Morgunblaðið - 29.01.1992, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 29.01.1992, Qupperneq 27
Svava H, dóttir — Fædd 8. janúar 1914 Dáin 15. janúar 1992 Mig langar til að minnast elsku ömmu minnar, Svövu Halldóru Pét- ursdóttur, er lést á Borgarspítalan- um að kvöldi 15. janúar síðastliðins. Þegar maður lítur til baka rifjast upp í liuga manns allar þær ánægju- stundir er við áttum með henni. Alltaf var jafn gaman að koma í heimsókn til elsku ömmu og afa í Akurgerði, þar sem þau bjuggu lengst af. Amma var mikil húsmóð- ir og hafði gaman af því að fá fólk í heimsókn, enda var ætíð gest- kvæmt hjá þeim. Við krakkarnir nutum þá góðs af öllum kökunum og öðru góðgæti sem amma hafði búið til. Sögur sagði amma okkur oft, kenndi okkur kvæði og ýmis heil- ræði gaf hún okkur sem hafa kom- ið að góðum notum á lífsleiðinni. Eitt stðrsta áhugamál ömmu, sem má segja að hafí verið hennar líf og yndi, var garðurinn þeirra. Hann var prýddur fjölmörgum fal- legum blómum og tijám sem nutu umhyggju hennar. Oft spurði maður ömmu: Hvað heitir þetta blóm, og þá var amma fljót að svara. Minnis- stæðar eru mér stjúpurnar um- hverfis tjömina þar sem við krakk- arnir léku okkur oft. Ég þakka elsku ömmu minni all- ar ánægjustundirnar sem við áttum saman og megi Guð geyma hana. Elsku afi, söknuður okkar er mikill, en megi góður Guð styrkja þig í sorginni. Allt vex eins og blómstrið eina upp vex á sléttri grund fagurt með fijóvgun hreina fyrst um dags morgunstund, á snöggu augabragði af skorið verður fijótt, lit og blöð niður lagði, - líf mannlegt endar skjótt. (Hallgrimur Pétursson) Aggi og fjölskylda. í dag verður jarðsett elskuleg svilkona mín, Svava Pétursdóttir. Háð hefur verið hetjuleg barátta og því hvíldar þörf. Svava var af þeim meiði komin, þar sem mótlæt- inu var tekið með ró og stillingu og ævinlega horft til þess sem skap- ar þá birtu í lífinu, sem trúin ein getur gert. Hún þekkti það frá barnæsku. Svava var húsmóðir á stóru heimili, þar komu margir í mat og kaffi, enginn mátti fara matarlaus frá henni. Þar ríkti rausn og myndarskapur þeirra hjóna. Það eru ófáir, sem átt hafa í erfiðleikum og mætt hafa vináttu og hjálpsemi þeirra hjóna. Svava var einstaklega vel gerð kona, glöð og jákvæð við alla, hún fann sárt til með þeim, sem áttu erfitt og var rík af góð- vild og kærleika. Svava sagði alltaf að allir væru svo góðir við sig, en málið var það að hún gerði allt fyr- ir alla. Hún var mikill fagurkeri og gerði kröfu til umhverfis síns, enda naut hún sín í garðinum á vorin með tijánum sínum og blómunum, að ég tali nú ekki um dalíurnar enda var hún í dalíuklúbb og naut sín þar. Hún kom sérstaklega vel fyrir sig orði. Einu sinni var ég stödd hjá þeim hjónum og systur Hróbjartar voru þar líka, þær fóru að hæla honum hvað hann væri góður við hana. Það væri munur að eiga svona góðan mann. Þá læddist útúr Svövu, þið hafið ekki búið með honum og glettnin skein út úr andlitinu. Svava og Hróbjartur voru mjög samrýnd hjón, hann mat hana mik- ils, enda átti hún stórt hjarta. Með þessum fátæklegu orðum kveð ég svilkonu mína og þakka henni fyrir samverustundirnar, sem við áttum. Elsku Hróbjartur, Steina, Lúther, Sonni, Óbi, tengda- börn, barnabörn, megi hækkandi sól og góðar minningar milda sökn- MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JANÚAR 1992 27 , PéturS’ Minning uðinn og gefa ykkur styrk. Guð blessi minningu Svövu Pétursdóttir. Ó góða sál til friðar feginsheima far þú nú vel á Guð þíns náðarfund en minning þína veit og vinir geyma þótt vegir skiljist hér um litla -stund. (Guðlaupr Guðlaugsson.) Bogga. Hún andaðist á Borgarspítalan- um 15. janúar s.l. 87 ára að aldri. Fæddist á Ökrum Mýrarsýslu 8. janúar 1915. Fiuttist sex vikna með foreldrum sínum til Stykkishólms og ólst þar upp. Tuttugu og fjög- urra ára flyst hún til Reykjavíkur og er ári síðar gift Hróbjarti Lút- herssyni, heilbrigðisfulltrúa í Reykjavík. Börn þeirra tvö: Stein- unn Jóhanna hárgreiðslumeistari og Lúther Almar símasmiður. Hún var elst okkar níu systkina og ég þremur árum yngri en hún. Ég var þriggja ára þegar hún greip mig úr höndum aðeins eldri stráka, er ég hafði ráðist gegn, án annars árangurs en vera margbarinn, og í dag 74 ára að aldri rís nálægð þess- arar minningar, öryggiskenndin slík að ég finn mig storka ofureflinu í vernd þessarar stóru systur. En hún verndaði mig ekki aðeins gegn strákum, heldur og ekki síður gegn sjálfum mér, því sem unglingur þótti ég ódæll og uppátektarsamur og er það víst enn. Ég var barn þegar hún fylgdi mér í skólann fyrsta veturinn og sótti mig jafnframt í öllum vondum veðrum og ávallt lét hún mig ganga í skjóli af sér, ef því var viðkomið. Ég var ekki gamall þegar ég flækt- ist um plássið með strákum fram í rauða myrkur, þá brást ekki að hún væri komin til að vita hvort eitt- hvað haft komið fyrir mig eða sækja mig, og aldrei fór hún svo heim að hún hefði mig ekki með sér. Eitt sinn fékk ég stráka til að beija hana í burtu, þá settist þessi systir mín grátandi á stein og þaðan hreyfði hún sig ekki fyrr en ég var tilbúinn að fara með henni heim. I hvert sinn er ég kom til borgar- innar í sumarleyfi frá Hornbjargs- vita var ávallt eins og litli bróðirinn væri kominn til hennar. Þannig voru viðbrögð hennar allt til þeirrar stundar er hún á Borgarspítalanum hætti að geta talað, sama systur- lega ástúðin, sama umhyggjan, sama verndarafstaðan, sömu vel- meintu áminningarnar um að vera nú góði drengurinn, heiðarlegur, sannorður, réttlátur og fara vel að öllu. Ég segi ekki að árangurinn, hvað mig snerti, hafi verið í sam- ræmi við umhyggjuna, en í öllu vildi hún mér og öðrum systkinum sín- um, eins vel og frekast varð á kosið. Allt varð að gera vel sem hún kom nálægt, enda bar heimili þeirra hjóna þess bestan vott. En kröfu- hörð var hún án þess að áminning- ar hennar miðuðu að öðru en bæta það sem betur mátti fara, en jafn- framt ósérhlífin og vinnusöm allt þar til lífsvonin hvarf henni. Hún var heimakær, en þrátt fyrir það félagslynd og naut sín vel í góðum félagsskap, eignaðist fáa vini en úrvals manneskjur. Um miðbik ævinnar fékkst hún töluvert við hannyrðir og eftir hana liggur þó nokkuð magn af lystilega gerðum útsaumi. Jafnframt ofansögðu helg- ast minningin um hana af hjaita- lagi hennar, hversu umtalsfróm hún var, af góðvild hennar gagnvart hveijum er hægt var og rétta þurfti hjálparhönd, var stórveitul við gesti. Ég held því ekki fram að hún hafi verið annmarkalaus, en hún var heilsteypt kona í öllu er máli skipti, og þótt hún haft árum saman átt við allmikil veikindi að sríða, þá breytti það henni í engu nema að svo miklu leyti sem líkamsburðir háðu henni. Oft hef ég furðað mig á því hversu algengt það er í dánarminn- ingum um karlmenn, að tæpast er minnst á hversu merkilegur hvati og lífsfyiling konan hefur verið í lífi þeirra, hversu fijór sá hvati getur verið, ýtinn, upphefjandi og stuðningsríkur. Maðurinn einn er ei nema hálfur, með öðrum er hann meiri en hann sjálfur, stendur þar. Að sjálfsögðu á þetta við um hvort kynið sem er. Ég fullyrði að lífslán Svövu var hvereu mikinn dreng- skaparmann hún átti að eiginmanni þar sem Hróbjartur Lúthersson var. Þau voru mjög samhent og bættu hvort annað upp. Ég hef engan mann þekkt, sem er jafnheilt góð- menni, jafnfús að rétta hjálparhönd, hvernig sem á hefur staðið fyrir honum. Hann reyndist móður okkar og þeim systkinum okkar er áttu um sárt að binda, slíka alúð, góð- vild, hjálpsemi og h'vers konar fyrir- greiðslu, að slíkt verður aldrei full- þakkað. Slíkur maður bregður mik- illi birtu yfir hvað í mannfólkinu getur búið. Jafnframt sínum bömum ólu þau hjónin upp, að nær öllu leyti, fyrst dótturson sinn Hróbjart og síðar sonarson sinn er einnig heitir Hró- bjartur, svo og dóttursoninn Pétur eftir tólf ára aldur, jafnframt því sem barnabörn þeirra dvöldu þar tímunum saman. Ekkert fannst þeim hjónum sjálfsagðar en gera allt fyrir afkomendur sína, maka þeirra og börn, er þau frekast gátu, og mátti ekki á milli sjá hvorra hlutur var þar meiri. Nú er það einhvern veginn svo, að þar sem karlmaðurinn er fyrir- vinnan daglangt utan heimilis, þá kemur það að sjálfsögðu í hlut hús- móðurinnar að sjá um viðameiri þætti uppeldisins. Unglingar eru bæði misjafnir í meðferð og um- brotasemi, það er því ekki víst að agasöm móðir, er telur sig gera það besta sem hún veit, sé litin jafn réttlátum eða vinsamlegum augum og faðirinn, er á stundum reynist eftirlátari og aðfinnslulausari þegar heim er komið, en móðirin sem hefur þeim uppeldisskyldum að gegna er hvað mestu varða. En hvað um það: Þeir barnssynir þeirra er náð hafa aldri og menntun til átaka og umsvifa í þjóðfélaginu, hafa reynst með betri borgurum jafnvel í fremstu röð, hvor á sínu sviði. Það eru mikil verðmæti í upp- alendum. Nú er það ekki svo að allir þess- ir drengir hafi alltaf reynst engil- börn frá degi til dags, fremur en börn yfirleitt. Ef ég nú nefndi slíkt við systir mína, jafnvel í spaugi, þá varði hún þá og hvítþvoði af slíkri fylgni og hörku, að engu var líkar en ljónynja væri að veija afkvæmi sín. Á þá mátti aldrei falla blettur. Það er athyglisvert hvað lífsmynst- ur látins ættingja eða vinar rís í vitund manns að þeim látnum; hversu nándin verður ásækin, sterk, yfirsýn á líf þeirra víðfeðm, innileik- inn við kynnin af þeim dýpri, for- dæmið áhrifameira, samkenndin altækari með hvaða lífsformi sem er, og hversu sterkar það sækir á mann að skoða lífið frá sjónarhóli dauðans, ekki af ótta við hann, heldur til fyllingar þeim gildum er reynslan í hveiju lífsskrefí færir í fang manni eða maður sækir eftir og mótar mann. Ég held maður óttist ekki dauðann sem slíkan tel mig hafa djúpkeypta reynslu fyrir því óttinn mun fremur bundinn því að slitna úr tengslum við allt það er maður ann. Heimvon til annars lífs er efalaus stuðningur þeirra er glatað hafa lífsvon, þeim er á annað borð trúa á eitthvert form guðsins. Ef ég man rétt, segir Sigurður Nordal í erindum sínum um líf og dauða, að hin fornu orð, Memento mori — mundu að þú átt að deyja, hafi hljómað með básúnurödd í gegnum aldirnar, eða eitthvað í þá veru. Það er því ekki fráleitt að álykta að í dulvitund fólks liggi þessi vissa, og seitli um rætur dag- legra hugsana mannsins, þótt bein hugsun um návist dauðans sé ekki í þönkum hans nema við sérstakar aðstæður. Ég minnist þess hversu fögur henni þótti sagan,„Ferðin sem aldr- ei var farin“ er ég sagði henni inn- tak hennar eitt sinn, er við ræddum þessi mál. Og ég held henni hafi verið það eðlislægt að haga lífsferð sinni í samræmi við grunntón þeirr- ar sögu, án þess þó hún hafi verið upphaflegur hvati. Svava bjó yfir hreinni, sterkri guðstrú. Þar varð henni ekki haggað, enda alin upp í þá veru, og því sannfærð um ann- að líf hjá guði sínum. Ég varð aldr- ei var við að dauðinn sem slíkur, væri henni efni til ótta. Ef ég man rétt, þá var kona eins dóttursonar hennar í hættu stödd við fæðingu síns fyrsta barns. Þeg- ar dró að fæðingu annars barnsins var hún talin áhættusöm og því kvíði móðurinnar mikill. Ég hafði tal af henni skömmu áður en hún fór á fæðingardeildina. Þá var hún gjörbreytt. Órugg og með birtu í svip heilsaði hún mér með sínum eðlislæga brosandi hlýleika, ótta- laus með öllu. Ég spurði hvað hafði gerst. Þá svaraði hún: Svava ætlar að sitja hjá mér þegar ég á barnið. Með varmadjúpri þökk fyrir sam- fylgdina og sameiginleg kveðja frá systkinum hennar. Jóhann Pétursson. Með fáum orðum langar mig til þess að ininnast ömmu minnar, Svövu Halldóru Pétursdóttur, sem lést á Borgarspítalanum eftir erfið og löng veikindi. Að setjast niður og skrifa kveðju- orð um ömmu er eitthvað svo fjar- lægt, amma var alltaf til staðar þegar maður þurfti á að halda, var svangur, vantaði hlýju eða ráðlegg- ingar, var amma þar. Fyrst man ég eftir ömmu í Akurgerðinu, þar sem hún og afi bjuggu í rúm 30 ár. Margs er að minnast þaðan þeg- ar maður fór í heimsókn til þeirra, að sjálfsögðu í mat, og átti að kveðja, þá annað hvort faldi maður sig eða lést vera sofandi, því að vera hjá ömmu og afa var svo heill- andi, alltaf nóg að fólki og mikiðv líf og fjör. Amma var mikil félags- vera vildi að allir kæmu í heimsókn til sín, enda Akurgerði oft nefnt „Hótel Svava“. Starfsdagur ömmu var langur; upp fyrir allar aldir og seinust til náða, þá var hún nú búin að metta margan munninn. Yndi hafði hún af blómum, eins og þeir sem til hennar þekktu muna. Ræktaður var heill skrúgarður við húsið og amma kunni nöfnin á öllum þessum blóm- um sem þar voru. Það þótti ungum snáða nú skrítið. Oft stóð ihaður með barnsaugun starandi þegar hún talaði við þau og spurði hana: Talar þú alltaf við blómin amma? Elsku Pétur minn, blóm hafa líf'' alveg eins og við, þau sjá okkur ekki, en þau hlusta á það sem maður segir. Amma vissi allt. Ást fyrir öllu fólki bar amma mikla. Ef einhver átti um sárt að binda vegna ástvinamissis, eða mátti sín minna, tók hún það mjög nærri sér. Amma hafði stórt hjarta. Mér er minnisstætt að hún las alltaf einn kafla í Biblíunni á kvöid- in. Sagði hún mér að hún hafði gert samning við Guð. Amma miðl- aði mikilli ást og hlýju til okkai*- Unnar og gaf okkur gott veganesti út í lífið. Við vorum -ekki gömul þegar hún gaf okkur peninga sem hún hafði safnað í langan tíma, og sagði okkur að kaupa trúlofunar- hringa fyrir þá. Hún lifði fyrir börn- in sín. Amma hafði góða frásagnargáfu. Oft sátum við saman og sagði hún okkur með glampa í augum frá prakkarastrikum okkar bræðra frá yngri árum; þá lék hún á als oddi. Minningin um góða og fjölhæfa ömmu varir að eilífu. Mig langar að kveðja elsku ömmu mína með tveimur versum sem hún kenndi mér: 79 Trúðu á tvennt í heimi tign sem æðsta ber Guð í alheims geimi Guð í sjálfum þér. Vertu guð faðir faðir minn í frelsarans Jesú nafni hðnd þín leiði mig út og inn svo allri synd ég hafni. (Hallgr. Pétursson.) Elsku afi, missir þinn er mikill. Guð geft þér styrk. Pjetur og Unnur. MORSE CONTROL Stjórntæki fyrir vélar og gíra, spil o.fl. Stýrisvélar og stýri. Mikið úrval fyrirliggjandi. Flestar lengdir og sverleikar af börkum. Fyrir allar vélategundir og bátagerðir. ÁNANAUST 1, REYKJAVÍK. SÍMI 91-26122

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.