Morgunblaðið - 05.01.1992, Síða 39

Morgunblaðið - 05.01.1992, Síða 39
39 MORGUNBLAÐIÐ FOLK I FRETTUM SUNNUDAGUR 5. JANÚAR 1992 Hluti þeirra sem fóru holu í höggi á árinu samankomnir á árlegri uppskeruhátíð á dögun- um. Feðgarnir Hjalti Þórarinsson t.v. og Hrólfur Hjaltason t.h. með verðlaun sín. GOLF Feðgar gera það reglulega Einheijar heitir félagsskapur sem menn verða sjálfkrafa félagar í er þeir fara holu í höggi á golfvellinum. Á árinu fór 41 íslendingur holu í höggi, en margir þeirra höfðu unnið afrekið áður. Því fjölg- aði ekki í klúbbnum um 41. Feðgar í hópnum, Hjalti Þórarinsson og Hrólfur Hjaltason „gera það reglulega" eins og Kjartan L. Páls- son formaður Einheija sagði í samtali við Morgunblaðið, en þeir fóru báðir holu í höggi á síðasta ári og unnu afrekið báðir í þriðja sinn. „Ef annar gerir það, fylgir hinn venjulega strax á eftir, yfir- leitt ekki seinna en sumarið eftir,“ sagði Kjartan enn fremur, en sjálfur hefur Kjartan farið holu í höggi sex sinnum, „aðeins einu sinni sjaldnar en Sevi Ballesteros sem þó leikur golf sem atvinnumað- ur dag hvern árið um kring,“ vildi Kjartan koma að. Kjartan tjáði Morgunblaðinu enn fremur, að alls hefðu nú hátt í 300 íslendingar farið holu í höggi, en meðaltalið á ári væri mjög svip- að og annars staðar. í Bandaríkjun- um fara að jafnaði 35.000 manns hoiu í höggi á ári hveiju. Á ári hveiju fer fram Einheija- keppni í golfi, samtengd Landsmót- inu, en rétt til þáttöku hafa þeir sem farið hafa holu í höggi og eru þar af leiðandi Einheijar. Fyrr- greindur Hrólfur Hjaltason bætti þeirri rós í hnappagatið að vinna mótið að þessu sinni, en það fór fram á Hellu.Verðlaunin á mótinu er farandgripur sem skemmtistað- urinn sálugi „Röðull“ gaf árið 1965. Annars er það Johnny Walker á íslandi sem gefur afreksmönnum Einheija verðlaun ár hvert, viður- kenningarskjal og fleira... Kjartan fór aðeins nánar út í það fyrirbrigði að slá holu í höggi. Hann sagði þetta vera mikinn „grís“ eins og tilviljun er gjarnan kölluð og sérkennilegt hvað það loddi við suma eins og t.d. um- rædda feðga og fleiri að slá holu í höggi, á sama tíma og bráðgóðir kylfingar væru að slá ótt og títt í áratugi án þess að gæfan brosti til þeirra með þessum hætti. Einn sem Kjartan nefndi og þekkti fór loks holu í höggi eftir 50 ára ástundum. Og margfaldur íslandsmeistari að nafni Sigurður Pétursson hefur t.d. aldrei farið holu í höggi. „Dæmi um „grísinn" get ég nefnt, að það er ein braut suður í Keflavík sem liggur samhliða fjörunni. Það hefur gerst að kylfingur hefur lamið kúl- una út og suður, hún hefur þeyst ofan í fjöru, skotist þaðan af fjöru- gijóti, upp á flötina og rakleiðis ofan í!“, segir Kjartan. Morgunblaðið/KAX Nýskipuð stjórn Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni, kon- urnar heita f.v. Hlín Sigurðardóttir, Elva Guðbrandsdóttir og Gréta Guðmundsdóttir, sem er gjaldkeri, karlarnir eru f.v. Karl Ragnars, Jón Sæmundur Sigurjónsson formaður, Hallvarður Óskarsson og Gunnar Trausti Guðbjörnsson ritari. ÁFANGI Félagið því miður of sterkt „Ég verð að segja, að eiginlega er félagið því miður of sterkt," sagði Jón Sæmundur Siguijónsson nýskipaður formaður Siglfirðingafélags Reykjavíkur og nágrennis í samtali við Morgunblaðið, en félagið náði þeim áfanga á haustdögum að verða þrítugt. En hvað skyldi hinn nýi formaður eiga við með orðum sínum, framhaldið var, „félag- ið skipa nú um 1200 manns og vissulega væri skemmtilegra ef allur þessi fjöldi byggi á Siglufirði, bæjarfélaginu til heilla.“ Fráfarandi formaður er Heiðar Ástvaldsson sem sat í áratug. Jón Sæmundur sagði enn fremur að félagsstarfið væri með mikl- um blóma, það væri „vel lifandi" eins og hann komst að orði. „Við höldum nokkrar fastar hátíðir á hveiju ári, sú síðasta var árleg jóla- trésskemmtun. Einnig má nefna fjöl- skyldudag 20. mai á Siglufirði, vor- hátíð í lok apríl og árlegt „Síldar- ball“ á haustin, oftast fer það fram í Félagsheimilinu á Seltjarnarnesi. Þar koma oftast fram skemmtikraft- ar frá Siglufirði," sagði Jón Sæ- mundur. Og félagið hefur fleira fyr- ir stafni: „Ég get einnig nefnt að jafnan eru einhveijar fjársafnanir í gangi fyrir þessu eða hinu á Siglufirði. Það sem verið er að safna peningum fyrir um þessar mundir er síldarminj- asafn. Það er búið að safna saman miklu magni af munum og minjum og verið er að gera upp bragga sem ungir siglfírðingar þekkja sem ís- firðingabraggann, en tilheyrði göml- um norskum síldarsaltanda, Roald að nafni á síldarárunum. Ætlunin er að minjasafnið verði til húsa í þessum bragga þegar hann er tilbú- inn. Ekki get ég sagt hvenær það verður, en það kemur að því, enda unnið við húsið af miklum krafti," segir Jón Sæmundur Siguijónsson. UTSALAIM er hafin mánudag KRAKKAR k M Kringlunni sími 681719 *

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.