segja tíu öðrum samborgurum sínum frá ódýrum flugferðum okkar og góðri þjónustu, sem gerði þúsundum íslendinga kleift að komast til útlanda, sem annars hefðu ekki átt þess kost. Þannig veit um helmingur þjóðarinnar frá fyrstu hendi að hinar ódýru flugferðir okkar til útlanda eru líka fyrsta flokks, þó utanlandsferðir okkar kosti oftast ekki meira en venjulegt flugfargjald milli Reykjavíkur og Egilsstaða - og stundum minna. Áramótauppbót til farþega á llðnu ári. Vegna hins frábæra árangurs og góðrar nýtingar í leiguflugi okkar á síðasta ári getum við nú gefið viðskiptavinum okkar hagnaðaruppbót í nýársgjöf með sérstökum afslætti á eitt þúsund sætum í leiguflugi okkar til Evrópuborga næsta sumar. airra festingar berast. atcium 1 xciyuiiuyi va.aui iíí uviu^uwiv^u uocoiu ouiuui. Gildir þessi nýársuppbót eingöngu fyrir farþega okkar á liðnu ári og fjölskyldur þeirr meðan eitt þúsund sæti endast og verður úthlutað í þeirri röð sem pantanir og staðfestir GLASGOW 150 sæti Alla miðvikudaga frá 20. maí til septemberloka. Nýársgjafarverð 10.900.- Almennt verð okkar 14.700 Ódýrasta Apex fargjald í áætlunarflugi 25.460.- LONDON 350 sæti Alla föstudaga og þriðjudaga frá 1. maí út september. Nýársgjafarverð 12.900.- Almennt verð okkar 18.900.- Ódýrasta Apex fargjald í áætlunarflugi 31.940.- K0BEN 350 sæti Alla föstudaga og mánudaga frá 1. maí út september. Nýársgjafarverð 14.700.- Almennt verð okkar 19.700.- Ódýrasta Apex fargjald í áætlunarflugi 33.750.- AMSTERDAM 150 sæti Alla sunnudaga frá 3. maí út september. Nýársgjafarverð 14.700.- Almennt verð okkar 19.700.- Ódýrasta Apex fargjald í áætlunarflugi 31.460.- Frjálst val um hótel, sumarhús, bílaleigur og framhaldsferðir, með 20-50% samningsafslætti okkar. Með bestu óskum til okkar 11.000 ánægðu farþega frá liðnu ári, með von um góða samvinnu og gleðilegt ferðaár 1992. Sameiginlega tókst okkur að gera utanlandsferðir að almenningseign og fá samkeppnisaðila til að lækka sín háu fargjöld. Við vitum að almenningur á Islandi kann að meta brautryðjendastarf okkar, það sýna ótal góðar óskir, þakklæti, blóm og gjafir, sem ánægðir farþegar hafa sent okkur. Eigum við ekki, með áframhaldandi árangursríku samstarfi, að tryggja það að utanlandsferðir verði aldrei aftur aðeins á færi þeirra útvöldu? FLUGFERÐIR SOLRRFLUG Vesturgata 17, Síml 620066. Ath. Staðgieiðsluverð miðað viö gengi 30. desember '91. Flugvallagjöld og foriallafrygging ekki innifalin í verði. HMIKHilllllHI1

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.