Morgunblaðið - 29.01.1992, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 29.01.1992, Qupperneq 18
MÓRGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JÁNÚAR 1992 18 Georgía: Stjórnarher- inn nær Poti á sitt vald Poti. Reuter. Stjórnarhermenn í Georgíu náðu í gær á sitt vald hafnarbæn- um Poti við Svartahaf og einu af siðustu vígjum Zviads Gamsak- húrdía, fyrrverandi forseta, eftir harða bardaga. Flestir bæjarbúa styðja Gamsak- húrdía en héldu sig innan dyra og veittu enga mótspyrnu þegar her- sveitimar réðust inn í bæinn. „Stríð- ið er nýhafið. Það á allt eftir að loga í óeirðum og andspyrnu," hrópaði einn bæjarbúanna, sem lýsti her- mönnum stjómarinnar sem glæpa- mönnum og eiturlyijasjúklingum. Talið var í gær að Gamsakhúrdía hefði farið til bæjarins Grozníj í rúss- neska lýðveldinu Tsjetsjen-íngúshet- ía við landamærin að Georgíu. Suður-Afríka: Honecker íMoskvu Erich Honecker, fyrr- um leiðtogi Austur- Þýskalands, sést hér rölta um lóð sendiráðs Chile í Moskvu en þangað flúði hann fyrir rúmum sex vikum til að komast hjá því að verða sendur til Þýska- lands. Á myndinni má einnig sjá Margot, eiginkonu Honeckers. Stækkun heimamarkaðar SAS: Stríðsyfirlýsing við Finnair og Flugleiðir SAS-flugfélagið hefur ákveðið að stækka svokallaðan heimamarkað sinn og fella Finnland, ísland, Eystrasaltsríkin, Pólland og Norður- Þýskaland undir það markaðssvæði sem hingað til hefur takmarkast við Danmörku, Noreg og Svíþjóð. Hyggst félagið bjóða betri þjónustu á þessu svæði, bæði þeim sem ferðast á dýrari fargjöldum og almenn- um ferðamönnum, og aukin flugþægindi. í fréttaskýringu, sem birtist í danska blaðinu Berlingske Tidende sl. fimmtudag, segir að SAS sé að undirbúa sig undir samkeppni við stóru alþjóðlegu flugfélögin. Kemst blaðið þannig að orði að SAS ætli að „ryksuga" flugfarþega upp af norræna markaðnum og nágranna- löndunum til að standast samkeppni við risana. í stað þess að beina kröft- um sínum eingöngu að um 18 millj- ónum íbúa Svíþjóðar, Noregs og Danmerkur, verður svonefndur markhópur félagsins stækkaður í 40 Tíu leiðtogar hvítn öfgasam- takanna AWB handteknir milljónir manna. Jafnframt segir í grein Beriingske Tidende að ákvörðun SAS jafngildi stríðsyfirlýsingu á hendur fínnska fiugfélaginu Finnair og Flugleiðum og hún staðfesti ennfremur að sam- starfíð við svissneska flugfélagið Swissair hafí ekki skilað þeim ár- angri sem vonast hefði verið eftir. I greininni kemur fram að SAS hyggist bæta þjónustuna við farþega úr atvinnulífinu sem eru tíðir gestir á dýrara farrými í þotum félagsins. Eiga þeir von á svefnstólurn, auknum þægindum, meira fótarými, betri þjónustu, 30 kvikmyndum að velja úr hverju sinni, þremur misnrunandi aðalréttum á lengri flugleiðum, svo eitthvað sé nefnt. Farþegar í túrista- klefa eiga von á betri tíð um næst- komandi áramót því þá verður breidd milli sæta aukin um sex sentimetra og öl og sterkir drykkir boðnir ókeyp- is. Þá verður hætt að taka gjald fyr- ir heyrnartæki hyggist ferðamenn njóta tónlistar eða kvikmynda sem sýndar era meðan á flugi stendur. Jóhannesarborg. Reuter. EUGENE Terre Blanche, leiðtogi suður-afríska nýnasistaflokksins Andspyrnuhreyfingar Búa (AWB), var handtekinn í gær ásamt níu öðrum háttsettum félögum flokksins. Þeir verða ákærðir fyrir að stofna til átaka á borgarafundi sem F.W. de Klerk, forseti Suður-Afríku, ávarp- aði í ágúst í fyrra. Tveir félagar í AWB og blökku- maður biðu bana er átök brutust út milli 300 flokksfélaga og lögreglu- manna í bænum Ventersdorp skömmu áður en forsetinn ávarpaði fund í bænum. Ventersdorp er heimabær Terre Blenche og þar eru höfuðstöðvar flokksins. Andspymuhreyfíng Búa og nokkrir aðrir öfgaflokkar leggjast gegn viðræðum um nýja stjórnar- skrá og hafa hótað að beita valdi RÁÐSTEFNA UM RÍKISÚTVARP Staða rfkisútvarps og framtífiarhlutverk 31. janúar 1992 kl. 13.15 í Efstaleiti 1,5. hsil Staða Ríkisútvarpsins í stjórnkerfinu Þorbjörn Broddason, formaður útvarpsréttarnefndar. Hlutverk Ríkisútvarpsins á landsbyggðinni Ingunn Svavarsdóttir, oddvíti, Kópaskeri. Hlutverk Ríkisútvarpsins í menningarlífi Njörður P. Njarðvík, dósent. Skyldur Ríkisútvarpsins ífrétta- og uppiýsingadreifingu Bjarni Sigtryggsson, dagskrárgerðarmaður. Þjónustuhlutverk Ríkisútvarpsins Vilmar Pedersen, fulltrúi SSR í Nordfag. Afnám einkaleyfis útvarps og sjónvarps Guðmundur H. Garðarsson, fyrrum alþingismaður. Framtíð breska ríkisútvarpsins og sjónvarpsins BBC Stephen Milligan, ritstjóri Economist. Staða Ríkisútvarpsins f samkeppni við einkastöðvar Hörður Vilhjálmsson, fjármálastjóri. Sala eða einkavæðing Ríkisútvarpsins Kjartan Gunnarsson, framkvæmdastjóri. Dreifikerfi Ríkisútvarpsins Eyjólfur Valdimarsson, framkvæmdastjóri. Staða Ríkisútvarpsins meðal þjóðarinnar Stefán Ólafsson, forstöðumaður Félagsvísindastofnunar. Ráðstefnustjórar Ólafur Sigurðsson og Sigurður G. Tómasson. Ráðstefnan er öllum opin. Ráðstefnugjald er 1.500,- kr. og 3.500,- kr. fyrir þá, sem vilja fá fyrirlestra að ráðstefnu lokinni. Þátttakendur skrái sig til þátttöku eigi síðar en 30. janúar 1992. Skráning fer fram í móttöku í Efstaleiti. (í síma 69300). Starfsmannasamtök Ríkisútvarpsins. til að hindra tilraunir til að binda enda á minnihlutastjórn hvítra manna í landinu. Lögreglan í Jóhannesarborg beitti táragasi til að dreifa hundruðum mótmælenda á útifundi á vegum blökkumannahreyfingarinnar Þjóð- arráðs pan-afríkanista (PAC) á mánudag. Leiðtogi flokksins, Benni Alexander, og ellefu aðrir voru hand- teknir fyrir að stofna til átaka en látnir lausir gegn tryggingu. Pan-afríkanistar Ieggjast gegn stjórnarskrárviðræðunum og hafa neitað að taka þátt I þeim. Andries Treurnicht, leiðtogi íhaldsflokksins, sem vill áframhaldandi kynþáttaað- skilnað, hafnaði í gær tilboði de Klerks forseta um þátttöku í viðræð- unum. Roelf Meyer, varnarmálaráðherra Suður-Afríku, vísaði á mánudag á bug staðhæfingum Cyrils Ramap- hosa, framkvæmdastjóra Afríska þjóðarráðsins (ANC), um að de Klerk forseti hefði vitað um starfsemi „dauðasveita" í byggðum blökku- manna og ekki reynt að leysa þær upp. Afríska þjóðarráðið telur að sveitimar starfí á veguin hers og lögreglu og hafi myrt marga þeirra 4.800 blökkumanna sem hafa beðið bana í byggðum blökkumanna und- anfarin tvö ár. Stjómin segir hins vegar að átökin hafí brotist út vegna illdeilna ættbálka og stríðandi fylk- inga blökkumanna. Varnarmálaráðherrann sagði einnig að ekkert væri hæft í fregnum um að yfírmenn hersins og lögregl- unnar styddu ekki stjórnmála- umbætur forsetans. Hann sagði enga hættu á að hægrimenn innan hersins reyndu að ræna völdunum. SAS segist ætla að laða til sín farþega sem vilja hámarksþægindi með því að hafa sex svefnstóla til reiðu fremst í Boeing-767 þotum sín- um á langleiðum en 2.000 danskra króna aukagjald þarf að greiða fyrir þau sæti. Segir félagið það takmark sitt að bjóða ódýrustu fargjöld á fyrsta farrými sem völ verði á. Þann- ig verði t.d. svefnfargjald fram og til baka milli Kaupmannahafnar og Tókýó 25.620 danskar, jafnvirði 238 þúsunda ÍSK. Þá verður fargjöldum fyrir almenna ferðamenn breytt og tekin upp svonefnd „Jackpot“-gjöld en með þeim verður hægt að komast fyrir 1.000 danskar krónur, jafnvirði 9.300 ÍSK, milli skandinavísku höf- uðborganna, fyrir 1.500 til London og fram og til baka til Madríd og Rómar fyrir 3.000 danskar krónur. Nemur lækkunin á fiugleiðinni til London 36%. Hvenær hélstu síðast framhjá kontinní þínní? Málefnaleg umræða og bandarískir fjölmiðlar — ósættanlegar andstæður? Boston. Frá Karli Blöndal, fréttaritara Morgunblaðsins. ÞETTA VAR það sem þurfti til þess að fjölmiðlar tækju loks við sér: Ásakanir um að sigurstranglegasti frambjóðandi demókrata hefði hald- ið framhjá konunni sinni. Og það í tólf ár. Með konu, sem lét af frétta- mannastarfi til að verða söngvari í næturklúbbi, og er nú opinber starfsmaður í Arkansas þar sem meintur elskhugi hennar er ríkisstjóri. Þar til ásakanirnar komu fram hafði umræðan í kosningabaráttu demókrata fyrir forkosningarnar í New Hampshire verið mjög málefna- leg. Efst á baugi voru heilbrigðismál og leiðir til að auka atvinnu og binda enda á kreppu. William Clinton frá Arkansas þótti vænlegastur til að fara með sigurorði af George Bush forseta og peningar streymdu í kosn- ingasjóði hans. Á fimmtudag birti æsifréttaritið Star svo viðtal við Gennifer Flowers og hélt því fram að samtöl hennar við ríkisstjórann væru til á segul- bandi þar sem órækar sönnur væru færðar á ástarsamband þeirra. I kosningaherbúðum Clintons var öllu vísað á bug þótt viðurkennt væri að hann þekkti konuna. En þar höfðu menn einnig búist við einhveiju af þessu tagi. Orðrómur um lauslæti Clintons hefur verið á kreiki frá því að hann gaf kost á sér í haust. Hins vegar telst vikublaðið Star ekki traustur pappír meðal betri fjölmiðla og sagður betur fallinn til fiskum- búða eða skúringa en heilnæms lestr- ar. Því hefur það vakið bæði hneyksl- an og reiði að fjölmiðlar skyldu hveij- Bill Clinton Reuter ir um aðra þvera grípa málið á lofti. Um helgina var haldinn fundur hér í Boston þar sem fram komu bæði Clinton og Jeiry Brown, forset- aframbjóðandi og fyrrum ríkisstjóri Kaliforníu. Þegar Clinton hafði lokið máli sínu þyrptust fréttamenn með segulbönd og myndavélar á lofti að frambjóðandanum og dengdu á hann spumingum um Flowers. Clinton svaraði hvergi. Á meðan gekk Jerry Brown inn í salinn og beið þess að verða kynntur. Fréttamenn virtu hann ekki viðlits. Á mánudag hélt Flowers blaða- mannafund um meint ástarsamband sitt. Fundurinn var sýndur í beinni útsendingu á CNN og blaðamenn drógu ekki af sér. Einn blaðamaður vék umbúðalaust að kjarna málsins og spurði Flowers hvort þau hefðu notað veijur á ástarfundum sínum. Um kvöldið var Clinton umfjöllunar- efni fyrstu fréttar í fréttatímum sjón- varpsstöðvanna þriggja, ABC, CBS og NBC. í gærmorgun voru forsíður dagblaða undirlagðar. Látið hefur verið að því liggja að linni fjölmiðlar ekki látum muni Clin- ton verða að draga framboð sitt til baka, hvort sem málið sannast eður ei. Clinton heldur enn áfram að auka forskot sitt á aðra demókrata í skoð- anakönnunum, en sagt er að fjár- sterkir stuðningsmenn haldi nú að sér höndum til að sjá hvað setur og gæti kosningabarátta Clintons því misst skriðþunga. Og hvað finnst almenningi? Átta af hveijum tíu segja að þetta sé eink- amál og komi engum við nema þeim hjónum. Fjölmiðtar eigi því að láta kyrrt liggja.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.