Morgunblaðið - 29.01.1992, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 29.01.1992, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JANUAR 1992 25 Gáfu Landspítalanum hjartaómsjá Landssamtök hjartasjúlinga færðu Landsspítalanum að gjöf 5 milljón karóna framlag til kaupa á hjartaómsjá. Þetta er rannsóknaatæki af nýjustu og fullkomnustu gerð, sem bætir úr þörf hjartadeildarinnar fyrir aukinn tækjakost. Afhendingin fór fram hinn 10. janúar síðastlið- inn að viðstaddri stjórn Landssamtakanna og læknum spítalans, en ómsjáin verður tekin í notkun í þessum mánuði. Sigurður Helgason formaður Landssambandsins afhenti gjöfina, en Árni Kristinsson yfír- læknir veitti henni viðtöku. Morgunblaðið/Magnea Guðmundsdóttir Búnaðarfélag íslands: Mótmælir fullvrðing- um utanríkisraðherra STJÓRN Búnaðarfélags íslands mótmælir harðlega endurteknum full- yrðingum utanríkisr.áðherra um að bændasamtökin hafi beitt áróðri gegn honum eða dreift órökstuddum upplýsingum meðal bænda um líkleg áhrif GATT-tillagna Dunkels á íslenskum landbúnaði, segir í ályktun Búnaðarfélags Islands sem samþykkt var 27. janúar. I ályktun Búnaðarfélagsins segir: „í þessu efni hefur BI leitast við að afla sem haldbestra upplýsinga um málið og draga ályktanir af þeim. Því var Katli A. Hannessyni hag- fræðiráðunaut falið að semja grein- argerð um málið. Á grundvelli henn- ar byggðist ályktun stjómar BÍ og Stéttarsambands bænda sem þessi samtök senda landbúnaðarráðherra 6. janúar sl. Greinargerð Ketils, sem hlotið hef- ur almenna viðurkenningu m.a. hjá landbúnaðarráðherra og fleiri þing- mönnum í umræðum á Alþingi, byggir á samningsdrögunum sjálf- um, ýmsum upplýsingum frá land- búnaðarráðuneytinu og frá bænda- samtökunum í NoregL Greinargerð Ketils og ályktun stjórnanna eru einu upplýsingarnar sem BÍ hefur dreift. Það eru BÍ mik- il vonbrigði að utanríkisráðherra skyldi ekki byggja málflutning sinn um GATT-viðræður á faglegri úttekt um áhrif tillagna Dunkels á íslenskan landbúnað. Ummæli utanríkisráð- herra um bændasamtökin er hann viðhafði í útvarpinu 24. þ.m. voru þess eðlis að honum væri sæmst að draga þau til baka, segir í álykt- uninni. Hjálparstofnun kirkjunnar: Þakkir fyr- ir undir- tektir við fatasöfnun FATASÖFNUN Hjálparstofnunar kirkjunnar og Slysavarnafélags íslands fyrir bágstadda Kúrda er nú lokið. Yfir 160 tonn af fatnaði verða send flugleiðis og með skip- um til Danmerkur. Þaðan fer fatn- aðurinn landleiðina til fjallasvæð- anna í Kúrdistan og hefst dreifing þar í byrjun febrúar. Þegar Hjálparstofnun dönsku þjóðkirkjunnar óskaði eftir að Hjálp- arstofnun kirkjunnar safnaði notuð- um fötum á Islandi sneru forráða- menn Hjálparstofnunar sér til Slysa- varnafélagsins. Samþykkti stjórn þess strax að verða við ósk um lið- veislu. Er skemmst frá því að segja að félagsmenn deilda og sveita um land allt brugðust skjótt við og tóku að sér að annast móttöku á fatnaði og frágang. Forráðamenn félagsmið- stöðvarinnar Þróttheima í Reykjavík buðust einnig til að annast móttöku, svo og Glerárkirkja á Akureyri. Einn- ig önnuðust ýmis önnur félög ogr>' hjálparsveitir móttöku. Fjölmargir aðrir sjálfboðaliðar lögðu hönd á plóginn og félög og fyrirtæki studdu átakið með einum eða öðrum hætti, gáfu flutning, umbúðir, veitingar og svo mætti lengi tekja. Hjálparstofnun kirkjunnar þakkar landsmönnum öllum frábærar undir- tektir við þessa einstöku söfnun. Þá eru slysavarnamönnum færðar sér- stakar þakkir fyrir þeirra hlut en án þeirra hefði söfnunin naumast verið framkvæmanleg. ' Einnig þakkar^ Hjálparstofnun sjálfboðaliðum sem gáfu sig fram og aðstoðuðu við pökk- un og frágang. Björn Ingi Bjarnason afhenti f.h. Önfirðingafélagsins Eiríki Finni Greipssyni oddvita Flateyrarhrepps afmælisalmanak. Stórafmælisár Flateyrar: 200 ára verslunar- afmæli og Flateyr- arhreppur 7 0 ára Flateyri. í GARÐ er gengið margfalt afmælisár á Flateyri. Flateyrar- hreppur verður 70 ára og einnig á staðurinn 200 ára verslunarafmæli og með talið 100 ára afmæli ráðherrabústað- arins í Reykjavík sem áður stóð á Sólbakka við Flateyri. Önfirðingum finnst þeir eiga svolítið í þessu húsi en ekki er nú líklegt að það verði heimt til baka eins og handritin forð- um. Afmælishátíðin verður haldin helgina 25.-28. júní nk. í byijun janúar var boðað til fundar í Vagninum á Flat- eyri. Þar voru komnir þeir Bjöm Ingi Bjamason og Sigurdór Sigurðsson, brottfluttir Flateyr- ingar, færandi hendi fyrir hönd Önfirðingafélagsins með af- mælisalmanak að gjöf til Flat- eyringa. Björn Ingi átti hug- myndina að gerð dagatalsins og með vinnu hans og margra að- ila varð það að veruleika. Þetta er myndarlegt framlag, gefið út í 2.000 eintökum og almanakinu hefur verið dreift vítt og breitt um landið og er- lendis líka. Einnig færðu þeir félagar f.h. Önfirðingafélagsins björgunarsveitinni á staðnum flotgalla af dýrustu gerð. Almanakið er prýtt fallegum myndum úr Önundarfírði, göml- um og nýjum. Mikið af upplýs- ingum fylgir hverjum mánuði, stofndagar félagasamtaka, af- mælisdagar merkra manna úr Önundarfirði og merkra atburða í Önundarfirði og Flateyri. Þarna fléttast á skemmtilegan hátt nýr og gamall tími. Það má lesa um atburð allt frá 25. júní 1239 er Önfirðingar beijast með Þórði kakala í Flóabar- daga, 5. apríl 1889 Hvalveiði- skip Ellefsens koma til Flateyr- ar, 1892 Hans Ellefsens hval- veiðimaður byggir íbúðarhús á Sólbakka. Það hús er nú ráð- herrabústaður í Reykjavík. 6. ágúst 1901 Hvalveiðistöð Ell- efsens á Sólbakka brennur ásamt jjölmörgu öðru. Því hefur verið fleygt hér fyrir vestan að von sé á hval- veiðiskipum siglandi með mann- skap á afmælishátíðina. Björn Ingi sagði full mikla bjartsýni að ætla að flytja ráðherrabú- staðinn heim aftur það kæmi þess í stað líkan af húsinu. En við Önfirðingar vinnum að því með öllum ráðum að gera þetta hús að félagsheimili fyrir okkur í Reykjavík, sagði Björn Ingi. Undirbúningur er þegar haf- inn að afmælishátíðinni á Flat- eyri og hjá Önfírðingafélaginu og er von á miklum fíölda fólks til að taka þátt í gleðinni í júní. - Magnea. R EYKJ AVll^MFÍ Hin viðurkenndu KAWAI HUÓMBORÐ --J----------- 0£j skemmtarar viö ALLRA hæfi á frábæru veröi frá 5.900,- KAWAI Það er aldrei of seint að byrja ! LAUGAVEGI 96 S 600935

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.