Morgunblaðið - 08.03.1992, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 08.03.1992, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. MARZ 1992 --,----,—,-------i—;---;—i-------—r- C 15 séð um að útvega matvæli til flótta- mannanna og að skrá þá en Rauði krossinn hefur séð um dreifingu matvælanna. Helga segir eitt stærsta vandamálið sem upp kom hafa tengst skráningunni. Til að fá mat, urðu flóttamennirnir að láta skrá sig og þar með sanna að þeir væru raunverulega flóttamenn. „Stór hluti fólks er hins vegar ekki læs, margir kunna ekki á kerfið og erfitt er að ná til þeirra. Því voru ekki allir flóttamennirnir skráðir og fengu þar af leiðandi ekki mat. Það var ákaflega erfitt að horfa upp á. Skoðun mín er sú að betra sé að gefa öllum eitthvað af mat, einnig þeim sem ekki þurfa nauðsynlega á honum að halda, fremur en að sleppa einhverjum sem þarfnast aðstoðar. Þá gerði það okkur erfiðara fyrir að einungis lítill hluti flóttafólksins var í flóttamannabúðum, flestir sett- ust að í þorpum í austurhluta Gíneu. Margir Líberíumanna voru af sömu ættbálkum og Gíneubúar og áttu jafnvel ættingja þar. Gíneumenn eru fátækir, þó þeir veki jafnan athygli á því að þeir hafi verið fyrstir til að sjá flóttafólkinu fyrir mat. Og að sjálfsögðu kom upp togstreita milli flóttafóiks og heimamanna, mörgum Gíneubúum þótti hart að sjá flóttafólk fá mat gefins, þegar þeir þurftu að vinna fyrir honum. Þá áttu margir í málaerfiðleikum, þar sem enska er opinbert mál í Líberíu en franska í Gíneu.“ FLÓTTAMAÐURINN ER ÆVINLEGA Á LEIÐINNI HEIM Helga segist hafa ímyndað sér að í starfi sínu í Gíneu myndi hún standa andspænis hungri og van- næringu. Þegar til kom hafi ástand- ið hins vegar ekki verið svo slæmt. „Það var að miklu leyti að þakka ^ ^ « - M Morgunblaðið/Sverrir Helga Valfells: „Þegar rætt er um neyðarhjálp verður að hafa það í huga að flóttamaðurinn er alltaf á leið heim, hann er sjaldnast reiðubú- inn að setjast að í landinu sem hann hefur flúið til.“ enn, lýkur tæplega á meðan bylting- armaðurinn Charles Taylor er enn í Líberíu. Atökunum hefur hins vegar að mestu linnt og hluti flóttamann- anna snúið aftur. Því hefur lítið bor- ið á fréttaflutningi frá Líberíu, sem gerir Rauða krossinum erfitt fyrir með fjáröfiun. Það gefur augaleið að það er erfiðara að fá fólk til að leggja fram fé til landa, sem það hefur litla hugmynd um hvernig ástatt er um.“ í fréttum frá Líberu var áberandi hversu mikil grimmd hefði ríkt í stríðinu þar. Helga segir að þrátt fyrir grimmdina hafi fólk sýnt ótrú- lega ró og verið sátt við hlutskipti sitt. „Það var til dæmis óneitanlega sérstakt að sjá hvað níu ára gömul stúlka var róleg þegar hún lýsti því hvernig uppreisnarmenn myrtu móð- ur hennar og fleiri konur að henni ásjáandi." Rauði krossinn hafði bækistöð í N’Zerekore, sem er stærsti bærinn á svæðinu sem flóttamennimir voru á. „Já bær, þarna búa um 200.000 manns en samt þótti mér staðurinn miklu minni en Reykjavík," segir Helga. Vel var búið að starfsmönn- um Rauða krossins, sem bjuggu í steinhúsum. „Mér leist nú ekkert óskaplega vel á húsakostinn þegar ég kom, en það breyttist fljótt, ekki síst eftir að hafa sér hvemig aðrir bjuggu." I N’Zerekore varð Helga vitni að blóðugu stríði milli ættbálka sem stóð í tvo daga. Hún segist ekki hafa verið í hættu en hélt sig þó innandyra báða dagana, enda voru tæplega 400 manns myrtir. „Mér kom einna mest á óvart hversu fljótt daglega lífið komst í sama horf og fyrir þessar eijur, rétt eins og allt væri í lagi. Þetta æðruleysi var í sérkennilegri andstöðu við þá til- hneigingu fólks að ýkja hlutina svo fram úr hófí að erfitt var að átta sig Líberískir flóttamenn veifa matarmiðum við matardreifinguna til að sýna fram á rétt sinn til að fá mat. Morgunblaðið/Helga Valfells þeirri matvæladreifíngu sem þegar var hafin, svo og því fólki sem hafði aðstoðað flóttamennina, sem margir voru úr sömu ættbálkum. En vissu- lega var mikill skortur meðal flótta- mannanna og frá því að ég kom og þar til ég fór sá ég mikla breytingu til batnaðar." Skráðir flóttamenn voru um 230.000 og starf Rauða krossins var að skipuleggja dreifmgu, dreifa mat- vælum og þjálfa starfsmenn gíneska Rauða krossins til að taka yfír starf- semina. Erfitt reyndist að halda tímaáætlun þar sem hópurinn þurfti yfir vonda vegi að fara og takast á við vandamál sem upp komu á hvetj- um stað. Til dæmis var erfitt að koma í veg fyrir þjófnað, en Helga segir veru alþjóðlegra hjálparstofn- ■ Þad kom mér ékaflega é óvart að sumt flóttafólkiÖ skyldi afþakka það sem að því var rétt. Ég hofði ímyndað mér allt annað en að flóttafólk væri kræsið. ana hafa dregið mjög úr slíku. „Oft hefur verið deilt á hjálparstofnanir fyrir að þær gefi fólki mat til lengri tíma, í stað þe_ss að aðstoða fólk til sjálfshjálpar. I Gíneu hefur verið reynt að aðstoða Líberíumenn við að rækta matvæli en það gekk ákaf- lega illa. Ástæða þess er sú að flótta- fólk er flestallt á leiðinni heim og fínnst ekki taka því að koma sér fyrir og hefja ræktun.“ GRIMMILEG STYRJÖLD Héruðin þar sem Helga vann að matvæladreifingunni eru nálægt átakakasvæðum í Sierra Leone og Líberíu og því heyrðust skothvellir og sprengingar glöggt yfir landa- mærin. „Þessu stríði er ekki lokið á hvað var að gerast eða hafði gerst.“ Helga segir það sérstakt að koma til Gíneu, því þangað koma nær éngir ferðamenn og þar eru lítil merki vestrænnar menningar. „Gínea var lokað land til ársins 1984, en þá lést Seko Touré sem hafði verið einvaldur frá 1958. Síðustu árin hefur herforingjastjórn verið við völd og landið hefur opnast nokkuð, þó minna en mörg nágrannaríkin, t.d. Líbería, en þar eru bandarísk áhrif mjög greinileg. Fjöldi fólks hafði sjaldan séð hvíta manneskju fyrr og mér leið stundum einS og furðuveru innan um fólkið sem hóp- aðist í kringum okkur. Það var ævin- lega einhver sem vildi spjalla við okkur og spyija okkur spjörunum úr, enda þótti það megnasta ókurt- eisi að láta okkur ein. Sjálfri fannst mér óþægilegast hversu mikill mun- ur var á mér, sem hafði allt til alls, og fólksins sem átti varla til hnífs og skeiðar.“ EKKI SAMA HVAÐAN GRJÓNIN KOMA Þau matvæli sem dreift var voru að megninu til hrísgijón, en einnig var dreift baunum, niðursoðnum fiski, kjöti, tómötum og jurtaolíu auk teppa. „Miklu máli skipti að dreifa mat sem fólk þekkti. Eitt skiptið var gefinn farmur af fiskimjöli, sem fólk- ið borðaði þurrt og drakk svo ókjör- in öll af vatni ofan í til að slökkva þorstann. Það var ekki að sökum að spyija, langflestir urðu fárveikir. En hrísgijónin skiptu mestu máli, fólk varð helst að fá hrísgijón í hvert mál. Til að eyðileggja ekki markaði Gíneumanna, voru keypt af þeim hrísgijón. Líberíumennirnir fúlsuðu sumir við þeim framan af og vildu miklu fremur bandarísk hrísgijón. Þeir eru ákaflega hallir undir allt sem bandarískt er, t.d. stutterma- boli með alls kyns vörumerkjum á. Það var ákaflega sérkennilegt að sjá blátæka flóttamenn spóka sig í Gucci-bolum. Það kom mér ákaflega á óvart að sumt flóttafólkið skyldi afþakka það sem að því var rétt. Eg hafði ímyndað mér allt annað en að flótta- fólk væri kræsið. En fulltrúar flótta- mannanna voru oft efnameiri og menntaðri en lunginn af flóttamönn- unum og bjuggu jafnvel við betri aðstæður. Þeir þurftu síður á mat- vælaaðstoð að halda og samþykktu því ekki hvað sem var.“ FÉLAGSLYNDI OG ÞOLINMÆÐI Það má ljóst vera af þessari frá- sögn Helgu að hagfræðimenntun hennar hafi ekki verið það sem mest reyndi á, heldur miklu fremur á mannlega eiginleika. „Þeir sem eru í hjálparstarfi verða að vera félags- lyndir og þolinmóðir. Maður er sjald- an einn og það kemur sífellt eitthvað óvænt upp á, eitthvað sem kemur í veg fyrir að hlutirnir gangi eins og áætlað er. Ég kynntist íjölda fólks á þeim tíma sem ég var í Gíneu og það var mér mikils virði, ekki síst að kynnast Gíneubúum og Líberíu- mönnum. Við lærðum af hvert öðru, ég um landið þeirra og þeir um ísland, því ég nýtti mér hvert tækifæri til .að stunda landkynn- ingu. Þjóðerniskennd Gíneubúa er mjög sterk og minnir um margt á okkur íslendinga enda var mér sýndur meiri skilningur og áhugi þegar ég sagði fólki frá því að Island hefði verið nýlenda, rétt eins og Gínea.“ Helga var 27 ára þegar hún lagði upp í þessa ferð, einhleyp og barn- laus, segist ekki hafa getað farið með svo skömmum fyrirvara ef hún hefði verið búin að festa ráð sitt. En hvað var breytt þegar hún sneri aftur? „Aðallega hugniyndir mínar um þriðja heiminn. Ég hafði gert mér þær ranghugmyndir að þar væri mikið öryggisleysi, allir væru þar fátækir og óhamingjusamir. Auðvitað blöskraði mér margt, þorri fólks er ólæs og réttarríkið og her- stjórnin setja mark sitt á land og .þjóð. En mér fannst sérstaklega gaman að uppgötva hversu ólíkir Afríkublökkumenn eru blökkumönn- um í Bandaríkjunum. Þeir síðar- nefndu eru svo miklu meðvitaðri um það að þeir séu dökkir á hörund en blökkumenn í Gíneu, sem hafa ekki upplifað kynþáttamisrétti á sama hátt. Vinnan í Gíneu var mér hollur skóli og færði mér sanninn um að heimurinn fer minnkandi, við fær- umst nær hvert öðru. Enn er þó óravegur milli okkar hér á Norður- hveli, þar sem tal um kreppu tröllríð- ur öllu og allt er svo flókið, og íbúa Gíneu þar sem lífið er einfaldara og að mörgu leyti eðlilegra. Þar er maður annaðhvort glaður eða leiður, svangur eða ekki. Ég fæ ekki séð að velmegunin hafi gert okkur mikið hamingjusamari en fólk sem á varla fyrir mat.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.