Morgunblaðið - 02.02.1992, Page 16
16 C
MORGUNBLAÐIÐ MENNINGARSTRAUMAR SUNNUDAGUR 2. FEBRÚAR 1992
Fær Streisand
Óskarinn?
KONA hefur aldrei feng-
ið Óskarinn fyrir
bestu leikstjórn, en svo get-
ur farið að kona vinni stytt-
una í fyrsta sinn í þeim
flokki í ár því sjaldan hafa
jafnmargar myndir kven-
leikstjóra keppt um útnefn-
ingu til verðlaunanna.
Alls koma sex myndir
eftir kvenmenn til greina
þegar talað er um útnefn-
ingar til Óskarsverðlaun-
anna. Þær eru „Little Man
Tate“ eftir Jodie Foster,
„Rambling Rose“ eftir
Martha Coolidge, „Rush“
eftir Lili Fini Zanuck, „The
Doctor" eftir Randa Haines,
„Europa, Europa" eftir
Agnieszka Holland og loks
„The Prince of Tides“ eftir
Barbra Streisand.
Hún þykir reyndar sigur-
stranglegust af þeim en það
er á brattann að sækja. Nú
eru 16 ár liðin frá því fyrsta
og eina konan, sem útnefnd
hefur verið til verðlaunanna
af Óskarsakademíunni,
hlaut þann heiður en það
var ítalski leikstjórinn Lina
Wertmuller fyrir myndina
Sjö fegurðardísir. Alls kjósa
287 leikstjórar akadem-
íunnar um hver hreppir
verðlaunin en aðeins sjö af
þeim eru konur.
Streisand kvartaði sáran
undan því þegar fyrsta
mynd hennar, „Yentl“, var
UFranska leikkonan Anne
Parillaud, sem hlaut
heimsfrægð þegar hún lék
Nikítu í samnefndum þriller
Lucs Bessons, fór þegar til
Hollywood og nú verður
fyrsta myndin hennar
vestra frumsýnd í þessum
mánuði. Hún heitir „Map
of the Human Heart“ og
er eftir Vincent Ward. Með
aðalhlutverkin auk Pa-
rillaud fara Patrick Berg-
in, Jason Scott Lee og
John Cusack. Efni myndar-
innar snýst um gamla góða
ástarþríhyringinn.
MÞá verður einnig fljótlega
frumsýnd myndin „Miss-
issippi Masala“ eftir ind-
verska leikstjórann Mira
Nair, sem hlaut alþjóða-
frægð fyrir mynda sína
„Salaam Bombay!" um líf
bamanna á götum stórborg-
arinnar. Denzel Washing-
ton fer með aðalhlutverkið
í myndinni sem segir frá
svertingja er verður ást-
fanginn af indversk ættaðri
stúlku í Suðurríkjum
Bandaríkjanna.
MMargir bíða eflaust með
óþreyju eftir mynd Ric-
hards Attenboroughs um
ævi og ástir Charlie Chapl-
ins með Robert Downey
yngri í hlutverki meistarans.
Það hefur ekki gengið and-
skotalaust að koma mynd-
inni af stað og hafa a.m.k.
þrír handritshöfundar unnið
við hana á einu eða öðru
stigi en þeir eru William
Boyd, William Goldman,
sennilega frægasti hand-
ritshöfundurinn í Holly-
wood, og leikritaskáldið
Tom Stoppard. Framleið-
andi myndarinnar er Car-
olco, fyrirtækið sem auðg-
aðist á Rambó-myndunum
forðum.
ekki útnefnd árið
1983. Hún hafði
ástæðu til að
ætla að líkt og
kollegar
hennar, Ro-
bert Red-
ford (Ósk-
ar 1980)
og Warren
Beatty
(1981), fengi
hún náð fyrir augum
akademíunnar fyrir
metnaðarfulla frumraun.
„The Prince of Tides“
hefur fengið rífandi góða
dóma og Nick Nolte, sem
fer með aðalhlutverkið, er
talinn eiga góða möguleika
á að hreppa Óskarinn fyrir
bestan leik í karlhlutverki.
Akademían hefur áður
hampað vel tilfinningadr-
ama af svipaðri tegund eins
og t.d. „Terms of Edear-
ment“ og Kramer gegn Kra-
mer. En hvort Streisand
hljóti náð fyrir augum kol-
lega sinna í akademíunni er
vandi um að spá. Það yrði
þá saga til næsta bæjar.
Skopmynd af Strei-
sand úr bandarísku
tímariti; verður hún
fyrst kvenna til að
hljóta Óskarinn fyrir
leikstjórn?
14.000 sjá
„Bilunina“
Alls hafa nú um 14.000
séð gamanmyndina
Bilun í beinni útsendingu
eftir Terry Gilliam með
Robin Williams og Jeff
Bridges í aðalhlutverkum
að sögn Karls Schöiths,
bíóstjóra.
Þá sagði hann ríflega
30.000 manns hafa séð
framtíðarþrillerinn Tor-
tímandann 2 og hann sagði
að enn kæmu 200 til 300
manns á íslensku bíómynd-
ina Böm náttúrunnar í
hverri viku en hún nálgast
30.000 manns í aðsókn.
Um þessa helgi byijuðu
myndimar „The Indian
Runner" eftir Sean Pen-
nog„Bingo“ en um næstu
helgi verður íslenska
myndin Ingaló framsýnd í
bíóinu (sjá annarstaðar).
Þegar sýningum á henni
líkur í aðalsalnum verður
nýjasta mynd Barböra
Steisand, „The Prince of
Tides", framsýnd. Nick
Nolte hreppti Golden Globe
verðlaunin fyrir leik sinn í
myndinni. Þar á eftir verð-
ur sýnd svertingjamyndin
„Boyz-N-the Hood“ en
páskamynd Stjömubíós
verður Krókur, metsölu-
mynd Steven Spielbergs.
Hún er komin yfir 100
milljón dollara markið í
aðsókn vestra.
/VII
KVIKMYNDIR^
/Hver eru hin helgu véf
Frn Skmeyjum
Hrafn Gunnlaugsson
kvikmyndaleikstjóri mun
gera sína sjöttu bíómynd
í fullri lengd næsta sum-
ar en hann hlaut annan
af tveimur stærstu
styrkjum Kvikmynda-
^jóðs til að gera myndina
Hin helgu vé. Er hún
fyrsta myndin hans frá
1982 sem ekki gerist á
víkingatímanum og því
liggur beinast við að
spyrja Hrafn hvort tíma-
biU víkingamynda hans
sé lokið.
Það veit maður aldrei,"
segir hann. „Maður
hefur átt í ástarævintýram
sem hafa kuinað en hitnað
aftur án þess jafnvel að
maður
vildi það.
Enginn
ræður
sinni veg-
ferð.“ Og
hann
heldur
áfram:
„Eftir að
hafa gert sjónvarpsþættina
um Hvíta víkinginn fínnst
mér ég geta kvatt tímabilið
sáttur með sama bravúm-
um og ég byrjaði það með
Hrafninum flýgur þótt orð-
ið hafi slys með bfómyndina
um Hvíta víkinginn, sem
eftir Amald
Indriðason
í skugga hrafnsins:
vikingatímabilinu lokið?
var stytt gegn mínum vilja.
Hin helgu vé á það sam-
eiginlegt með fyrstu bíó-
mynd Hrafns, Öðali feðr-
anna, að byggja á persónu-
legri reynslu hans. I Óðal-
inu sem táningur í sveit en
í Hinum helgum véum á
atburði sem henti hann
þegar hann var barn í sveit
á Skáleyjum á Breiðafirði
hjá Guðmundi bónda á
Norðurbæ, eins og hann
segir. „Þaðan er framhug-
myndin komin en annars
er sagan skáldskapur sem
getur átt við hvar og hve-
nær sem er en nýtur sín
kannski best í þessu sér-
staka umhverfi sem er hér
á íslandi." Hin helgu vé er
Hrafn Gunnlaugsson
að einu litlu leyti tengd
víkingamyndum Hrafhs. I
henni er víkingahaugur
sem ungan dreng dreymir
um að bijóta upp f von um
að finna guil og dýrgripi.
„Það er orðið mjög langt
sfðan ég gerði bfómynd á
vegum Kvikmyndasjóðs,
eða Qögur til fimm ár frá
því sjóðurinn Qármagnaði
15 prósent af kostnaði í
skugga hrafnsins," segir
Hrafn. „Á þessum tíma hef
ég verið með tvö verkefni
f gangi, annars vegar Písl-
arsögu Jóns Magnússonar,
sem er mun stærra í snið-
um og kostar ekki undir
140 milljónum króna, og
hins vegar Hin helgu vé,
sem kemur til með að kosta
um 90 milljónir. Ég sótti
um bæði þessi verkefni en
æskileg styrkupphæð í
sambandi við Píslarsöguna
er meiri en allt fé sjóðsins.
Niðurstaðan var því hin
Helgu vé. Ég held það verði
tiltölulega auðvelt að finna
erlent fjármagn í Hin helgu
vé,“ segir Hrafn en hann
skrifaði handritið að mynd-
inni upphaflega á sænsku
fyrir hálfum áratug eða svo
og hefur unnið við það í
rólegheitum síðan. „Mig
hefur alitaf langað til að
gera barnamynd eins og
þessa fyrir fólk á öllum
aldri,“ segir hann en hann
vann sfðastliðið sumar við
gerð fjölskyldumyndar fyr-
ir sjónvarp uppúr handriti
Davíðs Oddssonar. Helstu
hlutverkin f Hinum helgu
véum verða í höndum
krakka en stærsta full-
orðinshlutverkið er „heit-
feng bóndadóttir, sem var
einskonar fóstra mín á
þessum tíma“.
Hrafn sagði myndina
geta orðið tilbúna í
mars/apríl á næsta ári.
Páskamynd;
úr Króki
Steven Spi-
elbergs.
IBÍÓ
Islenska bíómyndin
Ingaló eftir Asdísi
Thoroddsen verður
framsýnd í Stjömubíói
þann 8. febrúar nk.
Með aðalhlutverkin í
henni fara Sólveig
Arnardóttir, sem leikur
titilhlutverkið, en af öðr-
um leikuram má nefna
Ingvar Sigurðsson, Egg-
ert Þorleifsson, Þorlák
Kristinsson eða Tolla,
Magnús Ólafsson og
Bessa Bjarnason.
Ásdís skrifar handrit-
ið auk þess sem hún leik-
stýrir, en myndin segir
frá stúlkunni Inguló sem
í byijun sögunnar vinnur
á trillu hjá pabba sínum
norður á Ströndum.
Tökur stóðu yfir allt
síðasta sumar en mynd-
in kostar um 50 milljón
krónur. Framleiðendur
era Gjóla hf., Transfílm
í Þýskalandi og Filminor
í Finnlandi.
Ingaló er fyrsta
myndin af fjóram ís-
lenskum bíómyndum
sem framsýndar verða á
þessu ári.