Morgunblaðið - 13.02.1992, Blaðsíða 49
I
ifí! pi uHi'- wlpflfthl'ÉÍtÍl KiW’U-u-frtM
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 1992
49
OLYMPIULEIKARNIR I FRAKKLANDI
i
Neuner-systur frá Austurríki fagna góðum árangri í gær — Doris, sem sigr-
aði, er til hægri og Angelika, sú eldri sem varð önnur, til vinstri.
Neuner-systur bestar
AUSTURRÍSKU Neuner syst-
urnar urðu í tveimur efstu sæt-
unum í sleðakeppni kvenna,
sem lauk í gær. Doris Neuner
varð ólympíumeistari og eldri
systir hennar, Angelika, nældi
sér í silfrið. Þetta var í fyrsta
sinn í sögu ólympíuleikanna
sem systur eru í tveimur efstu
sætunum í þessari grein.
oris, sem er tvítug, fékk sam-
aníagðan tíma, 3:06,696 mín.,
úr fjórum umferðum. Angelika, sem
eru tveimur. árum eldri en Doris,
var aðeins 0,073 sek. á eftir. Heims-
meistarinn, Susi Erdmann frá
Þýskalandi, varð að sætta sig við
bronsverðlaunin.
Keppnin í gær var mjög spenn-
andi og réðust úrslit ekki fyrr en í
síðustu umferð. Doris var með
0,175 sekúndna forskot á Angeliku
eftir fyrstu tvær umferðirnar á
þriðjudag, en í þriðju umferðinni í
gær náði Angelika besta tímanum
og minnkaði forskot Dorisar niður
í 0,115 sek. í fjórðu og síðustu
umferðinni náði Angelika 0,042
sek. betri tíma en Doris en það
dugði ekki. Doris fagnaði sigri og
varð fyrst austurrískra kvenna til
að vinna sleðakeppnina frá því fyrst
var keppt í þessari grein á ólympíu-
leikum 1964.
Systumar, sem búa í sama her-
bergi í ólympíuþorpinu, eyddu nótt-
inni í að hvetja hvor aðra til dáða
fyrir lokaátökin. „Ég hefði ekki
getað látið mig dreyma um sigur
þegar ég kom hingað,“ sagði Doris.
»>Ég get ekki lýst því hvemig mér
líður og trúði þessu ekki fýrr en
ég kom í gegnum markið í fjórðu
og síðustu umferðinni."
Neuners systurnar vom þó ekki
fyrstar til að vinna tvöfalt á vetrar^f
ólympíuleikum. Á ólympíuleikunum
í Innsbruck 1964 urðu frönsku syst-
urnar Christine og Marielle Goits-
chel í tveimur efstu sætunum bæði
í svigi og stórsvigi.
I
I
(
J
(
Tvöfaldur
sigur
Frakkaí
hólasvigi?
Úrslitin ráðast í dag
EDGAR Grospiron, heims-
meistari í hólasvigi (moguls),
sýndi yfirburði sína í undan-
keppninni sem fram fór í gær
og verður að teljast sigur-
stranglegur í úrslitakeppninni
í dag.
Frakkar gætu unnið tvöfalt þar
sem Raphaelle Monod var efst
í forkeppni kvenna og skaut heims-
meistaranum, Donnu Weinbrecht
frá Bandaríkjunum, aftur fyrir sig.
Grospiron hlaut 25,23 stig og
varð efstur af þeim 16 sem keppa
til úrslita í dag. Landi hans, Alla-
mand, varð annar með 24,96 stig
og Jean-Luc Brassard, 19 ára gam-
all Kanadamaður, í þriðja sæti með
23,93 stig.
Monod var efst þeirra 8 stúlkna
sem keppa til úrslita í dag, hlaut
24,09 stig. Weinbrecht varð önnur
(23,48) og Stine Hattestad frá Nor-
egi (23,11) í þriðja sæti.
SAMEINAÐIR Þjóðverjar stóðu
sig vel í 10 km skíðaskotf imi í
Les Saisies í gær og þökkuðu
sterkri liðsheild árangurinn.
Mark Kirchner frá fyrrum
Austur-Þýskalandi sigraði,
Ricco Gross, landi hans frá
4 vesturhlutanum, fékk silfur-
* verðlaunin, Jens Steinigen varð
í sjötta sæti, en Frank-Peter
Rotsch náði ekki að verja titil-
inn frá 1988 og hafnaði í níunda
sæti. Harri Eloranta frá Finn-
landi krækti i bronsverðlaunin
og er það í fyrsta sinn síðan
1976 að Finni vinnur til verð-
launa í skíðaskotfimi.
Kirchner, þrefaldur heimsmeist-
ari á HM í fyrrá, hitti úr öllum
skotunum, en hann lagði af stað
eftir að Gross kom í mark. „Ricco
var sá, sem ég þurfti að sigra. Ég
vissi að ef ég gerði betur en Ricco
.< ætti ég mikla möguleika á gullverð-
laununum,“ sagði meistarinn.
Stúdentinn Gross, sem hefur
4 aldrei sigrað á stórmóti, hitti ekki
úr einu skoti og 150 m refsingin
reyndist honum dýrkeypt. „Þetta
4 eru dæmigerð mistök," sagði hann,
1 en bætti við að það hefði hjálpað
sér mikið að vera framarlega í rás-
röðinni.
Eloranta kom á óvart á þriðju
Sameinaðir Þjóðverjar
sigursælir í skotfiminni
Reuter
Mark Kirchner liggur örmagna í markinu eftir að hafa sigrað í skíðaskot-
fiminni í gær.
vetrarleikum sínum, en hann hafði
látið lítið á sér bera síðan 1981,
þegar hann varð heimsmeistari
unglinga.
I fyrra ásakaði Steinigen, sem
æfði mest einn á árinu, þrjá fyrrum
austur-þýska þjálfara um að neyða
austur-þýska íþróttamenn til að
taka ólöglega stera. Frank Ullrich,
þjálfari þýska liðsins, var einn hinna
ásökuðu, en hann neitaði sakargift-
um og áréttaði samheldni liðsins
þrátt fyrir það sem á undan hefði
gengið. „Þetta var sigur liðsheildar-
innar og hann sýndi að við eigum
ekki við vandamál að glíma.“
Kirchner áréttaði eininguna.
„Réttlætið ræður ríkjum hjá okkur.
Hann [Steinigen] komst í liðið
vegna góðrar frammistöðu og hefur
sýnt að að hann er einn af bestu
skíðaskotmönnum heims.“
*
AÐILÐARFELA6SFAR6J0LÐ
Við bjóðum hagstæðustu sumarleyfisfargjöldin til ellefu
áfangastaða Flugleiða í Evrópu og Bandaríkjunum í sumar
á tímabilinu 25. maí - 15. september.
Við vekjum attiygli á að eftir 20. febrúar nk. hækka fargjöldin
til nokkurra áfangastaða eins og fram kemur í þessari töflu.
Sala til 20. feb. Sala frá 21. feb.
til 15. maí.
Stgr.verð Alm. verð Stgr.verð Alm. verð
Kaupmannahöfn 15.900 16.700 18.600 19.600
Osló 15.900 16.700 19.600 20.700
Glasgow 13.900 14.600 15.900 16.800
Stokkhólmur 23.000 24.200 23.000 24.200
Gautaborg 17.600 18.500 19.600 20.700
London 16.900 17.800 18.900 19.900
Lúxemburg 19.200 20.200 19.200 20.200
Amsterdam 18.900 19.900 20.900 22.000
París/Salzburg 22.300- 23.500 22.300 23.500
Baltimore 37.500 39.600 37.500 39.600
Bamaafsláttur miðast við 2 -12 áraog er 35% nema 25% til Baltimore.
Gert er ráð fyrir að lágmarksdvöl sé 1 vika og hámarksdvöl 4 vikur.
Við ofangreint verð bætist islenskur flugvallarskattur sem er 1.250 kr. á mann.
Auk þess bætist við flugvallarskattur á nokkrum stöðum erlendis.
Félagar í eftirtöldum aðildartélögum njóta þessara frábæru kjara:
Kennarasambandi íslands.Verslunarmannafélagi Reykjavíkur, Bandalagi starfs-
mánna rikis og bæja, Sambandi íslenskra bankamanna, Bandalagi háskóla-
manna, Alþýðusambandi islands og Farmanna og fiskimannasambandi íslands.
FLÖG 06 BÍLL
Miðað við 4 í bíl í viku
Kaupmannahöfn 21.460
Lúxemburg 22.130
Amsterdam 22.440
Allar upplýsingar um bílaleigur og aðra þjónustu í tengsium við þessi fargjöld
fást hjá sölu- og umboðsmönnum Samvinnuferða - Landsýnar um allt land.
ShiiivíiiiiiiIsi'úíi’Laiitlsi/ii
Reykjavík: Austurstræti 12 *S. 91 - 6910 10 * Innanlandslerðir S. 91 - 6910 70 • Simbrét 91 - 2 77 96 / 69 10 95 *
• Telex 2241 • Hótel Sögu við Hagatorg • S. 91 - 62 22 77 • Símbrél 91 - 62 24 60
Akureyri: Skipagölu 14 • S. 96 - 27 200 • Símbiét 96 - 2 40 87