Morgunblaðið - 09.02.1992, Síða 44

Morgunblaðið - 09.02.1992, Síða 44
FORGANGSPÓSTUR UPPLÝSINGASÍMI 63 71 90 MORGUNBLADID, ADALSTRÆTI 6, 101 REYKJA VÍK SÍMI 691100, FAX 691181, PÓSTHÓLF 1555 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTl 85 SUNNUDAGUR 9. FEBRÚAR 1992 VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR. Iðnaðarmenn: Mesta at- vinnuleysi í rúm 20 ár ATVINNULEYSI meðal múrara, rafvirkja og trésmiða í Reykjavík hefur ekki verið meira í yfir tutt- ugu ár. Utlit er fyrir að enn bæt- ist á atvinnuleysisskrá um næstu mánaðamót. Grétar Þorsteinsson, formaður Sambands byggingarmanna, sagði að á höfuðborgarsvæðinu væru um 25 manns á atvinnuleysisbótum í Trésmíðafélaginu. Tíu manns hefðu verið skráðir í desember og 15 bæst við í janúar. Helgi Steinar Karlsson, formaður Múrarafélags Reykjavíkur, sagði að yfir 40 múrarar væru á atvinnuleys- isskrá í Reykjavik. Atvinnuleysi í stéttinni hefði ekki verið meira síðan 1967-1968. Um 1% félagsmanna í Rafiðnaðar- sambandi íslands er á atvinnuleysis- skrá og er útlit fyrir að atvinnuleys- ið aukist á næstunni, að sögn Magn- úsar Geirssonar, formanns Rafíðn- aðarsambands íslands. Alls eru um 1.700 félagar i sambandinu, raf- júndavirkjar, raflínumenn og raf- virkjar, þannig að 17 eru atvinnu- lausir. „Ástandið er verst á höfuð- borgarsvæðinu. Þetta er verra en nokkurn tíma hefur verið. Þegar síð- ast var verulegt atvinnuleysi, 1970, fór fjórðungur af öllum rafvirkjum til starfa á Norðurlöndum,“ sagði Magnús. Snúlla slær mjólkurmet KÝRIN Snúlia á Efri-Brunná í Saurbæjarhreppi mjólkaði 10.259 kg á síðasta ári og setti þar með afurðarmet. Fyrra met átti Fía á Hríshóli í Eyjafirði, 9.551 kg árið 1983. Eigandi Snúllu er Sturlaugur Eyjólfsson og var hann með afurðarhæsta kúabúið á landinu í fyrra. Mjólkuðu kýr hans að meðaltali 6.468 kg á árinu. Meðalársnyt kúa í fyrra var 4.179 kg. Meðalársnyt hefur ekki verið hærri frá því skýrsluhald naut- griparæktarfélagsins hófst. Sjá frétt á bls. 21a. Ásdís í flugtaki á Schiphol-flugvelli í Amsterdam. Á innfelldu myndinni sést þessi fyrsta Fokker 50 flugvél Flugleiða í tilraunaflugi. Fyrsti Fokkerinn kominn í loftið ÁSDÍS, fyrsta Fokker 50 flugvél Flugleiða, fór í sitt fyrsta flug í liðinni viku. Gekk flugið vel, samkvæmt upplýsingum Flugleiða. Fokker hefur lokið öllum sínum prófunum á vélinni og flugmenn Flugleiða fara með hana í reynsluflug á morgun, mánudag. Vélin verður afhent Flugleiðum á Akureyri næstkomandi laugardag. Fokker-verksmiðjurnar í Hol- landi eru að smíða fjórar Fokker 50 flugvélar fyrir innanlandsflug Flugleiða. Verða þær afhentar fé- laginu á næstu mánuðum. Fýrstu vélinni, Ásdísi, verður flogið til Akureyrar þar sem hún verður afhent við hátíðlega athöfn næst- komandi laugardag. Næsta vél verður afhent á Egilsstöðum 29. þessa mánaðar og hinar tvær á Isafirði og Egilsstöðum í apríl og Ásdís fór í sitt fyrsta flug síðast- liðinn mánudag og á föstudag var búið að fljúga henni samtals í rúm- ar sex klukkustundir. Samkvæmt ‘ upplýsingum Kristins Halldórsson- ar yfírmanns tæknideildar Flug- leiða er Ásdís fyrsta vélin sem í er settur sérstakur búnaður til að auka hleðslumöguleika vélanna. Auk þess eru skrúfublöðin betur samhæfð til að minnka hávaða og titring. Starfsmenn Flugleiða hafa lokið öllum skoðunum á Ásdísi og reynslufljúga henni á morgun. Viðræðunefnd Borgarspítala og Landakots leggur til að spítalarnir sameinist: Tillaga um að Sjúkrahús Reykja- víkur verði rekið af hlutafélagi Viðræðunefnd stjórna Sjúkra- stofnana Reykjavíkurborgar og Sjálfseignarstofnunar St. Jósefs- spítala leggur til að rekstur Borg- arspitala og Landakotsspítala verði sameinaður og þegar verði skipuð undirbúningsnefnd til að vinna að því. Nefndin leggur til að stofnað verði rekstrarfélag með aðild borgarinnar og sjálfs- eignarstofnunarinnar undir nafn- inu Sjúkrahús Reykjavíkur, og að kannað verði til hlítar hlutafé- lagsform fyrir rekstrarfélagið en fasteignir spítalanna verði í hönd- um eignafélags sem ríkið og Reykjavíkurborg standi að. I yfirlýsingu viðræðunefndarinn- ar, sem samþykkt var á föstudag en rædd á fundi yfirstjórnar Landa- kots í gær, segir að mikilvægt sé að við sameiningu sjúkrahúsanna verði núverandi starfsfólki þeirra tryggð störf. „Við vonum að til þessa sameigin- lega rekstrar komi fjárveitingar af þeim óráðstöfuðu fjárveitingum sem Til umræðu að eldri nemendur leiðbeini nýnemum í Háskólanum Hugmyndir um að taka bílastæðagjöld af stúdentum ALLRA leiða til sparnaðar er nú Ieitað í Háskóla íslands, enda telur Sveinbjörn Björnsson háskólarektor að þrátt fyrir innheimtu 75 milljóna króna í skólagjöld og 36 milljóna króna sparnað í rekstri, . sem þegar hefur verið gripið til, vanti 145 milljónir upp á að end- ar nái saman. Meðal annars er rætt um að innheimta bílastæða- gjöld af þeim hundruðum stúdenta, sem daglega leggja bílum sin- um á háskólalóðinni. Þá er ljóst að engir peningar verða lagðir í háskólasjónvarp á árinu. Af fleiri sparnaðarhugmyndum, sem ræddar hafa verið í Háskólan- um, er að færa frá skólanum þjón- ustu Alþjóðaskrifstofu, Upplýs- ingaskrifstofu um nám erlendis og námsráðgjafar. Þá er rætt um að eldri nemar taki að sér að leiðbeina nýnemum. Rektor segir að næsta skref sé að afla tillagna frá deild- um háskólans um það í hvaða greinum ætti helzt að hætta kennslu til að spara peninga. „Ein hugmynd, sem hefur verið nefnd og hljómar kannski fárán- lega í byijun, en er ekki svo vit- laus, er að innheimta einhvers konar bílastæðagjald af stúdent- um, sem leggja á háskólalóðinni. Það er varla hægt að komast að húsunum hér fyrir bílum,“ segir háskólarektor í samtali við Morgunblaðið í dag. „Það getur vel verið að við leitum hjálpar hjá borginni um hvernig bezt sé að standa að því, að minnsta kosti til að hafa upp í viðhald lóðarinnar." Um fyrirhugað Háskólasjónvarp segir rektor að ekki komi til greina að leggja fé í það af rekstrarfjár- veitingu háskólans eins og aðstæð- ur séu núna. „Það stendur alls ekki til að nýta neina fjármuni af ríkisfé til þessarar starfsemi á ár- inu. Ef eitthvað gerðist í þessu máli á árinu yrði það fyrir styrki, sem við fengjum frá öðrum, og ég á nú ekki von á því,“ segir Svein- björn. Sjá samtal við Sveinbjörn Björnsson á bls. 37. eru í fjárlagafrumvarpinu, þannig að samdráttur verði ekki eins mikill og nú lítur út fyrir. Þannig verði jafnvel hægt að afturkalla þessar uppsagnir áður en langt um líður,“ sagði Olafur Örn Arnarson yfirlækn- ir á Landakotsspítala en hann situr í viðræðunefndinni. Öllu starfsfólki Landakots hefur verið sagt upp og að óbreyttri fjárveitingu er útlit fyr- ir að ekki verði hægt að endurráða stóran hluta þess. Sighvatur Björgvinsson heilbrigð- isráðherra sagðist ánægður með yf- irlýsingu viðræðunefndarinnar þar sem að þessu hefði verið stefnt. Hann sagði að skoðað yrði hvemig óráðstöfuðum fjárveitingum verður deilt út til reksturs sjúkrahúsa. „Við fjármálaráðherra þurfum að fara yfir þetta og reyna að sjá hvað hægt er að gera. Hins vegar er búið að afgreiða fjárlög og við höfum ekki úr meiri peningum að spila en þar eru,“ sagði Sighvatur. I þeim hugmyndum sem viðræðu- nefndin hefur fjallað um er gert ráð fyrir að sameiningin taki lengri tíma en áður var rætt um og ljúki árið 1997. Þá verður fallinn úr gildi samningur ríkisins og St. Jósefs- systra um rekstur Landakots en St. Jósefssystur hafa lagst gegn sam- einingu spítalanna. Sjá einnig viðtal við Sighvat Björgvinsson á bls. 16-17.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.