Morgunblaðið - 29.01.1992, Side 30

Morgunblaðið - 29.01.1992, Side 30
30 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JANÚAR 1992 fólk í fréttum OEÐLI Mannætum fjölgar á hvíta tjaldinu Mannætur hafa rutt sér til rúms í kvikmyndum vestanhafs seinni misserin og aukið á hrollvaka spennumynda, því fátt þykir óhugn- anlegra en þegar geðveikur af- brotamaður leggur sér fórnarlömb- in til munns. Segja má að þetta hafi bytjað með túlkun Anthony Hnpkins á morðingjanum Hannib- al„The Cannibal" Lecter í spennu- myndinni Lömbin þagna. Robert DeNiro heldur merkinu á lofti í nýkominni kvikmynd, „Cape Fear“, og líklegt er talið að James Spader verði þriðja mannæta hvíta tjaldsins á tiltölulega skömmum tíma. DeNiro leikur geðveikan morð- ingja í umræddri kvikmynd þar sem hann leikur annað aðalhlutverkið, en Nick Nolte fer með hitt í leik- stjórn Martins Scorsese. Höfundur handritsins, Wesley Strick, segir að atriðið hafi ekki einu sinni verið í upprunalegu handriti hans, en því hafi verið bætt við til að auka á áhrifamátt augnabliksins. „Bob fékk leynimyndbönd frá geðsjúkra- húsum þar sem nauðgarar og morð- ingjar hafa lýst í smáatriðum glæp- um sínum í samtölum við geð- lækna. Hann horfði á 200 klukku- stundir af slíkum viðtölum til þess að túlkun sín yrði fyrsta flokks," sagði Strick. Eins og venjulega lifði DeNiro sig mjög inn í hlutverkið. Pérsóna sú sem hann túlkar á að vera hraust mjög. DeNiro hefur áður étið utan á sig kílóatugi til að falla betur að hlutverki og hann hefur nauðrakað höfuð sitt í sama tilgangi. Að þessu sinni lyfti hann lóðum fimm klukkustundir í senn að nóttu til svo vikum skipti til að falla betur að þessu hlutverki. í kvikmyndinni „Chicago Loop“ leikur James Spader geðtruflaðan einstakling sem hefur þessa um- ræddu áráttu. Eitt atriði myndar- innar, sem er í lokavinnslu, er sér- staklega ógeðfellt eftir því sem blöð vestra segja frá. Talsmaður fyrir framleiðendur myndarinnar vill þó taka fram, að endanieg ákvörðun um atriðið hefur ekki verið tekin. Vel geti farið svo að það verði fellt út af velsæmisástæðum. laus. Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra setur afmælishátíðina með pompi og prakt. Til hliðar við ráðherrann eru Gísli Marteinn Baldursson, formaður Nemendafélagsins, og Elvar Aðalsteinsson, formaður afmælisnefndar. 25 ÁRA AFMÆLI Hátíðahöld alla vikuna Nemenda,félag Verslunarskól- ans er 25 ára um þessar mundir og verða hátíðahöld í skólanum af þessu tilefni alla þessa viku. Afmælishátíðin var formlega sett á mánudag að við- stöddu fjölmenni en meðal gesta voru forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, og Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra en hann var einn af stofnendum félagsins fyrir 25 árum. Gísli Marteinn Baldursson, núverandi formaður Nemendafé- lagsins, segir að margt verði til skemmtunar á afmælishátíð fé- lagsins. Nefnir hann sem dæmi tónleika, fyrirlestra, spurninga- keppni og ræðukeppni auk þess sem dansleikur verður haldinn í skólanum. Gísli segir að allir séu velkomnir á skemmtanir þessar og aðgangur að þeim sé ókeypis. Meðal gesta við setningu afmælishátíðarinnar var forseti ís- lands, frú Vigdís Finnbogadóttir, sem hér gæðir sér á afmælist- ertunni í hópi nemenda. Myndin er tekin á fyrstu Aikido-æfingu í Gallerí Sport. Það er kenn- arinn, Marteinn Þórðarson, sem sveiflar andstæðingi sinum svo létti- lega. AIKIDO Kennsla hafin á Þekking Reynsla Þjónusta FÁLKINN SUÐURIANDSBRAUT 8, slMI 814670 4 Hornfirðingar! Árlegt þorrablót verður haldið í félagsheimili Kópavogs laugardaginn 8. febrúar. Miðapantanir fyrir 1. febrúar hjá Erlu Ásgeirs- dóttur, sími 41241, Jónasi Beck, sími 31600 og Védísi Skarphéðinsdóttur, sími 16997. nýrri sjálfsvarnaríþrótt Sunnudaginn 19. janúar var í fyrsta sinni á íslandi hafin kennsla á Aikido, sem er nútíma sjálfsvarnarlist þróuð út frá bardagatækni og siðmenningu sam- úræjanna. Grundvöll að þessari tækni lagði Morihei Uyeshiba. Þessi sjálfsvarnarlist er kennd í Gallerí Sport í Mörkinni 8 og er Marteinn Þórðarson kennari. Samkvæmt upplýsingum Sigur- jóns Gunnsteinssonar er þetta í fyrsta skipti, sem Aikido er kennt hér á landi, ef frá er talið stutt námskeið og kynningu, sem Gunnar Gunnarsson sálfræðingur hélt árið 1984. Auk Aikido er kennt karate, judo, taikwon-do og taiji, sem er kínversk leikfimi. Að sögn Siguijóns einkennir Aikido hringlaga hreyfingar, sem ávallt samræmast árás andstæð- ingsins. Takmarkið er að víkja sér undan, en samtímis taka yfir stjórn- ina og gera ógnvaldinn skaðlausan án þess að skaða hann.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.