Morgunblaðið - 13.02.1992, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 13.02.1992, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 1992 Þjóðarsátt - atvinnu- vegir og heimilin eftir Eggert Haukdal Það er ánægjulegt til þess að vita að augu landsmanna eru að opnast fyrir hættunni sem atvinnu- lífínu stafar af of háum vöxtum og fjármagnskostnaði. Nú er svo kom- ið að sjálft bankakerfíð er í þröng. Nægir að minna á taprekstur Is- landsbanka fyrir hluta sl. árs og aðvörunarorð Landsbanka (Sverris Hermannssonar). Jafnvel banka- málaráðherra hefur látið hafa það eftir sér tvívegis í Morgunblaðinu, nú síðast 22. janúar, að vextir eigi að lækka. Öðruvísi mér áður brá. Mikiu máli skiptir þó gjörbreytt afstaða VSÍ með Einar Odd Krist- jánsson í broddi fylkingar. Forystan þar á bæ vill niður með vexti, svo að fyrirtækin geti borið sig. Örn Friðriksson, varaforseti ASÍ, hefur verið sama sinnis, og báðir telja þeir rétt að afnema lánskjaravísi- töluna. „Lögmál markaðarins" Málið er það, að bankar hafa lánað of mikið, en of lítið kemur inn. Vanskilin eru vaxandi. Þá er freistandi að klóra í bakkann og „Alþingi og ríkissljórn eiga að ganga á undan í sparnaði, hætta óþörfu ráðstefnuflakki með fríðu föruneyti, taka fyrir hlunnindi eins og dagpeninga, ráðherrabifreiðar o.fl. í þeim dúr. Slíkt fær hljómgrunn hjá þjóð- inni allri. Þessir hlutir virðast því miður vera svipaðir hjá öllum ríkis- stjórnum.“ hækka vextina. Það veldur enn meiri vanskilum og svo koll af kolli, unz vítahringur myndast. Þama hafa orðið hrein mistök og annað ekki. Þau verða ekki afsökuð með „lögmálum markaðarins“. Slík lög- mál gilda ekki þegar hagkerfíð er úr jafnvægi vegna halla á ríkis- rekstri, lántöku utanlands og seðla- prentunar. Þá er verð sett með „handafli", — verð vöru og þjón- ustu, einnig verð peninga, sem eru vextirnir. Öðrum Norðurlöndum hafa orðið á sams konar mistök. Morgunblaðið (sérblað ,,Viðskipti/Atvinnulíf“) komst svo að orði að norrænu bank- arnir hafi farið á „útlánafyllerí“ á árunum 1983-1987. Þess var getið til skýringar, að bankarnir hafi gleymt að hækka vextina. Við ís- lendingar gleymdum því ekki. Nafn- vextir urðu nærrí 80% á ári 1983 og héldust okurháir út nær allan níunda áratuginn og eru enn. Samt var útlánaaukningin viðstöðulaus. Ég tek fram, að lántakandinn verð- ur að borga verðbótaþátt vaxta engu síður en raunvexti. Aðrir gera það ekki fyrir hann. Og verðbólga hjálpar mönnum ekki í rekstri fyrir- tækja, þvert á móti. Peningastjórn vantar Að óbreyttu horfír ekki vel um áframhaldandi þjóðarsátt. Þess vegna vil ég leggja nokkuð til mál- anna. í orðum mínum felst ekki gagnrýni á núverandi ríkisstjórn, sem hefir ekki búið til efnahags- vandann í dag, heldur fengið hann að erfðum. Þar við bætist fyrirsjá- Virðisaukaskattur tjónabíla eftir Jónas Þór Steinarsson í grein Kristjáns Gr. Tryggvason- ar í Mbl. 21. þ.m. segir m.a.: „Tjón er verðmætarýrnun og sem slíkt getur það ekki verið virðisauk- askattskylt. Virðisaukaskatt ber einungis að greiða af verðmæta- aukningu, t.d. viðgerð á tjóni, þ.e. vinnu og varahlutum sem þarf til þess að auka verðmæti bíls á ný. Þegar bótaskylt tjón er metið hjá VÍS Tjónastöðini, er virðisauka- skattur reiknaður af viðgerðavinnu, varahlutum og málun. Virðisaukinn myndast hins vegar ekki fyrr en við viðgerð (við að verðmæti bílsins eykst á nýjan leik) og er þá greidd- ur samkvæmt reikningi.“ í minnisatriðum frá embætti rík- isskattstjóra um VKS og vátrygg- ingar frá 17. janúar 1990 segir: „Við sölu notaðrar fólksbifreiðar fyrir færri en níu menn — þó ekki ef um er að ræða bifreiðar sem notaðar hafa verið í bílaleigustarf- semi — má ákveða skattverð sam- kvæmt ákvæðum 10. gr. laganna. Þegar um tjónabíla er að ræða mið- ast kaupverð í skilningi ákvæðisins við áætlað verðmæti bifreiðarinnar í tjónaástandinu. Tekið skal fram að sé söluverð einhverrar bifreiðar lægra en kaupverð reiknast enginn skattur á sölu hennar." Þetta þýðir að varðandi virðis- auka er miðað við áætlað verðmæti bifreiðarinnar í tjónaástandinu. Ef tjónabifreið er síðan seld fyrir hærri upphæð, þá ber að greiða virðisauk- askatt. Höfundur er framkvæmdastjóri Bílgreinasambandsins. Jónas Þór Steinarsson anleg rýrnun landsframleiðslu af óviðráðanlegum orsökum. Brýnasta verkefnið að minni hyggju er að koma á virkri peninga- stjórn í landinu. Það getur ekki gengið lengur, að Seðlabankinn í skjóli svonefnds „vaxtafrelsis“ horfi upp á það máttvana og aðgerðar- laus, að vextir séu skrúfaðir upp úr öllu valdi til að mæta augnabliks- þörfum viðskiptabankanna. Meðan ekki er unnt að beita hefðbundnum stjómunaraðgerðum, verður Seðla- bankinn að hafa vald til þess að fastsetja vexti um stundarsakir, að sjálfsögðu með samþykki ríkis- stjórnarinnar allrar. Hann þarf og að fá vald til þess að spyma fæti við óhóflegum Seðlabankalán- um, sem auka peningaframboð og verðþenslu. Slíkar lántökur á Seðla- bankinn að geta takmarkað, bæði fjárhæð þeirra og tímalengd. í þessu skyni þarf að breyta Seðla- bankalögunum, sem er verk sér- fræðinga. Engin ráðstöfun er væn- legri til þess að mæta þörfum bæði atvinnurekenda og launþega — og þar með tryggja þjóðarsátt. En umfram allt þarf stjórn Seðla- bankans að vera í takt við lífið í landinu á hverjum tíma. Lagfærum skattakerfið Ég er samþykkur þeim sparnaði í ríkisrekstri, sem áformaður er, enda þótt huga þurfi betur að ýms- um þáttum heilbrigðisþjón- ustunnar. En betur má, ef duga skal. Fjárlagahalla verður ekki eytt nema skattalöggjöfin verði endur- skoðuð frá grunni. Sú endurskoðun -þarf að taka til bæði beinna skatta og óbeinna. Afnema verður syrpu undanþága sem gerir mögulegt að lækka skattana. Þarna er líka verk- efni sérfræðinga, sem þarf strax að taka til við. Spyija má af hveiju eru ekki tilbúin í fjármálaráðuneyt- inu drög að frumvarpi um breytingu á eignarsköttum, þ. á m. um fjár- magnsskatt sem raunar hefði mátt vera kominn. Hafa síðustu fjár- málaráðherrar sofíð á verðinum? Hefði ekki þurft að vinna meira, og hefði ekki líka þurft að vera búið að lagfæra með lögum, þannig að 900 milljónirnar væru ekki skatt- fijálsar á hveiju ári? Loks krefst húsnæðiskerfíð mikilla úrbóta. Drögum úr eyðslu Alþingi og ríkisstjórn eiga að ganga á undan í sparnaði, hætta .óþörfu ráðstefnuflakki með fríðu föruneyti og taka fyrir hlunnindi eins og dagpeninga, ráðherrabif- reiðar o.fl. í þeim dúr. Slíkt fær hljómgrunn hjá þjóðinni allri. Þessir hlutir virðast því miður vera svipað- ir hjá öllum ríkisstjórnum. Nægir að benda á hin gífurlegu ferðalög og dagpeninga hjá fyrrverandi stjórn. Verður þetta svipað hjá nú- verandi stjórn? Vonandi ekki. Þarna þarf þvert á móti að beita hnífnum svo um munar. Núverandi ríkisstjórn sýndi með reglugerð aðeins vilja tii að minnka bílafríðindi. Það var lítið, þótt segja megi að það hafi verið betra en ekkert. Ég hef gagnrýnt í mínum flokki hve lítið er tekið á þessum málum. Vil ég minna hér á það, að Við- reisnarstjórnin 1960 gerði ráðstaf- anir til þess að draga úr kjaraskerð- ingu launþega af völdum gengis- Iækkunar. Þeirra á meðal var stór- felld aukning á bótum almanna- trygginga, niðurgreiðsla á nokkrum vörutegundum og brottfelling tekj- uskatts af lágtekjum. Við getum ef til vill ekki veitt okkur slíka rausn á þessum síðustu og verstu tímum, en ýmislegt má þó með góðu móti gera. Sjálfstæðisflokkurinn er enn, ef ég veit rétt, flokkur allra stétta, ekki flokkur sérhagsmunahópa. Lækkun virðisauka Við gætum t.d. í fyrsta áfanga lækkað virðisaukaskatt á vörur matvöruverzlana, en fækkað und- anþágum. í öðrum og þriðja áfanga yrði skatturinn 5% á matvörur og 15% á aðrar vörur,, eins og við- gengst í öðrum Evrópulöndum. Verksvið Húsnæðisstofnunar mætti takmarka við félagslega íbúðakerfið, en færa aðra lánastarf- semi til banka og sparisjóða. Slíkt er tímabært núna, þegar þjóðin hefur í reynd hafnað húsbréfum, sem bera allt að 25% afföll, verð- bótaþátt og raunvexti. í sama anda mætti breyta námslánum úr svo- nefndum lánasjóði, sem eru verð- tryggð og hafa komið mörgum nemanum á kaldan klaka. Náms- styrkir til þeirra sem skara fram úr almennt eða í einstökum greinum eiga rétt á sér. Bankarnir bjóða Atta stórmeistarar á Reykjavíkurskákmótinu ___________Skák_____________ Margeir Pétursson NÍTJÁN ára gamall Letti, Alek- sei Shirov, er langstigahæsti keppandinn á Reykjavíkurskák- mótinu sem haldið er frá fyrsta til sextánda mars. Frami Shirovs á skáksviðinu hefur verið ótrú- lega skjótur, hann hefur unnið hvert mótið á fætur öðru undanf- arin tvö ár og er nú í 7.-10. sæti á alheimsstigalistanum á eftir þeim Kasparov, Karpov, Ivant- sjúk, Short, Anand og Gelfand. Reykjavíkurskákmótið hefur verið opið frá 1982, en nú hefur því verið breytt til fyrra horfs, þátttakendur eru aðeins tólf, þar af átta stórmeistarar. Stærsti sigur Shirovs á skáksvið- inu til þessa var á stórmótinu í Biel í Sviss sl. sumar, er hann hlaut 9‘A v. af 14 mögulegum, á undan þeim Bareev, Andersson, Lautier, Christiansen o.fl. Mánuði eftir Reykjavíkurskákmótið gefst Shirov í fyrsta sinn kostur á að mæta heimsmeistaranum. Það verður á móti í Dortmund í Þýskalandi, auk hans tefla þeir Kasparov, Ivant- sjúk, Anand, Kamsky, Salov, Bare- ev, Adams, Húbner og Piket. Vænt- anlega verður fróðlegt að sjá hvem- ig fremstu skákmönnum landsins vegnar gegn þessari nýju stór- stjörnu sem margir spá að muni keppa við þá ívantsjúk, Gelfand, Anand og Kamsky um það hver verði arftaki Kasparovs. Shirov er afar hvass og skemmti- legur skákmaður, minnir mikið á Mikhail Tal, fyrrum heimsmeistara, sem líka er frá Riga í Lettlandi. Meðalstig á mótinu verða 2.515 og það því í 11. styrkleikaflokki FIDE. Til að ná stórmeistaraá- fanga þarf sjö vinninga. Þátttak- endumir verða þessir: Aleksei Shirov, Lettl. 2655 Jóhann Hjartarson 2580 Vassilios Kotronias, Grikkl. 2560 Margeir Pétursson 2555 Helgi Ólafsson 2525 Jón L. Árnason 2515 Olivier Renet, Frakkl. 2495 Karl Þorsteins 2485 Stuart Conquest, Engl. 2485 James Plaskett, Engl. 2455 Hannes Hlífar Stefánsson 2455 Þröstur Þórhallsson 2415 Hinir erlendu keppendurnir á mótinu eru fremsti skákmaður Grikkja, Kotronias, sem náði óvænt öðm sæti á opna Reykjavíkurskák- mótinu 1988. Olivier Renet er næststerkasti skákmaður Frakka á eftir Lautier. James Plaskett er mun öflugri en stig hans gefa til kynna, varð t.d. Bretlandsmeistari í fyrra. Landi hans Stuart Conqu- est frá skákborginni frægu Hast- ings er aðeins alþjóðlegur meistari. Hann skortir einn áfanga úr lokuðu móti til að hreppa stórmeistaratitil- inn. Það má búast við að Conquest og íslenskir kollegar hans sæki áfangann fast, því boð á slík lokuð mót liggja svo sannarlega ekki á lausu. Aleksei Shirov varð í þriðja sæti á Hastingsmótinu um áramótin með 8R v. af 14 möguleg- um, á eftir þeim Bareev með 10R v. og Simen Agdestein með 9 v. Miklu munaði um afar klaufalegt tap Shirovs í aðeins 19 leikjum fyrir Agdestein. Hann var eini keppandinn á mótinu sem náði að leggja sigurvegarann að velli: Hvítt: Evgení Bareev Svart: Aleksei Shirov Slavnesk vörn 1. d4 - d5 2. c4 - c6 3. Rf3 - Rf6 4. Rc3 - e6 5. e3 - Rbd7 6. Bd3 - dxc4 7. Bxc4 - b5 8. Bd3 - Bb7 9. 0-0 - a6 10. e4 - c5 11. d5 - Dc7 12. dxe6 - fxe6 13. De2 - c4 14. Bc2 - Bd6 15. Rg5 - Rc5 16. f4 - h6 17. Rf3 - Rd3! Shirov er ætíð óhræddur við að feta tvísýnustu afbrigði þrætubók- arfræðanna. Þessi peðsfóm sást fyrst í viðureign tveggja lítt þekktra Rússa, Frolov og Sergei Ivanov árið 1989. 18. Bxd3 — cxd3 19. Dxd3 — 0-0 Ofangreind skák Rússanna tefldist 19. - Hd8 20. De2 - Bxf4 og eftir að svartur fékk peðið til baka var staðan u.þ.b. í jafnvægi. Shirov vill meira. 20. Khl - Had8 21. Rd4?! - Bc5! Bareev hefur greinilega talið þennan geysiöfluga leik ómöguleg- an. Ef nú 22. Rxe6 — Hxd3 23. Rxc7 — Hc8! er virk staða allra svörtu mannanna meira en nægi- legt mótvægi fyrir liðsmuninn. 22. Be3 - Rg4 23. Rce2 - Rxe3 24. Dxe3 - Hxd4! Laglegt, en fyrir nemanda Mik- hails Tal eru slíkar fórnir hreinn barnaleikur. 25. Rxd4 - Db6 26. Hadl - Hd8 27. f5 - Hxd4 28. Hxd4 - Bxd4 29. Db3 - Bxe4 30. Dxe6+ 30. fxe6 - Dc6 31. e7+ - Kh7 veldur engum usla svo hvítur fer

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.