Morgunblaðið - 09.02.1992, Side 4
4 FRÉTTIR/YFIRUT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. FEBRUAR 1992
ERLENT
INNLENT
Kúveitar
ræða um
kaup á hlut í
Olíufélaginu
Samband íslenskra samvinnu-
félaga hefur undanfama daga
átt í viðræðum við fulltrúa frá
Kúveit um sölu á 31% hlut fé-
lagsins í Olíufélaginu h/f. Rætt
er um að Kúveitarnir kaupi eign-
arhlutinn á sexföldu nafnverði
eða fyrir upphæð sem svarar
rúmum 1.100 millj. króna.
Landsbanki íslands hefur öll
hlutabréf Sambandsins að hand-
veði á móti 1.100 millj. skuld
þess við bankann. Hlutabréf 01-
íufélagsins eru nú skráð hjá verð-
bréfafyrirtækjum á 4,5 földu
nafnverði upp í 5,7 falt nafnverð.
Kristján syngur í
Metropolitan
Kristján Jóhannsson óperu-
söngvari hefur gert samning við
Metropolitan-
óperuna i New
York um að
syngja þar í
tveimur óperum
í febrúar á
næsta ári. Um
er að ræða óper-
urnar Cavaleria
rusticana og II
trovatore og syngur Kristján
aðalhlutverkið í þeim báðum. Um
samninginn segir Kristján að
hann sé hámark þess sem óperu-
söngvari geti óskað sér.
Mikið atvinnuleysi
Alls voru 1.043 manns á at-
vinnuleysisskrá í Reykjavík 31.
janúar en á sama tima í fyrra
voru þeir 372 færri. Hinn 3.
febrúar var tala atvinnulausra
komin upp i 1.092. Flestir á at-
vinnuleysisskrá eru verkamenn
og verkakonur. Þá er verulegur
hópur verslunar- og skrifstofu-
manna atvinnulaus. Meira at-
vinnuleysi hefur ekki mælst síð-
an 1969.
Flest bendir til að ijöldi at-
vinnulausra á landinu öllu hafi
verið yfir 3% af mannafla á
vinnumarkaðinum. Hlutfallið
jafngildir því að um 3.800 manns
hafi verið að meðaltali á atvinnu-
leysisskrá í mánuðinum.
Bifreiðaskoðun hagnast um
160 millj. á tveimur árum
Hagnaður af Bifreiðaskoðun
íslands fyrstu tvö starfsár henn-
ar 1989 og 1990 nam um 160
millj. króna á núgildandi verðlagi
og jókst eigið fé fyrirtækisins
um rúm 139% að raungildi á
þessum árum. Bifreiðaskoðunin
hefur meðal annars sætt gagn-
rýni vegna hárrar álagningar á
skráningarplötur bifreiða og
tekna vegna eigendaskipta.
11 þúsund Visa-korthafar
stóðu ekki í skilum
Rúmlega 11 þúsund korthafar
höfðu ekki staðið skil á Jóla-
Visa- reikningnum“ sínum síð-
asta eindaga. Úttekt á Visa-kort
frá miðjum desember til miðs
janúar var um 4 milljarðar en
þar fóru 900 millj. í vanskil.
Tvölföldun var á óskum um
greiðslufrest hjá Eurocard.
ERLEIMT
Aðstoð nú
eðanýtt
einræði
TÍMINN fyrir aðstoð Vesturlanda
við Rússland er að renna út og
verði ekki brugðist hart við er
hætta á, að fasistar eða kommún-
istar taki völdin í landinu með
nýju köldu stríði
milli austurs og
vesturs. Kom
þetta fram hjá
Borís Jeltsín,
forseta Rúss-
lands, þegar
hann var í opin-
berri heimsókn í
Frakklandi í síð-
ustu viku. Sagði
hann, að næstu þrír mánuðir réðu
úrslitum og gagnrýndi Frakka og
franska fjármálamenn fyrir litla
aðstoð og litlar fjárfestingar í
Rússlandi. Þá kom það fram hjá
Konstantín Kobets, hershöfð-
ingja og helsta ráðgjafa Jeltsíns
í hermálum, að þolinmæði her-
manna í Rússlandi og öðrum fyrr-
verandi sovétlýðveldum væri á
þrotum vegna bágra kjara. Ættu
þeir hvorki vísa vinnu né húsnæði
að herþjónustu lokinni og taldi
Kobets hættu á, að upp úr syði,
einkum á spennu- og átakasvæð-
um. í vikunni ákváðu rússnesk
stjómvöld að milda nokkuð efna-
hagsaðgerðimar með því að
lækka virðisaukaskattinn og
hækka eftirlaun, sem nema nú
550 rúblum á mánuði. Talið er,
að 1.300 rúblur þurfí til að hafa
í sig og á í Rússlandi en 80-90%
Rússa hafa ekki þær tekjur.
Valdaránstilraun í Venezúela
FIMM deildir í stjórnarhernum í
Venezúela reyndu að ræna völd-
unum í landinu aðfaramótt sl.
þriðjudags og höfðu um stund
aðsetur ríkisstjórnarinnar og for-
setans, Carlos Andres Perez, á
valdi sínu. Tókst forsetanum í
tvígang að komast undan upp-
reistarmönnunum en hermenn
hollir honum gerðu fljótlega út
um byltingartilraunina. Undirrót
uppreisnarinnar er talin vera óán-
ægja með efnahagsaðgerðir
stjómvalda og bág kjör og líklega
með tilliti til þess hefur stjómin
ákveðið að taka vægilega á upp-
reisnarhermönnunum. Hún ætlar
hins vegar ekkert að gefa eftir í
efnahagsmálunum.
Morðalda á N-írlandi
FIMM menn vom skotnir til bana
á veðmangarastofu í kaþólsku
hverfí í Belfast á Norður-Irlandi
í síðustu viku og höfðu þá tíu
manns fallið í valinn á aðeins ein-
um sólarhring. Gengur lögreglan
ekki að því gruflandi, að morð-
sveitir mótmælenda hafí verið að
verki í veðmang-
arastofunni en
þær höfðu hótað
að hefna átta
verkamanna
mótmælendatrú-
ar, sem morð-
ingjar IRA, írska
lýðveldishersins,
drápu fyrir
skömmu. Daginn áður hafði geð-
veill lögreglumaður skotið þijá
menn í höfuðstöðvum Sinn Fein,
stjómmálaflokks IRA, í Belfast
og síðan sjálfan sig og þá var
felldur einn liðsmanna IRA þegar
hann ætlaði að veita nokkrum
hermönnum fyrirsát. Norður-írar
-og Belfastbúar sérstaklega em
felmtri slegnir vegna þessara at-
burða og óttast, að eins konar
borgarastyijöld sé í aðsigi.
Enn reynt við EES
ENN er unnið að því að bjarga
samningnum um Evrópska efna-
hagssvæðið, EES, og var það nið-
urstaða utanríkisráðherrafundar
Evrópubandalagsins, EB, að
framkvæmdastjóm þess gæti sýnt
meiri sveigjanleika í viðræðunum
við Fríverslunarbandalag Evrópu,
EFTA. Sagði utanríkisráðherra
Porúgala, að EB væri staðráðið í
að ganga sem fyrst frá samningn-
um við EFTA.
Höfuðstöðvar Evrópudómstólsins í Lúxemborg.
Tekist á um grundvallar-
atríði í EES-samningxmum
NIÐURSTÖÐUR samningaviðræðna Evrópubandalagsins (EB) og
Fríverslunarbandalags Evrópu (EFTA) um sameiginlegan markað
hafa verið í óvissu undanfamar vikur vegna athugasemda dóm-
stóls EB við samningsdrögin eins og þau lágu fyrir í byijun desemb-
er. Það kemur í hlut íslendinga að freista þess að leiða samning-
ana til lykta en þeir tóku við forsæti í ráðherraráði EFTA um síð-
ustu áramót.
Hannesi Hafstein sendiherra ís-
lands í Brussel var falið að stýra
samningunum af hálfu EFTA og
leita færra leiða í samráði við
samningamenn EB. { janúar átti
hann frumkvæði að því að EFTA
legði fram hugmyndir um hugsan-
lega málamiðlun í ágreiningnum
sem snýst fyrst
og fremst um fyr-
irkomulag dóm-
stóla og eftirlits-
stofnana með
framkvæmd
samningsákvæða
Evrópska efna-
hagssvæðisins. .
Jafnframt átti Hannes frumkvæði
að því að kynna fulltrúum aðildar-
ríkja EB innihald tillagna EFTA.
Samkvæmt heimildum í Brussel
mæltist það frumkvæði EFTA illa
fyrir innan framkvæmdastjórnar
EB sem taldi að með 'því hefðu
samningamenn EFTA sniðgengið
framkvæmdastjórnina. Að margra
mati er hins vegar ljóst að með
þessu hafi EFTA undir forystu
Islendinga stuðlað að tiltölulega
jákvæðum niðurstöðum utanríkis-
ráðherra EB í byijun vikunnar.
Ósættanleg sjónarmið?
í drögum að samningi um EES
var gert ráð fyrir sameiginlegum
dómstól EB og EFTA þar sem EB
hefði meirihluta dómara og þess
vegna alla möguleika á að ráða
niðurstöðum. Evrópudómstóllinn
vísaði hins vegar þessum hug-
myndum á bug þar sem þær fælu
í sér umtalsverða hættu á að völd
dómstólsins skertust.
í rauninni blasir við að mikilvæg
atriði í samningsumboði fram-
kvæmdastjórnarinnar frá í júní
1990 stangast á. Megináhersla er
lögð á það í umboðinu að sömu
reglur gildi innan EES og sama
túlkun á þeim verði tryggð jafn-
framt því sem sjálfstæði stofnana
EB sé á engan hátt skert. Að þessu
gefnu er vart hægt að hugsa sér
að hugmyndin um sömu túlkun
gangi upp öðruvísi en með einum
sameiginlegum dómstóli. EB hefur
hafnað aðild EFTA að þessum
dómstóli og lagt til að Evrópudóm-
stóllinn gegni þessu hlutverki. Af-
staða EFrA-ríkjanna er skýr, ekk-
ert þeirra er tilbúið til að fallast á
lögsögu erlendra dómstóla.
Samkeppni
í þessum viðræðum er í fyrsta
lagi tekist á um samkeppnisreglur,
eftirlit með framkvæmd þeirra og
viðurlög vegna brota á þeim. Nú
þegar hefur framkvæmdastjórn
EB og Evröpudómstóllinn íhlutun-
arrétt innan EFTA vegna þessa
málaflokks. Sett hefur verið fram
tillaga um að í EES-samningnum
verði greint á
milli „blandaðra
mála“, þ.e. mála
sem snerta aðild
innan EFTA og
EB, og „hreinna
rnála" sem eru
mál sem snerta
einungis aðila
innan annars hvors bandalagsins.
í hreinum málum yrði lögsaga við-
komandi bandalags óskert en um
öll blönduð mál mætti fjalla innan
EB ef framkvæmdastjórn banda-
lagsins krefðist þess. EFTA hefur
haldið fast í þá reglu að blönduð
mál falli undir EFTA ef meira en
33% af veltu fyrirtækja er innan
EFTA. EB hefur lagt til að Evrópu-
dómstóllinn verði áfrýjunardóm-
stóll í öllum tilvikum.
EES-reglur
í öðru lagi er tekist á um túlkun
á reglum EES sem varða aðra
þætti en samkeppnismál. Báðir
samningsaðilar eru sammála um
nauðsyn þess að sami skilningur
sé á ákvæðum samningsins og
koma verði í veg fyrir að samning-
urinn þróist á mismunandi vegu
meðal aðildarríkja hans. Eina leið-
in til að tryggja þetta er að stofna
sameiginlegan dómstól, því hefur
verið hafnað. Evrópubandalagið
hefur lagt til að reynt verði að
leysa ágreiningsmál sem mest í
sameiginlegri stjórnarnefnd EES.
Það þýðir að leitað verði pólitískra
lausna á ágreiningsmálunum. Á
þetta geta EFTA-ríkin fallist en
vilja jafnframt geta skotið málum
t.d. til Evrópudómstólsins til um-
sagnar eða úrskurðar án þess að
niðurstöður hans verði bindandi
fyrir EFTA.
Önnur ágreiningsmál
í þriðja lagi er tekist á um mái
sem ekki snerta reglur EB beinlín-
is og mál sem kunna að rísa vegna
þess að einhver EFTA-ríki neiti
að taka upp nýjar EB-reglur sem
eiga að gilda innan EES. í samn-
ingnum er gert ráð fyrir að komi
til þessa geti EB gripið til gagnað-
gerða. Rætt hefur verið um að sá
hluti samningsins sem viðkomandi
reglur ná til verði tímabundið felld-
ur úr gildi eða EB geti gripið til
annarra gagnaðgerða. EFTA-ríkin
hafa lagt áherslu á nauðsyn þess
að hægt verði að vísa slíkum mál-
um til gerðardóms. Gerðardómur-
inn yrði skipaður einum dómara
frá hvorum aðila og oddamanni
sem báðir aðilar kæmu sér saman
um.
Þröngur stakkur
Þegar umsögn Evrópudómstóls-
ins lá fyrir í desember komú samn-
ingamenn bandalaganna sér sam-
an um grundvallaratriði sem taka
skyldi mið af í áframhaldandi
samningaviðræðum. Fullt tillit
skyldi tekið til umsagnar Evrópu-
dómstólsins. í engu skyldi breyta
EES-samningnum eins og hann lá
fyrir á annan hátt en varðaði kaf-
lann um dómstóla. Málamiðlun
mætti ekki fela í sér breytingar á
Rómarsáttmálanum. Stefnt yrði
að því að finna einfaldar lausnir
þannig að standa mætti við fyrri
tímasetningar. Málamiðlunin yrði
að tryggja sjálfstæði samningsað-
ila og samræmi í túlkun EES-
reglna.
Ljóst er að samningamönnum
er ætlað að lyfta Grettistaki á
næstu dögum. Það er sennilega
ekki út í hött að kalla á krafta-
verk. Segja má að breytt afstaða
innan beggja bandalaga til samn-
ingsins kunni að auðvelda einhvers
konar bráðabirgðalausn. Hún
bygðist á því að einungis væri
verið að semja til skamms tíma
þar sem flest EFTA-ríkjanna verði
búin að sækja um aðild að EB
áður en þetta ár er liðið. Á hinn
bóginn vex þeirri skoðun fylgi inn-
an EB að EES geti vel dugað sem
samstarfsvettvangur við ríkin í
Mið- og Austur-Evrópu þar til þau
eru tilbúin til fullrar aðildar. Verði
þetta viðhorf ofan á er ljóst að
ekki verður tjaldað til einnar nætur
með samningnum. Flestir telja að
íslendingar einir innan EFTA vilji
EES-samninginn samningsins
vegna og innan EB eru litlar líkur
taldar á íslenskri umsókn að band-
alaginu á næstunni. Það er Ijóst
að fyrirkomulag samkeppnismála
og dómstóla varða íslendinga ekki
eins miklu og önnur EFTA-ríki
enda eru líkurnar á því að til mála-
rekstrar komi vegna íslendinga
eða íslenskra fyrirtækja taldar litl-
ar. Þess vegna þykir ekki ósenni-
legt að bráðabirgðalausn henti ís-
lendingum og er röksemdin þá sú
að þeir hljóti að semja fljótlega
um breytingar á EES-samningnum
verði þeir orðnir einir eftir í EFTA.
BAKSVID
Krislófer M. Kristinsson
skrifarfrá Brussel