Morgunblaðið - 08.03.1992, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 08.03.1992, Blaðsíða 14
14' C } seer sham .8 auoAauMvius cHGAjanuoHor MORGUNBLAÐIÐ -SUNNUDAGUR '8. MARZ 1W eftir Urði Gunnarsdóttur „NEI, ÉG er ekki hjúkrun- arfræðingur,“ segir hún eins og afsakandi, „ég er hag- fræðimenntuð“. Helga Val- fells hefur oftar þurft að leiðrétta þennan misskilning um starfsvettvang sinn en hún hefur tölu á. Hún er nýlega komin heim eftir hálfs árs dvöl í Gíneu þar sem hún vann að matvæla- dreifingu fyrir Rauða kross- inn. Helga, sem er 27 ára, hafði aðeins verið rúma viku á Veraldarvakt Rauða krossins þegar hún var send til hjálparstarfa. Það er fróðlegt að heyra frásögn ungrar konu af starfi í landi þar sem um 80% landsmanna eru múhameðstrúar og eiga fremur von á því að íslenska stúlkan geti læknað þá en skipulagt matvæladreifingu. DÖGUM SÍÐAR VAR ÉG í GÍNEU Matvæladreifingin vakti jafnan mikla athygli í þorpunum. Konurnar fremst á myndinni bíða þess að fá mánaðarskammt en utan girðingarinn- ar fylgist fjöldi fólks með enda lítið um að vera í þorpunum þegar dreifingunni sleppti. Gengið frá mánaðarskammti fyrir 50 manns af sykri og salti. í balan- um til hægri er hluti af baunaskammtinum. Fyrir aftan sést í tómar matarolíutunnur. Eg hef lengi haft áhuga á hjálpar- starfi en hélt eins og svo margir aðrir að einungis læknar o g hjúkrunarfólk sinntu því á vegum Rauða krossins. Fyrir forvitni sakir spurðist ég fyrir um þetta og var þá sagt að einnig væri þörf fyrir fólk úr öðrum starfs- stéttum. Ég sótti því námskeið fyrir sendifulltrúa sem Rauði krossinn hélt síðasta vor, ein fárra sem ekki voru úr heilbrigðisstéttunurn. Þarna sátum við tvær stúlkur frá íslands- banka, vissar um að röðin kæmi aldr- ei að okkur. Þremur dögum eftir að námskeiðinu lauk, va_r stallsystir mín hins vegar á leið til írak, tíu dögum síðar var ég komin til Gíneu,“ segir Helga. Stallsystir hennar starfar nú við matvæladreifingu í Gíneu en auk þess er íslendingur við hjálparstörf á Fílabeinsströndinni. Sá tími sem Helga fékk til und- irbúnings, liðlega vika, mun vera óvenju rúmur undirbúningstími, þeir sem eru á Veraldarvakt Rauða krossins fá allt niður í eins dags fyrirvara. Helga starfaði sem ráð- gjafí við Verðbréfamarkað íslands- banka þegar Gíneuförin kom til og fékk þegar frí frá störfum. Hélt svo til lands, sem hún vissi fátt annað um en að væri i Vestur-Afríku og að þar ætti hún að vinna að mat- væladreifingu. GETUR ÞÚ AÐSTOÐAÐ MIG, HJÚKRUNARKONA? Rúm 80% Gíneubúa eru múslimar og franska er opinbert tungumál. Helga segist vissulega hafa kviðið þessu tvennu, „ég var orðin ryðguð í frönskunni og fyrstu tvær vikurnar þagði ég þegar enginn skildi ensku. Þá leist sumum samstarfsmönnun- um hreint ekki á að fá einhvern stelpukrakka til starfa, sögðu að múslimamir bæru enga virðingu fyr- ir konum og hefur eflaust heldur ekki litist á hversu ung ég er. Reynd- in varð allt önnur, Gíneubúarnir voru jafnvei enn kurteisari við mig en Starfmenn gíneíska Rauða krossins skrifa niður nöfn flóttamanna þegar þeir ná í matarskammtinn. í N’Zerekore fór skráningin fram í hálfbyggðri mosku. ■ Skoðun mín er sú að betra sé að gefa öllum eitthvað af matr einnig þeim sem ekki þurfa nauðsynlega ú hon- um að halda, frem- ur en að sleppa ein- hverjum sem þarfn- ast aðstoðar. karlmennina. Mér var sagt að það kæmi mér aðallega til góða að vera hvít og að starfa fyrir Rauða kross- inn, sem allir þekkja. Sömu menn og efuðust um ágæti þess að kona kæmi til starfa töldu að ég ætti eingöngu að starfa á skrifstofu Rauða krossins en koma ekki nærri matvæladreifíngunni. Ég fékk þó fljótt að reyna mig og síðar bættust fleiri konur í hópinn. Hann var fjölbreytilega samansettur, auk mín voru franskur jarðfræðingur, lögfræðingur landi hans, bandarísk kona, sem var lærður skógræktar- fræðingur en hafði fallhlífarstökk að atvinnu, rúmenskur verkfræðing- ur, kólumbískur félagsfræðingur, ít- alskur meðferðarfulltrúi og við- skiptafræðingur frá Benín. Það, að við skyldum vinna fyrir Rauða kross- inn, sannfærði marga um að við værum læknar og hjúkrunarkonur, ég var oft beðin um aðstoð, þar sem viðkomandi væri með bronkítis eða einhvern annan sjúkdóm.“ Gínea er á vesturströnd Afríku, um tvöfalt stærri en ísland. { ná- grannaríkinu Líberíu hefur staðið yfir blóðug borgarastyijöld frá árs- lokum 1989, sem er ekki að fullu lokið. Um ein milljón manna hefur flúið landið frá 1990 til Gíneu, Fíla- beinsstrandarinnar og Sierra Leone, sem er milli Gíneu og Líberíu. Þegar Líberíuher réðist inn í Sierra Leone 1991, jókst flóttamannastraumurinn enn til austurhéraða Gíneu, alls hafa um 440.000 manns flúið til Gíneu. Sameinuðu þjóðirnar hafa að mestu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.