Morgunblaðið - 13.02.1992, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 1992
25
Líbýumenn óttast árás
og styrkja loftvarnirnar
Samcinuðu þjóðunum. Reuter.
LÍBÝUMENN óttast að Bandaríkjamenn og Bretar séu að undirbúa
loftárásir á Líbýu og eru því að styrkja loftvarnir sínar og fela
eldflaugar sínar, að því er bandaríska dagblaðið Washington Tim-
es hafði eftir bandarískum leyniþjónustumönnum í gær.
Leyniþjónustumennirnir sögðu
að Líbýumenn væru að styrkja loft-
varnir sínar í grennd við Tripoli
þar sem þeir byggjust við hernaða-
raðgerðum af hálfu Bandaríkja-
manna og Breta. Þeir hefðu einnig
flutt Scud-eldflaugar sínar til af-
skekktra staða og falið þær. Líbýu-
menn eiga áð minnsta kosti 80
Scud-eldflaugar.
Heimildarmenn í höfuðstöðvum
Sameinuðu þjóðanna sögðu í gær
að Líbýumenn væru nú reiðubúnir
að leyfa frönskum yfirvöldum að
yfirheyra fjóra líbýska leyniþjón-
ustumenn sem grunaðir eru um
að hafa komið fyrir sprengju í
franskri farþegaþotu sem sprakk
í loft upp yfir Afríkuríkinu Níger
árið 1989 með þeim afleiðingum
að 171 maður beið bana. Þetta
hefði komið fram í bréfi sem Líbýu-
menn hefðu sent Boutros Boutros-
Ghali, framkvæmdastjóra samtak-
anna, til að svara ályktun öryggis-
ráðsins frá 21. janúar þar sem
þess var krafist að Líbýumenn
aðstoðuðu við rannsóknir hryðju-
verkamála. Ekki var ljóst hvort
Líbýumenn vildu framselja menn-
ina fjóra til Frakklands eða hvort
þeir yrðu yfirheyrðir annars stað-
ar. Einn af fjórmenningunum er
mágur Muammars Gaddafis Líbýu-
leiðtoga.
Heimildarmennirnir sögðu að
framkvæmdastjórinn hefði verið
beðinn að koma á einhvers konar
tengslum Líbýustjórnar við banda-
rísk og bresk stjórnvöld vegna
kröfu þeirra um framsal tveggja
Líbýumanna sem eru grunaðir um
að hafa komið fyrir sprengju í
bandarískri farþegaþotu sem
sprakk í loft upp yfir skoska bæn-
um Lockerbie árið 1988 með þeim
afleiðingum að 270 týndu lífí.
Beiðnin var lögð fram vegna þess
að Líbýumenn hafa ekki stjórn-
málasamband við Bandaríkin og
Bretland. Bréf Líbýumanna er tal-
ið til marks um að þeir séu nú
samvinnuþýðari í þessu máli en
áður.
Lögfræðingur mannanna
tveggja sagði í gær að réttarhöld
yfir þeim gætu farið fram utan
Líbýu en þó ekki í Bandaríkjunum
eða Skotlandi.
Gull og Silfur
Reuter
Þessar tíræðu tvíburasystur slógu í gegn í Japan nýlega er þær
komu fram í sjónvarpsauglýsingu, sem vakti mikla athygli. Þær
heita Kin (Gull) og Gin (Silfur) og eru nú að vinna að geisladisk
með barnalögum úr ýmsum áttum. Myndin var tekin af systrunum
á heimili Kins.
Góðar líkur taldar á sam-
komulagi um EES fyrir helgi
Gengið frá sérstakri bókun um tollaívilnanir vegna útflutnings á sjávarafurðum
Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
GÓÐAR líkur eru taldar á því eiginlegum fundi yfirsamninga-
að gengið verði frá samningnum
um Evrópskt efnahagssvæði
(EES) á morgun, föstudag, á sam-
Fjórðungur bandarískra
lækna háður fíkniefnum?
Chicago. The Daily Telegraph.
ALLT að fjórðungur bandariskra lækna er háður lyfjum, áfengi
eða fíkniefnum, samkvæmt því sem félagsfræðingur á sviði læknis-
fræði sagði í gær.
„Það kemur allt of oft fyrir að
þeir eru í vímu við aðgerðir og
muna ekki eftir einstökum atrið-
um þeirra eftir á,“ segir dr. Ro-
bert Coombs sem starfar við Kali-
forníuháskóla. „Þetta stafar með-
al annars af því hvað það er furðu-
lega auðvelt fyrir lækna að verða
sér úti um maríúana, kókaín og
hvers kyns róandi lyf,“ sagði dr.
Coombs á fundi hjá Bandaríska
vísindafélagiuu í Chicago.
„Læknar þurfa ekki á lyfseðl-
um að halda, þeir hreinlega
hnupla öllum þeim eiturlyfjum
sem þeir kæra sig um á spítalan-
um þar sem þeir vinna,“ sagði dr.
Coombs enn fremur. „Þetta veldur
því að eiturlyfjaneysla er miklu
algengari meðal lækna en al-
mennings yfirleitt."
Coomb sagðist þó ekki telja að
þetta þyrfti endilega að draga úr
gæðum læknisþjónustunnar.
nefnda Evrópubandalagsins (EB)
og Fríverslunarbandalags Evr-
ópu (EFTA), sem fram fer í
Brussel. Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins liggja fyrir drög
að samkomulagi um fyrirkomu-
lag dómstóla og eftirlitsstofnana
EES. Þá hefur verið gengið frá
sérstakri bókun er kveður á um
tollaívilnanir vegna útflutnings á
sjávarafurðum frá aðildarríkjum
EFTA. Islendingar tóku upp við-
ræður við fulltrúa EB að nýju
um gagnkvæm skipti á veiðiheim-
ildum á þriðjudag.
Með tilboði íslenskra stjórnvalda
um skipti á 3.000 tonnum af karfa
fyrir 30.000 tonn af loðnu er það
mat embættismanna Evrópubanda-
lagsins að þar með hafí síðustu al-
varlegu hindruninni fyrir EES-
samningi verið rutt úr veginum að
frátöldum þeim kafla samningsins
sem Qallar um dómstóla. Á mánu-
dag náðist samkomulag um bókun
9 við EES-samninginn sem fjallar
um samskipti á sviði sjávarútvegs.
Jafnframt var bætt við nýrri bókun,
bókun 46, sem ijallar um framvindu
samstarfs EFTA og EB á sviði sjáv-
arútvegsmála. Samkvæmt henni er
gert ráð fyrir að bókanirnar verði
endurskoðaðar á tveggja ára fresti
með það m.a. fyrir augum að út-
víkka samstarfíð.
í bókun 9 er kveðið á um tolla-
ívilnanir vegna útflutnings á sjávar-
afurðum frá aðildarríkjum EFTA.
Samkvæmt þeim ívilnunum verður
mestur hluti útfluttra sjávarafurða
frá íslandi til Eyrópubandalagsins
nánast tollfijáls. í bókuninni er jafn-
framt kveðið á um aðgang EB-flot-
ans að höfnum og þjónustu innan
EFTA en hann hefur að mestu ver-
ið útilokaður frá þeim til þessa.
Bókunin kveður sömuleiðis á um
að sömu upprunareglur skuli gilda
um útfluttar sjávarafurðir frá
EFTA-ríkjum til EB og kveðið.er á
um í tvíhliða samningi EB við Fær-
eyinga. Þá eru og í bókuninni
ákvæði vegna ríkisstyrkja í sjávar-
útvegi þar sem lagt er bann við
styrkjum sem skekkja samkeppni,
kveðið er á um markaðsfyrirkomu-
lag sjávarafurða og undirboð á
mörkuðum. Ekki tókst að ljúka
samningum við Norðmenn um
flutning á sjávarafurðum með bílum
í Noregi en í bókuninni er gert ráð
fyrir að ljúka þeim samningum fyr-
ir lok þessa árs. Af hálfu EB er það
skilyrði fyrir því að bókunin taki
gildi.
í dag, fimmtudag, fjalla fastafull-
trúar aðildarríkja EB um þau sam-
komulagsdrög sem liggja fyrir en
afstaða þeirra getur ráðið úrslitum
um niðurstöðu viðræðnanna. Á
fundi yfírsamninganefnda EFTA og
EB á morgun verður reynt að binda
endahnútinn á EES-viðræðurnar og
er þess vænst að samningamenn
setji upphafsstafí sína undir sam-
komulagið því til staðfestingar. Hér
í Brussel er varað við óhóflegri
bjartsýni en nokkrir viðmælendur
bentu á að morgundagurinn væri
dagur heilags Valentínusar og
hugsanlegt væri að góð áhrif þess
mæta dýrlings gerðu gæfumuninn.
SIEMENS
Með SIEMENS heimilistœkjum verður lífið léttara!
Traustir umboðsmenn okkar
• Akranes: Rafþjónusta Sigurdórs, Skagabraut 6.
• Borgarnes: Glitnir, Fálkakletti 13.
• Borgarfjöröur: Rafstofan Hvítárskála.
• Hellissandur: Verslunin Blómsturvellir, Munaðarhóli 25.
• Grundarfjöröur: Guðni Hallgrímsson, Grundargötu 42.
• Stykkishólmur: Skipavík, Hafnargötu 7.
• Búöardalur: Versl. Einars Stefánssonar, Brekkuhvammi 12.
• ísafjöröur: Póllinn hf., Aðalstræti 9.
• Blönduós: Hjörleifur Júlíusson, Ennisbraut 1.
• Sauöárkrókur: Rafsjá hf., Sæmundargötu 1.
• Siglufjöröur: Torgið hf., Aðalgötu 32.
• Akureyri: Sír hf., Reynishúsinu, Furuvöllum 1.
eru víðs vegar um landið!
• Húsavík: öryggi sf., Garðarsbraut 18a.
• Þórshöfn: Norðurraf, Langholti 3.
• Neskaupstaöur: Rafalda hf., Hafnarbraut 24.
• Reyöarfjöröur: Rafnet, Búðareyri 31.
• Egilsstaöir: Raftækjav. Sveins Guðmunds., Kaupvangi 1.
• Breiödalsvík: Rafvöruv. Stefáns N. Stefánss., Asvegi 13.
• Höfn í Hornafiröi: Kristall, Hafnarbraut 43.
• Vestmannaeyjar: Tréverk hf., Flötum 18.
• Hvolsvöllur: Kaupfélag Rangæinga, Austurvegi 4.
• Selfoss: Árvirkinn hf., Eyrarvegi 29.
• Garöur: Raftækjav. Sigurðar Ingvarssonar, Heiðartúni 2.
• Keflavík: Ljósboginn, Hafnargötu 25.
C </>
3 ^
°1
o o*
1=8
io
il!
o5
Q Q'
§ft
3
qS
=SO
Q^
3
Q.