Morgunblaðið - 09.02.1992, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ HUGVEKJA/VEÐUR SUNNUDAGUR 9. FEBRÚAR 1992
9
Hinn þjáði Guð
Ekki veit ég hvernig ég sæki
að þér í dag lesandi góður.
Ef til vill ert þú í sárum
og sorgum vegna einhvers harms
sem yfir-þig hefur dunið í nýlið-
inni viku. Ef til vill ert þú með
áhyggjur eftir nóttina sem leið.
Kannski var unglingurinn þinn
eða maki illa á sig kominn þegar
hann kom heim í nótt. Kannski
náði deila í fjölskyldunni hámarki
í gærkvöldi. Hver veit nema sjúk-
dómur eða dauðsfall hafi sótt ein-
hvern heim sem þér þykir óum-
ræðanlega vænt um. Oft þegar
ég ek um göturnar verður mér
litið yfir til annarra ferðalanga á
strætum lífsins er skjótast hjá
gangandi eða akandi. Ekki sjaldan
skýtur upp spurningunni í huga
mér: „Hvernig
ætli þess-
um/þessari líði í
dag?“ Öll berum
KRISTNIA
KROSSGÖTUM
Jesú dó á slíku tæki. Guðspjöllin
enduróma af kvöl hans síðustu
dagana er hann lifði. Ekki nóg
með að hann var krossfestur held-
ur yfirgáfu allir hann á dauða-
stundinni, allir nema María móðir
hans og lærisveinninn sem hann
elskaði. Fólkið sem hann hafði
læknað og líknað sneri við honum
bakinu og heimtaði að hann yrði
krossfestur. Allir sáu að málstað-
ur hans hlaut að hafa beðið ósig-
ur. Hver vill fylgja hinum sigraða?
Hvílík örvænting skín ekki út úr
andlátsorðum Jesú Krists er hann
hrópar: „Guð minn, Guð minn,
hví hefur þú yfirgefið mig?“
Við höfum eflaust öll einhvern
tímann hrópað álíka orð á lífsins
leið. En i munni Jesú Krists hlutu
þau að hafa sér-
staka merkingu,
því hann hafði
sagt öllum að
við okkar sorgir
í farteskinu í
gegnum lífið, sumar stórar og
aðrar smáar. Flest reynum við
einnig að vinna bug á þeim, alla
vega fela þær fyrir öðrum. Stund-
um tekst það. Stundum ekki.
Hefur aldrei hvai-flað að þér
spurningin hvar Guð eiginlega sé
þegar einhver óviðráðanleg þján-
ing hellist yfir þig? Er hann fjarri?
Er honum sama? Hvers vegna
lætur hann lífið fara svona með
okkur eins og stundum vill verða?
Þessar og aðrar líkar spurningar
eru ósköp skiljanlegar. Jafnvel
reiði sem beinist gegn Guði hljóta
flestir að kannast við. En vill
hann þessi áföll? Er honum sama?
Við mennirnir höfum aðeins einu
sinni mætt honum sem hverjum
öðrum vegfaranda er við hittum
á lífsins leið, í Jesú Kristi. Getur
líf Jesú Krists svarað einhveijum
af þessum spurningum sorgarinn-
ar? Allt of oft föllum við í þá
freistni þegar Jesú Krist ber á
góma, að setja upp helgisvip og
ræða um góð áhrif boðskapar
hans en gleyma um leið þjáningu
hans, baráttunni er hann stóð í,
sorg hans og reiði. Hvað vitum
við eiginlega um líf hans? Jú, það
eitt óvefengjanlegt, að hann var
krossfestur. Um það eru allar
heimildir fornaldarinnar sam-
mála, bæði andmælendur hans og
stuðningsmenn. Krossfestingin
var ekki sigurreifur dauðdagi
glaðbeittrar hetju. Að festa menn
á kross var kvalarfull aftaka sem
Rómveijar, stærsta heimsveldi á
tíma Jesú, beittu til að niðurlægja
og pína óvini ríkisins til dauða.
hann og Guð,
skapari himins
og jarðar, væru eitt. Slíkt örvænt-
ingarmyrkur grúfði yfir Jesú
Kristi á krossinum. Hann var
útskúfaður af öllum, af Guði föður
sínum og mönnum. Honum höfðu
allir hafnað. Sumir, og það marg-
ir, segja okkur að Jesú Kristur
hafi tekið á sig slíkan dauðadag
til þess að greiða Guði illvirki
mannanna. Þeir hinir sömu halda
því fram að misgjörð manna gegn
Guði sé svo stór að enginn geti
greitt hana nema Guð sjálfur, en
að hana þurfi að greiða. Allt það
illa er menn gera er þá sett upp
sem reiknidæmi gagnvart Guði.
Til að greiða skuldina hafi Guð
látið son sinn deyja í stað manna.
Reikningurinn er gerður upp og
stendur á núlli. Guð fær sitt. En
hvað snertir slíkt himneskt banka-
uppgjör okkur sem búum við oft
óbærilega erfiðleika? Ef Guð tekst
ekki raurtverulega á við þá eymd
er lífið á stundum hellir yfir okk-
ur, erum við engu bættari þó hið
himneska bókhald sé hæft til und-
irritunar á einhverri ímyndaðri,
guðlegri bókhaldsskrifstofu. Við
þurfum áfram að bera þjáning-
una. Þó við séum öll af vilja gerð
til þess að lappa upp á heiminn
þá er eins og það sé óvinnandi
verk. Nægir að hlust-a á fréttir
fjölmiðla til þess að skynja það.
Auk þess getum við einfaldlega
ekki losað okkur við sjúkdóma,
slys, og annað slíkt er enginn
ræður við. Þau er fyrir hinu illa
verða eru oftar en ekki saklaus
fórnarlömb tilviljunarkenndra að-
stæðna. Andspænis örvænting-
Þórhallur Heimisson
unni vaknar enn og aftur spurn-
ingin sem tæpt var á hér fyrr:
Hvaða máli skiptir okkur dauði
Guðs á krossi þegar lífið er okkur
kross eftir sem áður, ef sá dauði
er aðeins til þess að gera upp
bókhaldið hjá almættinu? Kross
Jesú Krists og neyðaróp hans á
Golgata svara þessari spurningu.
Með dauða sínum á krossi teygði
Guð sig inn í það hyldjúpa myrk-
ur þjáninganna sem stundum vill
umlykja okkur. Þar varð hann
einnig af þeim sem í örvæntingu
sinni hrópa: „Hví hefur þú yfirgef-
ið mig Guð?“ Með þjáningu sinni
hefur hann tekið sér stöðu í hinu
algera myrkri, hjá okkur, einn af
okkur. Af því að hann var kvalinn
á krossinum er Guð, hinn þjáði
Guð, hvergi nær en þar sem þján-
ingin er mest, þar sem sjúkdómar
heija, vímuefnabölið mergsýgur
fórnarlömb sín, örvæntingin kvel-
ur, mennirnir snúa baki við sjálf-
um sér og öðrum. Þar er Guð við
hlið hins vonlausa, heldur í hönd
hans og leiðir hann í myrkrinu,
út úr myrkrinu. Þannig héfur hið
illa ekkert vald, getur það ekki
aðskilið okkur frá Guði. Þannig
sigraða öllu. Dauði hans segir
okkur að hann en ekki þjáningin
hafi síðasta orðið í heiminum, af
því að hann hafi sopið bikar þján-
ingarinnar í botn. Þessa sam-
kennd hins þjáða Guðs skynjuðu
þeir sem biðu hryllilegs dauða í
útrýmingarbúðum nasista í öðru
heimsstríði. Þegar þeir urðu vitni
að sjúklegum kvalalosta ofsækj-
enda sinna hrópuðu þeir í örvænt-
ingu sinni: „Hvar ertu Guð?“
Svarið sem krossfesting og dauði
Jesú Krists veitti þeim var þetta:
„Þegar einhver hangir í gálganum
hangir Guð með honum! Þegar
einhver er pyntaður er Guð sömu-
leiðis pyntaður með honum! Þegar
börnin kafna í gasklefanum,
gengur Guð í dauðann með þeim.“
Því hvernig getur nokkur verið
utangarðsmaður þegar við hlið
hans stendur sá Guð er sjálfur
þjáðist og dó sem utangarðsmað-
ur, fyrir þá sem eru utangarðs-
menn? Það getur orðið okkur
huggun ef þungir þankar sækja
að við morgunverðarborðið í dag.
En sú huggun er ekki orðin tóm
heldur býr í henni hinn þjáði Guð
sem er næstur hinum einmana,
þjáða, sjúka eða fyrirlitna. Og sá
er ekki einn sem Guð er með.
Höfundur er fræðslufulltriii
þjóðkirkjunnar á Austurland
VEÐURHORFUR í DAG, 9. FEBRÚAR
YFIRLIT í GÆR: Um 500 km vestsuðvestur af Reykjanesi er 952 mb
lægð sem þokast norður og síðar austur.
HORFUR í DAG: Suðlæg átt víðast hvar á landinu. Skúrir eða él sunn-
an- og vestanlands. Þurrt og bjart á Norðaustur- og Austurlandi. Senni-
lega snjókoma á Vestfjörðum og vaxandi norðaustanátt.
HORFUR Á MÁNUDAG:
Nokkuð hvöss norðlæg átt. Snjókoma eða él um landið norðanvert,
en léttir til syðra. Frost á biiinu 3-8 stig.
HORFUR Á SUNNUDAG:
Minnkandi norðan- og norðaustanátt. Dálítil él norðaustantil, en úr-
komulaust og nokkuð bjart um landið sunnan- og vestanvert. Allt að
10-15 stiga frost í innsveitum, en víðast heldur minna úti við strendur.
Svarsfmi Veðurstofu íslands — veðurfregnir: 990600.
VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 6.00 í gær að ísl. tíma
Staður hiti veður Staður hiti veður
Akureyri +7 snjóél Glasgow 8 skýjað
Reykjavík 8 rigning og súld Hamborg 4 alskýjað
Bergen 6 rigning London 1 þoka
Helsinki 2 súld á síð. klst. LosAngeles 13 léttskýjað
Kaupmannahöfn 4 alskýjað Lúxemborg 1 þokumóða
Narssarssuaq 4-23 heiðskírt Madrid 2 þokumóða
Nuuk ^■20 léttskýjað Malaga 6 alskýjað
Osló 4-1 skýjað Mallorca 4 skýjað
Stokkhólmur 4 alskýjað Montreal +1 skýjað
Þórshöfn 9 alskýjað NewVork 2 alskýjað
Algarve 6 heiðskírt Orlando 10 heiðskirt
Amsterdam rt lágþokublettir París -r2 hrimþoká
Barcelona 3 þokumóða Madeira 10 léttskýjað
Berlín 6 mistur Róm 4 þokumóða
Chicago +7 snjóél á s. klst. Vín 4 skýjað
Feneyjar vantar Washington 1 léttskýjað
Frankfurt +2 hrímþoka Winnipeg -=-21 heiðskírt
TÁKN:
Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
s, Norðan, 4 vindstig:
Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
f * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
■JO Hitastig:
10 gráður á Celsíus
\7 Skúrir
*
V El
— Þoka
= Þokumóða
’, ’ Súld
OO Mistur
—j- Skafrenningur
[T Þrumuveður
Kvöld-, nœtur- og helgarþjónusta apótekanna í Reykjavik dagana 7. febrúar til 13.
febrúar, að báðum dögum meðtöldum, er í Laugarnesapóteki, Kirkjuteigi 21. Auk
þess er Árbœjarapótek, Hraunbœ 102B, opiö til kl. 22 alla daga vaktvikunnar nema
sunnudag.
Lœknavakt fyrir Reykjavik, Seltjamames og Kópavog i Heilsuverndarstöð Reykjavik-
ur við Barónsstíg frá kl. 17 til kl. 08 virka daga. Allan sólarhringinn, laugardaga og
helgidaga. Nánari uppl. i s. 21230.
Lögreglan í Reykjavík: Neyðarsimar 11166 og 000.
Læknavakt Þorfinnsgötu 14: Skyndimóttaka rúmhelga daga 10-16, s. 620064.
Tannlæknavakt - neyðarvakt um helgar og stórhátiðir. Simsvari 681041.
Borgarspítalinn: Vakt 8-17 virka daga fyrir fólk sem ekki hefur heimilislækni eða nær
ekki til hans s. 696600). Slysa- og sjúkravakt allan sólarhringinn sami simi. Uppl.
um lyfjabúðir og læknaþjón. í símsvara 18888.
Ónæmisaðgerðir fyrir fullorðna gegn mænusótt fara fram í Heilsuverndarstöð
Reykjavikur á þriðjudögum kl. 16.00-17.00. Fólk hafi með sér ónæmisskirteini.
Alnæmi: Læknir eða hjúkrunarfræðingur veitir upplýsingar á miðvikud. kl. 18-19 í
s. 91 -622280. Ekki þarf að gefa upp nafn. Samtök áhugafólks um alnæmisvandann
styðja smitaða og sjúka og aðstandendur þeirra í s. 28586. Mótefnamælingar vegna
HIV smits fást að kostnaöarlausu í Húð- og kynsjúkdómadeild, Þverholti 18 kl.
9-11.30, á rannsóknarstofu Borgarspítalans, virka daga kl. 8-10, á göngudeild Lands-
pítalans kl. 8-15 virka daga, á heilsugæslustöðvum'6g hjá heimilislæknum. Þag-
mælsku gætt.
Samtökin ’78: Upplýsingar og ráðgjöf i s. 91-28539 mánudags- og fimmtudagskvöld
kl. 20-23.
Samhjálp kvenna: Konur sem fengið hafa brjóstakrabbamein, hafa viðtalstima á
þriðjudögum kl. 13-17 í húsi Krabbameinsfélagsins Skógarhlið 8, s.621414.
Akureyri: Uppl. um lækna og apótek 22444 og 23718.
Mosfells Apótek: Opið virka daga 9-18.30. Laugard. 9-12.
Nesapótek: Virka daga 9-19. Laugard. 10-12.
Apótek Kópavogs: virka daga 9-19 laugard. 9-12.
Garðabær: Heilsugæslustöð: Læknavakt s. 51100. Apótekið: Virka daga kl. 9-18.30.
Laugardaga kl. 11-14.
Hafnarfjarðarapótek: Opið virka daga 9-19. Laugardögum kl. 10-14. Apótek Norður-
bæjar: Opið mánudaga - fimmtudaga kl. 9-18.30, föstudaga 9-19 laugardögum 10
til 14. Apótekin opin til skiptis sunnudaga 10-14. Uppl. vaktþjónustu í s. 51600.
Læknavakt fyrir bæinn og Álftanes s. 51100.
Keflavík: Apótekið er opið kl. 9-19 mánudag til föstudag. Laugardaga, helgidaga og
almenna frídaga kl. 10-12. Heilsugæslustöð, simþjónusta 4000,
Selfoss: Selfoss Apótek er opið til kl. 18.30. Opið er á laugardögum og sunnudögum
kl. 10-12. Uppl. um læknavakt fást í símsvara 1300 eftir kl. 17.
Akranes: Uppl. um læknavakt 2358. - Apótekið opið virka daga til kl. 18.30. Laugardaga
kl. 10-13. Sunnudagakl. 13-14. Heimsóknartími Sjúkrahússins kl. 15.30-16ogkl. 19-19.30.
Rauðakrosshúsið, Tjarnarg. 35. Neyðarathvarf opið allan sólarhringinn, ætlað börn-
um og unglingum að 18 ára aldri sem ekki eiga í önnur hús að venda. Opið allan
sólarhringinn. S. 91-622266. Grænt númer 99-6622.
Simaþjónusta Rauöakrosshússins. Ráðgjafar- og upplýsingarsími ætlaður börnum
og unglingum að 20 ára aldri. Ekki þarf að gefa upp nafn. Opið allan sólarhringinn.
S: 91-622266, Grænt númer: 99-6622.
LAUF Landssamtök áhugafólks um flogaveiki, Ármúla 5, opið kl. 12—15 þriðjudaga
og laugardaga kl. 11-16. S. 812833.
G-samtökin, landssamb. fólks um greiðsluerfiðleika og gjaldþrot, Vesturvör 27, Kópa-
vogi, opið 10—14 virka daga, s. 642984, (símsvari).
Foreldrasamtökin Vímulaus æska Borgartúni 28, s. 622217, veitir foreldrum og
foreldrafél. upplýsingar: Mánud. 13-16, þriðjud., miðvikud. og föstud. 9-12. Áfengis-
og fikniefnaneytendur. Göngudeild Landspitalans, s. 601770. Viðtalstimi hjá hjúk-
runarfræðingi fyrir aðstandendur þriðjudaga 9-10.
Kvennaathvarf: Allan sólarhringirin, s. 611205. Húsaskjól og aðstoö fyrir konur sem
beittar hafa verið ofbeldi i heimahúsum eða orðið fyrir nauðgun.
Stígamót, Vesturg. 3, s. 626868/626878. Miðstöð fyrir konur og börn, sem orðiö
hafa fyrir kynferöislegu ofbeldi. Virka daga kl. 9-19.
MS-félag íslands: Dagvist og skrifstofa Álandi 13, s. 688620.
Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna. Pósth. 8687 128 Rvik. Simsvari allan sólar-
hringinn. S. 676020.
Lífsvon - landssamtök til verndar ófæddum börnum. S. 15111.
Kvennaráðgjöfin: Sími 21500. Opin þriðjud. kl. 20-22. Fimmtud. 13.30 og 20-22.
Vinnuhópur gegn sifjaspellum. Tólf spora fundir fyrir þolendur sifjaspella miðviku-
dagskvöld kl. 20-21. Skrifst. Vesturgötu 3. Opið kl. 9-19. Simi 626868 eða 626878.
SÁÁ Samtök áhugafólks um áfengisvandamálið, Siðumúla 3-5, s. 82399 kl. 9-17.
AL-ANON, aðstandendur alkohólista, Hafnarstr. 5 (Tryggvagötumegin). Mánud,-
föstud. kl. 9-12. Laugardaga kl. 10-12, s. 19282.
AA-samtökin, s. 16373, kl. 17-20 daglega.
FBA-samtökin. Fullorðin börn alkohólista. Fundir Tjarnargötu 20 á fimmtud. kl. 20.
Í Bústaðakirkju sunnud. kl. 11.
Unglingaheimili ríkisins, aðstoð við unglinga og foreldra þeirra, s. 689270 / 31700.
Vinalína Rauða krossins, s. 916464 og grænt númer 996464. Er ætluö fullorðnum
sem telja sig þurfa að tjá sig. svarað kl. 20—23 öll kvöld vikunnar.
Skautar/skíði. Uppl. um opnunartíma skautasvellsins Laugardag, um skíðabrekku i
Breiðholti og troðnar göngubrautir í Rvík s. 685533. Uppl. um skíðalyftur Bláfjöll-
um/Skálafelli s. 801111.
Upplýsingamiðstöð ferðamála Bankastr. 2: Opin vetrarmán. mán./föst. kl. J0.00-
16.00, laugard. kl. 10.00-14.00.
Fréttasendingar Rikisútvarpsins til útlanda daglega á stuttbylgju: Útvarpaö er
óstefnuvirkt allan sólarhringinn á 3295,6100 og 9265 kHz. Hádegisfréttum er útvarp-
að til Noröurlanda, Bretlands og meginlands Evrópu: Daglega kl. 12.15-12.45 á
15790 og 13830 kHz. og kvöldfréttum. Daglega kl. 18.55-19.30 á 11402 og 13855
kHz. Til Kanada og Bandarikjanna: Daglega: kl. 14.10-14.40 á 15770 og 13855 kHz.
Hádegisfréttir. Daglega kl. 19.35-20.10 á 15770 og 13855 kHz. kvöldfréttir. Daglega
kl. 23.00- 23.35 á 15770 og 13855 kHz. Að loknum lestri hádegisfrétta á laugardög-
um og sunnudögum er lesiö fréttayfirlit liðinnar viku. ísl. timi, sem er sami og GMT.
SJÚKRAHÚS - Heimsóknartímar
Landspítalinn: alla daga kl. 15 til 16 og kl. 19 til kl. 20.00. Kvennadeildin. kl. 19-20..
Sængurkvennadeild. Alla daga vikunnar kl. 15-16. Heimsóknartími fyrir feður kl.
19.30-20.30. Fæðingardeildin Eiriksgötu: Heimsóknartimar: Almennur kl. 15-16.
Feðra- og systkinatími kl. 20-21. Aðrir eftir samkomulagi.Bamaspítali Hringsins:
Kl. 13-19 alla daga. Öldrunarlækningadeild Landspítalans Hátúni 10B: Kl. 14-20
og eftir samkomulagi. - Geðdeild Vifilstaðadeild: Sunnudaga kl. 15.30-17. Landa-
kotsspítafi: Alla daga 15-16 og 18.30-19. Barnadeild: Heimsóknartími annarra en
foreldra er kl. 16-17. - Borgarspitalinn í Fossvogi: Mánudaga til föstudaga kl. 18.30
til kl. 19.30 og eftir samkomulagi. á laugardögum og sunnudögum kl. 15-18. Hafnar-
búðin Alla daga kl. 14-17. - Hvitabandið, hjúkrunardeild og Skjól hjúkrunarheimili.
Heimsóknartími frjáls alla daga. Grensásdeild: Mánudaga til föstudaga kl. 16-19.30
- Laugardaga og sunnudaga kl. 14-19.30. — Heilsuverndarstöðin: Heimsóknartími
frjáls alla daga. Fæðingarheimili Reykjavíkur: Alla daga kkl. 15.30-16.00. — Klepps-
spitali: Alla daga kl. 15.30 til kl. 16 og kl. 18.30 til kl. 19.30. - Flókadeild: Alla daga
kl. 15.30 til kl. 17. - Kópavogshælið: Eftir umtali og kl. 15 til kl. 17 á helgidögum.
— Vífilsstaðaspítali: Heimsóknartimi daglega kl. 15-16 og kl. 19.30-20. - St. Jósefs-
spttali Hafn.: Alla daga kl. 15-16 og 19-19.30. Sunnuhlíð hjúkrunarheimili i Kópa-
vogi: Heimsóknartimi kl. 14-20 og eftir samkomulagi. Sjúkrahús Keflavíkurlæknishér-
aðs og heilsugæslustöðvar: Neyöarþjónusta er allan sólarhringinn á Heilsugæslustöð
Suðurnesja. S. 14000. Keflavík - sjúkrahúsið: Heimsóknartimi virka daga kl. 18.30-
19.30. Um helgar og á hátiðum: Kl. 15.00-16.00 og 19.00-19.30. Akureyri - sjúkra-
húsið: Heimsóknartimi alla daga kl. 15.30 -16.00 og 19.00-20.00. Á barnadeild og
hjúkrunardeild aldraðra Sel 1: kl. 14.00-19.00. Slysavarðstöfusimi frá kl. 22.00-8.00,
s. 22209.
BILANAVAKT
Vaktþjónusta. Vegna bilana á veitukerfi vatns og hitaveitu, s. 27311, kl. 17 til kl.
8. Sami sími á helgidögum. Rafmagnsveitan bilanavakt 686230.
Rafveita Hafnarfjarðar bilanavakt 652936
SÖFN
Landsbókasafn íslands: Aðallestrarsalur opinn mánud. - föstud. kl. 9-19 og laugar-
daga kl. 9-12. Handritasalur mánud.-fimmtud. kl. 9-19 og föstud. kl. 9-17. Útlánssal-
ur (vegna heimlána) mánud.-föstud. kl. 13-16.
Háskólabókasafn: Aðalbyggingu Háskóla íslands. Opið mánudaga til föstudaga kl.
9-19. Upplýsingar um útibú veittar i aðalsafni, s. 694326.
Borgarbókasafn Reykjavikur: Aðalsafn, Þingholtsstræti 29a, s. 27155. Borgarbóka-
safnið í Gerðubergi 3-5, s. 79122. Bústaðasafn, Bústaðakirkju, s. 36270. Sólheima-
safn, Sólheimum 27, s. 36814. Ofangreind söfn eru opin sem hér segir: mánud. -
fimmtud. kl. 9-21, föstud. kl. 9-19, laugard. kl. 13-16. Aðalsafn - Lestrarsalur, s.
27029. Opinn mánud. - laugard. kl. 13-19. Grandasafn, Grandavegi 47, s. 27640.
OpiÖ mánud. kl. 11-19, þriðjud. - föstud. kl. 15-19. Bókabílar, s. 36270. Viðkomu-
staðir viðsvegar um borgina. Sögustundir fyrir börn. Aðalsafn, þriðjud. kl. 14-15.
Borgarbókasafnið i Gerðubergi fimmtud. kl. 14-15. Bústaðasafn miðvikud. kl. 10-11.
Sólheimasafn, miðvikud. kl. 11-12.
Þjóðminjasafnið: Opið þriðjud., fimmtud., laugard. og sunnudag kl. 12-16. Leiðsögn
um safnið laugardaga kl. 14.
Árbæjarsafn: Opið um helgar kl. 10-18.
Árnagarður: Handritasýning til 1. sept., alla virka daga kl. 14-16.
Ásmundarsafn i Sigtúni: Opið alla daga 10-16.
Akureyri: Amtsbókasafnið: Mánud.-föstud. kl. 13-19. Nonnahús alladaga 14-16.30.
Náttúrugripasafnið á Akureyri: Opið sunnudaga kl. 13-15.
Norræna húsið. Bókasafnið. 13-19, sunnud. 14-17. Sýningarsalir: 14-19 alla daga.
Listasafn islands, Frikirkjuvegi. Opið alla daga 12-18 nema mánudaga. Sumarsýning
á islenskum verkum i eigu safnsins.
Minjasafn Raf magnsveitu Reykjavíkur við rafstöðina við Elliðaár. Opið sunnud. 14-16.
Safn Ásgrims Jónssonar, Bergstaðastræti: Opið alla daga nema mánudaga kl.
13.30-16.
Húsdýragarðurinn: Opinn virka daga, þó ekki miðvikudaga, kl. 13-17. Opinn um
helgar kl. 10-18.
Listasafn Einars Jónssonar: Opið laugardaga og sunnudaga kl. 13.30-16. Högg-
myndagarðurinn opinn daglega kl. 11-16.
Kjarvalsstaðir: Opið alla daga vikunnar kl. 11-18.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar, Laugarnesi: Opið laugardaga og sunnudaga kl.
14-17.
Myntsafn Seðlabanka/Þjóðminjasafns, Einholti 4: Opið sunnudaga milli kl. 14 og
16. S. 699964.
Náttúrugripasafnið, sýningarsalir Hverfisg. 116: Opnir sunnud. þriðjud. fimmtud.
og laugard. 13.30-16.
Náttúrufræðistofa Kópavogs: Opin sunnudaga kl. 13.30-16. Á öðrum timum eftir
samkomulagi.
Bókasafn Kópavogs, Fannborg 3-5: Opið mán.-fimmtud. kl. 10-21. Föstud. 10-19.
Lesstofan opin frá mánud.-föstud. kf. 13-19.
Byggðasafn Hafnarfjarðar: Opið laugard. og sunnud. kl. 14-18 og eftir samkomu-
lagi. S. 54700.
Sjóminjasafn islands, Hafnarfirði: Opið laugardaga og sunnudaga frá kl. 14-18.
Bókasafn Keflavíkur: Opið mánud.-miðvikud. kl. 15-22, þriðjud. og fimmtud. kl. 15-19
og föstud. kl. 15-20.
ORÐ DAGSINS Re»kja»ik sími 10000.
Akureyri s. 96-21840.
SUNDSTAÐIR
Sundstaðir í Reykjavik: Þessir sundstaðir: Laugardalslaug, Vesturbæjarlaug og Breið-
holtslaug eru opnir sem hér segir: Mánud. - föstud. 7.00-20.30, laugard. 7.30-
17.30, sunnud. 8.00-17.30. Sundhöll Reykjavikur: Mánud. - föstud. kl. 7.00-19.00.
Lokað i laug kl. 13.30-16.10. Opið i böð og potta fyrir fullorðna. Opið fyrir börn frá
kl. 16.50-19.00. Stóra brettið opið frá kl. 17.00-17.30. Laugard. kl. 7.30-;17.30,
sunnud. kl. 8.00-17.30.
Garðabær: Sundlaugin opin mánud.-föstud.: 7.00-20.30. Laugard.'8.00-17 og sunnud.
8-1?.
Hafnarfjörður. Suðurbæjarlaug: Mánudaga — föstudaga: 7.00-21.00. Laugardaga:
8.00-18.00. Sunnudaga: 8.00-17.00. Sundlaug Hafnarfjarðar: Mánudaga - föstudaga:
7-21. Laugardaga. 8-16. Sunnudaga: 9-11.30.
Sundlaug Hveragerðis: Mánudaga - fimmtudaga: 7-20.30. Föstudaga: 7-19.30. Helg-
ar: 9-15.30.
Varmárlaug í Mosfellssveit: Opin mánudaga - fimmtud. kl. 6.30-8 og 16—21.45,
(mánud. og miðvikud. lokað 17.45-19.45). Föstudaga kl. 6.30-8 og 16-18.45. Laugar-
daga kl. 10-17.30. Sunnudaga kl. 10-15.30.
Sundmiðstöð Keflavikur: Opin mánudaga - föstudaga 7-21, Laugardaga 8-18. Sunnu-
daga 9-16.
Sundlaug Kópavogs: Opin mónudaga - föstudaga kl. 7-20.30. Laugardaga og sunnu-
daga kl. 8-16.30. Siminn er 41299.
Sundlaug Akureyrar er opin mánudaga — föstudaga kl. 7-21, laugardaga kl. 8-18, sunnu-
daga 8-16. Simi 23260.
Sundlaug Seltjamamess: Opin mánud. — föstud. kl. 7.10-20.30. Laugard. kl. 7.10-
17.30. Sunnud. kl. 8-17.30.