Morgunblaðið - 05.01.1992, Síða 44
MORG UNBLADIÐ, ADALSTRÆTl 6. 101 REYKJAVlK
SlMI 691ÍOÖ, FAX 691181, PÓSTHÓLF 1555 / AKVREYRl: HAFNARSTRÆTl 85
SUNNUDAGUR 5. JANÚAR 1992
VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR.
Góð aðsókn
var í skíða-
löndin í gær
UM 1.500 manns voru komnir á
skíði í Bláfjöllum um hádegi í
gær, þegar skíðasvæðið var opn-
að í fyrsta sinn á þessum vetri.
I Skálafelli var opnað klukkan
ellefu og var búist við fjölmenni
en þar eru þijár lyftur, ein stóla-
lyfta og tvær diskalyftur.
Gott veður var þegar líða tók á
morguninn en kalt í skíðalönd-
unum. Frostið fór úr 10 stigum í 8
í Bláfjöllum en í Skálafelli var 12
stiga frost og logn. Gott skíðafæri
var á báðum stöðunum.
Ellefu loðnu-
skip á miðin
ELLEFU íslensk loðnuskip voru
lögð af stað á miðin í gærmorg-
un samkvæmt upplýsingum frá
Tilkynningaskyldunni.
Fjögur íslensku skipanna voru
komin á leitarsvæðið út af Austur-
landi en ekki var vitað til að loðna
hefði fundist. Að auki voru átta
norsk loðnuskip komin inn fyrir
200 mílumar samkvæmt upplýs-
ingum frá Landhelgisgæslunni. Á
síðasta ári voru norsku skipin á
bilinu 90 til 100 hér við land.
Morgunblaðið/Þorkell
Haldiðá veiðar eftir fríið
Bátar og togarar era nú að halda til veiða eftir kærkomið frí sem sjómenn fengu yfir hátíðirnar. I fyrradag voru skipveijar á Freyju RE 38 að
gera klárt áður en togarinn hélt til veiða á Vestfjarðamiðum.
Bensínverð;
Hlutur rík-
isins ekki
hæni í tæp
þijúár
OPINBER gjöld til ríkisins af
hveijum seldum bensínlítra
nema nú 68,52% af útsöluverð-
inu eða 39,40 krónum, sam-
kvæmt upplýsingum frá Gunn-
ari Þorsteinssyni, varaverð-
lagsstjóra. Eftir því sem Morg-
unblaðið kemst næst er þetta
hæsta hlutfall opinberra gjalda
af bensínverði síðan í febrúar
1989.
Samkvæmt upplýsingum frá
Gunnari Karli Guðmundssyni hjá
hagdeild Skeljungs hf. virðist
þetta vera hæsta hlutfall í nálega
3 ár. Þess ber þó að geta að vegna
innkaupajöfnunargjalds, sem
ýmist er jákvætt eða neikvætt og
hefur áhrif á verðið, getur hlut-
fallið sveiflast nokkuð.
11 af 92 oktana bensíni á 57,59 kr.
Bensíngjald 37,9%
21,78 kr.
VSK 11,32%
11,32 kr.
Tollar 9,6%
5,52 kr.
Landsútsvar,
vðrugj. o.fl.
11,32%
Annað: Dreiringatkostn. Kostnaðarverð
7,58 + flutningsgjald 1,04 10 41 kr
* greiösla úr innkaupa- U’4 KF'
jöfnunarreikningi 0,93
= 7,7 kr.
Engu að síður virðist verð bens-
íns fara lækkandi á heimsmarkaði
um þessar mundir, að sögn Gunn-
ars. Gæti það valdið hækkandi
skatthlutfalli að öðru óbreyttu.
Þær bensíntegundir, þar sem
verðlagning er ftjáls, hafa eðlilega
mismunandi hlutfall opinberra
gjalda af söluverði eftir aðilum.
Er það trúnaðarmá! hvers um sig.
Þjóðleikhúsið:
Nýtt leiksvið verður
brátt tekið í notkun
NÝTT SVIÐ hefur verið innréttað í smíðaverkstæði Þjóðleikhússins
og er fyrirhugað að frumsýna þar „Ég heiti ísbjörg, ég er ljón“
eftir Vigdísi Grímsdóttur í lok mánaðarins. Að sögn Stefáns Baldurs-
sonar þjóðleikhússtjóra getur salurinn rúmað um 160 áhorfendur,
sem er n\jög heppileg millistærð, en Litla sviðið tekur um 100 áhorf-
endur.
„Við erum að ljúka við að koma
upp leiksviði á gamla smíðaverk-
stæðinu, sem er austan megin í kjall-
ara hússins og þar verður opnað
með frumsýningu á „Eg heiti Is-
björg, ég er ljón“ í leikgerð Hávars
Siguijónssonar núna í lok mánaðar-
ins,“ sagði Stefán. Salurinn tekur
mismarga áhorfendur allt eftir því
hvernig sætum er raðað en á þess-
ari sýningu rúmar hann 160 manns.
Stefán sagði að stefnt hafi verið
að þessari sýningaraðstöðu um tíma
og að þær viðtökur sem „Kæra Jel-
ena“ hefur fengið á Litla sviðinu
hafi flýtt fyrir framkvæmdum.
Börkur NK til hafnar með
stærsta síldarfarm sögunnar
BÖRKUR NK-122 kom til heimahafnar í Neskaupstað um hádeg-
isbil í gær með fullfermi af síld eða um 1.100 tonn. Aldrei hefur
svo mikið af síld borist að landi hérlendis úr einu skipi.
Börkur fékk aflann í þremur
köstum út af Skinneyjarhöfða,
-vestan við Hornafjörð, síðdegis á
föstudag og í fyrrinótt. Jóhannes
Geir Valdimarsson skipstjóri á
Berki sagði í samtali við Morg-
unblaðið að rúm 100 tonn færu í
vinnslu í Síldarvinnslunni hf. en
afgangurinn í bræðslu.
Nokkur skip voru á síldveiðum
úti af Hornafirði í fyrrinótt og
öfluðu vel.
Þegar síldveiðar voru stundaðar
út af Norður- og Austurlandi fram
á sjöunda áratuginn voru bátamir
miklu minni en Börkur NK, sem
er loðnuveiðiskip.
„Þetta er mjög farsæl lausn,“ sagði
-hann. „Aðstaðan er til bráðabirgða
en við viljum halda áfram að sýna
þarna. Þetta er svona kjallaraleikhús
og ákveðin hagræðing þó svo að um
aukin umsvif sé að ræða. Hagræð-
ingin felst í að ein sýning er í gangi
í einu og ekki þörf á að skipta um
sviðsmynd eða stilla ljós eins og
gert er á stóra sviðinu. Þá gerist
það oft að leikrit henta hvorki stóra
sviðinu né því litla þannig að þetta
er mjög heppileg millistærð."
Salurinn er ein stór gryfja og
verður hægt að nýta hann eftir þörf-
um, ýmist með áhorfendur á eina
hlið eða í hring eða eins og á þess-
ari fyrstu sýningu þegar leikið er
eftir endilöngum salnum með áhorf-
endur beggja vegna.
Morgunblaðið/KGA
í smíðaverkstæði Þjóðleikhússins í austurkjallara hússins er verið
að innrétta nýjan sýningarsal sem getur rúinað allt að 160 manns.