Morgunblaðið - 29.01.1992, Page 31

Morgunblaðið - 29.01.1992, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JANUAR 1992 31 SMIT Madonna ber af sér sögusagnir um eyðnismit Popparinn Madonna var nýlega heiðruð fyrir ósérhlífin störf í þágu eyðnirannsókna, en hún hefur bæði lagt fram mikið fé til rannsókna og forvarna og verið í fararbroddi herferða sem hafa haft sama markmið. Madonna tók við viðurkenningarskjali í kvöldverðar- boði í Beverly Hills fyrir nokkru og þar mætti hún á svæðið ásamt nýjasta kærastanum. Sá heitir Luke Perry og er feykivinsæll nýliði í sjónvarpsþáttaröð sem ber heitið „Beverly Hills 90210“. Sá kvittur hefur verið á kreiki vestra að Madonna hafi verið greind með eyðnismit. Hefur margur lagt trúnað á slíkt tal vegna margra sagna um fjörug ástamál Madonnu og ótal elskhuga auk þess sem nokkuð hefur þótt draga úr sviðsljósagleði hennar á sama tíma og hún hefur látið til sín taka í vaxandi mæli í barátt- unni gegn eyðni. Við þetta tæki- færi sagði hún að sögusagnir sem þessar ættu við engin rök að styðj- ast og söngkonan og vinkona henn- ar, Patty Austin, sem var kynnir kvöldsins tók undir það er hún Madonna og Luke Perry. sagði að Madonna hefði verið byrj- uð að beijast gegn eyðni „löngu áður en slíkt komst í tísku“, eins og hún komst að orði. Söngglaðir Þingeyingar. Morgunblaðið/Silli KORSÖNGUR Hreimur skemmtir Húsvíkingum Karlakórinn Hreimur, sem æft hefur af miklu kappi í vetur, hélt söngskemmtun, miðvikudags- kvöldið 22. janúar, í Barnaskóla- salnum á Húsavík fyrir fullu húsi og við mjög góðar viðtökur áheyr- enda. Stjómandi kórsins er Robert Faulkner og undirleikari Juliet Faulkner en þau hafa undanfarin ár kennt við Hafralækjarskóla og eflt sönglíf í sveitinni og hafa hjón- in nú í vetur tekið að sér stjórn kirkjukórs Húsavíkur og þykir Húsvíkingum fengur að því. Einsöngvarar með kórnum eru bræðurnir Baldvin Kr. og Baldur Baldvinssynir og Einar Hermanns- son, sem nú var að þreyta sína frumraun sem einsöngvari og var honum vel tekið sem og bræðrun- um sem lengi hafa skemmt Þingey- ingum með einsöng sínum og tvi- söng. Hreimur er skipaður söngmönn- um úr sjö sveitarfélögum og þurfa sumir þeirra að aka yfir 100 km að loknu dagsverki til æfinga og sýnir það mikinn áhuga og fórn- fýsi. Það er umhugsunarvert, hvernig hægt er við slíkar aðstæður að halda uppi þvílíku menningarlífi, þegar ekki er hægt að fá menn í fjölmenninu til að halda uppi kór- starfi, en karlakórinn Þrymur sem hér starfaði áður með miklum blóma hefur nú allmörg undanfarin ár sofið svefninum væra. - Fréttaritari í sálarfrœði Námskeið sem byggir á nýjum rannsóknum um þróun kvenna og mótun persónuleikans. Áhersla er lögð á samstarf og innbyrðis samskipti kvenna á mismunandi vettvangi. MEÐAL EFNIS Sálarlíf kvertna. Samstarf kvenna: fyrirmyndir og náin tengsl. Vinátta, öfund og samkeþpni. Olík viðbrögð kvenna og karla. Innbyrðis átök og úrlausnir. Líjsskeið og persónul Aðgreining, frumkvæði, egstaða. árangur. LÁ, Leiðbeinendur eru sálfræðingarnir Álfheiður Steinþórsdóttir og Guðfinna Eydal. Nánari upplýsingar og skráning í sfmum Sálfræðistöðvarinnar 21110 og 623075 milli kl. 11—12. SÁLFRÆÐISTÖÐIN Ég þakka öllum þeim Jjölmörgu, sem glöddu mig með heillaóskum, gjöfum og heimsóknum á 90 ára afmœli minu 22. janúar sl. Guð blessi ykkur öll. Soffía Túbalsdóttir. AUGLÝSING UM STYRKI TIL RANNSÓKNA OG ÞRÓUNARVERKEFNA Stjóm Verkefna- og námsstyrkjasjóðs Kennarasambands íslands auglýsir styrki til kennara sem vinna að rannsóknum, þróunarverkefnum eða öðrum umfangsmiklum verkefnum í skólum. Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu Kennarasambands íslands, fræðsluskrifstof- um og hjá trúnaðarmönnum KÍ í skólum. Umsóknum ber að skila á skrifstofu Kennarasambands íslands, Grettisgötu 89, 105 Reykjavík, fyrir 1. mars 1992. VeisIueJdhúsið Skútan býdur fjölbreytt úrval af veislumat. Heitur veislumatur, pottréttir, kalt borð og ýmislegt annað sem getur kryddað tilveruna og komið gestum á óvart. Við bjóðum vistlegan veislusal ef á þarf að Iialda. Við byggjum á langri reynslu í matargerð og undirbúningi veislu- halda, og okkar besta auglýsing er ánægðir viðskiptavinir. SKUTAN í fararbroddi VEISLUSALUR / VEISLUELDHÚS Dalshrauni 15, 220 Hafnarfjörður . símar: 51810, 651810. telefax: 652367 | Blaóió sem þú vaknar við!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.