Morgunblaðið - 09.02.1992, Page 40

Morgunblaðið - 09.02.1992, Page 40
40 MORGUNBLAÐIÐ UTVARP/SJONVARP SUNNUDAGUR 9. FEBRÚAR 1992 Athugað hvernig unnt sé að auka notkun raforku IÐNAÐARRÁÐUNEYTIÐ hef- - ur átt viðræður við fulltrúa Landsvirkjunar, Rafmagns- veitna ríkisins, Rafmagnsveitu Reykjavíkur og Sambands ís- lenskra rafveitna um leiðir til að nýta orku frá Blönduvirkj- un. Fulltrúi frá umhverfis- ráðuneytinu hefur einnig tekið þátt í viðræðunum. í aðalatrið- um er um tvær leiðir að velja. Annars vegar ráðstafanir sem miða að því að nota raforku í stað olíu og annarrar innfluttr- ar orku og hins vegar með því "'að stuðla að nýjungum í starf- semi þar sem raforkukaup eru umtalsverður liður í rekstrar- kostnaði. í fréttatilkynningu frá ráðuneyt- inu segir m.a.: „A undanförnum árum hefur orðið talsverð aukning í sölu á svokallaðri ótryggri raforku til almenningsrafveitna. Þar er einkum um að ræða orku á raf- skautakatla hitaveitna og til iðnfyr- irtækja, þar sem ótryggt rafmagn hefur leyst olíu af hólmi. Skuldbind- ingar um afhendingu ótryggðrar orku eru mun minni en um afhend- ingu forgangsorku og í samningum um kaup á ótryggðri raforku eru ákvæði um að raforkufyrirtækin geti skert eða rofið afhendingu ork- unnar án mikils fyrirvara. Kostnað- ÚTSALAN í SPÖRTU heldur áfram Allrca síöustu dagar Enn meiri verðlækkun Ótrúlegt verð T.d.: Gallar frá kr. Skór frá kr. 990,- 390,- Adidas Hallen innanhússskór. Nr. 36 til 47'h Verð kr. 1.990,- (áður kr. 3.750,-) Adidas Richfield hlaupa- og gönguskór. Nr. 39 til 44. Verð kr. 2.990,- (áður kr. 5.990,-). ANNAÐ T.D.: Skidasamfestingar nr. 120-176. Verð kr. 4.090,- (áður kr. 7.995,-). Stuttbuxur frá kr. 200,- Leóurskautar kr. 1.990,- nr. 31, 32, 34, 35, 36, 37. Sundbolir frá kr. 290,- til kr. 990,- allar stærðir. Félagstreyjur kr. 990,-. Gervigrasskór, T. bolir, golfskór, húf ur og hanskar. 10% af öllum öðrum vörum en útsöluvörum. Við rúllum boltanum til þín, nú er tækifærið til þess að gera góð kaup. Póstsendum Laugavegi 49, sími 12024. ur raforkufyrirtækjanna vegna sölu á ótryggðri orku er því miklu minni en þegar um forgangsorku er að ræða. Sölutekjur af ótryggðu ork- unni þurfa að lágmarki að standa undir kostnaði raforkufyrirtækj- anna af sölunni. Heimsmarkaðsverð á olíu hefur verið mjög lágt frá og með árinu 1987. Eini möguleikinn til að raf- magn geti keppt við þetta lága verð á olíu, þar sem hagkvæmast er að nota olíua svo sem í iðaði, við gufu- framleiðslu og við hitun, er því ótryggt rafmagn. Ekki er talið að mikið svigrúm sé til þess að auka sölu á ótryggðu rafmagni nema um tímabundna sölu sé að ræða. At- hygli þarf því fyrst og fremst að beina að sölu á forgangsraforku, einkum þegar litið er til lengri tíma. Auk nýrra fyrirtækja hefur eink- um verið rætt um eftirfarandi leiðir til að auka raforkunotkun: Húshitun: Hugsanlegt er að auka megi notkun raforku á kostnað olíu við hitun atvinnuhúsnæðis og opin- berra bygginga, svo sem skólahús- næðis. I dag er hins vegar verð samkvæmt rafhitunartöxtum án niðurgreiðslu og afsláttar ekki sam- keppnisfært við olíukyndingu. Sundlaugar: Yfir 20 sundlaugar á landinu eru kyntar með olíu. Unnt ætti að vera að nota ótryggt rafmagn á laugarnar, en því fylgir nokkur stofnkostnaður. Rafmagn til skipa í höfnum: Víða á landinu eiga skip í höfnum kost á að fá rafmagn úr landi. Sam- kvæmt upplýsingum rafveitnanna er landrafmagn hins vegar lítið notað og margir útgerðarmenn kjósa þess í stað að keyra ljósavél- ar. Notkun ljósavéla í höfnum veld- ur mengun og það eiu því rök fyr- ir því að takmarka heimildir til notkunar þeirra, þar sem völ er á landrafmagni." Undir lok fréttatilkynningar ráðuneytisins segir að það muni kanna með hvaða hætti unnt sé að aðstoða þá, sem vilja skipta um orkugjafa. Heilbrigðisráðherra á Sauðárkróki: „Ríkisútvarpið og starfslið þess stundar niðurrifsstarfseim“ ÁSALLFJÖLMENNUM kynning- arfundi sem haldinn var á vegum heilbrigðis- og tryggingamála- ráðuneytisins í Safnahúsinu á Sauðárkróki síðastliðið fimmtu- dagskvöld fjallaði Sighvatur Björgvinsson heilbrigðisráð- herra um málefni þeirra ráðu- neyta sem hann er í forsvari fyr- ir. í framsöguræðu ráðherrans kom fram að honum var vel kunnug sú umræða sem fram hafði farið þá um daginn í ríkisfjölmiðlunum, meðal annars um „hreppaflutn- inga“ gamals fólks frá Reykjavíkur- svæðinu og út á land og þá vöntun á 2-300 hjúkrunarrýmum fyrir aldr- aða á höfuðborgarsvæðinu sem hvað heitast brennur á um þessar mundir. Sagði ráðherrann að svo sér- kennilegt sem það væri þá gæti ráðuneytið ekki-komið upplýsingum sínum um það hvað gert hefði verið eða gera ætti á framfæri hvorki við fréttamannafundi eða á annan hátt þar sem augljóst væri að útvarp og sjónvarp kysu heldur að kynna æsifregnir og stuðla að ótta og óróa meðal áheyrenda sinna varðandi þessi mál. „Ríkisútvarpið og frétta- stofa þess stunda hreina niðurrifs- starfsemi gagnvart ríkisstjórninni," sagði Sighvatur Björgvinsson heil- brigðisráðherra. Vegna þessa sagði ráðherrann það þrautaráð stjórnvalda að fara út á meðal landsmanna til þess að kynna það sem verið væri að gera eins og gert væri á þessumfundi. Rakti hann síðan í stórum dráttum á hvern hátt stjórnvöld reyndu að lækka útgjöld ríkissjóðs án þess að skerða réttindi þeirra einstaklinga sem þyrftu raunverulega á þjónustu hins opinbera að halda. „Við ætlum að láta þá sem minna mega sín njóta þess sem þeir eiga rétt á og ég veit að þetta kemur ykkur á óvart því að í fjölmiðlum heyrið þið . allt annað,“ sagði Sighvatur. Allmiklar umræður sköpuðust vegna framsöguræðu ráðherrans og svöruðu þeir Sighvatur Björg- vinsson, Jón Sæmundur Siguijóns- son og Þorkell Helgason þeim fyrir- spurnum sem bárust. - BB. HÓTEL HOLT I HADEGINU Þríréttaður hádegisverður alla daga. Verð kr. 1.195.- i & CHATEAUX. Bergstaðastræti 37, sími 91-25700 UTVARP RÁS1 FM 92,4/93,5 HELGARUTVARP 8.00 Fréttir. 8.07 Morgunandakt. Séra Tómas Guðmundsson prófastur í Hveragerði flytur ritningarorð og bæn. 8.15 Veðurfregnir. 8.20 Kirkjutónlist. — Prélúdia og fúga í Es-dúr eftir Johann Sebast- ian Bach. Páll Isólfsson leikur á orgel. - Missa, Vidi Speciosam eftir Tomás Luis de Victoria Kór Westminster kirkjunnar r London syngur, James O'Donnell leikur á orgel; David Hili stjórnar. 9.00 Fréttir. 9.03 Morgunspjall á sunnudegi. Umsjón: Sr. Pétur Þórarinsson í Laufási. 9.30 Strengjakvartett nr. 8 i E-dúr ópus 80. eftir Antonin Dvorák Prag strengjakvartettinn leikur. 9.45 „Svefnpokinn sem gat ekki sofnað". eftir Kristinu Jónsdóttur. Leiklestur: Sigrún „ Edda Björnsdóttir, Þórarinn Eyfjörð og Árni Tryggva- son. Umsjón: Kristín Jónsdóttir. (Einnig útvarpað kl. 17.45.) 10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. 10.25 Uglan hennar Minervu. Umsjón: Arthúr Björg- vin Bollason. (Einnig útvarpað miðvikudag kl. 22.30.) 11.00 Messa í Fríkirkjunni í Hafnarfirði. Prestur séra Einar Eyjólfsson. 12.10 Dagskrá sunnudagsins. 12.20 Hádegisfréttir. 12.45 Veðurfregnir. Auglýsingar.Tónlist. 13.00 Góðvinafundur í Gerðubergi. Gestgjafar: Elisabet Þórisdóttir, Jónas Ingimundarson og Jónas Jónasson, sem er jafnframt umsjónarmað- ur. 14.00 í minningu Tolkiens. Umsjón: lllugi Jökuls- son. Sjá kynningu i dagskrárblaði. 15.00 Kammermúsík á sunnudegi. Frá tónleikum Caput-hópsins i Listasafni Sigurjóns Ólafssonar 7. október 1990. Meðal annars verður leikið Trió ópus 3 eftir A. Zemlinsky fyrir selló, pianó og klarínettu. Guðni Franzson ræðir við umsjón- armann um hvaðeina sem tengist verkinu og tónleikunum. (Hljóðritun Útvarpsins.) Umsjón: Tómas Tómasson. 16.00 Fréttir. 16.15 Veðurfregnir. 16.30 ...sem árgeislinn læðist hún rótt Út- varpið minnist Þorsteins ð. Stephensens. Um- sjón: Maria Kristjánsdóttir. Lesari: Broddi Broddason. (Áður útvarpað á jóladag 1991.) 17.45 „Svefnpokinn sem gat ekki sofnað". eftir Kristínu Jónsdóttur. (Endurtekinn þáttur frá morgni.) 18.00 Islensk og erlend sönglög. Kelill Jensson, Þjóðleikhuskórinn, Kristinn Hallsson, Guðrún A. Símonar, Sigfús Halldórsson, Þorsteinn Hannes- son, Magnús Jónsson, Þuríður Pálsdóttir, Maria Markan, Guðmundur Jónsson, Karlakór Reykjavikur, Sigurður Björnsson og kvennakór undir stjórn Ragnars Björnssonar syngja. 18.30 Tónlist. Auglýsingar. Dánarfregnir. 18.45 Veðurfregnir. Auglýsingar. 19.00 Kvöldfréttir. 19.32 Frost og funi. Vetrarþáttur barna. Hugsa hindúar öðruvisi en við? Umsjón: ElisabeJ Brekk- an. (Endurtekinn frá laugardagsmorgni.) 20.30 Hljómplöturabb. Þorsteins Hannessonar. 21.10 Brot úr lifi og starfi. Sveins Björnssonar myndlistarmanns Umsjón: þorgeir Ólafsson. (Endurtekinn þáttur úr þáttaröðinni i fáum drátt- um frá miðvikudegi.) 22.00 Fréttir. Orð kvöldsins. 22.15 Veðurfregnir. 22.20 Dagskrá morgundagsins. 22.25 Á fjölunum — leikhústónlist. Þættir úr sön- gleinum „Vinirnir frá Salamanka" eftir Franz Schubert. Edith Mathis, Christine Weikinger, Carol Wyatt, Thomas Moser, Hermann Prey og fleiri syngja með kór og sinfóniuhljómsveit Aust-. urriska útvarpsins; Theodor Guschlbauer stjórn- ar. 23.10 Útilegumannasögur. Umsjón: Þórunn Valdi- marsdóttir. Lesari ásamt umsjónarmanni: Magn- ús Þór Jónsson. (Einnig útvarpað á föstudag kl, 15.03.) 24.00 Fréttir. 0.10 Stundarkorn i dúr og moll. Umsjón: Knútur R. Magnússon. (Endurtekinn þáttur). 1.00 Veöurfregnir. 1.10 Næturútvarp á báðum rásum til morguns. RÁS2 FM 90,1 8.07 Vinsældalisti götunnar. Vegfarendur velja og kynna uppáhaldslögin sin. (Einnig útvarpað laug- ardagskvöld kl. 19.32.) í Kaupmannahöfn FÆST í BLAOASÖLUNNI Á JÁRNBRAUTA- STÖÐINNI, KAS TRUPFLUGVELLI OG Á RÁÐHÚSTORGI

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.