Morgunblaðið - 02.02.1992, Blaðsíða 19
C 19
MORGUNBLAÐIÐ FOLK I FRETTUM SUNNUDAGUR 2. FEBRÚAR 1992
fyrrgreindra hjóna tekur á móti
þeim.„Þetta eru engar venjulegar
Flórídaferðir, á dagskrá er nefnilega
7 daga skemmtisigling um Karabíska
hafið. Verðið er glettilega lágt, en
þó aldrei í líkingu við það sem þeir
bandarísku geta boðið sínum farþeg-
um. Flugið frá Bandaríkjunum til
en úr þeim hópi munu erlendir
dómarar velja fólk í tíu manna
úrslitahópa. Ur þeim hópum verða
svo valdir einstaklingar sem þurfa
að sýna tveggja mínútna „rútínu“
að eigin frumkvæði. En í byijun
mun leiðbeinandi leiða fólk í gegn
um 45 mínútna æfingartíma.
„Það geta allir tekið þátt í þessu
móti. Það kom upp smámisskiln-
ingur hjá fólki í byijun, að það
ætti að standa eitt uppi á sviði og
gera æfingar, en það verða allir
fyrst í stórum hóp og þeir bestu
síðan valdir úr. Þannig fær fólk
styrk frá hvort öðru og þetta verð-
ur í raun eins og venjulegur æf-
ingatími, þar til að úrslitunum
kemur,“ sagði Glódís Gunnars-
dóttir hjá Stúdíói Jónínu og Ág-
ústu, en sú æfingarstöð er ein
margra sem senda mun keppendur
á mótið. „Þeir sem hafa æft
aerobic í einhvern tíma geta tekið
þátt, þetta er ekki bara fyrir kenn-
ara eins og margir halda, og mun
skiptast í tvo flokka. Sigurvegari
verður úrskuðrðaður í karla- og
kvennaflokki og svo parakeppni.
Málið er að taka þátt í skemmti-
legu kvöldi, hver vinnur skiptir
ekki máli. En fólk þarf að hafa
úthald í einn æfingartíma og geta
fylgt leiðbeinandanum eftir í byij-
un. Þegar valið er til úrslita þá
er farið eftir styrk keppenda, sam-
hæfingu spora og hreyfmga, lið-
leika og snerpu. Þetta verður fjör-
ug keppni og lifandi.
Verðlaun fyrir sigur er þátttaka
í heimsmeistaramótinu í Japan,
þar sem Suzuki greiðir allan kostn-
að. Skráning keppenda er þegar
hafin, en hún fer fram í World
Class, Suzuki bílum og Stúdíói
Jónínu og Ágústu.
Nissan Patrol
konungur fjallanna
árgerd 1992
7 manna hágæðabíll með nýrri 4,2 lítra
bensínvél og 4ra gíra sjálfskiptingu.
Auk þess hefur nýi Patrolinn tvær miðstöðvar,
eina í mælaborðinu og aðra í miðjum bílnum og
öll hugsanleg þægindi.
Einnig fáanlegur með hinni sívinsælu 2,8 lítra
turbó díselvél
Stórsýning um helgina kl. 14-17.
Verið velkomin
Ingvar
Helgason hf.
Sævarhöfða 2
sími 91-674000
FERÐABÆR
Efla tengslin með
eignaraðild í
ferðaskrifstofu
*
ASteindórspianinu, í gamla
Steindórshúsinu er nú ferða-
skrifstofa sem heitir Ferðabær. For-
stjóri hennar heitir Birgir Sumarliða-
son, þrautreyndur flugmaður til
margra ára. Á tímum þegar smærri
ferðaskrifstofur eiga undir högg að
sækja og sumar geyspa golunni, fæ-
rast Birgir og Ferðabær í aukana.
Nýir hluthafar hafa keypt sig inn í
fyrirtækið og komið á miklum við-
skiptum. Hvaða fólk skyldi nú vera
hér á ferðinni og hvað bera næstu
mánuðir í skauti sér hjá Birgi Sumarl-
iðasyni?
Það gerðist í fyrra sumar, að
Bandaríkjamaður búsettur í Florida
og giftur íslenskri konu, keypti hlut
í Ferðabæ. Þau eru sjálf með ferða-
mannaþjónustu, nánar tiltekið í Fort
Lauderdale og þetta gerðu þau í því
augnamiði að senda bandaríska
ferðamenn til íslands. Þetta er farið
að skila sér í vaxandi mælj, og þá
með þeim hætti, að ferðafólkið stopp-
ar hér í viku á leið sinni til Evrópu,
oft Þýskalands þar sem við leigjum
því sumarhús nærri Trier. Á íslandi
býður þessa fólks dagskrá ef það
kærir sig um. Einnig koma veiðimenn
á vegum þessara aðila, bæði stanga:
og skotveiðimenn ,“ segir Birgir „í
kjölfarið á þessum hjónum í Flórída
komu aðrir aðilar, vinafólk þeirra í
Florída, einnig með íslandstengsl, og
keyptu hlutabréf í fyrirtækinu,_gagn-
gert til að efla tengslin við ísland.
Það má því segja að við höfum feng-
ið vítamínsprautu síðustu misserin.“
Ekki er þó um einstefnu að ræða,
því Ferðabær sendir á móti íslendinga
til Flórída, þar sem ferðaskrifstofa
Morgunblaðið/Emilía.
Athafnamaðurinn Birgir Sumarliðason í Ferðabæ.
Evrópu kostar aðeins 328 dollara,"
segir Birgir.
Ferðabær er uppbyggður með
nokkuð öðrum hætti. heídur en geng-
ur og gerist. Birgir lýsir því: „Þetta
er hlutafélag og það sem kannski
merkilegast er, að meðal hluthafa eru
ýmis bæjar- og sveitafélög úti á
landsbyggðinni. Einnig fyrirtæki í
sjávarplássum. Það lýsir mikilli víð-
sýni, því ferðamannastraumur getur
beint miklum tekjum til þessara að-
ila, bæði beint og óbeint. Þetta hafð-
ist þó fyrst og fremst vegna þess að
út um allt land er fólk sem þekkir
mig þar sem ég var í áætlana- og
sjúkraflugi um allt land í 15 ár. Það
hefst ekkert nema að fara af stað
og fara til fólksins, kynna sig og sitt.
Það er hægt að sitja í einhveijum
stjórastól og bíða eftir að hlutirnir
gerist. En það getur verið löng bið
og lítt arðvænleg."
Þú svalar lestrarþörf dagsins
ásíöum Moggans! ✓
PINISSAN