Morgunblaðið - 29.01.1992, Síða 4

Morgunblaðið - 29.01.1992, Síða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JANUAR 1992 BÚRHVALURINN á Þykkvabæjarströnd var urðaður í gær. Hvalurinn var 40-50 tonna þungt og 16.25 metra langt fullvaxið karldýr. Talið er að hvalurinn hafi drepist á hafi úti og rekið á land í miklu brimi á miðvikudag eða fimmtudag í síðustu viku. Kristinn Markússon, bóndi i Dísukoti í Þykkvabæ, fann hvalinn er hann gekk fjörur síðastliðinn Þykkvabæjarhvalurinn urðaður Morgunblaðið/Þorkell. föstudagsmorgun. Gísli Víkingsson, dýrafræðingur, segir árlega berist fréttir af 2-5 hvölum sem reki á land. Ekki er vitað hvað hvalurinn, sem nú rak að landi, er gamall en starfsmenn Hafrannsóknarstofnun- ar vinna nú að því að aldursgreina hann með hliðsjón af tönnum sem teknar voru úr hvalnum á sunnudaginn. Bíldudalur: Fyrsta rækj- an í Rækjuver á vertíðinni Bfldudal. RÆKJUVER hf. tók á móti fyrsta rækjuaflanum til vinnslu á þessari vertíð í gær. Það var Pétur Þór BA sem landaði 29 kössum af blandaðri rækju eða rúmu tonni. Pétur Þór BA er í eigu Rækju- vers og er hann fyrsti báturinn sem veiðir rækju fyrir fyrirtækið á þessari vertíð. Að sögn Ottós Valdimarssonar, skipstjóra á Pétri Þór, er rækjan blönduð, en þeir fengu aflann úr þremur hollum. Vinnsla hefst í Rækjuveri á föstudag í þessari viku. Óljóst er með aðra rækjubáta hvort þeir hyggjast fara á veiðar strax, en búist er við að flestir hefji veiðar áður en langt um Iíður. R. Schmidt VEÐUR ÍDAGkl. 12.00 HeimiW: VeSurslofa íslands (Byggt á veðurspá kl. 16.15 í gær) VEÐURHORFUR í DAGf 29. JANÚAR YFIRLIT: Skammt suðaustur af Hvarfi er 968 mb djúp og víðáttumik- il laegð, sem hreyfist norður en yfir Bretlandseyjum er 1044 mb hæð. Langt suðsuðvestur í hafi er vaxandi 1007 mb lægð, sem hreyfist allhratt norðnorðaustur. SPÁ: Allhvöss sunnanátt um mest allt land en þó hægari suðvest- anátt vestast. Rigning eða súld á sunnan- og vestanverðu landinu en að mestu þurrt- á Norðaustur- og Austurlandi. Hlýtt áfram, en heldur kólnandi vestast. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á FIMMTUDAG OG FÖSTUDAG: Lengst af verður nokk- uð hvöss sunnanátt og hlýindi um austanvert landið en vestan til verður hægari breytileg átt og mun svalara. Norðáustaniands verð- ur úrkomulítið en rigning eða slydda í öðrum landshlutum. Svarsími Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 990600. TÁKN: Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað x Norðan, 4 vindstig: ' Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / / / / / / / Rigning / / / * / * / * / * Slydda • / * / * * * * * * * Snjókoma * * * 10 Hitastig: 10 gráður á Celsius \J Skúrir / * V El = Þoka = Þokumóða ’ , ’ Súld OO Mistur —Skafrenningur Þrumuveður TT. & rl VEÐUR bi 40 /1/1 VÍÐA UM HEIM Khl£,UU / gdst híti 3o isi. iima vaður Akureyri ' 5 skýjaö Fteykjavík 3 skúr Bergen 5- aiskýjað Helainki 7 skýjað Kaupmannahöfn 4 sútd Narssarssuaq •f-6 skafrenningur Nuuk -t-13 snjókoma Ostó 0 þoka Stokkhólmur 4 skýjað Þórshöfn 7 skýjað Algarve 13 léttskýjað Amsterdam 9 þokuruðningur Barcelona 12 Skýjað Beriín 0 þokumóða Chlcago *3 þokumóða Feneyjar 5 heiðskírt Frankfurt 1 alskýjað Glasgow 2 þoka Hamborg 0 þokumóða London 6 skýjað Los Angeles 10 heiðskirt Luxemborg 0 skýjað Madrid 6 skýjað Malaga 7 rigning Mallorca 14 skýjað Montreal *17 helðskírt NewYork + 1 léttskýjað Ortando vantar París 3 hálfskýjað Madelra 16 skýjað Róm 11 heiðskirt Vín vantar Washington vantar Winnípeg +9 skafrenningur Yerðfall a karfa í þýskum höfnum VERÐ á karfa hefur fallið í Þýskalandi undanfarið en verðið hafði verið mjög hátt, að sögn Vilhjálms Vilhjálmssonar framkvæmdastjóra Aflamiðlunar. Hann segir að framboðið hafi verið óvanalega mikið fyrstu sl. mánudag og þriðjudag. Aflamiðlun hefði veitt heimild til útflutnings á 24 gámum af karfa og ufsa til Þýskalands til sölu í þess- ari viku en væntanlega yrðu 28-29 gámar á markaðnum. Engey RE seldi 199 tonn í Þýska- landi á mánudag og þriðjudag í þess- ari viku fyrir 96,75 kr. meðalverð. Verðið hafði hins vegar failið jafnt og þétt í síðustu viku en þá fékk Ögri RE 156 króna meðalverð á mánudag, Skagfirðingur SK 142 krónur á miðvikudag og Sléttanes ÍS 112 krónur á fimmtudag. Rán HF selur 150 tonn í Þýska- landi í dag, miðvikudag, en Hoffell SU, annar af togurum Hraðfrysti- húss Fáskrúðsfjarðar hf, selur þar 185 tonn á morgun. „Þetta er í þriðja skipti á jafnmörgum árum, sem Hof- fellið lendir í verðfalli en skipið fer einungis í eina söluferð á ári. í þessi þrjú skipti hafa verið 50-70% fleiri gámar á markaðnum en leyfilegt hefur verið. Það er sama hvort það er ráðuneytið eða Aflamiðlun, sem sér um þetta,“ segir Eiríkur Ólafsson útgerðarstjóri. Hann segir að skipin þurfi að sækja um leyfi til sölu með eins til þriggja mánaða fyrirvara. „Síðan eru gámar settir inn til uppfyllingar en samkvæmt skeyti, sem ég fékk frá Aflamiðlun klukkan 11 á föstudag, veitti hún leyfi til útflutnings á 21 gámi, eða 237 tonnum af karfa og 31 tonni af ufsa. Hins vegar eru a.m.k. 30 gámar komnir út,“ segir Eiríkur. Vilhjálmur -Vilhjálmsson segir að þetta skeyti hafi verið mis- tök hjá Aflamiðlun. „í Þýskalandi selja þijú íslensk skip í hverri viku og okkur finnst alveg forkastanleg vinnubrögð að bæta 21 gámi ofan á þessi skip,“ segir Eiríkur. „Þá krafðist ég þess strax á mánudag að framkæmda- stjóri og formaður Aflamiðlunar myndu fara fram á það við þá, sem hafa sent út gáma án leyfis, _að þeir létu endursenda fiskinn til íslands. Ef þeir hins vegar neituðu því yrði þeim ekki veitt leyfi til útflutnings á ferskum fiski í eitt ár. Aflamiðlun er nauðsynleg til að stýra fiski inn á þessa markaði en meðan hún hefur engan refsivönd, eða þá einungis dúnvönd, gengur þessi stýring ekki. Það skiptir menn ekki nokkru máli, þó þeir séu stopp- aðir af í 2-3 vikur. Þeir hægja bara aðeins á sér og fiska síðan meira í næstu viku á eftir. Ég er ansi hræddur um að þetta séu ætíð sömu aðilarnir, sem eru að senda út fisk án leyfis og að mínum dómi er það ekkert annað en skemmdarverkastarfsemi," segir Ei- ríkur. Reglum breytt um bílastæði í borgarráði BORGARRÁÐ hefur samþykkt tillögur að breyttum reglum um bíla- stæði sem ætlað er að bæta nýtingu á bílastæðum I miðbænum og í bílastæðahúsum. Lagt er til að tekin verði upp ný gerð mæla, miða- mæla án hámarkstíma og að þeir taki 10 krónur og 50 krónur. Gert er ráð fyrir að tímagjald í stöðumæla og í bílastæðahús verði óbreytt fyrst um sinn og jafnframt að boðið verði sérstakt kynningarverð á mánaðargjald og það lækkað á Bakkastæði og í Kolaporti en verði óbreytt eða hækkað á Bergstöðum, Vesturgötu 7 og við Tjarnargötu. Breytingarnar taka gildi 1. mars. í greinargerð Stefáns Hermanns- sonar aðstoðarborgarverkfræðings, er lagt til að tekin verði upp bíla- stæði íbúa í þeim hverfum, þar sem eru stöðumælar eða fjölmælar. Hver íbúðareigandi getur keypt eitt kort, sem veitir rétt til að leggja eigin bíl við stöðumæli í eigin hverfi. Árlegt gjald er 5.000 krónur. Gert er ráð fyrir óbreyttu gjaldi i venjulega stöðumæla við Laugaveg og í miðbænum og hámarkstími ein klukkustund en tvær víðast annars- staðar. Gjald í miðamæla verði 60 krónur fyrir hveija klukkustund í miðbænum og við Laugaveg en 40 krónur í nálægum götum. Enginn hámarkstími er á miðamælum. Lagt er til, að kynningarverð á Bakkastæði verði 2.000 krónur á mánuði en er nú 4.500 krónur, í Kolaporti 2.000 krónur en er nú 5.500 krónur á mánuði. Mánaðar- gjald á stæði við Tjamargötu, hækk- ar úr 5.500 krónum í 6.000 krónur. Gjald á stæðumrí Vesturgötu 7 og í Bergstöðum verður óbreytt eða 5.500 krónur á mánuði. Þá er gert ráð fyrir að mánaðargjald fyrir stæði á Tollstöðvarþaki verði 2.000 krón- ur, 100 krónur fyrir hálfan dag og 200 krónur fyrir allan daginn. !

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.