Morgunblaðið - 29.01.1992, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JANUAR 1992 .
33
Voa gotta kne the goy.
HX
HX
HX
EICEOR
SNORRABRAUT 37, SÍMI 11 384
DANNY DeVITO
BfiÓHÖK-i.
ÁLFABAKKA 8, SÍMI 78 900
ÁLFABAKKA 8, SÍMI 78 900
STÓRGRÍNMYNDIN:
PENINGAR ANNARRA
Tortímandinn Larry er
mættur, litli Wall Street-
töffarinn, sem étur heilu
fyrirtækin í morgunverð.
,0ther Peoples Money“ er
stórkostleg gamanmynd,
þar sem stórstjörnurnar
Danny De Vito og Gregory
• Peckfaraákostum.
Ein „super“góð í
skammúeginu!
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
THELMA & LOUISE
Sýnd kl. 5 og 9.
SVIKAHRAPPURINN
FRQM JOHN HtlÖHES
IRn írr*4«i
ívlr* kw.11
Mýb* ■■
UkLY
I
Sýnd kl.5,7,9og11.
DUTCH
ELDUR, IS
OGDÍNAIUIÍT
Sýnd kl.7,9og11.
Sýnd kl. 5.
TIMASPRENGJAN
Sýnd kl. 5, 7, 9
og 11.
Hér er komin skemmtileg grín-spennumynd er segir frá
„Warshawski'Möggunni, sem kallar ekki allt ömmu sína. Hin
frábæra leikkona, Kathleen Turner, er hér aldeilis í stuði.
Framleiðendur eru þeir sömu og gerðu metmyndina „Honey, I
Shrunkthe Kids“.
„FRÁBÆR MYND MEÐ FRÁBÆRUM LEIKURUM"
Aðalhlutverk: Kathleen Turner, Jay O. Sanders, Charles Durning,
Nancy Paul. Framleiðendur: Penny Finkelman Cox/John Marsh.
Leikstjóri: Jeff Kanew (Revenge of the Nerds).
Sýnd kl. 5,7, 9 og 11.
BILLY BATHGATE
Sýnd kl. 5,7,9
og 11. B.i. 16ára.
★ ★★SV.MBL.
★ ★★ AIMBL.
Sýnd kl. 5.
ALDREIAN DOTTUR MINNAR
Sýnd kl. 7.
Aðalhlutverk: Danny De Vito, Gregory Peck,
Penelope Ann Miller og Piper Laurie.
Leikstjóri: Norman Jewison.
Sýnd kl.5,7,9og11.
FLUGASAR
THERE'S S0METHIN6 FUNKYIN THE fllR.
Fram the makets of the ‘Airplane' & 'Naked Gun" movies.
THE MOTHER OF ALL MOVIES!
a&ZZ~m- ©1991 Iwenteth C*ntury Fo* [
„Ekki blikka augunum, biö gætir misst at brandara"
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. gjgggggg
★ ★★Al. MBL.
GRÍN-SPENNUMYNDIN
LÖGGAN Á HÁU HÆLUNUM
KATHLEEN TURNER
Killereyes. Killerlegs. Killer instincts.
V. I .WARSH AWSKI
★ ★★ ÍÖS DV
Sýnd kl. 9 og 11.
JIMMY SMIT8
JoBETH WILLIAMS
LORRAINE BRACCO
Arnon Milchan gerði „Pretty
Woman“, núna „Switch“.
Blake Edwards gerði „Blinde
Date“, núna „Switch11.
Henry Mancini samdi tónlistins
við „Pink Panther11,
núna „Switch11.
Ellen Barkin, kvendið í „Sea of
love“, núna „Switch".
„SWITCH“ - toppgrínmynd,
gerð af toppfólki!
Mislitt fé
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
Hasar í Harlem („A Rage in
Harlem“). Sýnd í Háskólabíói.
Leikstjóri: Bill Duke. Aðalhlut-
verk: Forest Whitaker, Greg-
ory Hines, Robin Givens og
Danny Glover.
Hasar í Harlem er enn eitt
dæmið um aukna velgengni
svartra kvikmyndagerðarmanna í
Hollywood. I henni leika margir
af þeim svertingjum sem lengst
hafa náð í kvikmyndaiðnaðinum
vestra eins og Forest Whitaker,
Gregory Hines og Danny Glover,
en myndin segir frá glæpahyski
sem kemur sunnan frá Mississippi
til Harlem í New York að eltast
við kistu fulla af gulli.
Sögusviðið er Harlem og sögu-
tími seinni hluti sjötta áratugar-
ins. Frásögnin er nokkuð ójöfn
því annars vegar er maður settur
inn í skoplegar kringumstæður
með spaugilegum og ýktum per-
sónum svo lengi stefnir í græsku-
lausa gamanmynd en í bland við
þetta er grimmilegt ofbeldi og
ekta skúrksháttur morðóðra
glæpamanna svo hið létta yfir-
bragða fer fyrir lítið og Hasar í
Harlem verður ofbeldisfull glæpa-
mynd.
Sagan er hvorki betri né verri
en tíðkast í glæpamyndum af
þessu tæi. Glæsileg og fögur
kona, hin dæmigerða femme fat-
ale glæpasagnanna, kemur til
Harlem með kistu af gulli sem
hún hefur rænt ásamt félögum
sínum í Mississippi en hún heldur
að þeir hafi verið drepnir í ums-
átri. Hún svindlar sér inná sak-
leysingja mikinn er vinnur á útfar-
arstofu, leikinn af Forest, og ger-
ir hann svo kolvitlausan af ást til
sín að þegar skúrkarnir félagar
hennar korna eftir gullinu og
hremma hana í leiðinni fær hann
hálfbróður sinn, leikinn af Greg-
ory, í lið með sér og saman halda
þeir í eftirför.
Skúrkarnir eru hið versta sam-
safn illmenna og fara leikararnir
allir vel með sínar týpur, einnig
Danny Glover, sem er glæpafor-
ingi hverfisins og Zakes Mokae í
hlutverki karlkyns mellumömmu.
Þetta er mislitt fé í vondum mál-
um og leikgleðin er mikil og ekta
hjá hæfileikafólkinu sem fer með
hlutverkin. En leikstjórinn, Bill
Duke, finnur ekki samhljómun í
sögunni, hún er brokkgeng og
slitrótt og breyting aðalpersón-
unnar úr meinleysingja í muln-
ingsvél full sjálfsögð.
Það er mestanpart fjör og has-
ar í Harlem myndarinnar en hún
er líka vel ofbeldisfull svo það er
spurning hvað verið er að fara
með henni. Hún er engu að síður
kærkominn fulltrúi svertingja-
myndanna að vestan.
Háir hælar
Kroppaskipti („Switcli"). Sýnd
í Bíóhöllinni. Leikstjóri og
handritshöfundur: Blake Edw-
ards. Aðalhlutverk: Eilen Bark-
in, Jinnny Smits, JoBeth Will-
iams, Lorraine Bracco, Tony
Roberts og Perry King.
Leikkonan Ellen Barkin er
næstum því það eina í gaman-
myndinni Kroppaskipti eftir Biake
Edwards sem hægt er að hafa
gaman af og á hún þó erfitt stund-
um. Hún leikur karlrembusvín í
kvenlíkama í þessari lömuðu gam-
anmynd, sem sýnir helst að Edw-
ards er búinn að glata umtals-
verðu af skopskyni sínu frá því
hann gerði t.d. myndirnar um
Bleika pardusinn.
Það eimir lítið eftir af snjöllum
tímasetningum og myndrænum
bröndurum þeirra mynda. Nú er
uppistaðan að mestu ófyndið
svefnherbergisgrín og neðanbelt-
ishúmor (sjálflýsandi smokkur var
aðalnúmerið í síðustu mynd hans),
sem fær mann varte til að brosa
út í annað. Undir lokin í Kroppa-
skiptum gerir hann svo útslagið
með skyndilegri alvörugefni og
væmni, sem er gersamlega á skjön
við fimmaurabrandarana á undan.
Hugmyndin að baki Kroppa-
skipta er í sjálfu sér ekki slæm.
Óforbetranleg’úr kvennabósi og
karlrembusvín sem lítur á konur
eins og leikföng sér til skemmt-
unnar er myrtur af þremur gull-
fallegum ástkonum sínum sem
allar hata hann. En guð sendir
hann aftur til jarðar því hann
kemst ekki inn í himnarann nema
honum takist að finna eina konu
sem getur lagt honum inn gott
orð. Og til að gera honum erfið-
ara fyrir sendir hann karlrembuna
niður aftur sem kynþokkafulla
ljósku.
Remban vaknar i líkama Ellen
Barkin, sem er oft kostuleg í stöð-
unni, en í stað þess að láta
hann/hana finna rækilega fyrir
eigin meðulum í karlaveröldinni,
sem maður hélt að væri aðalmál-
ið, snýst myndin í kringum hallær-
islegt framapot aðalpersónunnar
og lítt merkilegar aukapersónur í
kringum hana.
Brandarar dragast á langinn án
þess að vera fyndnir; Edwards
hefur greinilega haldið að hægt
væri að hlæja endalaust að Bark-
in misstíga sig á háhæluðum
skóm.
Einstaka sinnum glittir í alvöru
gamansemi en alltof sjaldan því
miður.