Morgunblaðið - 13.02.1992, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 13.02.1992, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 1992 23 íslandsferðir: Hvalveiðum mótmælt í kynningarriti Kneissls ZUrich. Frá Önnu Bjarnadóttur, fréttaritara Morgunbiaðsins. KNEISSL-ferðaskrifstofan Austurríki styður baráttu Greenpeace gegn hvalveiðum með heilsíðuauglýsingu í kynningarriti sínu um ferðir til Norðurlanda og Bretlandseyja sumarið 1992. „Auglýsingin beinist ekki gegn Islandi, Nor- egi eða Japan,“ sagði Christian Kncissl, eigandi skrifstofunnar í samtali við Morgunblaðið. „Hún snýst um hvali og ég er á móti hvalveiðum.“ Litskrúðugur lundi prýðir forsíðu kynningarritsins og Gull- foss með fyrirsögninni „Island ist „in““ (ísland er ,,in“) er á baksíðu. Fyrstu 40 síður ritsins fjalla að mestu um íslandsferðir og ísland. Ferðir til hinna Norðurlandanna eru kynntar þar á eftir. Á blaðsíðu 62 er síðan heilsíðuáminning frá Greenpeace í Austurríki um hætt- una sem hvölum stafar af sjávar- mengun, netum og hvalveiðum. í auglýsingunni segir að Japan, ísland, Noregur og Sovétríkin geri allt sem þau geta til að veiðibanni á hvölum verði aflétt og hrefnu- veiðar í auðgunarskyni geti hafíst á ný. Austurrískir Grænfriðungar krefjast með rauðu letri að vísinda- veiðum (í gæsalöppum) verði hætt og bæta við að viðskiptaveiðar megi aldrei hefjast á ný. Kneissl sagði að það væri nokk- uð langt gengið að nota „aldrei" í sambandi við viðskiptaveiðar þar sem að enginn vissi hvað framtíð- in ber í skauti sér en hann sagðist vera sammála auglýsingunni að öðru leyti. „Veiðimenn alls staðar neita að það sem þeir veiða sé í útrýmingarhættu,“ sagði hann. „Ég er enginn sérfræðingur en það er örugglega ekki hvalnum að kenna þótt eitthvað minna veiðist við íslandsstrendur. Ofveiði á fpek- ar sök á því en hvalir.“ Um 2.000 Austurríkismenn komu til íslands með Kneissl- ferðaskrifstofunni á síðasta ári. Alís um 5.000 austurrískir ferða- menn komu til landsins í fyrra. Kneissl hefur verið gagnrýndur fyrir að flytja mat með ferðamönn- unum til landsins og leiðsögu- menn. Hann sagði að gagnrýnin hefði ekki átt neinn þátt í því að hann ákvað að styðja baráttu Gre- enpeace gegn hvalveiðum með því að gefa þeim síðu í kynningarrit- inu fyrir áróður þeirra. „Eg er náttúruvinur og styð baráttu Gre- enpeace gegn hvalveiðum á þenn- an hátt,“ sagði hann. „Ég er ný- kominn frá Suður-Kaliforníu þar sem ferðir til að sjá hvali eru seld- ar ferðamönnum. Hvalaskoðunar- ferðir eru líka vinsælar á Hawaii. Ég hef nefnt við íslendinga að það ætti að nota hvalina sem aðdrátt- arafl fyrir ferðamenn. En hvalirnir eru sagðir of langt undan strönd- um. Það gæti verið af því að þeir voru svo lengi veiddir við ísland að þeir koma þangað ekki lengur. Þeir koma kannski nær landi með tíð og tíma og þá verður hægt að sýna ferðamönnum þá. Það er ánægjulegra að sjá þá í náttúru- legu umhverfi en sundurskorna í hvalstöð.“ Auglýsingin frá Greenpeace. ■ FUNDUR haldinn á Selfossi föstudaginn 7. febrúar 1992 að tilhlutan Fræðsluráðs Suður- lands með oddvitum og skóla- nefndarformönnum á Suðurlandi mótmælir harðlega þeim niður- skurði í skólastarfinu sem Alþingi samþykkti á ijárlögum ársins 1992. Fundurinn lítur svo á að með niðurskurði þessum sé frek- lega brotið samkomulag sem gert hefur verið um samstarf ríkis og sveitarfélaga og skorar því á stjórnvöld að draga til baka niður- skurð sinn á launakostnaði skól- anna. Athugasemd frá Landsbanka Islands VEGNA fréttar í Morgun- blaðinu 12. þ.m. vill Lands- banki íslands koma eftirfar- andi á framfæri: Samkvæmt upplýsingum for- stöðumanns Ríkisábyrgðasjóðs, Haralds Andréssonar, getur Tryggingadeild útflutningslána ekki enn tryggt endurgreiðslu útflutningslána, vegna útflutn- ings saltsíldar á Rússlands- markað. Það mun stafa af því að hinn rússneski samningsaðili Síld- arútvegsnefndar hefur ekki enn getað fullnægt því skilyrði samningsins við Síldarútvegs- nefnd að leyfi fáist hjá rússn- eskum stjórnvöldum til útflutn- ings á vörum til íslands. Samn- ingur Síldarútvegsnefndar er þar af leiðandi ekki virkur eins og málum háttar nú. Það skal tekið fram að þetta er ekki túlkun Landsbanka á stöðu þessa máls, heldur er hér aðeins verið að hafa það eftir, sem forstöðumaður Ríkis- ábyrgðasjóðs hefur upplýst starfsmenn Landsbankans um, er þeir hafa spurts fyrir um hvenær útfiutningstryggingarn- ar kæmu til framkvæmda. Ef einhver misskilningur er einhversstaðar ríkjandi í máli þessu er hans annars staðar að leita en í Landsbankanum. Sé ávöxtun Einingabréfa 1 fyrir janúar framreiknuð fyrir heilt ár nema vextirnir 7,6% umfram verðbólgu. Einingabréf er hægt að kaupa fyrir hvaða upphæð sem er og þau eru ávallt innleysanleg. Þau fást hjá öllum sparisjóðum, Búnaðarbanka Islands, Kaupþingi hf. Reykjavík og Kaupþingi Norðurlands hf. á Akureyri. KAUPÞING HF Löggilt verðbréfafyrirtœki Kringlunni 5, sími 689080 I eigu Búnaðarbanka íslands og sparisjóðanna ÚTSALAN Í FULLUM GANGI °VV oppskórinn VELTUSUNDI • SIMI: 21212 Ath.: Nýtt kortatímabif hefst ídag

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.