Morgunblaðið - 13.02.1992, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 13.02.1992, Blaðsíða 32
12 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. FEBRUAR 1992 Athugasemd frá fulltrúum sljórnarandstöðu í Tryggingaráði: Engin þátttaka í skerðingu á framlögum til hjálpartækjakaupa MORGUNBLAÐINU hefur borist athugasemd frá Bolla Héðinssyni og Sigríði Lillý Baldursdóttur fulltrúa stjórnarandstöðu í Tryggingaráði: „í tilefni frétta um hlut Trygg- ingaráðs í ákvörðun um hækkun á kostnaðarþátttöku sjúklinga í hjálp- artækjum fyrir sykursjúka og stóm- asjúklinga þá sjáum við fulitrúar stjórnarandstöðunnar í Tryggingar- áði okkur ekki annað fært en að gera alvarlegar athugasemdir við málflutning heilbrigðisráðherra og formanns Tryggingaráðs. í fjölmiðlum hafa formaður Tryggingaráðs og heilbrigðisráð- herra látið að því liggja að Trygg- ingaráð bæri alfarið ábyrgð á þeim niðurskurði sem ákveðinn hefur verið á þætti ríkisins til kaupa á hjálpartækjum. Sú er ekki raunin. í fjárlögum ársins 1992 er Tryggingastofnun ríkisins uppálagt að spara tæpar 100 milljónir króna ■ ÁHUGAFÓLK um almenna dansþátttöku á íslandi hefur ákveð- ið að halda dansnámskeið nú í fe- brúar undir yfírskriftinni Komið og dansið. Hvert dansnámskeið er haldið á tveimur dögum, hálf þriðja klukkustund í senn. Námskeiðin verða haldin dagana 13. til 16. fe- brúar á þremur stöðum í borginni, í Templarahöllinni við Eiríks- götu, í Hjallaseli, Þarabakka 3 og í sal Þjóðdansafélagsins, Alfa- bakka 14. Leiðbeinendur verða Sidsel og Johan Fasting frá Nor- egi. á þeim útgjaldalið sem nefndur er hjálpartæki. Undir þann flokk falla ofangreind hjálpartæki sykursjúkra og stómasjúklinga. Þegar ríkis- stjórn og meirihluti Alþingis hefur tekið slíka ákvörðun þá orkrð það ætíð tvímælis hvort fulltrúar stjóm- arandstöðu í stjómum og ráðum eigi þátt í afgreiðslu mála sem lúta að niðurskurði og óvinsælum stjórn- valdsaðgerðum. í Tryggingaráði hafa menn fram að þessu reynt að starfa saman og af heilindum. Við höfum fullan hug á að leita hverra þeirra leiða sem leiða af sér sparnað og hagræðingu og lítum á það sem hlutverk okkar að fínna ákvörðunum er varða Tryggingastofnun farveg innan stofnunarinnar, þannig að það komi sem réttlátast niður. Trú þessari sannfæringu okkar þá gerðum við sérstakar athugasemdir við niður- skurð á hjálpartækjum sykursjúkra og stómasjúklinga á þeim Trygg- ingaráðsfundi þar sem listinn var til umræðu. Á fundinum fengust þær upplýsingar að niðurskurður- inn þýddi óverulega breytingu, ýmist vegna tiltölulegra fárra til- vika eða lágra upphæða. Einnig fengum við því framgengt að listinn yrði endurskoðaður er á honum fyndust ófyrirséðir annmarkar. Þetta féllst meirihluti Trygginga- ráðs á og listinn var endurskoðaður m.t.t. þeirra athugasemda sem bor- ist hafa. Rétt er að taka fram að Helgi Seljan, varafulltrúi í Tryggingaráði, sat ekki fundinn. Orð formanns Tryggingaráðs í þá veru að Helgi hafí samþykkt breyttan hjálpar- tækjalista eru því með öllu óskiljan- leg. Við frábiðjum okkur að hafa átt nokkurn þátt í þeirri skerðingu á fjármagni sem gerð var á fjárlögum til hjálpartækjakaupa. Fyrir okkur vakir aðeins að leggja okkar af mörkum til að draga úr þeim sárs- auka sem niðurskurður heilbrigðis- yfírvalda veldur. Ákvörðunin var ríkisstjórnarinnar og hennar er ábyrgðin." Hótel Island: Hin nýja Sljórn, talið frá vinstri: Friðrik Karlsson, Jóhann Ásmunds- son, Sigríður Beinteinsdóttir, Grétar Örvarsson og Halldór Gunnlaug- ur Hauksson. Stjórnin tekur til starfa á ný Platters skemmta fjórar helgar í mars Hljómsveitin Stjórnin tekur til starfa á ný á Hótel íslandi föstu- daginn 14. febrúar og mun spila á dansleikjum hússins fram á sumar. Þrír nýir hljóðfæraleikarar hafa bæst í hljómsveitina, Friðrik Karls- son á gítar, Jóhann Ásmundsson á bassa og Halldór Gunnlaugur Hauksson á trommur. Fyrir í sveit- inni voru Grétar Örvarsson á hljómborð og söngkonan Sigríður Beinteinsdóttir. Fjöldi lands- þekktra söngvara og kemmtikrafta munu koma fram með Stjórninni fyrsta kvöldið. Stjórnin var á árum áður dans- hljómsveit Hótel Islands og kemur nú á sviðið á ný eftir hlé. Hljóm- sveitin náði sem kunnugt er 4. sæti í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva fyrir tveimur árum og flytur eitt lag í undan- keppninni að þessu sinni. Hin bandaríska söngsveit The Platters skemmti gestum Hótel íslands um síðustuu helgi við mikla aðsókn og svo góðar undirtektir, að sveitin hefur verið ráðin til að skemmta fjórar helgar í röð frá og með 13.-14. mars n.k. Birting heldur iimræðu- fund um heilbrigðismál BIRTING heldur umræðufúnd um stöðuna í heilbrigðismálum í kvöld, fimmtudagskvöld á veit- ingahúsinu Torfunni og hefst hann kl. 20.30. Það er ætlunin að ræða það sem Jakka og pels stolið BROTIST var inn í hús við Suð- urgötu í fyrrinótt. Þjófurinn stal rauðbrúnum pels, með dökku fóðri, og mokkajakka, en báðar yfirhafnimar voru í forstofu húss- ins. Flíkumar eru báðar á meðalstóra konu. Ekki er enn fyllilega ljóst hvemig þjófurinn komst inn í hús- ið, en þjófnaðurinn hefur verið kærður til Rahnsóknarlögreglu rík- er að gerast í heilbrigðismálum þjóðarinnar um þessar mundir; á hveijum bitnar niðurskurðurinn helst, hvar er skorið niður, hvar má hagræða, hveijar verða afleið- ingar niðurskurðarins, er verið að einkavæða heilbrigðiskerfið í auknum mæli? Gestir fundarins verða Ingibjörg Sólrún Gísladóttir þingkona, Sig- ríður Snæbjömsdóttir hjúkmnar- framkvæmdastjóri og Svavar Gestsson þingmaður. -------» ♦ ♦-------- Leiðr étting' í grein í sunnudagsblaði Morgun- blaðsins, sem fjallaði um kvikmynd- ina Inguló, misritaðist nafn lista- mannsins sem málaði myndina „Án- ingu“. Það er að sjálfsögðu Jón Stefánsson sem málaði myndina árið 1939. Hlutaðeigendur em beðnir velvirðingar á þessum mis- tökum. Bíóhöllin sýnir mynd- ina „Síðasti skátinn“ BIOHOLLIN hefur tekið til sýn- ingar myndina „Síðasti skátinn". Með aðalhlutverk fara Bruce Willis og Damon Wayans. Leik- stjóri er Tony Scott. Joe Hallenbeck er einkaspæjari. Raunar hafði hann ekki hugsað sér að starfa á þessu sviði í upphafi. Hann hafði verið einn af slyngustu rannsóknarmönnum leyniþjónustu Bandaríkjanna þegar hann lenti á árekstri við stjórnmálamann sem hafði öldungis ekki hreinan skjöld og vom alvarlegar ásakanir bornar upp á hann. Ekki gat hann afsann- að þær og var vikið úr starfi með skömm. James Dix hafði verið ein helsta stjarna knattspymuliðsins Stallions í Los Angeles. Hann var sakaður um að hafa veðjað á úrslit leikja og að gerast sekur um lyfja- misnotkun og var hann því dæmdur úr leik. Það er því sameiginlegt með þeim að þeir hafa hrapað af þeim háa stalli sem hvor um sig hafði komist á. En svo kemur ann- að til sem sameinar þá. Það er Cory, strípidansmær sem hefur orð- ið fyrir hótunum og óttast um líf sitt. Gamall félagi Hallenbecks bið- Tveir af aðalleikurum myndarinnar „Síðasti skátinn“. ur hann að taka að sér mál henn- ar. Cory er einnig vinkona Dix. Hún er svo myrt og sameina þeir því krafta sína til að finna sökudólginn þó hvorugur sé yfir sig hrifinn af samvinnunni. Kórverkið Messías á Lista- hátíð í tilefni af Ári söngsins Tvær orðabækur frá Háskólanum ÚT ERU komnar hjá Orðabók Háskólans íslensk orðtíðnibók og endurútgáfa á Orðabók Gunnlaugs Oddsonar um fágæt orð í dönsku sem fyrst kom út í Kaupmannahöfn árið 1819. höfunda og tilurð verkanna svo og einkenni þeirra og gildi fyrir ís- lenska mál- og orðsögu. Orðabók Gunnalaugs Oddssonar er 255 blaðsíður. Jón Hilmar Jóns- son orðabókarritstjóri annaðist út- gáfuna ásamt Þórdísi Úlfarsdótt- ÁKVEÐIÐ hefur verið að flytja kórverkið Messías eftir G.F. Hándel á Listahátíð í vor ef næg þátttaka söngfólks' fæst. Umræða hefur verið í gangi milli Framkvæmdanefndar um Ár söngsins, Sinfóníu- hljómsveitar Islands og Listahátíðar Islands um að flytja Messías og bjóða öllu söngfólki á Islandi, kórum og einstaklingum, að taka þátt í flutningi verksins. Einnig verður áheyrendum frjálst að syngja með, t.d. í Halleljúa-kór og/eða öðrum þáttum verksins. Slíkur flutningur á sér hliðstæðu nánar verður tilkynnt um stað og í London, en þar er verkið flutt á þennan hátt á hveiju ári. Ákveðið hefur verið að bjóða einsöngvurum og þeim söngnemendum sem lengst eru komnir í námi að syngja eina aríu hver. Prufusöngur og val á þeim söngvurum verður 29. apríl, stund síðar. Stefnt er að því að tónleikarnir verði föstudaginn 5. júní í Háskólabíói. Æfing með píanói' yrði um kvöldið 3. júní en fyrir hádegi 4. og 5. júní með Sin- fóníuhljómsveit Islands. Jón Stef- ánsson verður stjórnandi. Nöfn þátttakenda verða sett í efnisskrá. Verkið verður flutt á ensku og ósk- að er eftir því að nýjasta útgáfa frá Watkins Shaw Novello verði notuð. Hægt verður að kaupa nótur að verkinu hjá Tónastöðinni, Óðins- götu 7, 101 Reykjavík. Áríðandi er að fólk tilkynni þátttöku sem fyrst, því m.a. þarf að panta nóturnar erlendis frá. Þátttöku skal tilkynna til Sinfóníuhljómsveitar íslands fyr- ir hádegi 20. febrúar nk. Um- sóknareyðublöð munu einnig liggja frammi í Tónastöðinni. (Fréttatilkynning) í kynningu útgefanda segir m.a., að í orðtíðnibókinni séu birtar niður- stöður margra ára rannsókna Orð- arbókar Háskólans á tíðni orða og málfræðiatriða í textum úr fimm mismunandi textaflokkum: Islensk- um skáldverkum, þýddum skáld- verkum, ævisögum og endurminn- ingum, fræðslutextum og barna- og unglingabókum. Samtals eru rúmlega 500.000 orð í þeim textum sem teknir voru til athugunar Nið- urstöðurnar er síðan að finna í fjórt- án meginköflum þar sem tíðni orða og málfræðiatriða er birt í skrám ogtöflum. íslensk orðtíðnibók er 1.262 blaðsíður. Ritstjóri bókarinnar er Jörgen Pind forstöðumaður Orða- bókar Háskólans en auk hans unnu Friðrik Magnússon og Stefán Briem að bókinni. Orðabók Gunnlaugs Oddssonar kom fyrst út í Kaupmannahöfn árið 1819. Útgáfan nú er fyrsta ritið í ritröðinni Orðfræðirit fyrri alda sem Orðabók Háskólans gefur út. Þar er ætlunin að gefa út á nýjan leik orðabækur og önnur orðfræðirit frá fyrri tíð og fjalla jafnframt um ur. -♦ ♦ ♦ Leiðrétting í síðasta sunnudagsblaði Morg- unblaðsins, í þætiinum Fólki í frétt- um, er frétt, sem ber fyrirsögnina „Kokkarnir nú með rétt tól og tæki“, er skýrt frá gjöf sem keppn- islið íslenskra matreiðslumanna hafi fengið frá Pétri Má Sigurðs- syni hjá ísbergi. Nafn Péturs Más misritaðist og er hann beðinn vel- virðingar á því. Ennfremur skolað- ist eitthvað til um lýsingu á gjöf- inni, þ.e. ofninum, sem hann gaf kokkunum. Ofninn er af gerðinni Rational og er blásursgufuofn, sem á að koma sér vel í undirbúningi undir næstu keppni liðsins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.