Morgunblaðið - 05.01.1992, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 05.01.1992, Blaðsíða 24
ólin eru liðin og nýtt ár gengið í garð. Timi breytinga og endurskipulagningar. Það er ekki síst núna sem það er áriðandi að sinna líkamanum rétt og vel. Við höldum okkar striki, nú sem áður, og bjóðum upp á líkamsrœktarkerfi sem efla fyrst og fremst kvenlega fegurð og almenna hreysti. Hvort sem um er að ræða að fœkka aukakilóunum og auka sjálfstraustið, halda sér i góða forminu eða hefja þjálfun eftir langt hlé, þá bjóðum við upp á viðeigandi œfingakerfi. Sem fyrr er megináhersla lögð á að veita persónulega þjón- ustu, byggða á langri og dýrmætri reynslu og traustum hefðum. í VETUR BJÓÐUM VIÐ UPP Á EFTIRFARAIMDI KERFI: Sniðið að mannle ALMENNT KERFI Þetta kerfi hentar fyrst og fremst þeim sem vilja smá aga og ætla sér aö ná öruggum árangri. • Fastir tímar tvisvar í viku, auk frjáls tíma á laugardögum. • Ákveöin byrjun og markviss uppbygging út álla dagskrána. • Mæling og mat í upphafi og viö lok námskeiös. • Mataræði tekið fyrir. • Vigtað í hverjum tíma. • Megrunarkúr fyrir þær er þess óska. ROLEGT OG GOTT - 50 ára og eldri Oft er þörf en nú er nauðsyn. Hollar og góðar æfingar sem stuðla að því að viðhalda og auka hreyfigetu líka- mans, og auka þar með vellíöan og þol. Aldrei of seint að byrja. PULOG SVITI -17áraog eldri Tilvalið fyrir þær sem eru í ágætu formi, en vilja taka góða rispu til að halda sér við ... og svo er þetta svo gaman! • 2 púltimar, 2-3svar í viku. • Allt sem er innifalið í almenna kerfinu tilheyrir þessu kerfi líka, ef óskað er. TOPPITILTAAR - fyrir konur á öllum aldri Þetta kerfi er eingöngu fyrir konur sem berjast við aukakílóin. Við stefnum að góð- um árangri í megrun, bættri heilsu og já- kvæðara lífsviðhorfi. Uppbyggilegt lokað námskeið. • Fimm tímar í viku, auk frjáls tíma á laug- ardögum, sjö vikur í senn. • Strangur megrunarkúr sem fylgt er eft- ir daglega með andlegum stuðningi, einkaviðtölum og fyrirlestrum um mat- aræði og hollar lífsvenjur. • Heilsufundir þar sem farið er yfir förð- un, klæðnað, hvernig á að bera líkam- ann og efla sjálfstraustíð. • Sérstök líkamsrækt sem þróuð hefurverið í 25 árog hefur marg- sannað gildi sitt. • Lokafunduríloknámskeiðs. • Fengnir verða sérstakir gestir til leiðbeiningar. Einkaviðtalstímar við Báru hvem föstudag. Boðið upp á bamapössunfrá kl. 10-16 alla daga. INNRITUN ALLA DAGAISÍMA 813730 og 79988. Síðasta námskeið fyrfr jól hefst 4. nóvember. SUOURVERI • HRAUNBERGI 4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. JANUAR 1992 andi, 5.000 mörk, ferðastyrkur til að vinna að þýðingum á úrvali ljóða eftir finnsku skáldin Lars Huldén, Sirkka Turkka og Martin Enckell. 9) Listasafn Islands, 30.000 mörk, styrkur til fmnskrar listsýn- ingar í safninu í tilefni af 75 ára afmæli sjálfstæðis Finnlands. 10) Njörður P. Njarðvík, rithöf- undur, 5.000 mörk, styrkur til að gefa út úrval af þýðingum Ijóða eftir Edith Södergran. 11) Norræna húsið í Reykjavík, 5.000 mörk, styrkur til útgáfu ferða- og upplýsingabæklings á finnsku um ísland. 12) Sr. Sigurjón Guðjónsson, 5.000 mörk, til að gefa út eigin þýðingar úr finnskum bókmenntum á íslensku. 13) Þrymur Sveinsson, náms- maður, 3.000 mörk, styrkur til náms við Viittakivi lýðháskólann. 14) Vinnuhópur Kari J. Kettula 33 aðilar hlutu styrk Menning- arsjóðs Islands og Finnlands stjóri, 5.000 mörk, ferðastyrkur til að vinna að samskiptum á sviði bókmennta milli Finnlands og ís- lands í sambandi við 75 ára af- mæli sjálfstæðis Finnlands. 2) Ari Matthíasson, leikari, 5.000 mörk, ferðastyrkur til að aðstoða við gerð handrits að sjón- varpskvikmynd og kynna sér finnskt leikhús. 3) Arkitektafélag íslands, 5.000 mörk, til að bjóða fínnskum arkitekt til íslands til fyrirlestra- halds. 4) Bókavarðafélag Islands, 8.000 mörk, ferðastyrkur fýrir 5-8 bókaverði til að heimsækja og kynna sér fínnsk bókasöfn. 5) Brynhildur Þorgeirsdóttir, myndlistarmaður, 3.000 mörk, styrkur til að greiða kostnað við vinnu á glerverkstæði í tengslum við dvöl á listamiðstöðinni Svea- borg. 6) Guðríður St. Sigurðardóttir, píanóleikari, 5.000 mörk, ferða- styrkurtil tónleikahalds í Finnlandi. 7) Hannes Lárusson, myndlist- armaður, 5.000 mörk, styrkur til greiðslu kostnaðar við myndlistar- sýningu Nínu Roos í Reykjavík. 8) Lárus Már Björnsson, þýð- STJÓRN Menningarsjóðs ís- lands og Finnlands kom saman til fundar í Reykjavík 22. nóv- ember sl. til að ákveða árlega úthlutun styrkja úr sjóðnum, segir í frétt frá menntamála- ráðuneytinu. Umsóknarfrestur var til 30. september sl. og bár- ust alls 97 umsóknir, þar af 73 frá Finnlandi og 24 frá íslandi. Úthlutað var 259.000 finnskum mörkum eða jafngildi um 3,5 miiy. ísl. króna og hlutu eftir- taldir umsækjendur styrki sem hér segir: 1) Anna Einarsdóttir, verslunar- og Kari Vaijárvi, 8.000 mörk, ferðastyrkur til að kynna sér íslensk tímarit um menningarmál. 15) Vinnuhópur J. Halonen, J. Tommila, T. Reimaluoto og H. Ahonius, 6.000 mörk, til að taka þátt í kvikmyndahátíð í Reykjavík haustið 1992 með kvikmyndinni „Back to the USSR“. 16) Sigurbjörg Árnadóttir og Jouko Parviainen, 6.000 mörk, ferðastyrkur til íslands tij að safna efni í ferðahandbók um ísland. 17) Listasafnið í Björneborg, 10.000 mörk, styrkur vegna tveggja listsýninga frá íslandi. 18) Timo Ernamo, bókaútgefandi, 5.000 mörk, ferðastyrkur til að heimsækja m.a. Rithöfundasam- band Islands og Norræna húsið, og til að hitta að máli unga, íslenska rithöfunda. 19) Samband bókasafna i Finn- landi, 5.000 mörk, til að bjóða ís- lenskum fyrirlesara á bókavarða- mót í Tráskánda vorið 1992. 20) Glerlistasafn Finnlands, 25.000 mörk, styrkur til sýningar á fínnskri nútíma glerlist í Norræna húsinu í Reykjavík í árslok 1992. 21) Frú Ritva Hyvári, 5.000 mörk, til íslandsfarar. 22) Eva Jansson, fíl. stud., 4.000 mörk, styrkur til að þýða á fínnsku íslenska málfræði fyrir útlendinga eftir Jón Hilmar Jónsson. 23) Eila Juuma, ljósmyndari, 4.000 mörk, til að sækja sum- amámskeið í íslensku. 24) Timo Keinánen, 4.000 mörk, til að sækja sumarnámskeið í ís- lensku. 25) Jukka Kýhkö, fíl. kand., 4.000 mörk, styrkur til rannsóknarleið- angurs til íslands. 26) André Landefort, lektor, 4.000 mörk, til að sækja sum- arnámskeið í íslensku. 27) Anna Mákelá, myndlistarmað- ur, 5.000 mörk, til að taka þátt í sýningu myndlistarhópsins „SIDS“ í menningarmiðstöðinni Hafnar- borg sumarið 1992. 28) Þjóðháttafélagið í Helsing- fors, 8.000 mörk, styrkur til kynn- isferðar til íslands. 29) Rovaniemi-bær, 25.000 mörk, til að halda íslenska menningarviku í Rovaniemi sumarið 1992. 30) Mervi Tammi, blaðamaður, 4.000 .mörk, til sýningar á brúðu- leikhúsi, m.a. í Norræna húsinu. 31) Pekka Timonen, blaðamaður, 5.000 mörk, til að skrifa blaðagrein- ar um ísland. 32) Marjatta Tuhkenen, lektor, 4.000 mörk, styrkur til að sækja sumamámskeið í íslensku. 33) Leikhúsið í Vasa, 25.000 mörk, til þýðingar og sýninga á leikritinu Degi vonar eftir Birgi Sigurðsson á íslensku menningar- vikunni í Vasa í október 1992. Stofnfé sjóðsins var 450.000 fínnsk mörk sem finnska þjóðþingið veitti í tilefni af því að minnst var 1100 ára afmælis byggðar á íslandi sumarið 1974, en nemur nú um 2 millj. marka. Stjórn sjóðsins skipa Matti Gustafson, deildarstjóri í fínnska menntamálaráðuneytinu, formaður, Juha Peura, fíl. mag., Kristín Þórarinsdóttir Mántylá, full- trúi, og Þórunn Bragadóttir, deild- arstjóri. Varamaður af fínnskri hálfu er Ann Sandelin, fíl. mag., en af íslenskri hálfu Þórdís Þor- valdsdóttir, borgarbókavörður. V^terkurog k J hagkvæmur auglýsingamiöill!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.